Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 3
Hfor0tmfrla»ib /ÍÞRÓTTIR ÞRLÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
B 3
HREYSTl
Það er skylda stgómvalda að gera áhugasömum kleift að
mennta sig í leiðbeinendastorfum á heilsuræktarstöðvum
Enn um fræðslumálin. Hæfni
leiðbeinenda á heilsurækt-
arstöðvum, bæði í tækjasölum
og þolfimistöðvum hefur verið í
brennidepli undanfarið. Er nú
svo komið, að heilbrigðisyfirvöld
hafa skipað nefnd til
að gera tillögur um
starfsreglur fyrir
þessa starfsemi. En
þá vaknar strax
spurning. Hvaða
starfsemi fellur und-
ir heilsurækt og
hver ekki. Sam-
kvæmt útlínum
Jóhanns Heiðars Jó-
hannssonar í
Hreystipistli fyrr í
sumar er hvers kon-
ar líkamsrækt ein
gerð heiisuræktar.
Þetta þýðir, að hvers
konar íþróttir og
hreyfing eru hluti
heilsuræktar.
Ef við höldum okkur
eingöngu við þá að-
ila, sem selja þjón-
ustu sína með
aðgöngukortum fyr-
ir ákveðinn fjölda
tíma, þá ei-u þar á
meðai jassdans-
stöðvar, sem einnig
bjóða upp á aerobic,
og aerobie stöðvar,
sem bjóða upp á
dansspuna o.s.frv.
Því er hór um mikilvægt skil-
greiningaratriði að ræða. Annað
atriði, sem skiptir höfuðmáli er,
hvaða stefnu nefndin velur til
að nálgast takmark sitt.
Verða starfsreglur settar, sem
gera einhverja grunnkröfu um
menntun eins og t.d. að hver
og einn er stundi leiðbeinenda-
störf sé íþróttakennari? I fljótu
bragði gæti það virst einföld og
árangursrík lausn. Menntun-
arkröfur féllu inn í menntunar-
kerfi okkar nú og allir yrðu
ánægðir. Málið er þó langt frá
því svo einfalt. Það er ljóst, að
íþróttakennaramenntun án frek-
ari reynslu af leiðbeinendastörf-
um annað hvort við tækjaþjálf-
un, þolfimi, -dans eða aðrar
greinar, sem hafa það markmið
að auka loftháð þol, er ekki
nægjanleg.
Ef það yrði ofan á að gera kröf-
ur um sérstaka sértæka mennt-
un til þeirra er sinna leiðbein-
endastörfum, verður að gera
ráðstafanir til þess að gera fólki
kleift að öðlast slíka menntun.
Bandaríkjamenn eru fremstir
flokki í menntun leiðbeinenda á
heilsuræktarstöðvum. Þar hafa
rísið samtök, sem hafa það
markmið að mennta fólk til leið-
beinendastarfa á heilsuræktar-
stöðvum. Má þar t.d. nefna
IDEA, sem er skammstöfun á
International Dance-Exercise
Association. Þetta eru samtök
eigenda og starfsfólks heilsu-
ræktarstöðva og hafa þau verið
í forystuhlutverki í menntunar-
málum þolfimi. Þessi samtök
hafa staðið fyrir prófum á
nokkrum stöðum í Bandaríkjun-
um á hverju ári. Prófíð hefur
bæði verið verklegt og skriflegt
og samkvæmt sýnishomum,
sem undirritaður hefur séð, ekki
fyrir aukvisa. Viðkomandi verð-
ur að hafa staðgóða menntun í
líffærafræði, þjálfunarfræði,
lífeðlisfræði og næringarfræði,
svo eitthvað sé nefnt, svo og
reynslu í útfærslu æfmga. Einn-
ig verður viðkomandi að hafa
nýlegt próf í endurlífgun. Fleiri
samtök í Bandaríkjunum hafa
látið menntun þolfimileiðbein-
enda til sín taka s.s. American
College of Sports Medicine og
fleiri. Þá geta menn nú nálgast
þessa menntun á íþróttabraut-
um háskólannna.
Þama eru Bandaríkjamenn að
svara þörf með þeim hætti, sem
þeim einum er lagið, en það er
ekki þar með sagt, að ekki megi
gott af þeim læra.
Geysileg eftirspurn er nú hér á
landi eftir hæfum leiðbeinendum
á heilsuræktarstöðvar. Jónína
Benediktsdóttir og fleiri hafa
reynt að bæta úr menntunarþörf
hér með námskeiðahaldi og er
það lofsvert frumkvæði, þó að
það hafi verið litið hornauga af
sumum. Eg tel, að hver sem
niðurstaða nefndar um starf-
semi heilsuræktarstöðva verður,
sé það skylda stjómvalda að
leysa úr þessari bráðu þörf með
námskeiðahaldi af einhveiju
tagi, sem hæfir aðilar sæju um,
og helst þyrftu viðurkenndir er-
lendir kennarar að vera þar í
aðalhlutverki. Eg er viss um að
þátttaka yrði mikil, þrátt fyrir
hugsanleg há þátttökugjöld
vegna þess að fyrir þá, sem
sæktu námskeiðið og lykju prófí
í lok þess, væri brautin bein og
meiri hæfni mundi skila sér í
betri launum.
Grímur
Sæmundsen
Bandaríkjamenn hafa varið í for-
ystuhlutverki menntunarmálum
leiðbelnenda á heiisuraektarstööv-
um.
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Bill Russel
kominn aftur
Fátt hefur vakið meiri athygli í
íþróttalífinu í Bandaríkjunum í
haust en ráðning Sacramento Kings
á Bill Russel sem þjálfara félags-
ins. Bill Russel var
Einar nánast goðsögn sem
■Bollason leikmaður Boston
skrífar Celtics og er af
mörgum talinn vera
besti miðheiji allra tíma. Hann hef-
ur verið kallaður faðir hraðaupp-
hlaupsins og var eflaust sá maður
sem opnaði augu flestra fyrir mikil-
vægi vamarleiksins. Einvígi hans
og Wilt Chamberlains verða lengi
í minni höfð og á engan er hallað
þó honum sé mest þökkuð hin glæsi-
lega sigurganga Celtics á 6. ára-
tugnum. Eftir að hafa unnið síðustu
2 meistaratitlana hjá Celtics, sem
leikmaður og þjálfari, gerðist hann
þjálfari hjá Seattle Super Sonics
og kom þeim i úrslit í fyrsta sinn
í sögu félagsins 1975. En Russel
hætti 1977, vonsvikinn og leiður
og sneri sér að þularstörfum í sjón-
arpinu. Sumir segja að hann hafi
aldrei náð nógu góðu sambandi við
leikmenn sína og að hann hafí reynt
árangurslaust að skapa einhvers
korfar Boston-stemmningu í Se-
attle.
Bill Russoll
Rændi Willis Reed
Hvað um það, nú eru aðrir tímar
og miklar væntingar em í Sacra-
mento með hinn nýja þjálfara. Hann
hóf starfið með því að „ræna“ Will-
is Reed, frægum leikmanni frá
gullaldarámm New York Knicks,
frá Atlanta. Hawks og gera hann
að aðstoðarþjálfara. Þá seldi hann
Eddi Johnson til Phoenix og fékk
í staðinn Ed Pinckey. Honum tókst
að næla sér í Kenny Smith frá
Norður-Karólínu-háskólanum í 1.
umferð í valinu sl. vor og binda
menn miklar vonir við að þar fari
stjórstjarna framtíðarinnar. Fyrir
em í liðinu leikmenn eins og La
Salle Thompson, miðheiji, sem
vantar þó um 10 em til að geta náð
vemlegum árangri, Otis Thorpe,
sterkur framheiji, sem skoraði tæp
19 stig að meðaltali í leik sl. vetur,
og Reggie Theus (áður með
Chicago), bakvörður, sem hefur
verið þeirra besti leikmaður undan-
farin ár.
Sannarlega er þetta ekkert stjömu-
lið eins og árangur sl. 7 ára bendir
til (unnir leikir: 250, tapaðir: 324),
en gaman verður að fylgjast með
hversu langt reynsla Bills Russel
og sigurvilji fleytir þeim í hinni
hörðu baráttu sem er framundan.
Þaö gekk é ýmsu þegar Bill Russell og Wilt Chamberlain mættust á árum
áður, eins og þessi mynd sýnir
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Miklir yfirburðir
Vals gegn
slöku liði KR
Krlstln Arnþórsdóttlr var marka-
hæst í leiknum og skoraði sjö mörk
fyrir Val. Kristín var markadrottning
1. deildar kvenna í knattspymu árið
1986. Hún var frá vegna meiðsla á
síðasta keppnistímabili, en er nú kom-
in á fulla ferð aftur.
EINN leikurfórfram M.deild
kvenna á sunnudagskvöld. Val-
ur sigraði KR örugglega 21:7
eftir að staðan í leikhléi hafði
verið 11:1 fyrirVal.
Valsstúlkur mættu ákveðnar til
leiks og náðu strax góðu for-
skoti. Þær spiluðu sterkan varnar-
leik, og fyrir bragðið var sókn KR
^^■■1 oft ráðleysisleg. Það
Katrín sést hvað best á því
Fríðriksen að í fyrri hálfleik
skrifar náði KR-liðið aðeins
að skora eitt mark!
Staðan í leikhléi var sem fyrr segir
11:1 fyrir Val.
KR-stúlkur náðu að rífa sig aðeins
upp í byijun seinni hálfleiks, og
skoruðu þá 4 mörk á móti einu
Valsmarki. Þá tóku Valsstúlkur sig
á og þegar upp var staðið höfðu
þær skorað 21 mark gegn 7 mörk-
um KR.
KR-liðið var slakt í leiknum. Vömin
var léleg og ekkert gekk upp í sókn-
inni. Stúlkurnar þurfa að taka sig
mikið á ef ekki á að fara illa í vetur.
Valsstúlkur voru öllu frískari nú en
í síðasta leik. Vamarleikurinn var
sterkur og þá var markvarslan góð
hjá Aðalheiði Hreggviðsdóttur.
Stúlkumar vom stundum of bráðar
i sókninni og ætluðuð sér greinilega
of mikið. Liðið skoraði mestan part
marka sinna úr hraðaupphlaupum.
Mörk KR: Karólína Jónsdóttir, Sigurbjörg
Sigþórsdóttir, Áslaug FViðriksdóttir, Snjó-
laug Benjamínsdóttir, Birthe Bitch, Jóhanna
og Bryndís Harðardóttir sitt markið hver.
Mörk Vals: Krístín Arnþórsdóttir 7,
Katrín Friðriksen 6, Guðrún Kristjáns-
dóttir 3, Ema Lúðvíksdóttir 3/2, Magnea
Friðriksdóttir og Guðný Guðjónsdóttir
eitt mark hver.
Dómarar voru Steinþór Baldursson og
Egill Már Markússon og sýndu þeir góða
takta í dómgœslunni.
■ Staðan/B11