Tíminn - 10.10.1965, Síða 16
FJÓRÐUNGUR HEYSINS
SENN KOMINN AUSTUR
FB-Reykjavík, laugardag. I um 6700 hesta af heyi til Austur-
AIls mun nú vera búið að flytja I lands í sjö skipsferðum. Um
BÆNDURNIR FÁ 36 TONN AF
KORNIUMFRAM KOSTNAÐINN
MB-Reykjavík, laugardag.
Kornuppskera á Suðurlandi
hefur gengið mjög vel í haust,
enda einmunatíð. Bændur þeir,
sem eru með félagsrækt undir
Eyjafjöllum, hafa fengið um
28 tunnur af hektara og spara
sér mikið fé í fóðurhlöndukaup-
um. Klemenz á Sámsstöðum hef
ur nú í fyrsta sinn selt SÍS
mikið magn af korni í mölun
í fóðurblöndu og telur hann að
með tilkomu Mari-byggsins,
sem notað hefur verið á Suður-
landi í sumar í fyrsta sinn í
ríkum mæli, sé orðin bylting
í kornrækt hérlendis.
Blaðamenn Tímans voru fyr-
ir nokkrum dögum á ferð um
Suðurland og hittu nokkra
komræktarfrömuði að máli.
Klemenz á Sámsstöðum sagði,
að í sumar hefði hann fengið
um 21 tunnu af hektara af
Marí-byggi, en það er tiltölu-
lega nýtt hérlendis. Klemenz
kvaðst fyrst hafa notað það 1
tilraunum árið 1962 og í fyrra
hefði hann sáð því í 3 hektara
en í sumar í 8 hektara. Hann
kvað Marí-byggið heldur sein-
þroska, en hins vegar ákaflega
þolið og hefði ekkert úr því
fokið í tilraununum. Klemenz
kvaðst telja, að þar sem Marí-
byggið ætti við, væri hreinlega
um byltingu að ræða í korn-
ræktinni hérlendis. Klemenz
var með Arla-bygg í sumar í
Klemenz á Sámsstöðum
kornbindi.
meS
fyrsta sinn, en það hefur áður
verið ræktað í tilraunum hjá
Atvinnudeildinni. Reynslan af
því varð einnig mjög góð og
fékk Klemenz heldur meiri
uppskeru af því en Marí-bygg-
inu, eða rúmlega 21 tunnu af
hektara. Arla-byggið er bráð-
þroskaðra en Marí. Báðar þess
ar tegundir eru fengnar frá
Skáni. Klemenz hefur ekkert
útsæði tekið af Marí-bygginu,
enda er það full seinþroska til
þess, en hins vegar ágætt í
mölun í fóðurblöndur. Nú í
haust keypti Samband íslenzkra
samvinnufélaga í fyrsta sinni
korn af Klemenz til mölunar
í verksmiðjunni á Stórólfshvoli.
Var þar um að ræða um 14
lestir af Marí-byggi.
Klemenz kvað ágætan hagn-
að af kornræktinni, þegar svo
vel gengi sem í sumar. Hann
taldi, að hagnaðurinn væri ekki
undir 4.000 krónur af hektara,
þegar tekið væri tillit til alls
kostnaðar, jarðvinnslu, útsæðis,
áburðar, uppskeruvinnu og
landleigu.
Nú um nokkurra ára skeið
hafa nokkrir bændur undir
Austur-Eyj afj öllum stundað
kornrækt í félagi. Stundum
hafa komið heldur léleg ár, og
hefur þá suma brostið kjark,
en flestir hafa haldið áfram,
og nú eru þeir sex, sem standa
að kornræktinni. Þeir eru með
sameiginlega kornrækt á um
15 hekturum, en auk þess hver
í sínu lagi með um 5 hektara.
Akrarnir eru nú á Eyvindar-
hólum og í móajörð, en áður
voru þeir á Skógasandi.
Við heimsóttum Eggert
Ólafsson bónda á Þorvaldseyri,
sem er mikill áhugamaður um
kornrækt sem og annað er að
framförum lýtur í búskap.
Hann kvað komræktina að Ey-
vindarhólum hafa gengið ákaf-
lega vel í sumar. Telur hann
að til þess að hún standi undir
sér þurfi að fá a, m. k. tíu
tunnur af hverjum hektara, en í
sumar hafi þeir íengið um 28
tunnur af hektaranum, þ. e.
18 tunnur fram yfir það, sem
þurfti til að standa undir kostn
aði.
Eggert sagði, að þeir íétu
þurrka og mala komið til
skepnufóðurs. Mest af því er
þurrkað og malað í verksmiðju
SÍS á Stórölfsvelli. en Eggert
hefur einnig útbúið sér sér-
stakan þurrkara heima á Þor-
valdseyri, þar sem hann þurrk-
ar hluta af sínu korni og malar
síðan héima. Fleiri munu og
mala einhvern hluta korns síns
heima. Þurrkari Eggerts er
þannig útbúinn, að hann hefur
sett upp venjulegan olíubrenn-
ara og við hann sívalning, sem
búinn er til úr tómum tunn-
um. Við hinn enda sívalnings-
ins er svo venjulegur blásari,
sem dráttarvél knýr. Þaðan er
heitu loftinu blásið undir striga
klætt rimlagólf, sem kornið er
á. Eggert kvaðst geta þurrkað
um 15 poka á dag með þessum
hætti.
Eggert kvað malaða byggið
reynast ágætlega til skepnu-
fóðurs. Væri því blandað sam-
an við venjulega fóðurblöndu
Framhald á bls. 15.
Eggert á Þorvaldseyri athugar hvort kornið er orðið þurrt.
(Tímamyndir K. J.)
„HVENÆR ÆTLI VID FÁUM
SV9NA TÆKII SKÚLANA?"
GB-Reykjavík, laugardag.
Þaö var setinn bekkurinn
í stóra salnum í Hagaskóla í gær.
en að þessu sinni voru það kenn-
aramir, sem sátu á skólabekk,
Jkennarar úr öllum skyldunáins-
skólum í Reykjavík, um fjögur
hundruö íalsins, en börnin áttu
frí þennan dag á meðan verið var
að kenna kennurunum. Nánar til
tekið var verið að kynna og kenna
meðferð kennslutækja, sem reyk-
vískum kennurum er nýlunda,
þótt erlendis hafi þau í mörg ár
verið talinn sjálfsagður liður í
skólakennslu.
Þar var t.d. sýnd 8 mm kvik
myndavél, sem þykir einstaklega
snör í snúningum og heppileg til
að sýna stuttar kennslukvikmynd-
ir. En mestan áhuga kennara
vakti þó svonefndur myndvarpari,
sem kennari getur haft á kenn-
araborðinu, skotið inn í það mynd
um á plötu, blöðum og bókum,
einnig skrifað hvað sem er á yfir-
Jborðsflöt tækisins og endurvarp-
, ast það allt og á vegginn, yfir
höfuð kennarans, svo hann þarf
ekki að snúa sér frá nemendun-
um á meðan. Þetta er aðdáanlega
! handhægt kennslutæki, sem farið
| var að nota í skólum erlendis
fyrir meira en áratug, þótt ekki
i hafi þótt taka því enn sem kom
ið er að útvega það í skóla hér á
landi, svo mjög sem það mundi
lífga alla kennslu og létta námið.
Meðferð tækjanna var sýnd á
sviðinu í stóra salnum í gær, en
tækin voru einnig til sýnis frammi
á göngunum og verða í dag og á
morgun. Fréttamaður Tímans
staldraði þar við, sem kennarar
voru að skoða þetta þénuga verk-
færi, þeir litu það löngunarauguin,
en sumir sögðu í mæðutón: „Það
er svo sem nógu gaman að
skoða þetta á sýningu, en hvenær
ætli við megum gera okkur von-
ir um að fá svona tæki í skólana?“
Verð stóð skrifað á tækið: 16,500
krónur, álíka og sæmilega góð
myndavél.
10.000 hestar bíða véHwmdnir að-
allega fyrir austan fjall, í Sand-
gerði og uppi í Borgarfirði, og er
búizt við að þeir verði sendir
austur nú á næstunni.
Nú fyrir skömmu fór Herðu-
breið með hey til Mjóafjarðar,
Hermóður tók nokkurt magn til
Loðmundarfjarðar, og í dag fer
Heklan með hey til Fáskrúðsfjarð
ar, en á mánudaginn mun Jarl-
inn lesta 1500 hestburði og fara
með þá til Breiðdalsvíkur. Áður
hefur svo verið skýrt frá hey-
flutningum Selár, Herjólfs, Dísar-
fellsins og Mælifellsins, en þegar
austur munu verða komnnir þang-
Jarlinn hefur flutt heyfarm sinn
að samtals 820 hestar.
Hingað til hafa borlzt loforð um
5000 hesta af gjafahey en
nú fyrir skömmu kom Helgi Har-
aldsson bóndi að Hrafnkelsstöð-
um í Hrunamannahreppi og færði
Kalnefndinni 5000 krónur í pen-
ingum, sem hann sagði að ættu að
fara til heykaupanna, og er þetta
fyrsta peningaupphæðin, sem
nefndinni hefur borizt frá ein-
staklingi í þessum tilgangi.
Tíð hefur verið ákaflega góð
að undanförnu á Austurlandi, og
er nokkuð úti af heyjum þar enn-
þá, sem menn vonast til að geta
náð inn og notað, að sögn Kristj-
áns Karlssonar hjá Stéttar-
Framhald á bls. 15.
Aðalfundur FUF
Aðalfundur Félags ungra Fram
sóknarmanna í Reykjavík verður
haldinn mánudaginn 11. október í
Framsóknarhúsinu við Fríkirkju-
veg uppi, og hefst kl. 8.30 e. h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar
störf. — Stjórnin-
SLATURSÖLU
LOKEÐ HÉR
í REYKJAVÍK
KJ-Reykjavík, laugardag.
Dilkaslátrun er nú víðast hvar
að ljúka, og sumsstaðar er henni
lokið eins og hér í Reykjavík.
Hættir þar með slátursala. því
þótt enn megi búast við að dilk-
ar komi til slátrunar, þá er aðal-
sláturtíminn úti, og ekki hægt að
halda uppi slátursölu. Núna næstu
daga hefst slátrun á ám og stór-
gripum í sláturhúsum Sláturfélags
Suðurlands.
Ráðherra með fjörgjafa
Alþýðublaðið segir stór-
fréttir á forsíðu í gær og hefst
frásögnin á þessum orðum:
„Allir þrír ráðherrar Alþýðu
flokksins tala á fyrsta fundi
Alþýðuflokksfélags Reykjavík-
ur á þessu hausti, sem hald-
inn verður í Iðnó n.k. þriðju-
dagskvöld. Fundarefnið er að-
almál stjórnmálanna."
Og fréttinni lýkur með þess
um áréttingarorðum:
„Til þess að gera fundinn
líflegan hefur stjórn Alþýðu-
flokksfélagsins fengið sérstak-
an stjórnanda til þess að
stjórna umræðunum. Verður
það Sigvaldi Hjálmarsson, rit-
stjóri.“