Morgunblaðið - 21.07.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.07.1987, Blaðsíða 6
6 B fttargwiMfiftift /ÍÞRÓTTIR ÞRŒUUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 Morpunblaöið/Sverrir EAvarA Þór Eóvarósson bætti íslandsmetið í 400 m fjórsundi, synti á 4.50,63 sekúndum. Gamla metið setti Ingólfur Gissurarson árið 1981. Mikill áhugi á ísafirði Ólafur Gunnlaugsson þjálfari sundfólksins frá Vestra ísafirði var að vonum kampakátur með árangur sundfólks síns. Olafur sagði að krakkamir væru virkilega áhugasöm sem sýnir það best að þau tóku sér hálfs mánaðar frí, komu suður til Reykjavíkur og æfðu í Laugardals- lauginni fram að mótinu. Arangur- inn lét ekki á sér standa boðsundsveit kvenna setti tvö glæsileg íslandsmet í 4xl00m fjór- sundi og í 4x100 m skriðsundi og Martha Jörundsdóttir varð ísland- meistari í 200 m baksundi. í mörgum öðrum greinum var sund- fólkið frá ísafírði framarlega. Fjögur íslandsmet féllu Ragnar Guðmundsson: íslands- metí fyrstu grein Ragnar Guðmundsson, Ægi, setti glæsilegt íslandsmet í fyrstu sundgreininni á sund- meistaramótinu í 1.500 m skriðsundi hann synti á tíman- um 16,27,04 og bætti eigið met um rúmarfimm sekúndur. Ragnar var að vonum ánægður með þetta nýja íslandsmet sitt og framundan væri núna Evrópu- meistaramótið í Frakklandi og sagði Ragnar að hann ætlaði að vera í ssem bestri æfíngu þá. Áður en 400 ím skriðsundið hófst var Ragnar spurður að því hvort búast mætti við öðru íslandsmeti. Sagðist Ragn- ar vera nokkuð þreyttur eftir sundið á föstudag og laugardag en hann myndi að sjálfsögðu reynað að bæta metið. Ekki tókst Ragnari að slá annað íslandsmet en engu að síður náði hann mjög góðum tíma eða 4,12,91 en Islandsmetið er 4,11,64. Morgunblaöiö/Sverrir Bryndfs Ólafsdóttlr sigraði í fjórum greinum á mótinu, 100 og 200 m flug- sundi, 100 og 800 m skriðsundi og varð önnur í 800 m skriðsundi. Sundmeistaramót íslands 1987 fór f ram um helgina í sundlaugunum í Laugardal. Alls voru fjögur íslandsmet sett á mótinu. Ragnar Guð- mundsson setti íslandsmet í 1.500 m skriðsundi hann synti á tímanum 16,28,04 og bætti hann eigið met. Eðvarð Þór Eðvarðsson setti íslandsmet í 400m fjórsundi hann synti á tímanum 4,50,63 og bætti því íslandsmet Ingólfs Gissura- sonarfrá árinu 1981. Kvenna- sveit sundfélagsins Vestra á jsafirði setti svo tvö glæsileg íslandsmet fyrst í 4x1 OOm skriðsundi á tímanum 4,16,44 og síðan í 4x1 OOm fjórsundi á tímanum 4,49,69. Góður árangur náðist í mörgum öðrum greinum á sundmeist- aramótinu og tímar keppenda ekki ósjaldan nærri íslandsmetum. Auk Islandsmeistaratitla Guömundur í hverri grein var Hilmarsson keppt um stigabikar ;skrifar Sundsambands ís- lands, Kolbrúnar- bikar, Páls bikar og tvo bikara sem Olíufélag í slands gaf til keppninnar. Stigabikar SSÍ hlaut Eðvarð Þór Eðvarðsson, hann hlaut 944 stig fyrir 100 m baksund. Koibrúnarbik- ar, sem gefínn var til minningar um Kolbrúnu Ólafsdóttur sund- konu, hlaut Ragnheiður Runólfs- dóttir ÍA fyrir 50 m bringusund en fyrir það sund fékk hún 902 stig. Páls bikarinn, sem gefinn var af Ásgeiri Ásgeirssyni forseta íslands, hlaut Eðvarð Þór Eðvarðsson Njarðvík fyrir 100 m baksund en fyrir það fékk hann 784 stig. Bikar- amir tveir sem Olíufélagið gaf til keppninar voru veittir fyrir bestu bætingu á tíma frá síðasta sund- meistaramóti bæði í karla og kvennaflokki. í karlaflokki hlaut Þorsteinn Gíslason, Ármanni, bikar- inn fyrir 400m íjórsund en fyrir það fékk hann 176 stig. Hjá konunum hlaut Björg Jónsdóttir Njarðvík bik- arinn fyrir 200 m baksund en fyrir það fékk hún 117 stig. ■ Úrslit/B15 Morgunblaðiö/Sverrir Vilhelmsson Eðvarð Þór Eðvarðsson leggur af stað á meistaramótinu um helgina. Hann setti íslandsmet í 400 m fjórsundi. Ragnheiður Runólfsdóttir: Fjórfaldur ís- landsmeistari Ragnheiður Runólfsdóttir ÍA varð íslandsmeistari ifjórum greinum á sundmeistaramóti Islands. Hún sigraði í 100m og 200m bringusundi 100m bak- sundi og 400m fjórsundi. Ragnheiður var mjög ánægð með árangur sinn á mótinu og kvaðst hún vera í mjög góðu formi og stefndi á að vera í enn betra formi þegar Evrópumeistaramótið hæfíst. Ragnheiður sagðist ekki hafa búist við íslandsmetum á þessu móti þar sem margir keppendur hefðu verið með Evrópumeistara- mótið ofarlega í huga og því ekki í eins góðri æfíngu og þeir verða þegar Evrópumeistramótið fer fram. Ragnar Guðmundsson setti glæsilegt íslandsmet strax í fyrstu grein móts- ins á föstudagskvöldið; synti 1.500 metra skriðsund á 16,28,04 mínútum. Að ofan: sundkappar stinga sér um helgina. Ánægður með árangurinn - sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson Eðvarð Þór Eðvarðsson Njarðvík kvaðst vera ánægð- ur með árangur sinn á sundmeistaramótinu. Eðvarð sagðist vera í góðri æfingu og stefndi hann á að vera í toppformi eftir einn mánuð en þá hefst Evrópumeistaramótið sem haldið verður í Frakklandi. Eðvarð kvaðst stefna á að komast í úrslit í sínum sterkustu sund- greinum en það er lOOm og 200m baksund á Evrópumeistaramót- inu. Eðvarð sagði að lokum að núna tækju við stífar æfingar fram að því móti. SUND / MEISTARAMOT ISLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.