Morgunblaðið - 21.07.1987, Blaðsíða 8
8 B
gBwrgnnMaMfr /ÍPRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Þórsarar nýttu færín
og unnu sanngjamt
SIGUR Þórs á Fram var sann-
gjarnt en í stærra lagi og þrjú
marka Akureyringanna voru
furðuleg. Baráttan var í fyrir-
rúmi í leiknum; hann bar keim
af því hve mikilvægur hann var
fyrir báða aðila og gæði knatt-
spyrnunnar voru því minni fyrir
vikið.
Leikurinn fór rólega af stað,
áberandi hve taugaveiklun var
mikil í báðum liðum, en eftir fyrsta
stundarfjórðunginn tóku Framarar
•■■■■i kipp. Þeir fengu
FráStefáni mikinn frið, völdun-
Amaldssyni in hjá Þór var ekki
áAkureyrí nógu sannfærandi
og Pétur skoraði þá
mark meistaranna. Það kom óvænt,
Morgunblaðiö/KGA
Halldór Áskelsson Þór lék vel
gegn Fram og skoraði eitt mark.
hann fékk knöttinn fyrir miðju
marki rétt utan teigs eftir sendingu
Amljóts, renndi sér framhjá tveim-
ur vamarmönnum með boltann á
tánum og skoraði með fallegu skoti.
Eftir markið sóttu Framarar nokk-
uð meira, en síðan kúventist leikur-
inn um miðjan hálfleikinn og
Þórsarar jöfnuðu. Eftir góða sókn
og homspymu, skallaði Einar Ara-
son í netið. Kristján átti lága
sendingu fyrir markið, Einar henti
sér fram og skoraði glæsilega.
Fram fékk dauðafæri skömmu
síðar, Einar Ásbjöm skallaði yfír
fyrir opnu marki af markteig eftir
fyrirgjöf Ormars. Síðari hálfleikur
var ákaflega jafn, í upphafí voru
Framarar heldur beittari og leikur-
inn öllu fjörugri en fyrir hlé. Pétur
Ormslev skallaði rétt framhjá úr
þröngu færi, Einar Ásbjöm skaut
svo framhjá úr miðjum teig, en
síðan komst Þór yfír mjög óvænt.
Jónas skaut af 20 metra færi, frek-
ar lausu skoti, en alveg með gras-
inu. Engin hætta virtist á ferðum,
Friðrik henti sér niður og virtist
ekki vera í neinum vandræðum með
að veija, en skyndilega skoppaði
knötturinn af ójöfnu og yfír hann
í markið. Otrúlegt en satt! Eftir
markið bökkuðu Þórsarar aðeins
og Framarar sóttu meira, en Þórs-
arar skoruðu þó aftur. Eftir langa
sendingu Guðmundar Vals fram
völlinn börðust Halldór og Viðar
Þorkelsson um boltann, Viðar var
fyrri til og hugðist senda til Friðrik
markvarðar. En Halldór komst á
milli, náði knettinum og skaut í
stöng, náði honum svo aftur og
skoraði auðveldlega. Þama höfðu
Framarar sótt meira, þó án teljandi
færa, og var markið rothöggið á
þá. Hlynur gulltryggði svo sigurinn;
Janus var að dútla með knöttinn á
vítateigshominu hægra megin,
Hlynur sótti að honum, tók af hon-
um boltann, óð inn í teiginn og
skoraði auðveldlega framhjá Friðrik
sem kom út á móti!
Baráttan var meiri hjá Þórsumm,
þeir gáfu aldrei tommu eftir og
unnu verðskuldað. Það sem skipti
máli var að nýta færin. Framarar
fengu ágætis tækifæri til að skora
en nýttu þau ekki. Enda var Ás-
geir Elíasson, þjálfari þeirra, súr
eftir leikinn. „Við vinnum ekki leiki
ef við nýtum ekki færin,“ sagði
hann.
Þórsliðið var jafnt, allir börðust
vel. Halldór, Guðmundur Valur,
Árni og Jónas voru bestir. Ámi lék
vel í sínum fyrsta Ieik eftir meiðsli,
hélt Ragnari Margeirss}mi vel niðri.
Fram-liðið olli vonbrigðum.
Þór-Fram
4 : 1
Akureyrarvöllur 1. deild, sunnudaginn
19. júlí 1987.
Mörk Þórs: Einar Arason (25.), Jónas
Róbertsson (60.), Halldór Áskelsson
(78.), Hlynur Birgisson (83.)
Mark Fram: Pétur Ormslev (16.)
Gult spjald: Siguróli Kristjánsson, Þór
(56.), Janus Guðlaugsson, Fram (62.),
Einar Arason, Þór (86.). Áhorfendur:
1.196.
Dómari: Magnús Theódórsson, 6.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson 2,
Guðmundur Valur Sigurðsson 3 (Sveinn
Pálsson vm. á 84. mín., lék of stutt),
Siguróli Kristjánsson 2, Nói Bjömsson
2, Kristján Kristjánsson 2, Halldór
Áskelsson 3, Júlíus Tryggvason 2, Ámi
Stefánsson 3, Jónas Róbertsson 3, Hlyn-
ur Birgisson 2, Einar Arason 2.
Samtals: 26.
Lið Fram: Friðrik Friðriksson 2, Þor-
steinn Þorsteinsson 1, Kristján Jónsson
1, Pétur Ormslev 2, Viðar Þorkelsson
2, Einar Ásbjöm Ólafsson 2, Amljótur
Davíðsson 2, Pétur Amþórsson 3, Ragn-
ar Margeirsson 2, Janus Guðlaugsson
2, Ormarr Örlygsson 2.
Samtals: 21.
Komum til að sigra
og hefna ófaranna
- sagði Guðmundur Ólafsson, þjálfari Völsungs
GUÐMUNDUR Ólafsson, þjálf-
ari Völsungs, var að vonum
ánægður með sigur sinna
manna. „Við komum til
Keflavíkur til að sigra og jafn-
framt til að hefna ófaranna í
fyrsta leiknum. Þetta var mikil-
vægur sigur fyrir líðið, en við
vorum heppnir undir lok leiks-
ins að fá ekki á okkur mark."
Flestir áhorfendur í Keflavík
bjuggust eflaust við auðveldum
sigri heimamanna, en annað kom á
daginn. Keflvíkingar voru að vísu
^^■■■1 meira í sókn, sér-
Frá staklega í síðari
Bimi hálfleik, en sóknar-
lotur þeirra voru
ekki nægilega
markvissar og runnu út í sandinn
áður en þær sköpuðu hættu.
Húsvíkingar byggðu leik sinn á
skyndisóknum, sem oft sköpuðu
nokkra hættu og úr einni slíkri skor-
aði Aðalsteinn Aðalsteinsson mark
Völsungs. Hann fékk laglega send-
ingu frá Birgi Skúlasyni þvert inn
fyrir vöm ÍBK, sem var illa á verði
og Aðalsteinn skoraði með fallegu
skoti framhjá Þorsteini Bjamasyni,
markverði IBK, sem kom engum
vömum við. Hættulegasta færi
Blöndal
íKeflavík
Keflvíkinga í fyrri hálfleik var
þrumuskot Sigurðar Björgvinsson-
ar í stöngina.
Keflvíkingar lögðu allt kapp á að
jafna metin í síðari hálfleik, en án
árangurs. Þeir fengu að vísu nokk-
ur góð færi á síðustu mínútum
leiksins, en höfðu ekki heppnina
með sér að þessu sinni. Völsungar
vildu fá vítaspymu á 80. mínútu,
þegar þeir töldu að Sigurði Illuga-
syni hefði verið brugðið innan
vítateigs ÍBK, en dómarinn var
ekki á sama máli og þar sluppu
Keflvíkingar vel.
IBK-Völsungur
0 : 1
Keflavíkurvöllur 1. deild, sunnudaginn
19. júlí 1987.
Mark Völsungs: Aðalsteinn Aðalsteins-
son (23.).
Gult spjald: Snævar Hreinsson Völs-
ungi (43.), Freyr Bragason ÍBK (50.).
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 820.
Dómari: Gísli Guðmundsson 7.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason 2, Jóhann
Magnússon 3, Siguijón Sveinsson 2,
Rúnar Georgsson 2, Guðmundur Sig-
hvatsson 2, Ægir Kárason 1 (Jóhann
Júlíusson vm. á 38. mín., 3), Sigurður
Björgvinsson 2, Gunnar Oddsson 2,
Peter Farrell 2 (Skúli Rósantsson vm.
á 65. mín., 2), Freyr Bragason 2, Óli
Þór Magnússon 1.
Samtals: 23.
Lið Völsungs: Þorfínnur Hjaltason 3,
Birgir Skúlason 3, Helgi Helgason 2,
Bjöm Olgeirsson 2, Kristján Olgeirsson
2 (Sigurður Illugason vm. á 77. mín.,
lék of stutt), Snævar Hreinsson 3, Jónas
Hallgrímsson 2, Hörður Benónýsson 2,
Aðalsteinn Aðalsteinsson 2, Skarphéð-
inn ívarsson 2, Eiríkur Björgvinsson 2.
Samtals: 25.
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson.
Freyr Bragason ÍBK og Eiríkur Björgvinsson Völsungi berjast um boltann
á sunnudagskvöldið. Til hægri er Snævar Hreinsson.
Hef’ann!
Andri Marteinsson hefur leikið vel að undanfömu með KR og á myndinni sækir hann að An
í leik félaganna á sunnudagskvöldið.
KR-ingar gefa ekl
í baráttunni á toi
KR-INGAR sýndu allt annan og
betri leik á sunnudaginn en gegn
Víði í 9. umferð og sigur þeirra
gegn KA var aldrei í hættu —
þeir voru samstilltir og baráttu-
glaðir, sigurviljinn fyrir hendi og
liðið settist í efsta sæti deildar-
innar. Akureyringarnir lóku
ágætlega á köflum, en sóknarleik-
ur þeirra var ekki nógu markviss;
lið sem ekki skorar vinnur ekki
leik.
Bæði liðin stilltu eins upp, voru
með þijá menn í öftustu vöm,
fímm á miðjunni og tvo frammi. Mun-
urinn fólst hins vegar í því að miðju-
^■H menn KR voru
Steinþór ákveðnari og sókndjar-
Guöbjartsson fari og Bjöm og Pétur
sknfar sköpuðu mikla hættu
frammi. Tryggvi var
óvenju daufur hjá KA og Þorvaldur lék
aftarlega. Reyndar kom hann mjög vel
út sem slíkur, einkum eftir að Sigurð-
ur Már kom inná, en hann sýndi
skemmtilega takta í sókninni og hefði
verið gaman að sjá hann leika allan
leikinn.
KR-ingar sóttu stíft allan fyrri hálf-
leik, en sköpuðu sér ekki mörg færi.
Pétur og Bjöm áttu samt góð skot,
sem Haukur varði meistaralega í hom,
en markið réð hann ekki við. Bjöm
skaut föstu en lúmsku skoti utan úr
teig, boltinn í vamarmann og þaðan í
fjærstöng og inn. Skömmu síðar fékk
Jón góða sendingu inn í vítateig KR,
en var of seinn og Þorsteinn náði að
hreinsa frá.
Þorsteinn Halldórsson lék ekki með
KR vegna meiðsla og kom Júlíus í
hans stað, en hann skoraði einmitt
seinna markið. Það skrifast á Hauk,
sem hélt ekki boltanum eftir langskot
Gunnars og Júlíus fylgdi vel á eftir.
KA-menn gáfust ekki upp við mótlæ-
tið og fengu þijú góð marktækifæri.
Fyrst- var Þorvaldur með þrumuskot,
sem Páll varði glæsilega í hom, síðan
skaut Gauti framhjá eftir gott þríhym-
ingaspil og loks fékk Tryggvi drauma-
færi innan við markteig eftir
homspymu, en tókst á óskiljanlegan
hátt að skjóta yfír. „Við gerum of
mikið af svona mistökum, sleppum
manni lausum í homum og aukaspym-
um og höfum fengið á okkur klaufa-
mörk fyrir vikið, en þarna sluppum við
með skrekkinn. Ég verð ekki ánægður
fyrr en við bætum okkur í þessu, en
stigin eru kærkomin,“ sagði Ágúst
Már, fyrirliði KR, sem áttrgóðan leik.
KR-ingar fengu einnig marktækifæri
undir lok leiksins, en mörkin urðu ekki
fleiri. „Við vissum fyrir leikinn að þetta
yrði erfitt, en KR-ingamir vom ein-
faldlega betri. Það er samt engin
uppgjöf hjá okkur og það er ljóst að