Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 4
4 B
jWotgnnMnjiib /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJIIDAGUR 8. DESEMBER 1987
42. ÁRSÞING KSÍ
„KNATTSPYRNUSAMBANDIÐ
er og verður stærsta og öflug-
asta samband ÍSÍ. Knattspyrn-
an hefur aldrei verið betur
skipulögð né skemmtilegri,
virkir iðkendur eru yfir 20 þús-
und og leiknir voru 2.043 leikir
á árinu, sem er met. Niðurstöð-
utala rekstrarreiknings er
tæplega 40 milljónir, sem er
hæsta tala er sést hefur hjá
nokkru sambandi. Vel hefur
verið starfað og það skiptir
mestu að hlutirnir séu gerðir
og skili árangri. Knattspyrnan
ber höfuð og herðar yfir aðrar
íþróttir í öllum heimsálfum, er
þjóðaríþrótt víðast hvar á með-
an aðrar íþróttir eru stað-
bundnar. Starfsemi KSÍ hefur
aldrei verið blómlegri og við
getum vel við unað,“ sagði Ell-
ert B. Schram, formaður KSÍ,
m. a. á ársþingi sambandsins,
sem fram fór á Hótel Loftleið-
um um helgina.
Morgunblaðiö/Þorkell
Nýkjörin stjóm KSI. Frá vinstri: Jóhann Ólafsson, Guðmundur Bjamason, Ásgeir Ármannsson, Steinn Halldórsson, Helgi Þorvaldsson, Páll Júlíusson, skrif-
stofustjóri, Stefán Garðarsson, Ellert B. Schram, formaður, Þór S. Ragnarsson, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri, Elías Hergeirsson, Gylfí Þórðarson,
Sveinn Sveinsson, Ragnar Marinósson og Gunnar Sigurðsson. Fjarverandi voru Sigbjörn Gunnarsson, Kristján Jónasson og Rafn Hjaltalín.
„Skiptir mestu að hlutimir
séu gerðir og skili árangri“
- sagði Ellert B. Schram, formaður KSÍ, en starfsemi sambandsins hefur aldrei verið blómlegri
Aþinginu voru 128 fulltrúar
alls staðar að af iandinu og
fór þinghald fram með hefðbundn-
um hætti. Lögð var fram glæsileg
ársskýrsla með
Steinþór tæmandi upplýsing-
Guöbjartsson Um um starfsemi
skrifar nýliðins starfsárs og
dreift var sérstöku
afmælisblaði í tilefni 40 ára af-
mælis sambandsins. Pjöldi mála var
á dagskrá og hlutu þau sanngjarna
umfjöllun. Rekstraráætlun næsta
árs var mál málanna og voru menn
langt því frá að vera sammála, en
allir sættust að lokum.
Rekstraráætlun hitamál
Mikið var þrefað um rekstraráætlun
næsta árs, bæði á þinginu og jafn-
vel enn meira á göngum. Var fyrst
og fremst deilt um, hvernig ráð-
stafa skyldi hagnaði úr lottóinu, en
þar er gert ráð fýrir 7.5 milljónum
króna. Fjárhagsnefnd lagði fram
breytingatillögur við rekstraráætl-
unina, sem voru samþykktar, en
Þorgeir Jósefsson, sem var í fjár-
hagsnefnd, sagði að nefndarmönn-
Áskorun til
þingmanna
„Ársþing KSÍ, haldið 5. des-
ember 1987, lýsir vonbrigðum
sínum með þau áform, er fram
koma í fjárlögum ríkisins fyr-
ir árið 1988, um að skerða
framlög til íþrótta- og ung-
mennafélagshreyfingarinnar,
ásamt því að fella niður fram- •
lög til íþrótta- og félagsheim-
ilasjóðs.
Minnir ársþing KSÍ á, að
íþróttahreyfingin hefur jafnan
verið í Ijársvelti af hálfu ríkís-
valdsins. Nýtilkomnar tekjur
af lottórekstri réttlæta engan
veginn framangreind niður-
skurðaráform.
Um leið og ársþing KSÍ árétt-
ar að öflugt íþróttastarf er
einn mikilvægasti þáttur til
eflingar heilbrigðu æskulýðs-
starfí, skorar þingið á
þingmenn allra flokka að sjá
svo um, að íþróttahreyfingin
haldi óskertum hlut á fjárlög-
um ríkisins á árinu 1988.“
um hefði svo oft verið stillt upp við
vegg að þeir væru komnir með
mikinn bakverk! Tillaga kom til
fjárhagsnefndar þess efnis að félög-
in fengju peningana, en Ellert leit
á hana sem vantraust á stjórnina
og var tillagan þá dregin til baka.
Þá vildu sumir fella niður 5% miða-
gjaldið eða lækka það og að hluti
lottópeninga færi í að greiða niður
dómaragjald og þátttökugjald.
Stjómin lagði til að sambandið hefði
lottópeningana til eigin ráðstöfunar
og var það samþykkt að lokum eft-
ir marga og stranga fundi fjár-
hagsnefndar. Ellert sagði hins
vegar að ef sambandið skilaði hagn-
aði á næsta ári væri sjálfsagt að
endurskoða ráðstöfun lottóhagnað-
ar „Ef fé verður afgangs fara
peningamir til félaganna,“ sagði
hann.
Mlniknattspyma í 5. fiokki
í mörg ár hefur verið rætt um að
taka upp miniknattspyrnu í 5.
flokki, „en þetta er eins og með
bjórinn, menn þora ekki að taka
afstöðu," sagði Geir Þorsteinsson,
ELLERT B. Schram hefur verið
formaður KSÍ síðan 1973 og
hlaut enn einu sinn rússneska
kosningu, var kosinn með lófa-
klappi til tveggja ára. Kosning
stjórnar, endurskoðenda og í
dómsstól KSÍ var með sama
hætti, en fimm voru í framboði
í þriggja manna varastjórn.
tjórn KSÍ skipa 13 menn og
þar af sitja níu í framkvæmda-
stjóm. Fjórir menn eiga að ganga
úr stjórninni á hverju ári og < að
þessu sinni voru það Gylfi Þórðar-
son, Gunnar Sigurðsson, Helgi
Þorvaldsson og Garðar Oddgeirs-
son. Allir nema Garðar gáfu kost á
sér til endurkjörs og lagði kjömefnd
til að Steinn Halldórsson, sem var
í varastjóm, tæki sæti hans. Kjör-
nefnd tefldi fram Ragnari Marinós-
syni til eins árs í stað Sigurðar
Hannessonar, sem hætti í stjórninni
í vor, er hann tók við framkvæmda
stjórastöðu sambandsins. Fleiri
tilnefningar komu ekki fram og
þegar hann lagði til að málið yrði
samþykkt. Sú varð og á raunin, en
í stað eins liðs teflir hvert félag
fram tveimur liðum og úrslit beggja
leikjanna skráð sem ein.
Þá var samþykkt að heimila að
skipta fimm leikmönnum inná í 2.,
3., 4. og 5. aldursflokki og komið
verður á landsmóti í innanhúss-
knattspyrnu í 3., 4. og 5. flokki
karla. Verður þar leikið samkvæmt
reglúgerð FIFA um innanhúss-
knattspymu; markvörður og fjórir
útileikmenn og leyfilegt að skora
hvar sem er í handboltamörkin.
Félögum verður heimilt að banna
leikmönnum í landsmótum allra
flokka nema meistarafiokks að
leika í grasskóm á grasvöllum
sínum og skal ákvörðun hvers fé-
lags birt í félagatali í handbók
KSI. Dómarar skulu kynna sér þessi
ákvæði og sjá um að þeim sé fram-
fýigt.
Bylting í kvennamálum?
Hörður Hilmarsson leit inn á þingið
á laugardagsmorgun og var settur
yfir nefnd, sem fjalla skyldi um
voru fimmmenningarnir kjörnir
með lófaklappi, Gylfi, Gunnar,
Helgi og Steinn til tveggja ára og
Ragnar til eins árs. Fyrir sitja Þór
Símon Ragnarsson, Sveinn Sveins-
son og Elías Hergeirsson.
Landsijórðungafulltrúarnir, Kristj-
án Jónasson (Vesturlandi, Rafn
Hjaltalín (Norðurlandi), Guðmund-
ur Bjarnason (Austurlandi) og
Jóhann Ólafsson (Suðurlandi), voru
endurkjörnir til eins árs með lófa-
klappi. Sömu sögu er að segja af
kosningu varamanna þeirra. Þrír
voru endurkjömir, þeir Þorgeir
Jósefsson (Vesturlandi), Adolf Guð-
mundsson (Austurlandi) og Bárður
Guðmundsson (Suðurlandi), en
Ingólfur Freysson (Norðurlandi) tók
sæti föður síns, Freys Bjarnasonar,
sem féll frá á árinu.
Geir Þorsteinsson gaf ekki kost á
sér til endurkjörs í varastjórn, en
það gerði Ásgeir Ármannsson og
Steinn Halldórsson var kosinn í
aðalstjórn sem fyrr segir. Kjörnefnd
k ven nak nattspyrn u. „Mátulegt á
hann,“ sögðu margir, en nefndin
sVaraði fyrir sig með róttækum til-
lögum, skilaði áliti, sem þingið
samþykkti. Hún lagði til að komið
yrði á knattspyrnuskóla fyrir stúlk-
naúrval, stúlknalandslið yrði valið
og það sent á Norðurlandamót og
a-landslið tæki þátt í Evrópukeppni.
Önnur mál
Fleira var á dagskrá og bcr þar
helst að nefna breytingar á starfs-
reglum dómaranefndar, óbreytt
fyrirkomulag 3. deildar nema hvað
HSÞ-c verður áttunda liðið í b-riðli
næsta ár og erlendir leikmenn verða
löglegir eftir tveggja mánaða bú-
setu á landinu í stað þriggja áður.
Hafi leikmaður leikið með öðm fé-
lagi í landsmótum skulu líða minnst
tveir mánuðir áður en hann verður
löglegur með nýju félagi, en eftir
þátttöku í héraðsmóti skal líða
minnst einn mánuður, þegar um
félagaskipti er að ræða.
Þá var milliþinganefnd sett á
laggimar, sem á að gera úttekt á
mótafyrirkomulagi KSÍ. Hún á að
lagði til að Ásgeir, Ólafur J. Ólafs-
son og Sigbjöm Gunnarsson yrðu
kjömir, en þá var stungið upp á
Stefáni Garðarssyni og Grétari
Norðfjörð. í kosningunni hlaut Sig-
björn 116 atkvæði, Ásgeir 104,
Stefán 81, Ólafur 78 og Grétar 17
atkvæði og vom því þrír efstu kjörn-
ir til eins árs.
Hannes Þ. Sigurðsson og Sæmund-
ur Gíslason verða áfram endurskoð-
endur KSÍ og Reynir Karlsson og
Þórður Þorkelsson til vara. í dóm-
stólnum em sömu menn og fyrr,
þeir Jón Steinar Gunnlaugsson, Jón
G. Zoega og Þórður Ólafsson og
varamenn þeir Gestur Jónsson,
Guðmundur Þórðarson, Helgi V.
Jónsson, Jens Sumarliðason og
Guðmundur Jónsson, sem kom í
stað Axels Einarssonar, er lést á
árinu.
Hilmar Guðlaugsson var þingforseti
og Ingvi Guðmundsson ritari lauk
við 70 síðna fundargerð um leið og
þingi var slitið.
kanna möguleika á lengingu keppn-
istímabilsins, athuga með fjölgun
liða í 1. og 2. deild, skoða hvort
gmndvöllur sé fyrir því að leika 3.
deild í eirium riðli, skila áliti um
4. deild, athuga með stofnun 5.
deildar og skoða hvort ástæða sé
til að auka samgang milii deilda.
Stefnumótun til aldamóta
Almenn ánægja var með drög, sem
stjórnin lagði fram, að stefnumótun
KSÍ til aldamóta. Kennir þar
margra grasa og verða þau send
út til félaganna, sem eni beðin um
að kynna sér efnið og gera tillögur
til úrbóta sem fyrst. A fyrri hluta
næsta árs verður málið svo tekið
upp á sérstökum fundi.
Vinnusamt þing
Þingstarfið gekk vel fyrir sig, mik-
il umræða var um helstu málin og
hlutu þau sanngjarna afgreiðslu.
„Þetta hefur verið vinnusamt og
málefnalegt þing, sem endurspeglar
starf KSÍ, þar sem unnið er af ör-
yggi og festu," sagði Ellert er hann
sleit þinginu.
Tilmæli til
forráðamanna
„Ársþing KSÍ 1987 beinir því
til sambandsaðila að þeir beiti
sér fyrir því að stöðva hróp
og köll forráðamanna, for-
eldra og stuðningsmanna frá
hliðarlínum í leikjum yngri
flokkanna í þeim tilgangi að
dómarar og aðrir starfsmenn
leiksins fái unnið störf sín í
friði og hinir ungu leikmenn
fái einbeitt sér að leiknum.“
í greinargerð með tillögunni
segir að þessi hróp og köll séu
alvarlegt vandamál. „Fúkyrði
og svivirðingar eru einnig
ekki til þess fallin að gera
starf dómarans eftirsóknar-
vert og hugsanlegt er að
einmitt þetta vandamál sé ein
af orsökum fyrir því að dóm-
arar fáist ekki á leiki yngri
flokkanna. Hinir ungu leik-
menn hætta að geta einbeitt
sér að knattspymunni og læra
uð kenna dómaranum ávallt
um ef leikur tapast.“
Rússnesk kosning