Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 8

Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 „Tel þetta framtíð- ar fyrirkomulag" Jón Geir Hlinason og Soffía M. Ólafsdóttir keyptu sér íbúð í Hafnarfirði í mars s.l. og eru nýflutt inn í nýja hús- næðið. „Við sóttum um lán í nóvem- ber, fengum lánsloforðið tæpum þrem mánuðum seinna, og fór- um þá að leita fyrir okkur á fasteignamarkaðinum" segir Jón Geir. Hann kom heim frá hag- fræðinámi í Svíþjóö fyrir um tveim árum, „við þurftum þá að leigja okkur íbúð, leigðum í eitt ár, borguðum hálft ár fyrirfram og svo alltaf þrjá mánuði í senn fram í tímann. Við gátum lítið sparað á þessu tímabili, og tók- um því til bragðs að flytja inn á móður mína, bjuggum mjög þröngt í 10 mánuði og gátum sparað svolitlu saman með því móti." Hann segir þau hafa séð verð- ið á íbúðunum hækka, næstum dag frá degi, eða um 100 þús- und krónur á viku á því tímabili sem þau voru að leita fyrir sér á fasteignamarkaðinum. „Þegar við sáum þessa íbúð, geröum við tilboð í hana, þetta var reyndar annað tilboðið sem við gerðum. Við sáum að verð á húsnæði er talsvert ódýrara hér í Hafnarfirði en í Reykjavík, það voru settar þrjár og hálf milljón á þetta húsnæöi hér sem er um 150 fermetrar, en ég fókk íbúð- ina á 3,2 milljónir með því að borga hana út á árinu." Lánin sem Jón Geir fékk voru 1723 þúsund frá Húsnæðisstofnun, nokkur hundruð þúsunda átti hann í sparifé, og afganginn fékk hann lánaðan. „Ég reiknaði út að þetta kæmi sér betur fyrir okkur en að dreifa eftirstöðvun- um á nokkur ár. Þetta ætti ekki að reynast okkur erfitt, jafnvel þó vextir hækki eitthvað frá því sem nú er, en ég geri ráð fyrir að ef þetta dæmi væri sett fyrir fólk sem er með mjög lágar tekj- ur þá reyndist þetta fremur erfitt viðfangs. " Jón Geir segir nýju lögin tvímælalaust miklu aðgengilegri fyrir fólk sem er að kaupa sitt fyrsta húsnæði eins og þau hjónin. Auk þess sé mikið hag- ræði af því að sækja um lán á einum stað í stað þess að þurfa að ganga milli peningastofnana. „En þetta kerfi hefur einnig ákveðna galla, það hefur t.d. verið gagnrýnt að þeir sem eiga húsnæði fyrir og hyggjast minnka við sig geti sótt um lán og fengið það, þó þeir þurfi ekk- ert á því að halda. Þetta fólk fær þannig í hendurnar peninga sem það getur leikið sér með. Ég held að þetta kerfi sé engin bráðabirgðalausn heldurframtið- arfyrirkomulag, og það er ekki alveg að marka hvernig þetta hefur gengið fyrir sig fyrsta árið. Þegar lögunum var breytt var töluverður uppsafnaður vandi á ferðinni, mjög lítil hreyfing hafði verið á fasteignamarkaðinum. Ég hef grun um að mun fleiri hafi sótt um lán á þessu fyrsta ári en höfðu þörf fyrir þau.“ - vj KGA „Miklu aðgengilegra lánakerfi" segja þau Jón Geir Hlinason og Sofffa M. Olafsdóttir Viltu kaupa þér HÚSNÆÐI? NÚ er um það bil ár síðan nýju lögin um húsnæðislán gengu í gildi. Töluverðar breytingar hafa átt sér stað á fasteignamarkaðinum á þessu tímabili, mikið annríki verið á fasteignasölum og sala íbúða aukist til muna. Verð fasteigna hefur hækkað um 40% á meðalstórum íbúðum og að sögn Friðriks Stefánssonar fasteignasala má gera ráðfyrir hækkun á stærri eignum nú í haust. Asjötta þúsund manns fengu afgreidd lánslof- orð á árinu, en þeir sem sóttu um til Húsnæðisstofnunar eftir 12. mars hafa enn ekki fengið vilyrði fyrir láni þar sem ekki hefur verið gengið frá samningum við lífeyrissjóðina. Nýir þjónustuaðilar hafa sprot- tið upp, og má þar nefna Fjár- festingarfélagið sem býðst til að kaupa lánsloforð af íbúðar- kaupendum, og brúa þannig það bil sem myndast frá því kaup- andinn fær lánsloforðið í hendurnar þar til lánin eru greidd út, en gera má ráð fyrir eins til tveggja ára biðtíma. Af- föll eru þó nokkur, þannig fær viðskiptavinur Fjarfestingarfé- lagsins sem leggur inn lánslof- orð um 1,8 milljón króna lán, aðeins tæplega 1,6 milljónir af láninu sjálfur, miðað við að helmingur lánsins komi til út- borgunar eftir tvo mánuði og hinn helmingurinn eftir 6 mán- uði. Þessi þjónusta er mikið notuð að sögn Jökuls Jóhannes- sonar hjá Fjárfestingarfélaginu, og virist mörgum þykja þetta þægilegri kostur en ganga milli bankastofnana. Að sögn Friðriks Stefánsson- ar hafa nýju lögin bæði haft áhrif á verð fasteigna og út- borganir, en algengt er að um 78% verðsins sé borgað út á árinu, og hafa útborganir aldrei verið hærri. „Fólk kýs frekar að greiða sem mest út, þar sem það eru vaxtalausar greiðslur í stað þess að borga háa vexti næstu árin.“ Þessar háu út- borganir hafa verið mikið gagnrýndar, Stefán Ingólfsson hefur t.d. látið hafa það eftir sér víða í blaðagreinum á árinu að hann telji það eitt mesta vanda- mál húsnæðismarkaðarins hve hann er fjárfrekur vegna hárra útborgana. Útborganir voru fyrir um það bil ári um 70-72%, en fram til 1980 var útborgun hins- FRAKKLAND Sautjánda öldin Lúðvík fjórtándi sem var kon- ungur Frakklands 1643-1715 var hrifinn af íburðarmiklum húsum og húsgögnum. Á stjórnarárum hans voru Versalir byggðir og allt tíma- bilið er þekkt í sögunni fyrir íburö og óhóf. Barrokk stefnan var nær ! einráð og í anda hennar voru smíðuð þung húsgögn sem voru skrauti hlaðin. Undir lok aldarinnar misstu þeir sem voru mótmælatrú- ar rétt sinn í Frakklandi og flúðu margir ágætir handverksmenn þá yfir til Englands og Hollands. Átjánda öldin Á stjórnarárum Lúðvíks fimmt- ánda frá 1715-1774 tók rókókó tímabilið við af barrokk. Lögð var áhersla á mýkri línur og skrautið var tíngerðara og ekki eins of- hlaðið og áöur. Frægar franskar hefðarmeyjar eins og Madame De Pompadour höfðu mikil áhrif á tískuna og þar með talið hús- gagnahönnun. húsgögn Nítjánda öldin Rokokó og barrokk húsgögn komast í ónáð og margur góður gripurinn var eyðilagður í kjölfar frönsku byltingarinnar 1789. Á veldistíma Napóleons frá upphafi aldarinnar og fram á annan áratug- inn hurfu Frakkar að klassískum húsgagnastíl og sóttu hugmyndir til Forn-Grikkja, Rómverja og Egypta. BRETLAND ÁRIN 1550 - 1650 Eikarhúsgögn eru allsráðandi Húsgögnin eru innlögð og mikið útskorin og byrjað er að bólstra stóla. Skápar með skúffum koma til sögunnar og á þessu tímabili eru tekin í notkun flókin smíðatól sem gera skreytingar og útskurð auðveldari en áður. Árin 1650 - 1800 Erlend áhrif settu mark sitt á húsgagnagerö Englendinga á þessum áratugum. Valhnota er notuð í ríkara mæli en áður. Virðu- leiki og rétt hlutföll móta hús- gagnastílinn og fram á sjónarsviðið koma nú spilaborð, skrifstofuinn- réttingar og byrjað er að lakka skápa. Farið er að sérhanna hús- gögn fyrir stór og íburðarmikil hús I byrjun átjándu aldar kemst rauðbrúni mahoní viðurinn í tísku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.