Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 4
4 B
BUrgnnMaMh /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
KNATTSPYRNA / ÚRSLITALEIKUR MJÓLKURBIKARKEPPNINNAR
Morgunblaðiö/RAX
MARKI Ragnar Margairsson, sem lék mjög vel gegn Vfði, hefur hér skorað annað markið, og snýr til baka. f baksýn
er Guðmundur félagi hans Steinsson. Vonleysis gætir í andliti Jóns Örvars markvarðar — enda staðan orðin 2:0 eftir
aðeins 22 mfnútur og úrslitin í raun ráðin.
Guðmundur Stelnsson skoraðl tvö falleg mörk. Hér er það sfðara —
eftir mjög góða fyrirgjöf Ragnars henti Guðmundur sér fram og skallaði glæsi-
lega efst í markhomið. Á efri myndinni, sem Einar Falur Ingólfsson tók, er
Guðmundur f þann mund að skalla...
Viðar Þorkelsson skorar flórða markið. Hann hóf sjálfur sókn við miðlínu vallarins, fylgdi vel fram og eftir að Jón
Örvar hafði varið þrumuskot Péturs Amþórssonar í þverslá, hrökk knötturinn til Viðars sem brást ekki í góðu færi.
Daníel liggur á vellinum og Vilhjálmur bróðir hans kemur heldur engum vömum við.
...og á þessari mynd Ragnars Axelssonar, sést vel hvemig knötturinn stefnir
í markið.
Ormarr Örlygsson skoraði sitt fyrsta mark f sumar f bikarúrslitaleiknum. Hann gerði fimmta og sfðasta markið
og fagnaði með miklum tilþrifum á eftir. Það fer ekkert á milli mála að Ormarr hefur gaman af því að skora — Þor-
steinn Þorsteinsson fagnar með honum og Pétur Ormslev, fyrirliði þeirra, er einnig hæstánægður.
Er þotta okkl að verða búið? Þeir þurftu ekki að hafa neinar áhyggjur þeg-
ar myndin var tekin, nokkrum andartökum fyrir leikslok, varamenn og stjóm-
endur Fram. Frá vinstri: Eyjólfur Bergþórsson, varaformaður knattspymudeildar
og formaður meistaraflokksráðs, Guðmundur Steinsson, Pétur Óskareson, Páll
Grímsson, Einar Ásbjöm Ólafsson og Öm Valdimareson. Ásgeir Elfasson, þjálf-
ari, situr fyrir framan.