Morgunblaðið - 30.08.1987, Síða 9
I
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1987 9
HUGVEKJA
Réttlát bæn
eftir sr. JÓN RAGNARSSON
Við eram enn að fást við biblíu-
sögumar, sem við lærðum í
bamaskólanum og geram það
vegna þess að þær standa fyrir
sínu og draga upp myndir af fólki
í atvikum daglegs lífs. Þar er
daglegt trúarlíf ekki undanskilið.
Faríseinn og tollheimtumaður-
inn mæta fyrir augliti Guðs og
era þar jafnir, þó að mannfélagið
meti þá ekki svo. Faríseinn er
fyrirmyndarborgari. Maðurinn má
ekki vamm sitt vita í neinu. Hann
er trúlega í góðum efnum sem
aflað hefur verið með löglegum
og heiðarlegum hætti. Hann lifír
hamingjusömu fjölskyldulífí og
styrkir góð máleftii samfélagsins.
Það er ekkert út á þennan mann
að setja annað en það að hann
er svo yfírmáta ánægður með sig
og sannfærður um að hann eigi
inni hjá Drottni fyrir vikið. Hann
er yfir sig glaður jrfír því að vera
svona vel af Guði gerður og yfír
því hvað honum gengur vel. Bæn
hans er fremur lofgerð um hans
eigið ágæti sem manns, en hóg-
vær tilbeiðsla og þakkargerð fyrir
óverðskuldaða náð. Faríseinn veg-
ur mannkosti sína á þá vog sem
hann hefur sjálfur samþykkt og
hefur á valdi sínu. Sá skali er
ekki endilega sá sem Guð ber
okkur mennina við.
Tollheimtumaðurinn er á
heimsvísu ekkert verr staddur en
hinn. Sennilega mun betur stæður
^árhagslega, jafnvel moldríkur,
því að hann er í aðstöðu til að
stinga undan og hagræða og
spekúlera meira en flestir aðrir.
Hans auður er fenginn með lög-
legum en trúlega oft siðlausum
hætti. Hann nýtur takmarkaðs.
álits í samfélaginu og gerir meira
af því að notfæra sér það en að
styrkja þá sem minna mega sín.
Hann nýtur þeirrar virðingar sem
byggist á ótta og kúgun, en er
af sömu ástæðu fyrirlitinn. Hann
hefur alla möguleika sem hægt
er að skapa sér með kaupum og
samböndum í valdskerfínu en
hann saknar einhvers í mennsku
sinni.
Bæn hans er neyðaróp. Hann
segir í rauninni: Guð ég get ekki
komið því í kring, sem vantar $
líf mitt. Til þess duga ekki mín
mannlegu efni og úrræði. Þú,
Drottinn minn, ert mín eina von.
Hjálpa þú mér. Rektu mig ekki í
burtu.
Báðir þessir menn biðja í trú
en áherslur þeirra era ekki þær
sömu. Afstaða þeirra til lífsins og
til Guðs era ólíkar. Annar hefur
allt og væntir einskis, nema
kannski óbreytts ástands og
gleymir því að allt lífsins lán og
yndi. Öll tækifæri og geta til að
nota þau era afturkræf lán skap-
arans, sbr. lexíu þessa dags í
öðram kafla spádómsbókar
Jesaja: „Hin drembilegu augu
mannsins skulu lægjast og hroki
mannanna beygjast og Jahve einn
skal á þeim degi háleitur vera.“
Það ber vissulega að þakka
Drottni allt, sem okkur gengur í
hag. Það er jafn sjálfsagt og að
þiggja gæskUgjafir hans og ekki
neitt sérstaklega verðlaunvert, þó
að við látum samfélagið njóta
hlutdeildar í velgengni okkar.
Þegar grannt er skoðað þá eigum
við ekki nokkum skapaðan hlut
og getum ekki þakkað okkur sjálf-
um neitt.
Það er einnig ákveðin gildra í
afstöðu tollheimtumannsins.
Hann er ekkert syndugri maður
en hinn. Hann skynjar hins vegar
vanmátt sinn og synd. Hann er
ráðalaus og veit hvað allt mann-
legt ráð hrekkur skammt. Hann
setur allt sitt traust á Drottinn
sem einn er fær um að dæma og
fyrirgefa. Afmá sekt og synd.
Menn geta hins vegar fallið í
þá gildra sem áður var á minnst,
að tclja sumar syndir (þ.e. vafa-
söm verk og breytni) Guði
þóknanlegri en aðrar í þeim skiln-
ingi að við verðum að hafa eitt-
hvað handa Guði að fyrirgefa.
Þannig mætti leiða fram það lög-
mál að því svæsnari syndaskrá
sem maður safnaði sér, þeim mun
meiri ást legði Drottinn á mann.
Það er náttúrulega að umsnúa
öllu, sem Ritningin kennir um
sjmd og náð. Þar er ekki kennt
að Guð elti ólar við stærri eða
smærri afbrot og illvirki. Guð lttur
á alla menn sem sjmdara sem
þurfa að kannst við bága stöðu
sína gagnvart honum og hann
býður öllum mönnum fyrirgefn-
ingu sína og réttlætingu.
Það er ekki hægt að vinna sig
í áliti hjá Guði meira en orðið er
frá og með því að hann sendi son
sinn í heiminn til að boða upprisu
og eiltft ltf, hverjum þeim sem við
hann kannast.
Guð hefur það mikið álit á
mannkindinni.
Gengi: 28. ágúst 1987: Kjarabréf 2,260 - Tekjubréf 1,224 - Markbréf 1,128 - Fjölþjóðabréf 1,060
NÝJUNG í PENINGAMÁLUM
Nú getur þú einnig ávaxtað fé þitt í KRINGLUNNI.
Um leið og þú gerir innkaup þín í Kringlunni getum við aðstoð-
að þig við að ávaxta fé þitt á hagkvæman hátt.
Hjá okkur færð þú einnig alla Eurocard kreditkortaþjónustu,
sem þú óskar.
Við leggjum áherslu á persónulega ráðgjöf. Allir geta verið með.
Þú getur byrjað með smáar upphæðir jafnt sem stórar. Mögu-
leikarnir eru margir s.s. Kjarabréf, Tekjubréf, Markbréf, Fjölþjóða-
bréf, Fjármálareikningur og Frjálsi lífeyrissjóðurinn.
Við starfsfólk Fjárfestingarfélagsins í Kringlunni erum ávallt
reiðubúin að aðstoða þig.
FJÁRFESTINCARFÉIAGIÐ
Kringlurmi 123 Reykjavík Sími 689700
Sigrún Ólafsdóttir Stefán jóhannsson
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
6SN11 -00
■ ■ ■ .,
Auglýsingar22480
Afgreiðsla 83033
i