Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 3
flUrgtwfrfalfrfo /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
B 3
HREYSTI
Jákvseð umræða um menntunar- og fræðslumál í íþróttafræð-
um skilar mönnum fram á við
Undirritaður fékk velþegin
viðbrögð frá íþróttakenn-
urum og fræðslufulltrúa ÍSÍ um
menntunar- og fræðslumál eftir
síðasta pistil. Höfðu menn ýmis-
legt að athuga við hugmyndir
og álit mitt á þess-
um málum nú og
framtíðarskipan
þeirra. Þetta er
ánægjulegt, vegna
þess að umræða og
skoðanaskipti um
fræðslumál íþrótta-
hreyfingarinnar og
menntun íþrótta-
kennara er brýn.
Ég vil að menn hafi
í huga, að í jafn-
stuttum pistli, og
þeir nú lesa, er ekki
hægt að gera mál-
efnum ýtarleg skil,
enda er hann ekki
til þess ætlaður.
Hugmyndin með
þessum greinaskrif-
um er að skapa
umræðu, koma á
hreyfingu. Sé um
þörf málefni að
ræða, sem snerta
áhugasvið margra,
skiptir meginmáli,
að umræðan, sem
siglir í kjölfarið, sé
jákvæð. Þá er von
til þess, þegar upp er staðið, að
hún hafi skilað mönnum fram á
við. Mál séu í betra horfi en áður.
Ég legg áherslu á, að þær hug-
myndir og gagnrýni, sem sumir
telja að fram hafi komið um
fræðslumál íþróttahreyfingar-
innar og íþróttakennaramennt-
un, eru settar fram til að kveikja
umræðu og hafi ég farið rangt
með eða misskilið skipan mála,
er ég manna fúsastur til að hafa
það, er sannara reynist. Ég mun
glaður ljá þeim, er vill leggja
orð í belg, rými í þessum pistlum
til að koma skoðunum sínum á
framfæri og vildi gjaman, að
þeir yrðu vettvangur slíkra
skrifa. Hinu verður ekki hagg-
að, að mitt álit er, að pottur sé
brotinn í þessum efnum.
Hér á landi hafa verið sett lög
um reykingavarnir, sem eru á
margan hátt til fyrirmyndar.
Þar er m.a. kveðið á um sam-
skipti þeirra, sem reykja og
þeirra, sem ekki reykja á vinnu-
stöðum. Það hefur verið athygl-
isvert, hve lítið þau ákvæði, sem
um þetta fjalla virðast notuð á
vinnustöðum.
Eiturmökkur
Heilbrigðisstarfsmenn fyrirtækja og heilbrigðisyfir-
völd þurfa að fræða reyklausa starfsmenn fyrir-
tækja um rótt þeirra.
Finnst mér sennilegt, að þeir,
sem ekki reykja, viti ekki um
rétt sinn í þessu efni, en skýrt
er kveðið á um t.d. hvemig þeir,
sem reykja, skuli haga sér í
vinnurými, þar sem aðrir starfa.
Sýnist mér þessi lög brotin víða
á hvetjum degi.
Það er verk heilbrigðisstarfs-
manna í fyrirtækjum að hafa
fmmkvæði um, að þessi lög séu
haldin og. réttur þeirra, sem
ekki reykja, sé ekki fyrir borð
borinn. Þar sem heilbrigðisstétt-
ir starfa í alltof fáum fyrirtækj-
um utan hins opinbera heilbrigð-
iskerfis kemur það í hlut
reykingavamanefndar heil-
brigðisráðuneytis, hugsanlega í
samráði við krabbameinsfélögin,
að fræða reyklausa starfsmenn
fyrirtækja og almenning um
rétt þeirra.
Grímur
Sæmundsen
Heimsmethafinn i sígarettureykingum, Jim Mouth, yrði varla vinsæll á
vinnustöðum. Hérer hann með 142 sígarettur i munninum.
HANDKNATTLEIKUR / LOTTO POLAR-MOTIÐ
Reuter
Þorgils Óttar Mathieson svífur inn af línunni og skorar eitt marka sinna gegn Svisslendingum á sunnudaginn.
Sigur á Sviss - en
ekki nægilega stór
Tvö mörktil viðbótar hefðu tryggt íslendingum 2. sætið
ÍSLAND vann góðan en ekki
nógu stóran sigur gegn Sviss
í síðasta leik sínum á Lottó-
mótinu íNoregi. Lokatölur
urðu 24-21, en ísland þurfti að
vinna með fimm mörkum til
þess að næla i annað sætið á
mótinu. Um tíma sýndist það
ætla að hafast, en Svisslend-
ingar hengu á boltanum og
tíminn rann út. Ósigurinn gegn
Noregi var auðvitað það sem
tyllti Islandi í þriðja sætið frem-
ur en of lítill sigur gegn Sviss.
Var sá ósigur mikið áfall.
Island hafði frumkvæðið gegn
Sviss frá fyrstu mínútu til
síðustu, sþilaði þó mjög köflóttan
leik. Ísland hafði þetta 2-3 marka
forystu lengst af, til dæmis mátti
sjá tölurnar 7-4 og 12-9, en síðar-
nefnda talan stóð í hálfleik. Sviss-
lendingar voru einu sinni nærri því
að jafna í fyrri hálfleik, en þeir
náðu að minnka muninn í eitt mark,
7-6. ísland lék sinn besta leik fram-
an af seinni hálfleik, náði þá sex
marka forystu og flest gekk upp.
Mátti sjá 17-11, en svo hrundi allt
saman og Sviss minnkaði muninn
aftur í eitt mark. Stóð þá 18-17
fyrir ísland. Sýndist þá fremur
hæpið að ísland næði fimm marka
sigri si'num, en veður skiptust skjótt
og góð rispa breytti stöðunni í 20-17
og síðan stóð 24-20. A lokamínú-
tunni fengu landsliðsmenn tækifæri
til að skora markið dýrmæta, en-
þeir misstu knöttinn og Svisslend-
ingar þvældust um allan völl með
knöttinn meðan sekúndurnar tifuðu
og hurfu í tímans haf.
Stjarna íslenska liðsins í þessum
leik var tvímælalaust Alfreð Gísla-
son, sem skoraði hart nær helming
marka liðsins, ellefu talsins, þar af
átta í fyrri hálfleik, en þá fór hann
gersamlega á kostum. Einar Þor-
varðarson átti einnig góðan leik,
einkanlega í fyrri hálfleik. Aðrir
leikmenn voru traustir, en ekki þó
upp á sitt besta enda gætti nokkurr-
ar þreytu í liðinu á mótinu í Noregi.
Sem fyrr segir, skoraði Alfreð 11
mörk, 6 víti, en aðrir sem skoruðu
voru þessir: Guðmundur Guð-
mundsson 3, Þorgils Óttar Matthi-
esen 3, Bjarni Guðmundsson 2,
Kristján Arason 2, Páll Ólafsson,
Jakob Sigurðsson og Atli Hilmars-
son eitt mark hver. Dómarar voru
frá ísrael og sýndu litla snilldar-
takta.
Norðmenntöp-
uöu niðurfimm
marka forskoti
Norðmenn sprungu þegar þeir léku
gegn Júgóslövum á sunnudaginn.
Þeir voru yfir, 22:17, þegar sjö
mín. voru til leiksloka. Þá hrundi
leikur Norðmanna og Júgóslavar
náðu að jafna, 22:22, með því að
skora fimm síðustu mörk leiksins.
Þar af skoraði markvörður Júgó-
slava eitt mark.
Karlsson, markvörður Norðmanna,
átti mjög góðan leik - hann varði
alls 23 skot í leiknum. „Islands-
baninn" Svele skoraði aðeins eitt
mark.
Norðmenn voru sterk-
ari á lokasprettinum
íslendingar skoruðu ekki mark síðustu fimm mín. og Norð-
menn tryggðu sér sigur, 24:23
„VIÐ erum bestir í heimi,"
hrópuðu leikmenn norska
landsliðsins í handknattieik,
þegar þeir dönsuðu trylltan
stríðsdans eftir að hafa lagt
íslendinga að velli, 24:23, í
íþróttahöllinni í Kopeivík - í
Pólar Cup á laugardaginn.
Norðmenn skorðu sigurmarkið
þegar aðeins tvær sek. voru til
leiksioka, eftir að Alfreð Gísla-
son hafði skotið að marki
Norðmanna úr vonlausu færi
þegar 40 sek. voru til leiksloka.
Espen Karlsson, markvörður
Norðmanna, varði eins og ber-
serkur síðustu fimm mín. leiksins —
hann lokaði markinu þá algjörlega
og áttu leikmenn
íslands ekkert svar
FráJóni
Óttarí við stórleik hans.
Karlssym íslendingar voru
,Noreg‘ yfir, 23:21, þegar
Karlsson lokaði markinu. Leikur
íslenska liðsins var mjög dapur í
seinni hálfleiknum — leikmenn liðs-
ins fóru illa með mörg gullin
tækifæri. Páll Ólafsson, Kristján
Arason og Alfreð Gíslason léku
mjög vel í fyrri hálfleiknum og skor-
uðu þeir félagar tólf af þrettán
mörkum liðsins, sem varyfir, 13:12,
í leikhléi. Páll var sérstaklega góður
- skoraði mörg glæsileg mörk með
gegnumbrotum og langskotum.
Markvarsla íslenska liðsins var í
molum. Þeir Einar Þorvarðarson og
Brynjar Kvaran vörðu aðeins fjögur
skot í fyrri hálfleiknum.
Norðmenn náðu að jafna, 13:13,
og síðan var jafnt upp í 16:16. Þá
kom góður kafli hjá íslenska liðinu
og skoruðu þeir Kristján Arason,
tvö mörk og Bjami Guðmundsson,
eitt - 19:16. Eftir það var eins og
leikur íslenska liðsins færi í baklás.
Norðmenn skoruðu næstu tvö
mörkin, en íslendingar héldu
tveggja marka forskoti. Þegar fímm
mín. voru til leiksloka skoraði Al-
freð Gíslason, 23:21, úr vítakasti
sem Páll Ólafsson fískaði. Menn
héldu þá að sigur ísland væri { ör-
uggri höfn. Svo var ekki. Leikur
íslenska landsliðsins hrundi og
Karlsson lokaði marki Normanna,
sem náðu að tryggja sér sigur,
24:23.
íslenska liðið var dapurt í leiknum.
Páll, Geir Sveinsson, Alfreð og
Kristján voru bestu leikmenn liðs-
ins. Leikmenn íslenska liðsins voru
óþolimóðir og gerðu mörg slæm
mistök. Leikkerfi liðsins gengu ekki
upp. Einar og Brynjar vörðu aðeins
sjö skot á sama tíma og Karlsson,
markvörður Norðmanna, lék vel og
varði fjórtán skot. Bent Svele var
besti leikmaður norska liðsins -
skoraði átta mörk. íslendingar
hefðu átt að taka hann úr umferð.
Þeir sem skoruðu mörk íslendinga
gegn Norðmönnum, voru: Páll 01-
afsson 7, Kristján Arason 6, Alfreð
Gíslason 4/1, Bjami Guðmundsson
2, Guðmundur Guðmundsson 2,
Þorgils Óttar Mathiesen 1 og Geir
Sveinsson.
Þorgils Óttar skoraði eitt mark úr
fímm skotum af línu.
Sigurður Gunnarsson, Atli Hilmars-
son og Sigurður Sveinsson hvíldu.