Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 1
fSUrcttttiiMð&fö
1987
ÞRHUUDAGUR 1. SEPTEMBER
BLAD
HANDBOLTI
Svíar óhress-
ir með umsókn
HSÍ um HM
Forráðamenn sænska handboltasambandsins
undrast mjög umsókn HSÍ um að halda heims-
meistarakeppnina 1994. Svíar hafa einnig sótt um
að halda keppnina, og telja þeir líkur á því að
Norðurlöndin missi enn einu sinni af stórkeppni
vegna óeiningar. Vilja þeir að HSÍ dragi umsókn
sína til baka en Jón Hjaltalín, formaður HSÍ, seg-
ist ætla að leggja til er hann hittir forystumenn
hinna sambandanna 10. september, að Svíar hætti
við.
Nánar/B 16.
FRJÁLSAR
Einarfórmeiddur:
Léleg
aðstaða
í Laugar-
dalsem
veldur
þessu
- segirformaður
FRÍ
EINAR Vilhjálmsson varð 13. í
spjótkastinu á heimsmeitara-
mótinu í Róm og komst ekki í
úrslit. Einar meiddist á œfingu
í Laugardalnum í síðustu viku
og tóku þau meiðsli sig upp
aftur í Róm. Gerviefnið á at-
rennubrautinni f Laugardal
rann undan Einari er hann steig
fram í útkastinu og kom við það
mikill hnykkur á bak hans.
Einar kastaði 77,46 metra í Róm
og varð í 13. sæti og var næsti
maður inn í úrslit. Þetta var í þriðja
sinn sem Einar er næsti maður inní
úrslit á svona stórmóti. Áður var
það á heimsmeistaramótinu í Hels-
inki 1983 og á Evrópumeistaramót-
inu í Stuttgart í fyira.
„Það má segja að það hafi veri lán
í óláni að Einar komst ekki í úrslit.
Því hann var hreinlega meiddur og
hefði ekki getað tekið þátt í úrslita-
keppninni með góðum árangri,"
sagði Ágúst Ásgeirsson, formaður
FRÍ, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Einar var að æfa á Laugardalsvelli
fyrir mótið og fékk þá hnykk á
bakið og er hægt að rekja það beint
tjl æfingaaðstöðunnar þar, að sögn
Ágústs. í einu kastinu þegar hann
spymti við í útkastinu, rann gervi-
dúkurinn á atrennubrautinni undan
honum með fyrrgreidum afleiðing-
um.
„Það er þessi lélega aðstaða heima
sem veldur þessu. Ég mun snúa
mér beint til borgarstjóra þegar
heim kemur og óska eftir að eitt-
hvað verði gert í aðstöðuleysi
fijálsíþróttamanna í Reykjavík,"
sagði Ágúst Ásgeirsson.
■ Um mótlA/B 3
■ Úrsllt/B 16
KNATTSPYRNA / ÚRSLITALEIKUR MJÓLKURBIKARKEPPNI KSÍ
MorgunblaðiíVRagnar Axelsson
Glæsilegur bikarsigur
Pramarar léku stórkostlega knattspymu þegar þeir gjörsigruðu Víðismenn úr Garði, 5:0, í úrslitaleik Mjólkurbikarkeppninnar í knattspymu á sunnudaginn á
Laugardalsvelli. Guðmundur Steinsson skoraði tvö glæsimörk I leiknum — bæði með skalla — Ragnar Margeirsson, Viðar Þorkelsson og Ormarr Örlygsson eitt
hver. Hér fagna Kristján Jónsson og Pétur Ormslev Guðmundi Steinssyni, eftir að hann hafði skorað síðara mark sitt.
Nánar um leikinn/B4 og B8-B9.
I