Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 16
FP
ítr B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987
HVAÐ
ERAÐ
GERAST?
Skáli Utivistar í Básum í Þórsmörk. Sérstök fjölskylduferð
er þangað um þessa helgi.
Náttúrugrípasafnið
Náttúrugripasafnið er til húsa að Hverfis-
götu 116,3. hæð. Þar má sjá uppstopp-
uð dýr til dæmis alla íslenska fugla,
þ.á.m. geirfuglinn, en líka tófur og sæ-
skjaldböku.
Safnið er opið laugardaga, sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13.30-16.
Póst-og
símaminjasafnið
i gömlu símstöðinni í Hafnarfirði er núna
póst-og simaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst-og
simstöðvum og gömul símtæki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safnið á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð i síma 54321
Sjóminjasafnið
Sjóminjasafnið hefur nú opnað nýja sýn-
ingu um árabátaöldina. Hún byggir á
bókum Lúðvíks Kristjánssonar „Islensk-
um sjávarháttum". Sýnd eru kort og
myndir úr bókinni, veiöarfæri, líkön og
fleira. Sjóminjasafnið er að Vesturgötu 6
í Hafnarfirði. Það er opið alla daga nema
mánudaga frá klukkan 14-18.
Þjóðminjasafnið
Þjóðminjasafniðervið Hringbraut. Þar
eru meöal annars sýndir munir frá fyrstu
árum Islandsbyggöar og íslensk alþýöu-
list frá miðöldum. Einnig er sérstök
sjóminjadeild og landbúnaðardeild til
dæmis er þar uppsett baðstofa. Einnig
er i safninu sýningin „Hvað er á seyði?"
þar sem rakin er saga eldhúss og elda-
mennsku frá landnámi til okkar daga.
Safnið er opiö alla daga frá 13.30-16.
Þjóðskjalasafnið
Þjóðskjalasafnið er i Safnahúsinu við
Hverfisgötu. I andyri þess hefurveriö
''sett upp sýning um Gísla Konráðsson i
tilefni þess að 200 ár eru liöin frá fæð-
ingu hans. Sýningin er opin á virkum
dögum.
Myndlist
Ustasafn Háskóla
íslands
Nýlega var sett upp í sýning á verkum i
eigu Listasafns Háskóla (slands, í Odda,
nýja hugvísindahúsinu. Um erað ræða
grafik, teikningarog málverk. Sum þess-
ara verka hafa verið keypt undanfarna
mánuði en önnur eru úr frumgjöfinni.
Aðgangur er ókeypis að sýningunni en
húneropin daglegafrá 13.30-17.
RíkeyíViðey
Ríkey Ingimundardóttir myndhöggvari
sýnir nú verk úr postulini og þekktar
mannamyndir í Viðey. Ferðireru frá
Sundahöfn alla daga en sýningin er opin
frá klukkan 13-19. Þetta er þriðja einka-
sýning Ríkeyjar en hún tileinkar Halldóri
Laxness sýninguna.
Ustasafn ASÍ
Á laugardaginn opnar sýning á verkum
ýmissa eldri meistara íslenskrarmyndlist-
ar. Sýningin er opin mán. til fös. frá
klukkan 16-20 og um helgar frá 14-22.
Sýningunni Iýkur23. ágúst.
Nýlistasafnið
Húbert Nói Jóhannesson og Þorvaldur
Þorsteinsson sýna nú i Nýlistasafninu.
Þorvaldur Þorsteinsson sýnir 10 oliumál-
verk og 36 vatnslitamyndir en Húbert
Nói sýnir 10 olíumálverk og kolateikning-
ar. Myndirnar eru allar til sölu en
'aðgangur er ókeypis.
Nýlistasafnið er opið virka daga frá kl.
16-20 og um helgar frá kl. 14-20.
Ölkeldan
Bergljót Aðalsteinsdóttir sýnir nú klippi-
myndir í Ölkeldunni við Laugaveg og
stendur sýningin yfir i júlímánuði.
Hafnargallerí
Á morgun, föstudag, opnar ný sýning i
Hafnargalleri. Haraldur Jónsson sýnir
bók, myndband og skúlptúra úr tré og
járni. Hafnargallerí er á hæöinni fyrirofan
Bókabúð Snæbjarnar.
Gallerí Grjót
Nú stendur yfir samsýning á verkum allra
meðlima Gallerí Gjót. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12 til 18.
Langbrók
Textílgalleríiö Langbrók, Bókhlöðustíg 2,
sýnir vefnað, tauþrykk, myndverk, módel-
fatnað og fleiri listmuni. Opið er þriðju-
daga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 11-14.
Mokka-kaffi
Bandarískur Ijósmyndari, Michael Gunt-
er, sýnir nú svart-hvítar Ijósmyndir í
Mokka-kaffi. Myndirnar eru allar teknar á
íslandi. Sýningin er opin alla daga til
klukkan 23.30.
Listmálarafélagið
í Gallerí (slensk List, Vesturgötu 17, er
samsýning Listmálarafélagsins. Þareru
sýnd verk 14 þekktra listamanna. Þetta
er sumarsýning með því fyrirkomulagi
að kaupendur verka geta tekiö þau strax
með sér heim og eru þá önnur sett upp
í staöinn. Listamennirnir sem sýna eru:
Karl Kvaran, Pétur Már, Bragi Ásgeirs-
son, Ágúst Petersen, Jóhannes Jóhann-
esson, Sigurður Sigurðsson, Björn Birnir,
Kristján Davíðsson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Hafsteinn Austmann, GunnarÖrn,
Einar Þorláksson, Valtýr Pétursson og
Elias B. Halldórsson. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 09.00 til 17.00 en lokaö
erum helgar.
Svart á hvftu
Galleri Svart á hvitu er lokaö til 10. ágúst.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
sýndar Þingvallamyndir Sólveigar Eg-
gerz. Myndirnar eru landslag og fantasíur
frá Þingvöllum, unnar meö vatnslitum og
olíukrít. Þær eru allar til sölu.
Norræna húsið
Á laugardaginn opnaryfirlitssýning á
verkum norska listamannsins Frans Wid-
erbergs i sýningarsölum og anddvri
norræna hússins. Á sýningunni eru mál-
verk, grafik og teikningar sem spanna
30 ára listaferil Widerbergs. Sýningin er
opin daglega frá kl. 14.00 -19.00, fram
til 30. ágústs.
Á eftir opnun sýningarinnar á laugar-
daginn klukkan 17, heldur Michael
Tucker fyrirlestur með litskyggnum um
Widerberg og list hans.
HótelÖrk
Jón Baldvinsson sýnir málverk á Hótel
Örk í Hverageröi. Sýning þessi er fram-
hald sýningar hans hjá Menningarstofn-
un Bandarikjanna. Sýningin er opin alla
daga i ágúst en verkin eru öll til sölu.
Skíðaskálinn
Árleg sumarsýning þeirra Bjarna Jóns-
sonar og Astrid Ellingsen er hafin í
Skiðaskálanum í Hveradölum en þar sýna
þau málverk og prjónakjóla, um hverja
helgi.
Eden
I Listamannaskálanum í Eden i Hvera-
gerði er nýhafin sýning á verkum gömlu
meistaranna. Þar má sjá verk eftir Kjarv-
al, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Blöndal,
Júlíönu Sveinsdóttur, Brynjólf Þórðarson,
Ásgeir Bjarnþórsson, Sverri Haraldsson
og fleiri. Sýningin sem er sölusýning er
opin alla daga frá 9-23.30. Henni lýkur
10. ágúst.
Menningarstofnun
Loftur Atli Eiríksson opnar í dag Ijós-
myndasýningu í sýningarsal Menningar-
stofnunar Bandarikjanna að Neshaga 16.
Hann fékk Fullbright styrk og lærði Ijós-
myndun í Bandaríkjunum. Hann sýnir40
myndir á sýningunni sem er opin virka
dagafrá 9-17 nema til kl. 20 áfimmtu-
dögum. Um helgar er opið frá kl. 14-20.
Patreksfjörður
Nú er að Ijúka sýningu Jóhönnu Wathne
á olíumálverkum í Grillinu á Patreksfiröi.
Jóhanna lærði bæði í Reykjavík og i
Kanada. Öll verkin á sýningunni eru til
sölu.
Ólafsvík
Helgi Jónsson sýnir 35 vatnslitamyndir
og 3 olíumálverk í kaffihúsinu á Kaldalæk
í Olafsvík. Sýningin er opin á föstudögum
frá klukkan 8-11 en frá 3-11 um helgar.
Allar myndirnar eru til sölu en sýningin
stendur út ágústmánuð.
Þrastaríundur
Á sumrin eru myndlistarsýningar í Þrast-
arlundi. Um verslunarmannahelgina
hófst sýning Valtýrs Péturssonar listmál-
ara en hann hefur sýnt þarna undanfarin
ár. Sýningunni lýkur 16. ágúst.
Tónlist
Duus-hús
Jassunnendur eiga á vísan að róa þar
sem Heiti potturinn í Duus er. Þar er
leikinn lifandi jazz á hverju sunnudags-
kvöldi kl. 9.30.
Hótel Borg
í kvöld verða tónleikar með hljómsveit-
inni Gypsy á Hótel Borg. Húsið opnar
klukkan níu.
Leiklist
Ferðaleikhúsið
Sýningar Light Nights í Tjarnarbíói eru
nú fjórum sinnum i viku, á fimmtudags-
kvöldum, föstudagskvöldum, laugar-
dags- og sunnudagskvöldum kl. 21.00.
Sýningarnar eru í uppfærslu Ferðaleik-
hússins og sérstaklega ætlaðar erlend-
um ferðamönnum. Með stærsta
hlutverkið, hlutverk sögumanns í sýning-
unni fer Kristín G. Magnús.
Ferðalög
Sumardvöl í Básum
Útivist býður upp á ferðir i skála félagsins
í Básum í Þórsmörk. Lagt er af stað á
miðvikudögum og sunnudögum klukkan
átta og á föstudagskvöldum klukkan 20.
Farið er til baka sömu daga en fólk ræð-
ur hve marga daga það dvelur.
Útivist
Þessi helgi er árleg fjölskylduhelgi Útivist-
ar í Þórsmörk. Farið verður á föstudags-
kvöldið klukkan 20 og á laugardags-
morgninum klukkan 8. Á dagskrá verða
léttar gönguferðir, ratleikur, kvöldvaka,
varðeldur og pylsugrill. Gist verður i Úti-
vistarskálanum i Básum og einnig i
tjöldum. Sérstakt afsláttarverð er fyrir fjöl-
skyldur. Einnig er einsdagsferð í Þórs-
mörk á sunnudaginn 9. ágúst klukkan
átta.
Klukkan 10.30 á sunnudaginn verður
gönguferð á Botnssúlur. Gengið verður
á Syðstu-Súlu. Klukkan 13 er skemmtileg
ganga um Jórukleif ofl. í Grafningi Brott-
förverðurfrá bensínsölu BSÍ. Miðviku-
daginn 12. ágúst verður Þórsmerkurferð
og kvöldganga frá Elliðakoti að Selvatni.
Ferðafélagið
Sunnudaginn 9. ágúst verður farin
fimmta afmælisganga Ferðafélagsins.
Ekið verður í Skorradal og gengið þaöan
að Eyri í Flókadal. Brottför er klukkan 10
f.h. frá Umferðarmiðstööinni, austan-
megin.
Kl. 13 á sunnudag er gönguferð um Ól-
afsskarðað Eldborgunum. Gengið verður
inn Jósepsdal og yfir Ólafsskarð og siðan
niðurá Suðurlandsveg. Miðvikudaginn
12. ágúst er kvöldferð í Bláfjallahella.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga fristundahóps-
ins Hana nú, í Kópavogi, hefst við
Digranesveg 12, kl. 10.00álaugardags-
morguninn. Markmið göngunnar er:
samvera, súrefni og hreyfing. Takið þátt
i einföldu og skemmtilegu fristundastarfi
í góðum félagsskap. Nýlagað molakaffi.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út i Viðey og um helgar eru ferðir
allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan i Viðey
er opin og veitingar fást i Viðeyjarnausti.
Bátsferöin kostar 200 krónur.
Lundeyjarferðir
Feröabær býður upp á siglingu út i Lund-
ey. Ekki er farið á eyjuna sjálfa þar sem
hún er friöuö. í Lundey er mikið fuglalíf
og gaman er að taka með sér sjónauka
og myndavél i þessa ferö. Lagt er af
stað frá Steindórsplaninu og fariö með
rútu út i Sundahöfn. Ferðin tekur alls um
tvo tíma.
Grasagarðurinn
i grasagarði Reykjavikur i Laugardal má
sjá sýnishorn af íslenskri flóru. Sumum
jurtunum hefurverið komið skemmtilega
fyrir á tilbúnum klettum með læk og foss.
Þarna er einnig reynd ræktun á erlendum
jurtum, trjám og runnum. Garðurinn er
opinn virka daga frá 8-22 og um helgar
frá 10-22.
Félagslíf
Norræna húsið
Opiö hús fyrir norræna ferðamenn verður
íkvöld, fimmtudag. Finnbogi Guðmunds-
son landsbókavörður flytur fyrirlestur um
lýsingu Snorra Sturlusonar á norrænum
þjóðum. Á eftir verður sýnd kvikmyndin
„Surtur fer sunnan" sem er með dönsku
tali.
Veiði
Meðalfellsvatn er í 48 km fjarlægð
frá Reykjavik. Veiðileyfi þar i einn dag
kostar700krónur.
í versluninni Veiðivon eru seld veiði-
leyfi í Kleifarvatn sem kosta 500 krónur.
Þangaö er um hálftima akstur frá
Reykjavík. Ásama staðfástveiðileyfi í
Kálfá sem kosta 2500 krónur á stöng á
dag. Síminn í Veiöivon er 687090
Reyðarvatn er í um 90 mínútna fjar-
lægð frá Reykjavík. Veiöileyfi þar kosta
800 krónur. i sima 685833 er hægt að
fá nánari upplýsingar um veiöileyfi í Reyð-
arvatn svo og í Leirvogsvatn sem er i
aðeins 20 minútna fjarlægð frá Reykjavík.
Þau kosta 400 kr.
i Veiðimanninum fást laxveiðileyfi í
Korpu við Korpúlfsstaði. Þau kosta 2750
kr fyrir eina stöng hálfan daginn.
I Ferstiklu eru seld veiðileyfi í Geita-
bergsvatn á 300 krónur og Eyrarvatn
á 500 krónur. Veiðileyfi í Þórisstaðavatn
eru bæði seld þarna og á Þórisstöðum
á 500 krónur.
Barnagaman
Tívolí í Hveragerði
í Tívolí er alltaf eitthvað nýtt að gerast.
Nýlega opnaði þar kaffiteria en þaðan
geta gestir virt svæðið fyrir sér. Tívoli er
opið virka daga frá 13-22 og um helgar
frá 10-22.
Hreyfing
Hestaleigur
Að Laxnesi í Mosfellssveit eru skipu-
lagðir tveggja tíma útreiðartúrar. Leið-
sögumaður fylgir hópnum sem getur
verið allt að 30 manna. Leigan fyrir hvern
hester800 krónur.
Fimm kilómetrum fyrir innan Laugar-
vatn er Miðdalur. Þar er hestaleigan
ishestar. Leigan fyrir hest í eina klukku-
stund er 600 krónur en eitt þúsund fyrir
tvær klukkustundir. Leiösögumaöurer
með i förinni.
Hestaleigan Bassi er að Mýrarkoti á
Álftanesi. Leigan er 400 krónur fyrir
klukkutímann. Panta þarf sérstaklega ef
þörf er á leiðsögn um svæðið en ekkert
aukagjald er tekiö fyrir þá þjónustu.
Keila
I Keilusalnum í Öskjuhlíö eru 18 brautir
undir keilu. Á sama stað er hægt að
spila billjarð og pínu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Golf
Á Grafarholtsvelli er Golfklúbbur
Reykjavikur með aðstöðu. Kennari er á
staönum og æfingasvæði fyrir byrjendur.
í Hafnarfirði er Hvaleyrarvöllur og Nes-
klúbburinn er með völl á Seltjarnarnesinu.
Hlíðarvöllur er svo í Mosfellsveit. Auk
þess eru fallegir vellir í Grindavík og i
Grimsnesinu.
Sund
I Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barönsstig og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartíma þeirra má sjá i
dagbókinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Bjarni Einarsson við handrit af Njálu og Grettissögu.
Handritasýning í Árnagardi
í Árnagarði, einni byggingu Háskóla íslands, er stofnun Árna
Magnússonar til húsa. Yfir sumartímann eru þar til sýnis ýmis
merk handrit. Þar má fyrst telja Konungsbók, Kodex Regius,
en hún er elst allra íslenskra handrita. Einnig er þar gamalt
handrit af gamla testamentinu en í því eru fallegar lýsingar.
Þar er líka lítið handrit af Njálu sem er í umslagi, einnig Grett-
issaga og Flateyjarbók en hún er óvenju vel varðveitt. Nú eru
síöustu dagar sænsku sýningarinnar frá Uppsölum en þar má
sjá handrit af Eddu sem talið er að hafi verið í eigu Sturlunga.