Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 9
B 9 Htorgtmfrlattfr /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987 nínútur! ta bikamrslitasigursögunnar Morgunblaðiö/Einar Falur Pitur Arnþórsson gotur ekki leynt gleði sinni, enda engin ástæða til! Nafni hans Ormslev hefur tekið við bikamum af Þorsteini Pálssyni, forsætisráðherra, og félagar hans, Pétur, Kristinn og Kristján, hafa greinilega ekki mikið á móti því að fá að handfjatla gripinn. « Hvað sögðu þeir? ÁsgoirElíasson HáHaHFram „Við lékum á köflum eins og við getum best leikið og því kemur þessi stórsigur mér ekki á óvart. Styrkleiki Víðis fellst í því að beij- ast, en við héldum boltanum vel og að því leyti er Fram erfiðasta liðið, sem þeir gátu fengið í úrslit- um. Sóknarleikur þeirra var vonleysislegur og eftir fyrsta markið voru úrslitin ráðin.“ Haukur Hafsteinsson þjálfari Víöis „Tapið var of stórt, en Framarar eru með eitt besta liðið og það átti góðan dag. Við gerðum mis- tök í vöminni, sem við höfum ekki gert áður, fengum snemma mark á okkur, brotnuðum og náð- um aldrei upp baráttu." Pétur Ormsiav fyririUM Fram „Bikarúrslitaleikur er allt öðruvísi en aðrir leikir. Ekkert annað en sigur kemur til greina. Spilið er okkar sterkasta hlið, en líkamleg- ur styrkur hefur komið Víði áfram. Við áttum góðan dag, Víðismenn urðu fljótlega fyrir áfalli og vom hreinlega ekki með.“ Gudjón Guðmundsson fyririlöi Víóis „Taugamar bmgðust og leikurinn snerist upp í martröð. Framaram- ir em snillingar í að halda boltan- um og þetta var bara eltingaleikur hjá okkur. Fyrir bragðið komumst við aldrei inn í leikinn, en Framar- amir sýndu að þeir em langbestir í dag.“ Friðrik FriAriksson markvörður Fram „Baráttuleysi Víðis kom mér á óvart. Ég hef leikið tæplega hundrað leiki í meistaraflokki, en þetta er í fyrsta skipti, sem ég fæ ekki skot á mig. En þetta er munurinn á liðunum." Jón Örvar Arason markvörAur Víöis „Það er hroðalegt að fá fimm mörk á sig, en Framarar em lang- bestir. Einhverra hluta vegna var baráttan ekki fyrir hendi, við fengum ekki færi og áttum slakan dag.“ Ragnar Margeirsson, Fram „Ég hef tvisvar tapað bikarúr- slitaleik með ÍBK, en þetta er fyrsti sigurinn og á því er mikill munur. Reynslan hafði mikið að segja, við tókum leikinn strax í okkar hendur og Víðir átti aldrei möguleika." Amljótur DavíAsson, Fram „Þetta var fyrsti bikarúrslitaleik- urinn minn og það er æðislegt að vera bikarmeistari. Það er mjög gaman að taka þátt í þessu svona ungur og ég vona að framhaldið verði eins.“ Kristján Jónsson, Fram „Þetta er toppurinn á ferlinum — ég hef ekki unnið það marga titla. Ég gerði ráð fyrir meiri mót- spymu, en Víðismenn virtust taugaóstyrkir og ekkert gekk upp hjá þeim. Það var skrekkur í mér fyrir leikinn, en eftir fyrsta mark- ið var sigurinn í höfn.“ Janus GuAiaugsson, Fram „Það er hálf dapurt að vera með í að komast í úrslit, en þurfa síðan að horfa á, en það er hluti af þessu og sigurinn var ánægjuleg- ur. Framarar kaffærðu Víðis- menn, sem náðu sér aldrei upp.“ Ormarr Öriygsson, Fram „Þetta er munurinn á liðunum þegar við erum með baráttuna í lagi. Okkar versti óvinur er að stundum náum við ekki skapinu í lag. Við „tjúnuðum" okkur því vel upp núna — pössuðum okkur á að kor.a rétt stefndir til leiks. Við hö'um átt toppa í mörgum leikjum í sumar, en þetta er senni- lega besti heili leikurinn okkar.“ Ormarr skoraði sitt fyrsta mark í sumar í leiknum: „Ég hugsa að ég sé markahæstur á æfingum hjá okkur þannig að það hlaut að koma að þessu! Það var gaman að skora — ég gat ekki svikið Þorvald bróður, hann spáði i Mogganum í dag að ég myndi innsigla sigurinn!" GuAmundur Steinsson, Fram „Ég bjóst við miklu meiri baráttu frá þeim. Við stjómuðum leiknum frá fyrstu til síðustu mínútu. Héld- um boltanum vel og lékum skynsamlega. Reynsla okkar í stórleikjum réði úrslitum en þeir vora mjög taugaveiklaðir. Þetta er Qórði bikarsigur minn og ég held ég megi segja sá sem ég hef haft minnst fyrir." MorgunblaðiðÆínar Falur Ingólfsson Ormarr Öriygsson hefur verið mjög vaxandi í liði Fram að undanfömu. Hann hefur verið stórhættulegur í stöðu útliggjandi tengiliðs, og hvað eftir annað skapað stórhættu við mark andstæðinganna eftir að hafa geystst upp kantinn og gefið fyrir. Hér hefur Ormarr betur í baráttu við Gfsla Eyjólfsson á sunnudaginn. Ormarr skoraði fimmta mark úrslitaleiksins, og var það hans fyrsta mark í sumar. -1-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.