Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 3
JBOTrgaaMaftib /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
B 3
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / HM í RÓM
Hlaup aklarinnar
þegar Johnson og
Lewis mættust
Ben Johnson setti glæsilegt heimsmet í 100 m hlaupi.
Stefka Kostadinova bætti eigið heimsmet í hástökki
BEN Johnson, Kanada, setti á
sunnudaginn glœsilegt heims-
met í 100 metra hlaupi á
heimsmeistaramótinu ífrjáls-
um íþróttum í Róm. Hann bætti
heimsmetið um 10/100 hluta
úr sekúndu. Þetta var eitt
mesta 100 metra hlaup sög-
unnar. Ólympíumeistarinn Carl
Lewis varð annar á sama tíma
og gamla heimsmetiö sem Cal-
vin Smith setti 1983. Búlgarska
stúlkan Stefka Kostadinova
bætti heimsmet sitt í hástökki,
stökk 2,09 metra.
Mikil stemmning var á meðal
70.000 áhorfenda sem troð-
fylltu Ólympíuleikvanginn í Róm
þegar 100 metra hlaupið fór fram
á sunnudaginn. Enda mikið í húfí,
tveir spretthörðustu íþróttamenn
veraldar voru mættir til leiks, Ben
Johnson og Carl Lewis.
„Johnson náði þessu rosastarti og
var kominn þremur metrum á und-
an strax eftir 10 metra. Hann var
eins og ragetta og vildu margir
meina að hann hafí þjófstartað, en
það eru mjög nákvæm tæki til að
mæla það. Carl Lewis náði síðan
að vinna inn á hann á síðustu metr-
unum. en Johnson var hinn öryggi
sigurvegari á glæsilegu heimsmeti,
9,83 sek. Carl Lewis hljóp einnig
mjög vel og kom inn á sarha tfma
r g gamla heimsmetið, 9,98 sek.,“
-agði Ágúst Ásgeirsson, formaður
FRÍ, sem var viðstaddur hlaupið í
Róm.
„Égerbestur"
„Ef einhver á að geta bætt þetta
heimsmet verður hann að vinna
mig. Krafturinn var svo mikill í
startinu að ég fór næstum yfir á
brautina hjá Lewis. Ég er bestur í
dag það er engin spuming," sagði
hinn 25 ára gamli heimsmethafi
eftir hlaupið.
„Þetta ár og það næsta, sem er
ólympíuár, em þau stærstu í lífí
mínu. Ég hef lagt hart að mér við
Símamynd/Reuter
Ólympfumeistarinn Carl Lewis játar sig sigraðan og tekur í hönd heimsmeistar-
ans, Ben Johnson, eftir hlaupið.
æfíngar í nokkur ár og mig langaði
að verða einn af spretthörðustu
íþróttamönnum heims."
„Við vissum að Lewis væri í betri
æfíngu núna en á Ólympíuleikunum
í Los Angeles. Johnson varð því að
taka á öllu sínu til að eiga mörgu-
leika og það tókst. Hann náði
frábæm starti og það skipti sköp-
um,“ sagði Charlie Francis, þjálfari
Johnsons, eftir hlaupið.
„Ég hefði ekki trúað því fyrir hlaup-
ið að við næðum svona góðum
tímum. En það er ekkert sem er
ómögulegt. Heppnin skiptir líka
máli, en þetta var frábært hlaup,"
sagði Carl Lewis. Hann óskaði síðan
heimsmeistaranum til hamingju
með því að taka í hönd hans.
Tíu mínútur á milli helmsmeta
Það liðu ekki nema 10 mínútur frá
því að Johnson setti heimsmetið að
annað heimsmet leit dagsins ljós.
Það var búlgarska stúlkan Stefka
Kostadinova sem bætti eigið heims-
met í hástökki með því að lyfta sér
yfír 2,09 metra. Tamara Bykova
frá Sovétríkjunum varð önnur,
Simamynd/Reuter
Damilano labbar fyrstur (mark.
Þeir spretthördustu
Símamynd/Reuter
Ben Johnson nálgast hér markið í 100 metra hlaupinu og setur heimsmet.
Hann brosir í átt til Carl Lewis sem fylgir honum fast eftir og jafnar gamla
heimsmetið.
stökk 2,04 metra. Hún fór yfír þá
hæð í fyrstu tilraun. Kostadinova
þurfti þrjár tilraunir til að fara yfir
2,04 m, tvær tilraunir til að fara
yfir 2,06 m og þijár yfír 2,08 metra.
„Ég hafði ekki trú á því í byijun
að mér tækist að setja heimsmet.
Tamara átti mjög góð stökk en ég
gerði smá mistök," sagði hinn nýji
heimsmethafi í hástökki kvenna.
Austur-þáyku stúlkumar unnu tvö-
falt í 100 metra hlaupi. Silke
Gladisch sigraði á 10,90 sek og
Heike Drechsler varð önnur á 11,00
sek. Marlene Ottey, Jamafka, varð
þriðja á 11,04 sekúndum.
Raty bættl Norðuiiandamet
Elnars Vllhjálmssonar
Seppo Raty, Finnlandi, kom nokkuð
á óvart með því að sigra í spjót-
kastinu. Hann bætti Norðurlanda-
met Einar Vilhjálmssonar, kastaði
83,54 metra. Hann var 11. maður
inn í úrslit en átti svo bestu köstin
í úrslitunum, fjögur yfír 80 metra.
Viktor Yevsyukov, Sovétríkjunum,
varð annar með 82,52 metra og Jan
Símamynd/Reuter
Heimsmet
Búlgarska stúlkan Stefka Kastadinova
lyfti sér yfir 2,09 m og setti heimsmet.
Zelezny, Tékkóslóvakíu, þriðji með
82,20 metra.
■ Úrslit/B14
Helga rétt við
íslandsmetið
HELGA Halldórsdóttir keppti f
gærkvöldi (undanrásum (400
metra grindahlaupi á HM (
Róm. Helga hljóp á 57,82 eek-
úndum og var rátt viö Islands-
met sitt sem er 57,53. T(mi
hennar dugði þó ekki tll að
komast í undanúrslitin sem
verða (dag.
Helga hljóp ekki vel að þessu
sinni að sögn Ágústs Ásgeirs-
sonar formanns FRI sem fylgdist
með hlaupinu. „Hún átti í einhveij-
um erfíðleikum með tæknina enda
er orðið langt síðan hún hefur keppt
í grindahlaupi. Hún fékk þó ágætan
tíma og ef hún hefði fengið hálfri
sekúndu betri tíma hefði hún kom-
ist í undanúrslit," sagði Ágúst í
gærkvöldi.
Þess má geta að fyrir hlaupið í gær
voru sjö stúlkur sem höfðu lakari
tíma en Helga en hún náði að skjóta
sjö til viðbótar aftur fyrir sig í
gær. Helga varð í 21. sæti af þeim
35 stúlkum sem þátt tóku í hlaup-
inu.
íslendingamir keppa ekkert f dag
og á morgun er hvfldardagur og
þá fara keppendur og heils upp á
Páfann, sem hefur boðið öllum
keppendum í heimsókn.
Á fímmtudaginn keppir Vésteinn í
kringlukasti og Helga í 100 metra
grindahlaupi. lris keppir síðan á
laugardaginn f spjótkasti.
íslendingamir
komust ekki í úrslK
Spjótkastaramir Einar Vil-
hjálmsson og Sigurður
Einarsson voru töluvert frá sínu
besta á heimsmeistaramótinu í
Róm. Þeir komust ekki í úrslit.
Einar kastaði 77,46 m og var í
13. sæti og Sigurður kastaði
75,52 metra og varð í 20. sæti
af 37 keppendum.
Mjög jöfn keppni var f spjótkast-
inu. Álls köstuðu 20 keppendur
frá 75 til 78 metra. Til gamans
má geta þess að heimsmeistarinn
Seppo Raly var 11. maður inn í
úrslit með rétt rúmlega 78 metra.
Hann gerði svo gott betur í úrslit-
unum er hann sigraði, kastaði
83,54 metra og setti nýtt Norður-
landamet.
Þórdís Gísladóttir stökk 1,80 m í
hástökki kvenna og varð í 21.
sæti af 23 keppendum. Hún stökk
yfír 1,80 metra, sem var byijunar-
hæð, í sinni fyrstu tilraun. Sfðan
var hækkað upp í 1,85 metra og
þá átti hún aldrei möguleika og
varð úr leik. Reynt var að fá byij-
unarhæðina lækkaða fýrir
Þórdísi, en án árangurs. Það hefði
getað hjálpað henni til að komast
betur inní keppnina.
Vésteinn Hafsteinsson keppir í
kringlukasti á morgun, miðviku-
dag. Hann á nú 13. besta árangur-
inn í heiminum í ár og verður að
teljast líklegur til að komast í
úrslit.
Mikill hiti í Róm hefur valdið
keppendum erfiðleikum. Um helg-
ina var 30 stiga hiti og sól.
Aðstaða keppenda er góð nema
hvað keppendur og fararstjórar
kvarta undan skipulagsleysi.
Tímaáætlanir standast ekki og
svo fram eftir götunum. Síma-
kerfíð er ekki til að hrópa húrra
fyrir og tekur um 6 til 8 klukku-
stundir að fá sfmasamband frá
Ítalíu til íslands.