Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
„Við teljum leiðina til að ná fram vinalegu og hlýlegu andrúmslofti
að hafa gömul, falleg húsgögn og skrautmuni til að prýða umhverfið11
sagði Gunnlaugur Ragnarsson annar eiganda veitingastaðarins
Abrakadabra en sá staður var nýlega opnaður. „Það var ákveðið að
láta ekki einhvern einn stil ráða ferðinni heldur fara kannski ótroðnar
slóðir, kaupa antik húsgögn og umfram aitt stefna að því að fólki
gæti liðið vel. Það sem af er hafa gestir okkar tekið þessu vel, þeir
eru kannski dálftið undrandi til að byrja með en kunna auðsjáanlega
vel við sig. Og þá er takmarkinu náð.“
ARNI SÆBERG
Veitingastaðinn Við Tjörnina prýða einungis gamlir munir og það er óneitanlega notaleg tilbreytni frá
því sem gengur og gerist að sitja og njóta máitfðar í svoleiðis umhverfi.
Danskur húsbúnaður frá 1780-90
Madurinn hefur líkiega frá fyrstu
tíð tyllt sér niður og lagt frá sér
á vísan stað það sem hann hefur
haft umleikis. En varla er unnt að
segja hvenær menn fóru að marki
að gera sér gripi til skrauts og
þæginda. Það er ekki ósennilegt
að ífyrstunni hafi húsbúnaður
verið talinn til áhalda sem fylgdu
eigendum og kann það að skýra
hversvegna latneska orðið
mobilis (hreyfanlegur) hefur verið
yfirfært á húsgögn í öðrum
málum, samanber mubla.
PÝRÍT —
GULLSMIÐJA
ÖNNU MARÍU
Anna María
Sveinbjörnsdóttir, gullsmiður,
er með gallerí og verkstæði á
Vesturgötu 3. Hún er eingöngu
með handsmíðaða módelgripi,
aðallega hringa, nælurog
eyrnalokka. Anna María
smíðar einnig eftir pöntunum
og gerir við.
Morgunblaðið/Einar Falur
Helga Krlstlnsdóttlr, móðlr Önnu Maríu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Borghlldur Óskarsdóttlr á karamlkverkstæðlnu.
KERAMIKVERK-
STÆÐI
Borghildur Óskarsdóttir er
með keramikverkstæði á
Óðinsgötu 13b. Hún vinnur
keramikskúlptúra og
leirmyndir, aöallega í steinleir.
KÖRFUGERÐIN
Körfugerðin, Ingólfsstræti
16, er rekin af Blindravinafélagi
íslands. Þar er bæði
vinnustofa og verslun.
Framleiddar eru burstavörur
og ýmiss konar körfur.
Morgunblaðið/BAR
Guðlaug Harðardóttlr vlnnur í afleyslngum í
Körfugerðlnnl.