Tíminn - 10.10.1965, Side 1
OSPAM
Ljósaperur
230. tbl. — Sunnudagur 10. október 1965 — 49. árg.
NSSON *CO
KJOT FLOKKAST
BETUR EN AÐUR
MB—Reykjavík, laugardag.
Slátrun er nú víðast langt kom
ið, og þótt enn sé ekki unnt að
slá neinu föstu um hvernig féð
hefur reynzt í smáatriðum má
telja víst, að flokkun sláturfjárins
FYLúZTMEÐ KJARNORKU-
SPRENGJU Á GRÆNLANDl
MORGUNBLAÐIÐ
BRÝTUR REGLUR
UM BIRTINGU Á
VÍNLANDSFRÉTT
Þau tíðindi hafa gerzt, að
Morgunblaðið hefur framið
freklegt brot á siðum og venj
um fréttablaða um birtingu
efnis, sem bundið er tímatak-
mörkunum. Hefur það orðið
fyrst íslenzkra blaða til að ger
ast brotlegt í þessu efni. og
þykist þáð þö vera mikill síða-
meistari. Hér er um að ræða
frétt um kortafund, sem er enn
ein sönnun um Vínlandsfund
Leifs heppna.
Tímanum hefur borizt frétta
tilkynning um þetta efni frá
Yale University Press, þar sem
lögð er áherzla á, að fréttina
megi ekki birta fyrr en 11.
október. Kemur oft fyrir, að
blöðum berist merkar fréttir
með sljkum tímatakmörkunum
og dettur engu sæmilega sið-
F amhald a ols. 15
hafi yfirieitt verið betri í ár en
nokkru sinni fyrr. Víðast hvar hef
ur mun minna farið í þriðja flokk
en áður og hjálpast þar að gott
tíðarfar víðast hvar á landinu í
haust og svo er yfirleitt betur far
ið með féð í flutningum nú en
fyrr.
Ýmsir aðilar hafa tjáð blaðinu,
að flokkun fjárins, a.m.k. hér suð
vestanlands sé nú betri en nokkru
sinní fyrr, og að þriðji flokkur sé
nú sem næst að hverfa. Til dæm-
is sagði Jón Gíslason, viktarmaður
í Vík í Mýrdal, blaðinu að Þar
færu eklki nema 10—20 lömb á
dag í þriðja flokk yfirleitt, af um
það bil sex hundruð fjár, sem þar
er slátrað daglega. Einnig mun
flokkun vera mjög góð í öðrum
sláturhúsum Sláturfélags Suður
lands.
Blaðið ræddi í dag við Jón-
mund Ólafsson, yfirkjötmatsmann,
og sagðist hann enn ekki hafa
fengið neinar heildarniðurstöður
um slátrunína ,enda slátrun enn
ekki lokið. Hins vegar myndi fé
yfirleitt holdbetra en í fyrra og
vegna ve.urbliðunnar í haust hefðu
smávöxnu lömbin náð þvi að verða
mjög sæmileg. Margir væru nú
lika farnir að beíta smávöxnustu
lömbunum á ræktaða jörð, áður en
þau eru send í sláturhúsið. >á
sagði Jónmundur, að miklu minna
væri um það að fé færi í þriðja
flokk vegna illrar meðferðar. Áður
fyrr var sláturfé oft rekið langar
leíðir eftir vegum, sem lágu með
fram gaddavírsgirðingum og fór
það oft illa í slíkum rekstrum og
Framhald ð 15. síðu.
NTB—Moskvu, laugardag. anna. Aleksei Kosygin, hefur
Forsætisráffherra Sovétríkj- áhuga á tillögu Dana um að
Mynd þessi var tekin á Vmikoyo-flugvellinum í Moskvu þegar
Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dana, kom til borgarinnar.
Kosygin, forsætisráðh. Sovétríkjanna (v) tekur hér í hönd Krags.
komið verði upp jarðskjálfta-
mælakerfi á Grænlandi í því
skyni að fylgjast með tilraun
um með kjarnorkuvopn neðan
jarðar.
Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra Dana, skýrði frá þessu
í gær í danska sendiráðinu
í Moskvu. í gær ræddi Krag
við Kosygin i tvo tjma og bar
þetta mál þá á góma. Danskar
heimildir hafa áður sagt frá
því, að Krag hafi lagt þessa til-
lögu fram á fundi forsætisráð-
herra Norðurlanda í Osló '
sumar, en þetta er í fyrsta sinn
sem Danir hafa lagt fram til-
lögu um þetta í viðræðum við
stórveldi.
Krag ræddi við Kosygin aft
ur í morgun, en sjðar í dag
átti hann að hefja ferð um
Sovétríkin.
Krag hefur boðið Kosygin
forsætisráðherra að heimsækja
Danmörku. og hefur Kosygin
tekið boðinu. Ekki er enn á-
kveðið, hvenær hinn kemur
til Danmerkur.
— * ■ i »■■■ i
SOLTIIN MEIRIENIFYRRA
MB-Reykjavík, laugardag.
Nú hefur verið söltuð meiri síld
en gert var á allri vertíðinni fyr-
ir norðan og austan í fyrra, og
söltunin nú því orðin með allra
mesta móti. Mun nú búið að salta
í 360—370 þúsund tunnur, en á
allri vertíðinni í fyrra var saltað
i nál. 355 þúsund tunnur.
Þrátt fyrir góða veiði flesta
daga síðustu viku hefur ekki mjög
mikið magn farið í salt. Veldur
þar um í fyrsta lagi mannekla,
þar eð fámennt er nú orðið af
aðkomufólki á síldarsöltunarstöðv
unum, og það fólk sem eftir er
þarf að vinna mikið í kring um
þá síld sem þegar hefur verið sölf
uð. Þá veldur og miklu, að á mör;
um þeim stöðum sem enn er sal
Framhald á bls. 15.
Myndskreytir
Gunnlaugssögu
fyrir Tímann
5
IGÞ—Reykjavík, laugardag.
í dag hófst hér f blaðínu
myndasaga, sem gerð hefur
verið eftir Gunnlaugs sögu
Ormstungu. Myndasöguna
teiknar Ragnar Lárusson, sem
varla þarf að kynna fyrir les-
endum Tímans, þar sem marg-
ar góðar teikningar hafa birzl
eftir hann hér í Tímanum á
undanförnum árum. Ragnar
er mjög snjal] maður í sinni
grein, sem þessi myndasaga
hans ber vitni um. Er Tíman-
Þessa skemtilegu sjálfsmynd
gerði Ragnar Lár. þegar við
sögðum honum. að við yrðum
að hafa einhverja mynd til að
birta um þann atburð er
myndasagan er að hefjast í
Tjmanum. Andspænis Ragnari
mun sitja sjálfur Gunnlaugur
ormstunga.
um það mikið ánægjuefni. að
samningar tókust um birtingu
þessarar sögu, og verður værit-
anlega framhald á þessari sam
vinnu milli blaðsins og Ragn
ars, enda af nógu að taka.
Þegar Ragnar kom með
myndasöguna til blaðsins, var
auðséð við fljótlegt yfirlit, að •!
hér var um mjög skemmtilegar í
teikningar að ræða. Hefur
hann haft þann hátt á að
teikna samsvarandi texta úr
Gunnlaugs sögu inn á mynd-
flötinn á fornmálinu, sem auð-
læs er öllum. í stuttu samtali.
sem Tjminn átti við Ragnar,
sagði hann, að hugmyndin að
gera myndasögur af einhverri
íslendingasagna hefði lengi
búið með honum, og loks hefði
hann látið verða af því að
byrja. Þegar hann hafði valið
Framhald á bls. 15.