Tíminn - 10.10.1965, Qupperneq 9

Tíminn - 10.10.1965, Qupperneq 9
SUNNUDAGUR 11). októbcr 1965 TÍMIWN gæta hagsmuna félagsmanna inn á viS og út á við. Efla stéttvísi þeirra innbyrðis og koma í veg fyrir, að réttur meðlima sé fyrir borð borinn í atvinnumálum. Og síðast en ekki sízt að efla dansmenntun félagsmanna sjálfra. Gagnrýni á íslenka ballett- dansara of hörð. — Heldurðu, að við eigum langt í land með að koma upp sómasamlegum ballettflokki? — Nss, ég held að þetta sé allt á réttri leið. Ballettinn er ung listagrein hjá okkur. Mér finnst líka gagnrýnin á ís- lenzka ballettdansara ekki allt af sanngjöm. Og mér finnst íslenzkir dansarar ekki þurfa að skammast sin, þeir standa fyrir sínu og batna stöðugt. — Fara stúlkur í ballett með það fyrir augum að verða miklar ballerínur? — Ég held, að stúlkur sæki í ballett til að fá mýkri hreyf- ingar og betri framkomu. Svo era margar, sem hafa gaman af að dansa eftir klassískri músík. Það er gffurlega erfitt að verða ballettdansari og ekki nema einstaka, sem komast svo langt. En það eru allt af innan um mjög efnilegar stúlkur. Hefur sýningar fyrir mæður nemendanna. — Hefurðu getað komið því við að hafa nemendasýningar? — Nei, ekki beinlínis, En síðustu tímana fyrir jólin í fyrra og sl. vor ieyföi ég mæðrum nemenda minna að koma og horfa á. Það var mjög vinsælt og ég hlakka til að leyfa foreldrunum að horfa á börnin sín gera æfingar á litla sviðinu í Lindarbæ fyrir jólin í vetur, því að ég fann, að bæði mömmunum og börn- unum fannst afar gaman að því. í þessu sambandi má minnast á, að fólk hafði í rauninni takmarkaðan skiln- ing á, hvað ballett væri og fannst þetta hlyti að vera miklu auðveldara en það er. Það gæti ekki verið mikil kúnst að tylla sér á tá og svífa undurlétt um gólfið. En augu fólks hafa opnazt fyrir því, að eigi einhver árangur að nást kostar það miklar æfingar og erfiði. — Seturðu nemendum fyrir æfingar heima? — Ég segi þeinj auðvitað að þeir megi æfa sig heima, ef við erum að fara yfir ein- hvgr sérstök spor eða æfing- / ar, en skylda þá ekki til að æfa sig heima eftir föngum. þess margsinnis vör, að hinir áhugasömustu hafa reynt að efa sig heima eftir föngum. H.K. ÞÁTTUR KIRKJUNNAR KIRKJAN Maður, sem heitir Jónas Kristjánsson skrifar oft mjög athyglisverðar greinar í „Vísi“. Og núna mjög nýlega birtist þar grein undir fyrirsögninni „Kirkjan," eftir hann. Margt af því, sem þar var sagt einkum viðvíkjandi sögu kirkjunnar má til sanns vegar færa. Hins vegar gætti meiri misskilnings í meginatriðum en gera mátti ráð fyrir af svo sögufróðum manni. Svo var að heyra, sem kirkj- an hefði verið ailt en væri nú ekkert. Og í fljótu bragði íét hann líta svo út, sem fullyrð- ing þessi, sé nærri sanni. Vald hennar var mikið bæði í lífi og dauða, og út yfir gröf og dauða í vitund fólks. En var það raunverulega kirkjan, sem hafði slíkt vald og vildi hafa það. Hvað er kirkja? Það er sam- félag þeirra, sem telja Júsúm Krist leiðtoga lífs síns, frels- ara sinn og fyrirmynd. Hann var boðberi sannleikans og ímynd hins algjöra kærleika. Aldrei eða sjaldan hefur kirkj- an verið fjarri því að vera hin sanna kirkja, það er stofnun kærleika og sannleika en á þess urti valdatímum sínum. Meðan hún ofsótti spámenn, lokaði fyrir hverja glætu hins nýja, beitti píslartækjum rannsóknar réttarins til að þagga niður raddir sannleika og frjálsrar hugsunar, var hún að mínum dómi nokkurn veginn eins langt frá því að vera kirkja Jesú og boðberi kristins dóms og hún hefur nokkru sinni komizt. En jafnvel á þeim tímum var þó kraftur kristins dóms nægilega mikill til að framleiða fólk eins og Frans frá Assisi og Bernhard helga frá Clair- vaux. Svo að sannarlega var andi Krists samt ekki horfinn henni. Og alltaf leitaðist hún í orði kveðnu tið að vera skjól og skjöldur lítilmagnans og boðberi friðar, og tókst það að vissu marki, þrátt fyrir allt. Kristur sagði um sina læri- sveina og segir enn við þá: Þér eruð Ijós heimsins. Þér eruð salt jarðar. Þér eruð súr- deigið, sem sýrir allt deigið í bakstrinum. Þannig er kirkjan í hans vit- und og að hans vild, ekki vald og valdbeiting, heldur nær ósýnilegur, en þó ómissandi kraftur, sem hefur nær leynd- ardómsfull áhrif. Saltið er ekki mikið í hlut- falli við önnur efni í heilli máltíð. En hver mundi vilja eta máltíðina án þess jafnvel þótt á borðum væri lax eða alikálfakjöt. Súrdeigið eða gerið í heila köku er ekki nema úr teskeið eða framan á hnífsoddi, en hver mundi vilja bera kökuna á borð í brúðkaupsveizlu, ef það hefði gleymzt. Ljósið á eldspýtunni eða kert inu er ekki stórt í samanburði við myrkurdjúpið í heilum sal, þó vísar það leið og hjálp- ar í leitinni. Að ekki sé talað um ef ljósið er víti eða blys í myrkurdjúpi vetrarnætur. Guðsríki — hin sanna kirkja kemur ekki þannig að á \wí beri — sagði Jesús. það er hið innra i yður. Kannski hefur kirkjan — guðsríkið, sem Páll postuli sagði að væri réttlæti, friður og fögnuður aldrei haft meiri tök en einmitt nú á 20. öldinni, jafnvel þar sem virðist vera búið að gera hana útlæga eða ekki vera leyft að taka á móti henni. Hún þróast nefnilega við andbyr og ofsóknir. Þetta sannar ekki einungis för Páls páfa, fyrsta ferð slíks höfðingja til Vesturheims eða New York til að biðja um frið- arhug og bræðralag. Frá sjón- armiði þeirra sem hafa reynt að kynna sér kristinn dóm sögu hans og áhrif um aldir, og þá jafnframt öll mistökin, er slík ferð undir og dásemd, líkt og ævisaga Sahweiters, sem er barn kristinsdóms á 20. öld. En við þurfum ekki að leita ,svo langt og hátt til að finna kraft kirkjunnar nú á dögum. Við þurfum aðeins að kynn- ast högum bágstaddra t.d. hér á íslandi nú eða fyrir nokkr- um áratugum. Allt, sem gjört er fyrir munaðarleysingja, gamalmenni og öryrkja er fyrir kraft kristins dóms. Án hans væu börn enn þá senni- lega borin út og einstæðum mæðrum drekkt og glæpa- menn hengdir, eða hvað það hét nú öll framkvæmd grimmdar hér áður fyrr. _____________________________ 9 Og mesta framkvæmd kirkj- unnar — hinnar ósýnilegu kirkju Krists er kannski ekki fyrst og fremst að finna í kirkjum á sunnudagsmorgnum ekki í rödd prestsins, heldur kannski á götunni og gang- -> stéttunum í feimnu hvísli barnsins, sem býður þér merki í fyrirlitinni merkjasölu dags- ins til ágóða fyrir Reykjalund, heimili blindra, fatlaðrá fá- vita eða öryrkja. Og eitt hið ókirkjulegasta af hversdags- hlutum, sem ég hef séð á þess- um síðustu tímum eru orðin, sem sett eru við yztu dyr á fjölbýlishúsunum: Merkja- sala bönnuð. Þessi orð eru hversdagsleg, en þau eru ljót, sýna hugsunarhátt, sem gæti lokað fyrir áhrif saltsins? ljóss- ins og súrdeigsinsi aðeins gerð Framhald á bls 15 RÆKTUNARSAMBÖND - VERKTAKAR Hy-Mac Model 580 skurðgrafa Sem brautryðjendur á innflutningi á. vökvadrifnum skurðgröfum með löstum armi til graftrar á framræslu-skurðum, viljum við vekja athygli yðar á, að í sumar hafa tvær Hy-Mac skurðgröfur model 580 unnið við framræslu-skurðgröft með góðum árangri. Afköst vélanna hafa verið 120—150 kibukm. á klst. að jafnaði. Vegna þess, hvað flatarþungi Hy-Mac gröfunmar er lítill eða aðeins ca. 0.23 kg/fersm., hafa hvorugar þessara grafa þurft að nota fleka, jafnvel þótt þær hafi í sumum til- felium unnið í mjög votu landi. Þar sem þessar gröfur hafa unnið í erfiðu landi, hafa bezt komið í Ijós kostir hins fasta arms, þar sem þær hafa náð fullri graftrardýpt og ekki þurft áð skilja við höft og misdjúpa skurði. . Þar sem þungi og fyrirferð Hy-Mac gröfunnar er ekki meiri en góður vörubíll ræður við, er auðvelt að flytja hana á milli staða. Annað verkefni, sem Hy-Mac grafin er talin henta mjög vel í, er að hreinsa upp gamla skurðL KYNNIP YKKUR SEM FYRST KOSTI OG FJÖLHÆFNI VÖKVADRIFNU HY-MAC SKURÐGRÖFUNNAR. Heildverzlunin Hekla h.f. Laugavegi 170—172 — Sími 2-1240. /

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.