Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 4
4 B
HtorgmiftlaMft /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
Morgunblaöiö/KGA
Frá keppni á meistaramóti 14 ára og yngri sem haldið var i Laugardal. Það vantar ekki tilþrifin í kúluvarpinu hjá þessum unga dreng og í 100 metra hlaupinu er ekkert gefið eftir.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / MEISTARAMÓT 14 ÁRA OG YNGRI
Dalamaður og Austfirð-
ingur settu íslandsmet
Áhugi og keppnisgleði í öndvegi
ÁHUGI og keppnisgleði var í
öndvegi á meistaramóti frjálsí-
þróttamanna 14 ára og yngri á
Laugardalsvelii um helgina.
Þar voru saman komnir 374
keppnismenn úr nœr hverjum
kima landsins og fylgdarmenn
þeirra. Sett voru tvö íslands-
met og góöur árangur náðist.
Keppendur á mótinu voru frá
23 félögum og samböndum,
frá tveimur og upp í 55 frá hverju.
Staðfesti mótið að mikil uppsveifla
er ( frjálsíþrótta-
Ágúst starfi meðal annars
Asgeirsson á. stöðum og svæð-
skrifar um sem þær hafa
lítt eða ekkert verið
stundaðar lengi. Má í því sambandi
nefna Dali og Norður-Barðaströnd
(UDN), sambandssvæði Úlfljóts
(USÚ - A-Skaftafellssýslu) og Vest-
mannaeyjar (ÍBV). Það veit á gott
þegar lögð er rækt við unglinga-
starfíð.
Sett voru tvö íslandsmet á mótinu.
Gunnar Gunnarsson UDN bætti
strákametið í spjótkasti um tæpa
sex metra, eða úr 33,20 í 39,02
metra og Andri Snær Sigurjónsson
UÍA bætti strákametið í hástaökki
úr 1,52 í 1,54 metra.
Keppt var í 28 greinum í §órum
flokkum og voru skráningar sam-
tals 990, sem þýðir að hver
keppandi hafi að meðaltali keppt í
tæplega þremur greinum og að 35
keppendur hafí verið f hverri grein.
Þrír fýrstu í hverri grein unnu til
verðlaunapeninga. Auk þess var
þremur mestu afreksmönnum í
hverjum flokki veitt sérstök verð-
laun. Afreksmaður hvers flokks
fékk verðlaunabikar og æfingagalla
frá LOTTO-umboðinu. Hinir tveir
fengu einnig LOTTO-vörur.
í stelpnaflokki vann Heiða Bjarna-
dóttir UMFA bezta afrekið fyrir 60
metra hlaup. Næstar komu Kristj-
ana Skúladóttir HSK fyrir hástökk
og Sólveig Ásta Guðmundsdóttir
UMSB fyrir 800 metra hlaup.
Bezta afrek í telpnaflokki vann
Guðný Sveinbjömsdóttir HSÞ fyrir
hástökk en næstar henni komu
Hulda Bjamadóttir HSK fyrir 800
metra hlaup og Anna Ingimars-
dóttir UÍA, einnig fyrir 800 m.
Gunnar Gunnarsson UDN vann
bezta afrek strákaflokks með Is-
landsmeti sínu í spjótkasti. Pálmi
Vilhjálmsson USAH kom næstur,
einnig fyrir spjótkastsafrek, og
Andri Snær Siguijónsson UÍA hlaut
þriðja sætið með íslandsmeti sínu
í hástökki.
Beztu afreksmenn í piltaflokki voru
Ámi Ó. Ásgeirsson HSH, sem sigr-
aði í kúluvarpi, Kristinn Fjölnisson
USÚ sem sigraði í langstökki og
Sigurbjöm A. Amgrímsson HSÞ,
sem sigraði í 800 metrum.
Eins og venjulega mátti sjá í hópi
keppenda margan efnilegan
íþróttamanninn. Verði hlúð að þeim
og þeir hvattir til dáða má ugg-
laust gera úr þeim margan afreks-
manninn.
ÍR-ingar héldu mótið og fórst þeim
það vel úr hendi. í upphafi gengu
keppendur undir félags- eða sam-
bandsfána inn á leikvanginn og
setti sá mars óneitanlega mjög
skemmtilegan svip á mótið. Lauk
mótinu síðan með verðlaunaaf-
hendingu og veitingum í Tónabæ
og var stemmningin ekki síðri þar
en á mótinu sjálfu.
GOLF / OPNA BRESKA MEISTARAMOTIÐ
Símamynd/Reuter
ÁnægA fjölskylda
Eftir sigurinn var að sjálfsögðu tekin flölskyldumynd. Hér er Nick Faldo ásamt
konu sinni, Jill, og dótturinni Natalie, sem fylgist vel með gripnum góða, sem
sigurvegarinn í mótinu hlýtur til varðveizlu.
Faldo vann á
endasprettinum
BREZKI golfleikarinn Nick
Faido tryggði sér sigur á opna
brezka meistaramótinu í golfi
með þvíað leika síðustu 18
holurnar á pari eða á 71 höggi.
Bandaríkjamaðurinn Paul Az-
inger var með góða forystu
eftir annan og þriðja dag en
klúðraði lokahringum og varð
í öðru sæti ásamt Ástralanum
Roger Davis, aðeins einu höggi
á eftir Faldo, sem lék 76 holur
í 279 höggum.
Faldo er annar Bretinn, sem
sigrar á mótinu á þremur árum,
en Sandy Lyle, sem varð í 16.-17.
sæti að þessu sinni, vann mótið
1985. Er þetta stærsti sigur Faldo
til þessa, en hann hefur sætt mót-
læti síðustu þijú árin. Hittist
skemmtilega á hjá honum því hann
varð þrítugur á laugardag. Með
sigrinum vann Faldo sér inn 75.000
sterlingspund eða 4,7 milljónir
króna.
Faldo keppti nú 12. árið í röð á
British Open og bezti árangur hans
þar til nú var fjórða sæti 1982 og
fimmta sæti í fyrra. Þetta er annað
golfmótið, sem hann vinnur í ár,
hið fyrra var á Spáni. Árið 1983
var bezta ár Faldo, sem gerðist
atvinnumaður 1977, en þá vann
hann sex mót.
Símamynd/Reuter
Nick Faldo kyssir gripinn
Paul Azinger var með þægilega
forystu í upphafi lokadagsins og
leiddi allt þar til á síðustu holunum
á Qórða degi. Síðustu tvær holumar
gerðu útslagið en þær fór hann
báðar á höggi yfir pari. Reyndar
þurfti hann aðeins að fara lokahol-
una á pari til að knýja fram
bráðabana um sigurinn við Faldo.
Til þess þurfti hann að pútta af
þriggja metra færi en kúlan tók
sveig og stöðvaðist 7 sentimetra frá
holunni.
Azinger hefur gengið vel á mótum
í Bandaríkjunum og unnið sér inn
yfir 600 þúsund dollara. Hann hef-
ur samt ekki unnið stórmót og þótt
það misheppnaðist í Muirfield í
Skotlandi um helgina sagði hann
að heimurinn mundi ekki farast.
Meistari síðasta árs, Ástralíumað-
urinn Greg Norman, lauk keppni á
291 höggi og hafnaði í 34.-38.
sæti. Vestur-Þjóðveijinn Bemhard
Langler og Spánveijinn Severiano
Ballesteros voru fyrirfram taldir
sigurstranglegastir. Langler lék á
286 höggum og varð í 17.-24 sæti
(ásamt m.a. Sandy Lyle og Lee
Trevino). Ballesteros var enn aftar
á 295 höggum.
Japaninn Tommy Nakajime er tal-
inn íjórði bezti golfleikari heimsins
á eftir Norman, Ballesteros og Lan-
gler, en það dugði skammt því hann
lék á 299 höggum, eða 20 fleiri en
Faldo. Larry Mize, sigurvegari á
bandarísku meistarakeppni (U.S.
Masters) lék á 288 höggum, Scott
Simpson, sigurvegari á opna banda-
ríska meistaramótinu (U.S. Open)
á 299 og gammla kempan Jack
Nicklaus á 302 höggum.
Bandaríkjamaðurinn Billy Andrade,
sem hefur aðeins verið atvinnumað-
ur í tvo mánuði og er aðeins 23
ára, vann það fágæta afrek að fara
holu í höggi. Það var á 7. braut
að hann tók fimmuna sina og sló
draumahöggið.
■ Úrsllt/B15