Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 9

Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 B 9 Ingveldur Donaldsdóttir og Hallgrímur Valberg eru ungt par sem býr í vesturbœnum. Þau eru búin að þekkjast mjög lengi og „vera saman" í tæp sex ár. „Við trúlofuðum okkur 19. des- ember 1984, en þá vorum við búin að vera saman í þrjú ár. Við vorum flutt inn í þessa íbúð og settum upp hringana hér inni í stofu. Við völdum þá með tilliti til þess að bera þá aila ævi. Fannst ykkur ekkert gamal- dags að trúlofa ykkur? „Nei alls ekki,“ segir Halli. „Það er algengt að fólk á okkar aldri trúlofi sig. Sumir giftast þó án þess að hafa trúlofast áður. Okkur fannst þetta fylgja því að búa saman, en hefðum kannski ekki gert þetta ann- ars,“ bætir Inga við. „Amma og afi vissu ekki hvernig þau áttu að tala um okkur þegar við byrjuðum að búa saman en vorum ekki trúlofuð. Þau kölluðu okkur ýmist skötuhjú eða hjónaleysi en nú eru þau hætt því og tala bara um Halla og lngu.“ Eldra fólk er oft hissa á að fólk búi saman án þess að trú- lofa sig eða gifta. Því finnst það er einhvern veginn upp á kant við kerfið, segir Halli. En fólk verður bara að finna það hjá sjálfu sér hvenær það er tilbúið, það er enginn einn tími réttari en annar. Það er al- gengt að fólk trúlofi sig þegar það flytur saman. Eins eru margir sem drífa í að gifta sig ef að barn er á leiðinni. Ekki til þess að barnið fæðist skil- getið heldur vegna þess að þá finnst því tilheyra að fá meiri formfestu á sambandið. Eins finnst því það tryggara ef eitt- hvað kemur upp á. Við erum oft spurð að því hvenær við ætlum að gifta okkur. Við vitum það ekki enn þá en við ætlum að gera það einhvern tímann. Okkur finnst nóg að vera trúlof- uð í bili. Við tökum hringana aldrei niður, sama hvað við erum að gera. Þó færi ég hann stundum yfir á vinstri hendi, ef hætta er á að hann verði fyrir skemmdum í vinnunni, segir Halli. Maður trúlofar sig fyrst og fremst fyrir sjálfan sig. Okkur fannst samband okkar þó ekki breytast við trúlofunina þvi auðvitað eru mestu viðbrigðin að fara að búa saman. En við hefðum ekki vilja sleppa þessu tímabili.“ H.l. Hringurinn tákhar eilífa tryggð Sigmar Ó. Maríusson gull- smiður spjallaði við okkur um trúlofunarhringa. Að hans sögn er mikið um að fólk trú- lofi sig núna. Hann selur um tvö hundruð gerðir af hring- um. „Hringarnir seljast vel núna," sagði Sigmar þegar við spurðum hann um söluna. „Það var lægð fyrir nokkrum árum þegar fólk fór að búa saman án þess að merkja það nokkuð. En nú finnst mér salan með meira móti. Ég er með um tvö hundruð gerðir af hringum en það taka eigin- lega allir mjóa hringa, þrjá til þrjá og hálfan millimetra á breidd. Þetta virðist vera hin gullna breidd sem gengið hefur í margar kynslóðir og búin er að vinna sér hefð. Samt verð óg að vera með hinar tegundirnar líka vegna þess að það eru alltaf ein- hverjir sem vilja annað. Á fyrri hluta áttunda ára- tugarins voru miklu breiðari hringar í tísku. Þeir voru oft upp í tíu til tólf millimetra breiðir. Stundum var líka sett steinasnúra með og þá urðu þeir enn breiðari. Eftir þetta tímabil fóru hringarnir að mjókka aftur og virðast ætla að vera mjóir áfram. Flestir sem keyptu breiða hringa fyr- ir tíu til fimmtán árum hafa komið og látið mjókka þá.“ — Er einhver munur á trú- lofunarhringum og giftingar- hringum? „Nei, hór á landi er enginn munur. Sami hringurinn er yfirleitt notaður þegar trúlof- að fólk giftir sig. Sumir skipta reyndar um hönd en það er engin hefð fyrir því. í sumum löndum gefur maðurinn kon- unni hring, t.d. demantshring sem hún ber. Síðan við gift- inguna setja þau upp hringa. Þetta er mjög misjafnt. Ég vil heldur kalla þessa hringa trúlofunarhringa því að það er tilefnið. Þeir verða svo að giftingarhringum ef fólk giftir sig. Hringurinn táknar eilífa tryggð því að endarnir ná saman. Við smíðum þá úr lengju sem við skeytum sam- an. Það má segja að hann bíti í sporðinn á sór.“ — Hversu marga hringa selurðu á mánuði? „Það er mjög misjafnt. Það koma alltaf nokkur pör á viku yfir sumarmánuðina. Þeir eru mjög góðir en nóvember hins vegar er áberandi lítill trúlof- unarmánuður. Hann virðist vera lognið á undan stormin- um því að desember er mjög mikill trúlofunarmánuður, sá stærsti. Einu sinni var 17. júní stór dagur þegar stúd- entarnir voru útskrifaðir á þeim degi. Það er enn al- gengt að hringarnir séu settir upp um leið og húfan. Versl- unarmannahelgin er líka vinsæl núna, kannski hefur hún tekið við af 17. júní.“ — Á hvaða aldri eru pörin sem koma til þín? „Það er mjög algengt að þau séu milli sautján og tvítugs. Það er ekki erfitt fyr- ir ungt fólk í dag að kaupa hringa. Þeir kosta um tíu þúsund krónur sem er vikukaup hjá sumum. Eldra fólk segir að áður fyrr hafi þeir kostað tveggja mánaða laun. Þetta er því engin fjárfesting leng- ur," sagði Sigmar. Hringarnir eru nær undan- tekningarlaust úr fjórtán karata gulli. Örfáir eru átján karata. Nöfnin eru yfirleitt alltaf skrifuð innan í þá og dagsetningin er Ifka oft sett með. „Það auð- veldar hjónum að muna eftir brúð- kaupsdegin- um!“ Slgmar Ó. Maríusson með nokkrar gerðir að trúlofunarhringum. Morgunblaðið/KGA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.