Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 5
ffigrgnnfrlaftib /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
B 5
Kennslan mikllvægust
í yngri flokkunum skiptir kennsla undirstöðuatriðanna mestu máli, en
keppni kemur siðar.
hófst skömmu fyrir síðustu alda-
mót, en Knattspymusambandið
er 40 ára. Fyrsta landsmótið í
meistaraflokki fór fram 1912, í
2. og 3. flokki 1940, í 4. flokki
1954 og i 5. flokki 1958. Ekki
er um opinber landsmót að ræða
í 6. og 7. flokki, en þessir flokk-
ar hafa orðið til á allra síðustu
árum. Fyrsti a-landsleikurinn
fór fram 34 árum eftir fyrsta
landsmótið, 21 árs liðið lék fyrst
1978, U-18 byijaði 1965 og
U-16 1975. Með öðrum orðum
þá hafa liðið tugir ára á milli
fyrstu landsmóta í hinum ýmsu
aldursflokkum og skipulagningu
hafa sinnt þessum störfum og
starfsmaður í hálfu starfi hefur
verið þeim til aðstoðar á sumrin,
en þó þeir hafi almennt staðið
sig vel, þarf að breyta skipu-
lagningu þessara mála. Best
væri að ráðinn yrði starfsmaður
í fullt starf og færi vel á því að
nýkjörin stjórn léti það verða
eitt af sínum fyrstu verkum. Þar
með væri fyrsta sporið stigið í
að fylgja eftir í verki drögum
að stefnumótun KSÍ til alda-
móta, sem kynnt voru á þinginu.
Steinþór
Guðbjartsson
STEFNA
Arangur landsliðanna er spegilmynd starfsins í félögunum
Óskvnsamlegt að rasa um ráð fram í kvennaknattspymunni
KSI þarf að ráða starfemann í fullt starf tii að annast mótamái
Aársþingi Knattspymusam-
bands lslands gefst gjam-
an tækifæri til að líta yfir farinn
veg, ræða um það sem vel hefur
verið gert og samræma tillögur,
er stuðla að urbótum. Síðasta
keppnistimabil var
að mörgu leyti mjög
ánægjulegt og
árangur karlaiands-
liðanna frábær.
Athyglisvert er að
landsliðið skipað
leikmönnura tutt-
ugu og eins árs og
yngri taþaði ekki
íeik í Evrópukeppn-
inni á árinu og
árangur a-Iiðsins,
ólympíuliðsins,
U-18 ára liðsins og
U-16 ára liðsins
lofar góðu. Árangur
landsliðanna er
spegilmynd starfs-
ins i félögunum
hverju sinni og þvf
verður ekki á móti
mælt að markviss
uppbygging bama- og unglinga-
starfsins skilar sér i betri
knattspymumönnum í meistara-
flokki, þegar fram líða stundir
— og landsliðin verða sterkari.
Uppbyggingin tekur sinn tima
og þvi má aldrei gleyma. í
yngstu flokkunum á áherslan
að vera á kennslu og aftur
kennslu og titlatog á þar ekki
heima. Tillagan varðandi mini-
knattspymu í 5. flokki, sem
samþykkt var á þinginu um
helgina, er spor i rétta átt og
eins var þarft að beina þeim til-
mælum til forráðamanna og
foreldra leikmanna í yngri flokk-
unum að stilla sig á hliðarifnum
á leikjum krakkanna.
Iðkun knattspymu hér á landi
landsleikja fyrir sömu árganga.
Þvi er þetta rifjað upp að á
KSÍ-þinginu um helgina voru
lagðar fram róttækar ábending-
ar um kvennaknattspymu, þar
sem m. a. var lagt til að stúlkna-
landsliði yrði komið á fót og það
tæki þátt f Norðuriandamóti og
auk þess tæki a-liðið þátt í Evr-
ópukeppni. Ekki skal amast við
kvennaknattspyrnu, en i þessu
máli sem mörgum öðmm er
skynsamlegt að flýta sér hægt.
Kvennaknattspyma á íslandi er
aðeins 15 ára og þeir sem til
þekkja vita að grunnþjálfunina
vantar hjá flestum þeirra sem
eldri em og þær yngri em rétt
að byrja. Er ekki rétt að byija
á byijuninni og sjá síðan til með
landsleiki og þátttöku f alþjóð-
legum mótum?
Æ fleiri lið í öllum flokkum taka
þátt f iandsmótum á ári hveiju
og Ijóst er að verkefni móta-
nefndar em mikil. Stjómarmenn
Traustur grunnur nauðsynlngur
Árangur og geta knattspyrnumanna og kvenna i
meistaraflokki og landsliðum byggist á réttri og
markvissri uppbyggingu í yngri flokkunum. Fyrst
þarf að efla félagsliðin og siðan að riuga að lands-
iiðsmálum en ekki öfugt.
Morgunblaðið/Steinþór Guöbjartsson
Rúnar Krlstlnsson kemur inná í sfnum fyrsta a-landsleik f knattspymu í
lok október.
■ RÚNAR Kristinsson og Þor-
valdur Orlygsson léku sem
kunnugt er sinn fyrsta a-landsleik,
er íslenska landsliðið lék í Evrópu-
keppninni gegn því sovéska í
Simferopol í Sovétríkunum í lok
október. Þá láðist að taka nýliða-
merkin með, en bætt var fyrir
mistökin á ársþingi KSÍ um helgina
og leikmönnunum afhent merkin.
■ VALSMENN sýndu prúð-
mannlegastan leik í 1. deild karla
í knattspymu á síðasta keppn-
istímabili og fengu Dragostyttuna
til varðveislu enn eitt árið, en henni
hafa þeir haldið síðan 1984. Vals-
menn fengu 11 refsistig, en
Framarar vom næstir með 16 stig.
Einheiji hlaut styttuna í 2. deild í
fyrsta sinn,_ fékk 14 refsistig, en
Leiftur, ÍBÍ og ÍBV voru með 17
refsistig.
■ GUNNAlR Guðmundsson var
kjörinn formaður samtaka 1.. deild-
arfélaga í knattspymunu um
hélgina í stað Halldórs B. Jónsson-
ar. Þorgeir Jósefsaon og Sigurd-
ur Arnórsson voru einnig Igömir
í stjómina og komu þeir í staðinn
fyrir Stefán Gunnlaugsson og
Einvarð Albertsson. Félagið
vinnur að sameiginlegum hags-
munamálum liðanna, er leika í
1. deild, og eru næg verkefni
framundan.
■ ENN heldur framhaldssagan
um Refik Sabandzovicáfram, en
sem kunnugt er orðið, slasaðist
hann svo illa í deildarleik í Júgó-
slavíu á dögunum, að hann féll í
dá og var vart hugað líf. Svo rakn-
aði hann úr rotinu og tók að
braggast og töldu læknar það
ganga kraftaverki næst. Nú eru
síðustu fregnir þær, að pilturinn er
klæddur og kominn á ról og íþrótta-
blað nokkuð í Sarajévo sem heitir
að sjálfsögðu Sportski Novosti full-
yrðir að Rebbi fari senn að æfa
aftur þótt læknar hans hafi ekki
viljað staðfesta það.
■ FORSETI ítalska knatt-
spymufélagsins Fiorentina, Pierc-
escare Baretti, lét lífið um helgina,
er Cessna-flugvél sem hann var í,
flaug utan í fjallshlíð í niðaþoku
rétt fyrir utan Torínó. í vélinni var
einnig vinur forsetans Oreste
Puglisi, fyrrum flugmaður. Orsakir
slyssins eru ekki kunnar.
■ GAYÖNSK knattspyma reis
ekki á sitt hæsta plan um helgina,
heldur mætti tala um hið gagn-
stæða. Um hreina upplausn var að
ræða er 24-landsliðshópur Gayana
flosnaði upp er flugvél liðsins milli-
lenti í Miami Florida á leið frá
Mexíkó City þar sem liðið hafði
tapað landsleik í undankeppni ÓL
0-9! Níu leikmenn Gayana létu sig
hverfa með þeim formálum að þeir
ætluðu sér að freista gæfunnar í
fyrirheitna landinu. Létu þess getið
að flugvélin skyldi ekkert vera að
bíða þeirra. Forseti gayanska knatt-
spymusambandsins, Hamilton
Green.var ómyrkur í máli er hann
úthúðaði níumenningunum sem
föðulandssvikurum og hálfvitum.
■ Matti Nykanen sigraði
glæsilega í heimsbikarkeppninni í
Þrumuflóa Ontaríó um helgina.
Stökkin hans tvö vom 95,5 og 94,5
metrar, en enginn hinna keppend-
anna náði lengra stökki en 89
metrum.
■ HVER annar en Kenny
Dalglish var kjörinn þjálfari mán-
aðarins af Bells-viskífirmanu
þekkta. Þykir sú útnefning tilefni
til töluverðsra hátfðarbrigða, því
henni fylgir ekki einungis ávísun
upp á 250 pund, heldur gallonkútur
af viskíi að auki.
■ HINN eitilharði stjóri Glas-
gow Rangers, Graeme Souness er
með endalausan óskalista af leik-
mönnum sem hann vill kaupa frá
öðrum félögum. Nú er einn
tvímælalaust í sigtinu og botnar
enginn i þvi hvemig á því standi
að Rangers skuli allt í einu eiga
svona mikla peninga. Leikmaðurinn
sem um. ræðir er Ian Ferguson,
leikmaður með Motherwell og ætlar
Souness að reiða fram 650.000
pund fyrir piltinn.
Þorvaldur örlyggsson að fara
inná í a-landsleik Sovétríkjannna og
íslands í haust. Þetta var jafnframt
hans fyrsti a-landsleikur og fengu
hann og Rúnar nýliðamerki á ársþingi
KSf um helgina.
■ STJÓRN þýska knattspymu-
félagsins Bayer Uerdingen hefur
ráðið nýjan stjóra sem sem á að
taka stöðu hins brottræka Horst
Köppel.Nýi maðurinn hjá Atla
Eðvaldssyni og félögum heitir
Rolf Schafstall en hann hefur ver-
ið við stjómina hjá Schalke 04.
■ HOLLENSKI landshðsmað-
urinn og Ajax-leikmaðurinn Frank
Rijkard hefur ekki náð sáttum
við stjóra sinn Johan Cruyff eftir
að þeir rifust heiftarlega fyrir
nokkmm vikum. Stmnsaði Rijkard
burt í fúkyrðaflaumi og hét því að
leika aldrei með Ajax framar, að
minnsta kosti ekki meðan Cruyff-
drottnaði þar yfir mannskapnutn.
Nú er lausn i sjónmáli, en hún er
flókin. Þannig er, að Ajax vill nú
skiptá á Rijkard og Alsírbúanum
Rabha Madjer hjá Portó, en að-
eins tU loka keppnistímabilsins, því
Rijkard fer að öllum líkindum til
AC Mílanó á ftalíu og leikur þar
næsta keppnistímabil. Sömu sög-
una er að segja um Madjer, hann
myndi á móti skerpa fremur daufa
sókn Ajax síðari hluta vetrar uns
hann gengur til liðs við Bayem
Munchen. Eitt gæti þó sett strik í
reikninginn, aukinn áhugi forráða-
manna Bayem að kaupa Mark
Hughes frá Barcelona, en kappinn
sá hefur leikið með Bayem síðustu
vikumar sem lánsmaður og
frammistaða hans farið þar fram
úr björtustu vonum Bayemmanna.
■ LÖGREGLAN í Split í Jú-
gólavíu hefur haft hendur í hári
Qögurra örvita sem tendmðu tárag-
asbombu á Evrópuleik Hadjuk Split
og Marseilles á dögunum með þeim
afleiðingum að yfir 20 manns slö-
suðust í örtröðinni sem myndaðist.
Þótti ganga kraftaverki næst að
enginn skyldi láta lífið. Þrír misynd-
ismannanna em 18-22 ára, sá fjórði
er barn.
KVENNAKNATTSPYRNA
Þá fer hrollur um bak Latteks
Udo Lattek, knattspymuþjálf-
arinn kunni í V-Þýskalandi,
er ekki yfir sig hrifinn af kvenna-
knattspymu. Það koma fram um
sl. helgi í V-Þýskalandi. Þá til-
kynnti v-þýska knattspymusam-
bandið að ákveðið hafi verið að
árið 1990 verði sett á stofn Bun-
desliga fyrir konur - keppt verði
í 1. og 2. deild.
Lattek, sem sagði að knattspyma
væri ekki fyrir konur, var á móti
þessari breytingu, „Þegar ég hef
horft á konur leika knattspyrnu -
hefur kuldahrollur farið um bakið
á mér. Konur eiga að velja sér
fallegri íþróttagreinar, sem era
fyrir konur - íþróttagreinar sem
þær ráða við og hentar þeim,“
sagði Lattek.
Udo Lattek