Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 8
8 B
3Hwtbi»hM«M» /IÞROTTIR ÞMÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
KNATTSPYRNA / ÚRSLITALEIKUR MJÓLKURBIKARKEPPNI KSÍ
Eltingaleikur í 90 r
Frábærir Framarartóku Víðismenn í kennslustund og unnu stærs
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Framarar í ham — Víðismenn sýndu ekki sitt „rétta andlitM
Framarar fóru á kostum í úrslitaleiknum, léku við hvem sinn fingur, en Víðismenn náðu sér aldrei á strik. Komust aldrei inn í leikinn og voru greinilega mjög
taugaóstyrkir, enda óvanir stórleikjum sem þessum. Þessi mynd, þar sem fyrirliðamir kljást, er dæmigerð fyrir úrslitaviðureignina: Pétur Ormslev „skapar"
eitt listaverka sinna; enn eina snilidarsendinguna, og segja má að Guðjón Víðisfyrirliði sé týndur! Það er óhaett að segja að þama sýni hann ekki sitt „rétta
andlit" frekar en liðsmenn hans gerðu í leiknum.
FRAM ARAR stjórnuðu þessum
úrslitaleik frá fyrstu mínútu til
hinnar síðustu. Munurinn á lið-
unum kom bersýnilega í Ijós;
Framarar hafa mikla yfirburði
í boltatœkni og leikhugsun, og
barátta Víðismanna dugði
skammt. Framarar héldu bolt-
anum vel, liðsheildin var
sérlega góð og leikurinn var
nánast eins og eltingaleikur f
90 mínútur. Framarar með
boltann og Víðismenn á eftir
þeim. Þetta var sjötti bikarsig-
ur Fram, en liðið var nú í
úrslitum í sjöunda skipti á níu
árum.
Mér er til efs að Fram-liðið
hafí átt jafn góðan leik í
sumar. Leikmenn liðsins voru
greinilega staðráðnir að ná bikam-
um aftur í Safamýr-
Skapti ina og léku mjög vel
Hallgrímsson hver fyrir annan.
skríiar Hreyfíng var mikil á
Frömurum og bolt-
inn gekk vel. Fyrri hálfleikurinn var
frábærlega leikinn, svo og kaflar í
Fram - Víðir
5 : 0
Laugardalsvöllur, úrslitaleikur Mjólk-
urbikarkeppni KSÍ, sunnudaginn 30.
ágúst 1987.
Mðrk Fram: Guðmundur Steinsson 2
(17., 26.), Ragnar Margeirsson (22.),
Viðar Þorkelsson (49.), Ormarr öriygs-
son (52.).
Gult spjald: Klemens Sæmundsson
Víði (12.), Grétar Einarsson Víði (59.).
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 3.784.
Dómarí: Guðmundur Haraldsson.
Línuverðin Óli Ólsen og Eysteinn
Guðmundsson.
Lið Fram: Friðrik Friðriksson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Kristján Jónsson,
Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson,
Kristinn R. Jónsson, Pétur Amþórsson,
Guðmundur Steinsson (Amljótur Daví-
ðsson, vm. á 61. mín.), Ragnar
Margeireson, Jón Sveinsson, Ormarr
öriygsson.
Iið Víðis: Jón örvar Arason, Klemens
Sæmundsson, Bjöm Vilhelmsson, Vil-
hjálmur Einareson, Ólafur Róbertsson
(Svanur Þoreteinsson vm. á 66. mín.),
Daníel Einarsson, Guðjón Guðmunds-
son, Vilberg Þorvaldsson, Grétar
Einareson, Gísli Eyjólfsson, Sævar
Leifsson.
þeim síðari, en ósjálfrátt slökuðu
þeir þó á eftir að fímmta markið
var komið. Titillinn var í höfíi.
Já, þetta var óvenjulegur úrslita-
leikurinn og sigurinn sá stærsti sem
unnist hefúr á þessum vettvangi í
28 ára sögu keppninnar. Og mörkin
voru ekki af verri endanum, þó svo
vamarmenn Víðis geta nagað sig í
handarbökin vegna slakrar völdun-
ar. Guðmundur Steinsson skallaði
fyrst í mark eftir rúmar 16 mínút-
ur. Kristján Jónsson skallaði til
Guðmundar í teignum og úr þröngri
aðstöðu skallaði hann í netið frá
markteig. Þá var komið að Ragnari
Margeirssyni: eftir homspymu Pét-
urs Amþórssonar skallaði Viðar
knöttinn niður til Ragnars, hann
var aleinn á markteigshominu,
snéri sér snöggt við og þmmaði í
fjærhomið. Ragnar átti siðan langa
fyrirgjöf frá hægri skömmu síðar,
beint á kollinn á Guðmundi Steins-
syni sem henti sér fram og skallaði
giæsilega efst í homið.
Strax eftir hlé komu svo tvö mörk
- fyrst var það Pétur Amþórsson
sem átti fímafast skot af 25 m
færi sem Jón Örvar varði í slá, Við-
ar Þorkelsson fylgdi vel á eftir,
náði boltanum á undan Daníel og
skoraði af öryggi af stuttu færi.
Viðar hóf einmitt sóknina við
miðlínu, fylgdi fram og batt á hana
endahnútinn. Ormarr, sem var
síógnandi, skoraði svo skömmu
síðar. Jón Örvar varði fyrst þramu-
skot frá honum af stuttu færi,
boltinn hrökk til baka, Ormarr var
fyrstur að honum og sendi hann
rakleiðis i netið.
í stuttu máli sagt: Víðismenn
mættu oflörlum sínum. Þeir komust
aldrei í takt við leikinn og vora
mjög taugaveiklaðir. Áttu enga
veralega hættulega sókn og Friðrik
Friðriksson þurfti aldrei að leggja
sig fram í FYam-markinu. Guðjón
Guðmundsson, fyrirliði Víðis, hitti
naglann á höfuðið þegar hann
sagði: „Taugamar bragðust og leik-
urinn snerist upp í martröð.
Framaramir eru snillingar í að
halda boltanum og þetta var bara
eltingaleikur hjá okkur." Framarar
léku aftur á móti við hvem sinn
fingur. Samheldnin var áberandi.
Ragnar lék einn sinn besta leik
síðan hann kom til félagsins, Guð-
mundur var einnig góður frammi,
Ormarr síógnandi á hægri kantin-
um og átti skilið -að skora — en
þetta var fyrsta mark hans í sum-
ar. Hinir miðjumennimir einnig
mjög góðir, og vömin sterk.