Morgunblaðið - 30.10.1987, Síða 7

Morgunblaðið - 30.10.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 B 7 HVAÐ ER AÐO GERAST! þá opin til kl. 20.00. A sunnudag verður sýningin opin frá kl. 14.00 til 20.00. Listsýning í Teppabúðinni Astrid Ellingsen og Bjarni Jónsson sýna í húsakynnum Teppabúðarinnar við Suð- urlandsbraut. Astrid sýnir handprjónaða kjóla úr íslensku einbandi og peysur úr bómullargarni. Bjarni sýnir oliumálverk, vatnslitamyndir og teikningar. Myndefnið er mikið sótt í islenska þjóðhætti. Þá sýnirTeppabúöin fjölbreytt ún/al af gólfteppum, mottum og dreglum, auk gólfdúka sem ekki þarf að líma. Þá sýnir búðin ýmiss konar húsgögn og fást þau á kynningarverði á meöan sýningin stendur. Hún er opin virka daga kl. 9-22, um helgar kl. 14-22 og lýkur sunnudag- inn8.nóvember. Myndlistar- og handíðasýning frá Hvrtarússlandi Á morgun, laugardaginn 31. október, kl. 13.30 verður opnuð sýning á svartiist og listmunum frá sovétlýöveldinu Hvíta- rússlandi í húsakynnum MIR, Vatnsstíg 10. Á sýningunni eru rúmlega 70 grafík- verk, unnin með ýmsum aðferðum af 21 listamanni. Meðal sýnenda er Arlén Kasj- kúrevits sem gert hefur myndskreytingar við útgáfu skáldsögu Halldórs Laxness „Atómstöðvarinnar" á hvítrússnesku. Eru sjö þeirra á sýningunni. Þá eru til sýnis fjölmargir listmunir, barna- teikningar svo og bækur sem gefnar hafa verið út í Hvítarússlandi. Sýning þessi er hluti dagskrár Sovéskra dagaMlR 1987,en þeirvoru settirá Selfossi sl. miðvikudagskvöld og standa fram yfir helgi. Sýningin verður opin fram eftir mánuöinum og er aðgangur ókeypis og öllum heimill. Ýmsar sýningar Afmælissýning Blaðamannafélagsins I nóvember nk. eru rétt 90 ár liðin frá stofnun Blaðamannafélags Islands. I til- efni þessara tímamóta stendurfélagið fyrir Ijósmynda- og sögusýningu í Lista- safni ASl', Grensásvegi 16, undir yfirskrift- inni „Saga og störf blaðamanna í 90 ár". Sýningin verður opnuð laugardaginn 31. október í Listasafni ASi kl. 15 fyrir blaða- menn og boðsgesti en fyrir almenning kl. 17. Á sýningunni er, auk fjölda merkra frétta- Ijósmynda frá liðnum árum og áratugum, margvíslegur búnaður og tæki sem hafa fylgt starfi fréttamanna í gegnum tíðina. Þar verða einnig sýndar ýmsar sögulegar heimildirum Blaðamannafélagið. Afmælissýning Blstendurtil 15.nóvem- ber og verður opin virka daga kl. 16-20 en 14-22 um helgar. íslenskur heimilisiðnaður Gler i Bergvík er með 5 ára afmælissýn- ingu í íslenskum heimilisiðnaði. Sýningin verðuropnuð á morgun, laugardaginn 31. október kl. 14-18 og verður síðan opin á venjulegum verslunartima til 14. nóvember. Sigrún Einarsdóttirog Sören Larsen sýna m.a. nokkur af fyrstu glösun- um, sem blásin voru í Bergvík, einnig ýmis sérverkefni, sem unnin hafa verið eftir beiðni, svo og ný verk, s.s. föt, skál- ar, myndavasa og skúlptúra. Tónlist Hvftrússnesk tónlist og dansar Listafólkfrá Hvítarússlandi, sem dvalist hefur hér á landi undanfarna daga i til- efni Sovéskra daga MlR 1987, veröur með lokatónleika í Þjóðleikhúsinu mánu- dagskvöldið 2. nóvember kl. 20. Þar koma fram einsöngvarar, hljóöfæraleikar- ar og dansarar, félagar úr þjóðdansa- flokknum „Kryshatsjok" sem starfaö hefur i rúma fjóra áratugi við ríkisháskól- ann í Minsk. Eru dansararnir allir úr hópi stúdenta við háskólann og sýna þeir þjóðdansa úrýmsum áttum. Tónlistarfélag Krístskirkju Snorri Sigfús Birgisson tónskáld og píanóleikari mun flytja eigin verk á vegum Tónlistarfélags Kristskirkju á tónleikum ( safnaðarheimilinu, Hávallagötu 16, á morgun, laugardaginn 31. október. Hefj- ast tónleikarnir kl. 16 og verða aögöngu- miðarseldirvið innganginn. Verkin sem Snorri mun leika eru Æfingar (etýður) sem hann samdi 1981 og frumflutti það ár á miðnæturtónleikum á vegum Musica Nova. Verkið er 21 þáttur og spannar mjög vitt svið hvað snertir tækni og túlk- un. Þá mun Snorri leika annaö mikið verk, Pianólög fyrir byrjendur, sem var á sínum tíma pantaö af Nomus, nefndinni fyrir norræna tónlist, og er það nýkomið út á prenti. Þetta eru 25 stuttir þættir, þar sem farið er á fínlegan og tiltölulega auðveldan hátt í gegn um ýmis nútíma tæknibrögð í pianóleik. Nokkur laganna eru fyrirfjórhentan píanóleik og mun Anna Guðný Guðmundsdóttir aðstoða Snorra við flutning Þeirra. Tvö laganna eru svo fyrir píanóeinleik og segulband. Duus-hús i Duus-húsi er leikinn lifandi djass á hverju sunnudagskvöldi kl. 9.30. Sunnudagskvöldið 1. nóvember kl. 21.30 veröur djamsessjón i Heita pottinum. Holiday Inn Söngbandið syngur lög úr söngleikjum, létt dægurlög og rakarakvartetta í hádeg- inu íveitingasalnum Lunduren á kvöldin í veitingasalnum Teigi. Jónas Þórir, Helgi og Hermann Ingi skemmta í Háteigi fimmtudagskvöld og sunnudagskvöld. Ferðalög Ferðafélagið Sunnudaginn 1. nóvemberverðurgengiö á Helgafell sunnan Hafnarfjarðar. Lagt er af stað kl. 13 frá Umferðarmiðstöðinni að austanveröu. Ekið er i Kaldársel og gengið þaðan á fjallið, sem er 338 m á hæð og auðvelt að ganga á. Gönguferð á vetrardegi er holl og góð og veitir þeim sem þátt taka i sliku ánægju og yndis- auka. Við ráöleggjum þátttakendum að vera í þægilegum skóm og hlýjum fatn- aöi. Þetta ergönguferð sem er kjörin fyrir allafjölskylduna. Myndakvöldin verða i vetur i salnum á efstu hæð Hverfisgötu 105. Útivist Dagsferð verður farin á vegum Útivistar sunnudaginn 1. nóvember kl. 13. Þetta verður létt gönguferð á Helgafell f Mos- fellssveit og um Skammaskarð og jafnvel fleiri fell i nágrenninu ef áhugi og tími leyfir. Tilvalin heilsubótarganga fyrir alla. Brottförerfrá BSÍ, bensínsölu. Um aðra helgi, 6.-8. nóvember, verður árleg haustblótsferð Útivistar og verður að þessu sinni fariö í Skaftártungu og gist í nýja félagsheimilinu, Tunguseli. Upplýsingamiðstöðin Upplýsingamiðstöð ferðamála er með aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þar eru veittar allar almennar upplýsingar um ferðaþjónustu á íslandi. Mánudaga til föstudaga ér opið frá klukkan 10.00-16. 00, laugardaga kl. 10-14. Lokað á sunnudögum. Siminn er 623045. Útivera Hana nú Vikuleg laugardagsganga frístundahóps- ins Hana nú í Kópavogi hefst við Digra- nesveg 12 kl. 10.00 á laugardagsmorg- uninn 31. október. Við göngum hvernig sem viðrar. Markmiðið er: Samvera, súr- efni, hreyfing. Góðurfélagsskapur. Nýlagaö molakaffi. Allireru velkomnir. Viðeyjarferðir Hafsteinn Sveinsson er með daglegar feröir út í Viðey og um helgar eru ferðir allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan í Viðey er opin og veitingar fást í Viöeyjarnausti. Bátsferðin kostar200 krónur. Félagslíf Laugameskirkja I kvöld, föstudaginn, 30. október, kl. 18 verður messa í Laugarneskirkju á vegum Áhugahóps um klassiska messu, tíða- gjörð og kyrrðardaga. Eftir messu veröur efnt til samveru með léttum veitingum og umræðum um ýmis mál sem að helgi- haldi og kristnilífi lúta. MÍR M(R, Menningartengslislands og Ráð- stjórnarríkjanna, minnast 70 ára afmælis Októberbyltingarinnar í Rússlandi og þjóðhátíðardags Sovétrikjanna á sam- komu og tónleikum, sem haldnir verða í samkomusal Menntaskólans við Hamrahlíð nk. sunnudag, 1. nóvember, kl. 15. Þarflytja ávörp og stuttar ræður þeir Steingrimur Hermannsson utanrikis- ráðherra, Igor Krasavin sendiherra Sovétríkjanna á islandi og séra Rögn- valdur Finnbogason sóknarprestur á Staöarstað. Að ræðuhöldum loknum hefjast tónleikar og danssýning listafólks frá Hvítarússlandi, sem statt er hér á landi í tilefni Sovéskra daga1987,en þeireru sérstaklega helgaðir hvítrúss- neska sovétlýöveldinu. Lúðrasveitin Svanurleikuráðuren sam- koman hefst og meðan á henni stendur. Kynnir verður Jón Múli Árnason. Aðgangurerókeypis og öllum heimill. í vetur verða kvikmyndasýningar í biósal MÍR á Vatnsstíg 10, á hverjum sunnu- degi kl. 16. Félag harmonikkuunnenda Skemmtun verður iTemplarahöllinni við Eiríksgötu sunnudaginn 1. nóvemberfrá kl. 15-18. Félagsmenn sjá um skemmti- atriði og eiginkonur þeirra um veitingar. Templarahöllin Félagsvist verður spiluð kl. 21 föstudags- kvöldið 30. október. Veitt verða góð verðlaun. Frá klukkan 22.30 leikur Hljóm- sveit Jóns Sigurðssonar ásamt söng- konunni Sigríöi Geirsdóttur gömlu dansana. Barnagaman Tívolí í Hveragerði i Tívolí er alltaf eitthvað nýtt að gerast. Þar er opið virka daga frá 13-22 og um helgarfrá 10-22. Hreyfing Keila [ Keilusalnum i öskjuhlið eru 18 brautir undir keilu. Á sama stað er hægt að spila billjarð og pinu-golf. Einnig er hægt að spila golf i svokölluðum golfhermi. Golf Mjúk satináferð með Kópal Glitru 1 Kópal Glitra innimálningin hefur gljástig 10/ sem gefur fallega satináferð. Heimilið fær mildan og sérlega hlýlegan blæ, því birtan endurkastast ljúflega. Samspil ljóss og skugga verður áhrifamikið með Kópal Glitru. Kópal Glitra hefur hæfilegan gljáa til að henta á öll herbergi hússins. Viljir þú hærri gljáa á veggi sem meira mæðir á skaltu velja Kópal innimálningu með hærra gljástigi, s.s. Kópal Flos eða Kópal Geisla. A Grafarholtsvelli er Golfklúbbur Reykjavíkur með aðstöðu. Kennari er á staönum og æfingasvæði fyrir byrjendur. I Hafnarfirði er Hvaleyrarvöllur og Nes- klúbburinn er með völl á Seltjarnarnesinu. Hlíðarvöllur er svo í Mosfeilsveit. Auk þess eru fallegir vellir í Grindavík og í Grímsnesinu. Sund í Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar- dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund- laugará Seltjarnarnesi, á Varmá og við Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund- laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar- firði. Opnunartíma þeirra má sjá í dagbókinni. V\G !%, VELDU OTDK ÞEGARÞÚ VILT HAFA ALLT Á HREINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.