Morgunblaðið - 06.08.1987, Side 9
CRIME Story
■ 7HCýsOOHT CQMC MUCH BCT7CÍI THAH THI$...
A swum
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
Lögregluþriller
Crime Story ★ ★ */s
Leiksjóri: Abel Ferrara
Handrit: Chuck Adamson,
Gustave Reininger, David J.
Burke
Yfirumsjón tónlistar: Todd
Rundgren
Kvikmyndatökustjóri: Jamer A.
Contner
AðaUeikendur: Dennis Farina,
Anthony Denison, William
Smitrovich, Joseph Wiseman,
Darlanne Fluegel, Jon Polito,
Steve Ryan, Bill Campbell, Paul
Butler, Stephen Lang
Bandarisk. The Michael Mann
Company/New World Television
1986. Skifan 1987.
94 min.
Hér er á ferðinni gengi lögreglu-
manna sem sérvalið er til að beija
á erkibófum þeirrar vindasömu
borgar, Chicago. Fyrir þeim fer
Dennis Farina, sem er einsog
granítútgáfa af Tom Selleck.
Eitt fyrsta málið sem þessi harð-
jaxlanefnd fær til meðferðar er
rannsókn á skartgripaþjófnaði og
er einn manna Farina felldur strax
í upphafi. Inn í málið tengjast fjöld-
skylduvinir lögregluforingjans auk
þess sem málið er sýnt frá hlið
glæpamannanna.
Bráðgóðar týpur í öllum stærri
hiutverkum sem skila þeim vel, frá-
bær endursköpun tímabilsins sem
myndin gerist á, í kringum ’60, lyfta
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987
B 9
Handrit: Fuller og John Kings-'
bridge. Byggt á skáldsögu
Victors Canning, His Bones are
Coral.
Kvikmyndataka: Paul Martinez
Saores. i
Tónlist: Rafael Moroyoqui.
Framleiðendur: SKip Steloff og
Mark Cooper.
Aðalleikendur: Burt Reynolds,
Barry Sullivan, Arthur Kennedy, í
Silva Pinal, Carlos Barry.
Bandarisk/ mexíkönsk
Heritage-Cinematografíca 1969.
88 min. ;
Því verður sjálfsagt seint slegið
föstu að Samuel Fuller hafí verið
einn af athyglisverðustu leikstjór-
um aldarinnar, hinsvegar hefur
hann getið sér víða góðs orðs, en
hvergi þó sem í Frakklandi, þar sem
þessi flinki B-myndasmiður hefur
verið tekinn í auteur-tölu.
Shark telst ekki í hópi betri
mynda leikstjórans, enda hefur
hann sagt að honum komi hún lítið
við; árekstrar milli hans og fram-
leiðendanna enduðu með því að
karlinn gekk á braut en þeir sem
eftir sátu klipptu og klipptu og
skeyttu auk þess inní nýjum filmub-
útum.
Crime Story yfir langslitið meðal-
lagið. Síhress rokktónlistin frá
þessum tíma er notuð á mjög upp-
lífgandi hátt og eins hefur útlits-
hönnuðum myndarinnar tekist að
endurvekja þessa ágætu tíma með
vandvirknislegum götuatriðum þar
sem tryllitækin gömlu og góðu stela
senunni. Vandvirknisleg hasar-
mynd í flesta staði þó byggð sé á
rútínulegu efni.
UFPCIÖRID
sriso’.Sr:
Brestur í böndum
— drama
Uppgjörið — Bouble Sculls ★ ★
Leikstjóri: Ian Gilmour
Handrit: Chris Peacock
Framleiðandi: Richard Brennan
Tónlist: Chris Neal
Kvikmyndatökustjóri: Vincent
Monton
Aðalleikendur: John Hargreaves,
Chris Haywood, Bill Kerr, Judi
Farr, Mercia Deane-Jones, Vinc-
ent Ball, Angela Punch
Áströlsk. PBL Production PTY
Ltd. 1986. Bergvík 1987.
90 min. Bönnuð innan 12 ára.
Það sem skaðar þessa annars
nokkuð hlýlegu mynd er hin ólík-
lega, dramatíska farmvinda. Hún
fjallar um tvo vini sem um langt
árabil hafa ekkert samband haft,
eða síðan á háskólaárunum. Sam
er orðinn frægur læknir þegar hinn
gamli vinur hans rekst inná spítala
hans, þá forfallinn brennivínsmað-
ur. Sam á honum greiða að gjalda
og þá hefjast ólíkindin. Læknirinn
brýtur allar brýr að baki sér, bæði
í vinnunni og inni á heimilinu til
að koma sínum fomvini til aðstoð-
ar. Fyrr á árum þóttu þeir víst
afburða róðrarmenn svo það er
náttúrulega tekið til við áramar á
nýjan leik, öllu öðru varpað fyrir
róða, eiginkonunni og yfirlækninum
til armæðu.
Ekki síður merkilegt fyribrigði
er Paul. Eftir honum að dæma virð-
ist það vera leikur einn að vera
drykkjubolti í Ástralíu. Alltaf nóg
af fé, og þar af leiðandi víni, enginn
hörgull á stólpakvenfólki og til þess
að verða Ástralíumeistari í tvímenn-
ingsróðri er nóg að láta rétt renna
af sér í örfáar vikur. Þó um mið-
aldra menn sé að ræða! í ofanálag
átti Paul svo vingott við konu besta
vinarins, á árum áður.
Uppgjörið, þrátt fyrir sína þokka-
legu kafla og góðan leik Hargreaves
í aðalhlutverkinu, er vanhugsaðra
sjónarspil en við eigum að venjast
frá andfætlingunum. Uppbygging
þess er með miklum ólíkindum og
illa samofin. Upphafsatriðið nær
t.d. ekki tilgangi sínum sökum þess
hversu endasleppt og óundirstrikað
það er í framvindunni. Þá em þau
Haywood og einkum Mercia Deane-
Jones óheppileg í hlutverkum
sínum.
Þegar Páfinn kom til Montepetra
— drama.
Saving Grace ★ ★ xh
Leikstjóri: Robert M. Young
Handrit: David S. Ward. Byggt
á skáldsögu eftir Celiu Gittelson
Framleiðandi: Herbert F. Solow
Aðalleikendur: Tom Conti, Fern-
ando Rey, Edward James Olmos,
Patricia Mauceri, Giancarlo
Gianinni, Erland Josephson
Bresk-Bandarísk. Embassy 1985.
Embassy Home Entertainment/
Tefli 1987.
107 mín. Öllum leyfð.
Páfanum í Róm (Conti) leiðist
að láta kalla sig hans heilagleika,
svo þegar hann flæmist óvart útúr
Vatikaninu grípur hann frelsið feg-
ins hendi. Lítil stúlka hafði sagt
honum skömmu áður að það væri
enginn prestur í litla bænum henn-
ar, Montepetra, svo Heilagleikinn,
klæddur venjulegum ígangsklæðum
heldur til staðarins.
Þar er í rauninni flest að. Drep-
sótt kom þar upp fyrir nokkrum
árum og þorpið enn í sóttkví. Karl-
amir una því vel að fá alit uppí
hendumar og halda plágusögunni
gangandi.
Nú fínnur hið geistlega yfírvald
loksins ærlegt verkefni og reynir
að koma hlutunum í lag.
Það er eitthvað ljúft og fallegt
við þessa bamalegu fantasíu sem
fær mann til að fyrirgefa henni
blessaðan einfaldleikann. Enda
væmm við stödd í mun verri veröld
ef menn fengju ekki tækifæri til
að sinna því sem þeir óska sér. Og
það er svo margt fallegt að finna
í þessari nútíma-sunnudagamynda-
sögu, einkum sú mannlega afstaða
og mynd sem er dregin upp af sjálf-
um páfa. Hún ætti hæglega að
geta hlýjað flestum ef menn aðeins
vilja kíkja framhjá sakieysislegum
vanköntum hennar.
Margt ágætisfólk kemur við
sögu, eins og Robert M. Young
(Extremeties) og þeir valinkunnu
leikarar Erland Josephson, Fem-
ando Rey og Giancarlo Gianinni,
utan Conti, sem hér fer í enn eina
grasaferðina...
Ekki er að sjá að þessi vinnu-
brögð hafí verið til bóta og læðist
að manni sá gmnur að frummyndin
hafi tæpast verið beysin heldur.
Shark er gamaldags ævintýraþriller
um lukkuriddarann og vopnasmygl-
arann Burt Reynolds. Á flótta
undan lögreglunni í Súdan kemst
hann um borð í skútu hjóna, landa
hans, sem stunda dularfullar kaf-
anir undan ströndinni.
Innan skamms er Reynoids far-
inn að skilja konuna og forvitnast
eftir hvað það er sem þau em að
sækjast eftir niðri á hafsbotni. Og
fleiri komast í spilið.
Þrátt fyrir ágætan leikhóp missir
Shark marks. Efni sem svo sannar-
lega hefði getað staðið vel undir sér.
í höndum flinkari manna, rennur
gersamlega útí sandinn. Eina
skemmtunin er að virða fyrir sér
leikstíl Reynolds, en þaraa, við upp-
haf ferils síns, hefur honum greini-
lega þótt vænlegast að stæla
Brandó sem ýtarlegast! Fróðleg
mynd fyrir Fuller og Reynolds aðdá-
endur, sjálfsagt má hún rykfalla í
augum annarra.
Hálfgleymd hákarlalega
— þriller
Shark ★
Leikstjóri: Samuel Fuller.
Sjónvarpið:
Mussolíní og ég
-úr dagbókum Ciano greifa
■i Sjónvarpið byij-
55 ar í kvöld á
sýningum
ítalsks framhaldsmynda-
flokks í fjóram þáttum,
sem ber yfirskriftina Dag-
bækur Ciano greifa (Mus-
solini and I). Flokkurinn
er gerður eftir dagbókum
Ciano greifa, en þær hafa
komið út á íslensku. Þar
er fjallað um uppgang
Mussolinis og samskipti
hans við sfna nánustu.
Þættimir gerast á ámnum
1943 og fram til loka síðari
heimstyijaldarinnar. Ciano
var kvæntur uppáhalds-
dóttur Mussolinis, Eddu og
þótti líklegur arftaki hans
í stjómmálum. Aðstæður
þróuðust þó á annan veg.
Með aðalhlutverk í þátt-
unum fara Susan Saradon,
Anthony Hopkins og Bob
Hoskins. Leikstjóri er Al-
berto Negrin og þýðandi
Þuríður Magnúsdóttir.
KKS