Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 11
fflorgunÞIatiib /ÍÞRÓTTIR ÞRIDJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
B 11
Fyrirlidinn tekinn föstum tökum
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson
Þorgils Óttar er gífurlega snjall línumaður, en enginn má við margnum! Hann segir Spánveija vera með mjög gott lið og telur þá verða eitt af toppliðunum á ólympíuleikunum í Seoul næsta ár. Hér
er landsliðsfyrirliðinn tekinn fostum tökum í leiknum gegn Spánveijum; sem hann segir stóra og sterka og í mjög góðri aefingu, á Júgóslavíumótinu á dögunum. Hér er brotið gróflega á landsliðsfyrirliðanum,
og svo var bara dæmt aukakast! sagði Þorgils er hann sá myndina. Númer þijú er Juan Munoz og númer fjögur er Reino.
mmnp
„Sovétmenn verða örugglega ofar-
lega, líka Spánveijar, Svíar og
Júgóslavar. Við lékum við Spán-
veijana í Júgóslavíumótinu um
daginn og þeir eru mjög sterkir.
Leikmenn eru stórir en engu að
síður fljótir; eru mjög vel þjálfaðir."
Ef við snúum okkur aðeins að
deildarkeppninni hér heima.
Hvernig hefur hefur þér fundist
hún undanfarið?
„Ég var ánægður með hana í fyrra.
Ég held aftur á móti að skipu-
leggja eigi deildina um leið og
landsliðið. Einhverra hluta vegna
hefur ekki verið nógu mikill sam-
starfsvilji milli forráðamanna
landsliðsins og forráðamanna deild-
arinnar. Þetta hefur verið skipulagt
hvort í sínu homi og síðan þegar
deildin fer af stað byija árekstram-
ir. Það verður að hafa hag beggja
að leiðarljósi."
Kamst ekki hærra
en aö spila
meö landsliöinu
Nú eru margir af okkar bestu
leikmönnum með erlendum fé-
lagsliðum. Hvað með þig? Megum
við eiga von á því að þú leikir
með erlendu liði í framtíðinni?
„Nei, það passar ekki inn í planið
hjá mér að leika erlendis. Ég fékk
tilboð um að fara út á meðan ég
var í skólanum, en vildi klára nám-
ið. Ég segi ekki að ef miklir
peningar væru í spilinu að ég myndi
hugsa um það núna hvort það væri
arðbært að hætta að vinna og fara
utan, en í flestum tilvikum em ekki
það miklir peningar í spilinu að það ^
borgi sig, þó sumir hafi það gott,"
sagði Þorgils, en hann hefur nýlok-
ið námi í viðskiptafræði og starfar
nú hjá Iðnaðarbanka íslands. Svo
bætti hann við; „Það fullnægir
minni handboltaþörf að vera í top-
plandsliði. Ég kemst ekki hærra en
að spila með íslenska landsliðinu."