Morgunblaðið - 08.12.1987, Side 7
B 7
jBargnnblatib /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER' 1987
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Fimmtánda mark Aldridge
- Liverpool, Arsenal og Man. Utd. unnu sigra
Reuter
Paul Wllllams, leikmaður Charlton, og Neil Pointon, Everton, sjást hér kljást
á laugardaginn.
SKOTLAND
Sami barn-
ingurinn í
Skotlandi
Það er sami barningurinn í
Skotlandi. Ray Wilkins lék sinn
fyrsta leik með Rangers gegn
Dundee Utd og var húsfyilir hjá
Glasgow-liðinu að vanda. Eina
mark leiksins skoraði Ally
McCoist úr víti á 13. mínútu
fyrir Rangers. Þetta var 27.
mark McCoist á þessu keppn-
istímabili.
Frank McAvennie var maður
helgarinnar í Skotlandi, hann
skoraði öll mörk Celtic í 4-0 sigrin-
um gegn Morton. Þegar kappinn
hafði lokið sér af gegn Morton hafði
hann skorað 9 mörk í 9 deildarleikj-
um.
Hörkuefnilegur piltur að nafni John
Robrtsson skoraði sigurmark He-
arts gegn Falkirk, skoraði úr víti
og var það 21. mark hans á þessu
tímabili. Dunfirmlin sigraði einni
1-0 á laugardaginn með nafni Cra-
igs Robertson. Loks má geta þess
að Aberdeen sigraði Dundee á úti-
velli með mörkin Davie Dodds og
Paul Wright, en Stewart Forsyth
svaraði fyrir heimaliðið.
KNATTSPYRNA
ítalskur
sigur
á Portúgal
í Mflanó
Ítalir unnu öruggan sigur, 3:0,
yfir Portugölum í Evrópu-
keppni landsliðs á laugardaginn.
Leikurinn, sem fór fram í
Mílanó, hafði enga þýðingu í
öðrum riðli EM. ítalar voru bún-
ir að tryggja sér farseðilinn til
V-Þýskalands.
Gianluca Vialli skoraði fyrsta
mark ítala á 8 mín. Giuseppe
Giannini og Luigi De Agostini
skoruðu hin mörkin - á 88. og
89. mínútu.
Ll VERPOOL vann enn einn sig-
urinn á sunnudaginn, sigraði
Chelsea á heimavelli sínum.
Það voru aðeins þrjár mínútur
til leiksloka þegar Steve
McMahon skoraði sigurmark-
ið, 2-1, eftir frábæran undir-
búning þeirra Ray Houghton
og John Barnes, sem brunuðu
í gegn um vörn Chelsea eftir
þríhyrningsspil og Houghton
sendi svo út á McMahon sem
var í dauðafæri. Chelsea hafði
náð forystu í fyrri hálfleik með
marki Gordon Durie sem skor-
aði úr vítaspyrnu eftir að Mark
Lawrenson hafði fellt Pat Nevin
innan vítateigs á 22. mínútu.
John Aldridge jafnaði með ann-
ari vítaspyrnu á 67. mínútu, Joe
McLaughlin felldi hann að því
er virtist, en vítaspyrnudómur-
inn þótti strangur. Þetta var
15. mark Aldridge, en átta
þeirra hafa verið úr vítaspyrn-
um. Eftir markið sótti Liverpool
gífurlega, en skoraði þó ekki
fyrr en í lokin eins og að fram-
angreinir.
Liverpool, úr hópi toppliðanna sem
héldu sínu með því að vinna leiki
sína. Sjónvarpsá-
Frá Bob horfendur gátu
Hennessy fylgst með United
lEnglandi sigra QPR á teppinu
á Loftus Road og
var sá sigur öruggur. Hafði Línited
mikla yfirburði í leiknum þrátt fyr-
ir að ýmsa fastamenn vantaði í
liðið, svo sem Viv Anderson, Nor-
man Whiteside og Paul McGrath
að ógleymdum Clayton Blackmore
og markverðinum unga Gary
Walsh. Sagði Jim Smith stjóri QPR
eftir leikinn, að United væri besta
liðið sem lið hans hefði leikið gegn
á þessu tímabili. Peter Davenport
skoraði fyrra mark United á 35.
mínútu, skoti frá Brian McClair var
bjargað af línu, en Davenport náði
frákastinu og þrumaði í netið. Bry-
an Robson bætti síðara markinu við
með skalla af stuttu færi eftir auka-
spymu Jespers Olsen. Daninn litli
var í miklu stuði í leiknum og lék
vörn QPR oft grátt. Hann átti einn-
ig heiðurinn af fyrra markinu.
Leikmenn United voru klaufar að
bæta ekki fleiri mörkum við, sérs-
taklega var markakóngurinn sjálfur
McClair heillum horfinn.
Það leit ekki vel út hjá Arsenal,
Michael Thomas brenndi af víti á
26. mínútu, og síðan skoraði Colin
West fyrir Sheffield Wedensday
fimm mínútum síðar. 1-0 í hálfleik
fyrir SW. Arsenal lék mun betur í
seinni hálfleik og vöm Sheffield var
lögð í rúst. Kevin Richardson jafn-
aði á 58. mínútu og Perry Groves
náði forystunni fyrir Arsenal átta
mínútum síðar. Paul Merson skor-
aði svo þriðja markið á 73. mínútu.
Svo em það hin liðin við toppinn.
Nottingham Forest fékk þá erfiðu
og leiðu þraut að leika á útivelli
gegn bolabítunum hjá Wimbledon.
Nigel Clough skoraði fyrir Forest
seint í fyrri hálfleik, en Dennis
Wise jafnaði metin snemma í seinni
hálfleik og þar við sat. Það vakti
athygli, að enginn leikmanna
Wimbledon var bókaður og enginn
rekinn út af. Og þegar aukaspyrnur
vom dæmdar á liðið, hlupu leik-
menn liðsins til eins og viljugir
snatar og færðu dómaranum knött-
inn og viðurkenndu fúslega og
iðrandi brot sín. í síðasta leik
Wimbledon vom tveir reknir út af
og fimm bókaðir. Þar á undan að
vísu enginn rekinn út af, en nokkr-
ir bókaðir. Bobby Gould, stjóri
Wimbledon sagði að hann ætlaði
ekki að láta stimpla sitt lið glæpa-
hundalið. Aftur á móti myndu þeir
ekki breyta um leikaðferð og verður
þvi sama tuddaknattspyman áfram
við lýði á Plough Lane. Everton fór
illa með gott tækifæri til að hressa
við stöðu sína við toppinn. Liðið
klúðraði góðum fæmm gegn Chari-
ton og var svo heppið að halda
stiginu þegar framheijar Charlton
gerðu hið sama.
Sæti þeirra Johns Maxwells og Elt-
ons John vom auð þegar Derby og
Watford áttust við á Baseball Grou
nd í Derby, þeir hafa líklega verið
að makka um kaupverðið á Wat-
ford, e.t.v. í þyrlu þess fyrmefnda
sem sveimaði yfír vellinum meðan
leikurinn stóð yfír. Watford spilaði
afar vel í leiknum, og sigurinn hefði
verið stór ef ekki hefði staðið í
markinu maður að nafni Peter Shil-
ton, fertugt unglamb. Shilton var
rosagóður, varði meðal annars fjór-
um sinnum er áhorfendahjörðin var
þegar staðin á fætur að fagna
marki. Þó vom skomð tvö mörk,
Mark Wright skoraði fyrir Derby ,
en Glynn Hodges jafnaði fyrir Wat-'
ford.
Luton fékk ekki mikinn stuðning
áhorfenda er Norwich kom í heim-
sókn, aðeins um 7000 manns mættu
á svæðið og fóm fúlir heim er
heimaliðið tapaði 1-2. Brian Stein
skoraði fyrsta markið, náði forystu
fyrir Luton, en síðan var það Nor-
wich sem spilaði úr sínum spilum.
Dale Gordon jafnaði á 61. mínútu
og Ian Crook skoraði sigurmarkið
fjómm mínútum fyrir leikslok.
Steve Bmce, miðvörður Norwich
átti stórleik og var trúlega að
kveðja, því allt bendir nú til þess
að hann leiki héreftir með Manc-
hester United. Gengu félögin frá
lausum endum um helgina og er
gangverðið á kappanum 750.000
sterlingspund.
Newcastíe vann ömggan sigur á
heldur slöppu liði Oxford og þar var
mikil sorg er það fréttist að John
Maxwell hefði ákveðið að selja lið-
ið. Maxwell hefur stjómað Oxford
síðustu árin sem hafa verið mestu
uppgangsár félagsins fyrr og síðar.
Neil McDonald, Michael O' Neil og
Mirandhina skomðu mörk New- •
castle, en Dean Saunders svaraði
fyrir heimaliðið.
Portsmouth á í vanda, liðið náði
ekki að knýja fram sigur gegn Co-
ventry á heimavelli sínum og margir
af lykilmönnum liðsins eiga við
meiðsla að stríða. Nú hefur
Portsmouth aðeins skorað eitt mark
í sex síðustu leikjum sínum og Alan
Ball stjóri telur að framherjar sínir
séu komnir með markaleysið á sál-
ina.
Gamla kempan Billy Bonds, 41 árs,
var í aðalhlutverki er West Ham
sigraði Southampton 2-1. Brýnið
hvatti alla til dáða og það hreif.
Að vísu skoraði Danny Wallace
fyrst fyrir Southampton, en Kevin
Keen og Alan Dickens svömðu fyr-
ir West Ham. Mark Ward var rekinn
af leikvelli í annað skiptið á þessu
tímabili og blöðin bresku vom fljót
að endurskýra strákgreyið, „Mad
Mark", eða bijálaði Markús.
■ Úrslit B/10
■ StaAan B/10
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
Bordeaux stal senunni - skoraði fimm mörk
Bordeaux stal senunni í frönsku
knattspymunni um helgina er
liðið gersigraði Lens 5-2 og skaust
í 2. sætið í deildinni. Ferreri, To-
ure, Girard (2) og
Fargeon skoruðu
mörkin, en Tagal
svaraði fyrir Lens
með tveimur mörkum.
Efsta liðið Monako náði aðeins jafn-
tefli á heimavelli gegn Montpellier,
0-0 og var leikið við erfíðar aðstæð-
ur þar eð völlurinn var nánast á
floti eftir miklar rigningar. Matra
Racing París náði aðeins einu stigi
á heimavelli gegn Nantes þrátt fyr-
ir að liðið kæmist í 2-0 með mörkum
Femier og Umpieres. Youm náði
að minnka muninn fyrir Nantes
rétt fyrir hlé, 1-2 og í seinni hálf-
leik var aðeins eitt lið á vellinum,
Nantes, og áður en yfir lauk tókst
gamla brýninu Anziani að jafna
leikinn.
Áður en yfir lýkur má nefna, að
Papin og Állofs skomðu mörk Mar-
seille gegn Touloun, en til áfloga
kom milli áhangenda liðanna og
hmfluðu margir sig í þeim gaura-
gangi.
■ Úrslit B/IO
■ StaAan B/10
Frá
Bernharð
Valssyni
stór lióur í áranqursríkri endurhæfinau
DONJOY varmahlífar halda hita á liöamótum jafnframt
því aö veita góðan stuðning. DONJOY varmahlífar
eru góð hjálp við endurhæfingu
eftir slys eða aðgerðir. Þær eru
einnig sérlega hentugar fyrir
fólk með liðagigt.
n
ÖSSUR
HVERFISGATA 105
SlMI: 91-621460