Morgunblaðið - 31.07.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
B 9
Ráðgjafaþjónustu var komið á fót hjá Húsnœðisstofnun fyrir um
tveim árum og hefur hún mikið verið notuð að sögn Jóhanns
Friðjónssonar ráðgjafa.
Strandar á láninu
vegar um 50% af fasteignaverð-
inu. i nagrannalöndunum er
hinsvegar algengast að útborg-
un nemi 10-20% og allt niður í
5-7% fasteignaverðs.
Ein aðalbreyting nýju laganna
er að fram að þeim tima er þau
gengu í gildi var mest lánað til
nýbygginga, en nú er meira lán-
að til kaupa á notuðu húsnæði.
Helstu kostir nýju lánanna eru
tvímælalaust þeir að lánstími
lengist og fyrstu tvö árin eru
engar afborganir greiddar. En
menn hafa einnig bent á galla
þessara nýju lána, m.a. fá þeir
sem hafa lægstu tekjurnar ekki
lán þar sem þeir reynast ekki
hafa greiðslugetu til að borga
lánin upp. Hinsvegar fá menn
lán þó þeir eigi aðrar fasteignir
og þurfi ekki nauðsynlega á láni
að halda. Þá hefur verið kvartað
yfir því að hjón hafi ekki jafn
mikinn lánsrétt og tveir einstakl-
ingar og borgi sig því fyrir þá
sem ætla að ganga í það heilaga
og festa kaup á húsnæði að
sækja um tvö lán sem einstakl-
ingar áður en þau láta pússa sig
saman.
Ráðgjafaþjónustu var komið á
fót hjá Húsnæðisstofnun fyrir
um tveim árum vegna greiðslu-
erfiðleika húsakaupenda og að
sögn Jóhanns Friðjónssonar
sem er einn ráðgjafanna, hefur
mikið verið leitað til þeirra á
árinu. „Hingað hafa menn leitað
til að fá upplýsingar um réttindi
sín og aðstoð við að fylla út
umsóknareyðublöð og ýmis
gögn.“ Jóhann sagði að fulltrúar
hinna ýmsu hópa og starfsstétta
hefðu notað þessa þjónustu
jöfnum höndum.
En hvað segja ungir húsakau-
pendur um nýju lögin? Við
ræddum við nokkra sem nýlega
hafa fest kaup á sínu fyrsta hús-
næði.
- vj
Við hittum að máli
ónefndan herramann
sem hafði eftirfarandi
sögu að segja. „Ég keypti mér
íbúð fyrir rúmu ári og borgaði
fyrir hana á þriðju milljón.
Þegar upp var staðið og ég
búinn að borga 70% af kaup-
verði á árinu, átti ég um það
bil hálfa milljón í afgang af
húsnæðismálaláninu. Ég velti
því lengi fyrir mér hvort ég
Birgitta Ósk Óskarsdóttir
er ung stúlka sem keypti
sér íbúð árið 1985. Fyrir
síðustu áramót sótti hún um
greiðsluerfiðleikalán. Nú strand-
ar allt á þessu láni sem hún er
ekki enn búin að fá. Við báðum
Birgittu um að segja okkur frá
því, hvernig íbúðarkaupin hefðu
gengið fyrir sig.
Faðir Birgittu rekur fasteigna-
sölu og íbúðin kom inn á sölu
hjá honum. „Ég var úti í Sviss
þegar þetta gerðist. Pabbi
hringdi í mig og mér leist mjög
vel á íbúðina. Hún kostaði millj-
ætti að sleppa því að taka allt
lánið eða fjárfesta í bréfum
og slíku fyrir þessa upphæð.
Ég á auðvitað eftir að greiða
á næstu fjórum árum þessi
þrjátíu prósent sem eftir eru
af íbúðinni og með hæstu
leyfilegu vöxtum og þá er gott
að geta ávaxtað þessa pen-
inga í banka og notað þá svo
í afborganirnar.
ón og ég fékk 250 þúsund króna
húsnæðislán. Verktakinn lánaði
mér síðan 600 þúsund. Ég var
í skóla og vann á hverjum degi
með skólanum. Þetta var mjög
erfitt eins og gefur að skilja og
ég gat ekki alltaf staðið í skilum.
Ég sótti því um greiðsluerfið-
leikalán. Ég vissi ekki að það
væri hægt, fyrr en ég las um
það í Mogganum og var þess
vegna sein til. En mér var lofað
láninu fyrir síðustu áramót.
Núna strandar allt á þessu láni.
Þegar ég hringi, þá eru þeir allt-
af að vinna í þessu. Þeir eru
búnir að vera að því núna i
meira en sex mánuði," sagði
Birgitta.
„Það sem eftir stendur af af-
borgunum, vöxtum og verð-
bótum er ég með á bréfi sem
ég gat sem betur fer framlengt.
Ég sótti um bankalán en fékk
það ekki vegna þess að ég var
í vanskilum og í skóla. Það er
erfitt að koma sér upp þaki yfir
höfuðið í fyrsta skipti. Ég var líka
óheppin vegna þess að ári eftir
að ég keypti íbúðina mína, þá
komst nýja lánakerfið á. Nú er
lánað miklu meira af kaupvirði
íbúða en áður var gert. Þeir sem
keyptu rétt áður en þessu var
breytt eru illa staddir."
Svona hefur þetta gengið fyr-
ir sig hjá Birgittu og eflaust
mörgum fleiri.
„Átti hálfa u
milljóníafgang“
KLIPPAN
IORUGGU SÆTI
Klippan barnapúðinn og rúllu-
öryggisbeltin eru nú fyrirliggjandi i
allar gerðir bifreiða.
Púðinn hentar börnunum sem eru
vaxin úpp úr barnabilstólnum, allt að
150 cm = 36 kg.
Sölustaðir.
Varahlutaverslun Veltis
Suðurlandsbraut 16
Olisstöðvar um land allt.
Verð:
Barnapúðinn kr. 1.378.-
Rúllubelti kr. 1.779 - stk.
Vf + =>
SUÐURLANOSBRAUT 16 - SÍMl 35200
TRYGGÐU GÆÐIN
-TAKTÁ KDDAK...
Frægir húsgagnasmiðir eins og
Chippendale og Heppelewhite
leggja línurnar um hvernig hús-
gögn eigi að líta út. Húsgögn sem
bera nafn þessara manna þykja
kostagripir og seljast á háu verði.
19 Öldin
Viktoríutímabilið hefur þessi öld
verið kölluð og kennd við Viktoríu
drottningu sem ríkti yfir Bretlandi
frá 1837 til 1901
Rósaviður er mikið notaður í
húsgagnagerð og mahoní viðurinn
heldur sínu striki. Stólar eru mikið
bólstraðir og farið er að búa til
eftirlíkingar af þekktum og dýrum
húsgögnum. Snyrtiborð koma á
markaðinn um miðja öldina og á
sama tíma járnhúsgögn. Rúm úr
járni og látún eru mikið notuð.
Hi hi
1