Morgunblaðið - 10.12.1987, Side 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, VtÐSHPn/AIVlNNULÍF FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Verslun
Kaupendur þreyta
„ teppapinnaprófið“
Afmælishátíð hjá Teppalandi og nýbygging á döf-
inni ásamt Parketlandi og Flísalandi
Þeir sem koma við í Teppalandi við Grensásveg þessa dagana fá
að reyna „teppapinnaprófið" og er þá ætlun forsvarsmanna verslun-
arinnar að gestir sannfærist um blettaviðnám í nýju Antron Stain-
master-teppunum, sem þeir segja framúrskarandi.
Þessi teppi fást nú hjá mörgum
leiðandi teppaframleiðendum en
forsvarsmenn Teppalands segjast
Jhafa orðið fyrstir fyrirtækja hér-
lendis til að hefja innflutning og
sölu á þeim í fjölbreyttu litaúrvali.
Þessi teppi eru framleidd með
nýrri Du Pont-tæki sem þeir Teppa-
lands-menn segja tryggja að jafnvel
þurrir blettir, sem stafa af algen-
gustu matar og drykkjarföngun
nást auðveldlega úr með vatni og
TEPPI — Bjami Gíslason verslunarstjóri Teppalands stendur
fyrir framan vélina, þar sem viðskiptavinir geta þreytt „teppapinnapróf-
ið“ sem felst í því að sýna muninn á A.S.-teppum og teppum með
hefðbundinni óhreinindavöm.
mildu þvottaefni. i afmæli fyrirtækisins, en VF hf. —
Sala á þessum teppum tengist I Teppaland er 20 ára um þessar
Endaðu árið með réttri fjárfestingu
og taktu þér þriggja mánaða frí á
því næsta...
...eða auktu afköst þín um það
sem því nemur !
Samkvæmt nýlegum rannsólcnum, sem stærsta endurskoðunar -
fyrirtæki heims, KPMG lét gera, eru afköst allt að 31% meiri á Applc
Macintosh en öðrum PC tölvum. Sömu rannsóknir staðfesta 24%
mundir. Fyrirtækið hefur frá upp-
hafí verið í eigu sömu aðila, Víðis
Finnbogasonar og fjölskyldu. í
fyrstu flutti fyrirtækið inn almenn-
ar byggingarvömr, en síðar var svo
áhersla lögð á gólfteppi, sem verið
hafa sérgrein fyrirtækisins hátt í
tvo áratugi.
Fyrirtækið rak á sínum tíma Inn-
réttingabúðina, en 1977 var nafni
smásöluverslunarinnar breytt
vegna aukinnar sérhæfíngar í gólf-
teppum og Teppaland varð til. Árið
1976 var starfsemin flutt úr leigu-
húsnæði á Grensásvegi 3 í eigið
húsnæði á Grensásvegi 13, þar sem
starfsemin fer nú fram. Nýlega fékk
fyrirtækið úthlutað lóð í næsta ná-
grenni og hyggst reisa þar nýtt hús
sem sniðið verður utan um starf-
semina. „Með sérbyggðu húsi
komumst við nær því að þjóna því
markmiði fyrirtækisins að geta boð-
ið neytendum öl! gólfefni og
nauðsynlega þjónustu við þau,“ seg-
ir Víðir Finnbogason, forstjóri.
Starfsmenn fyrirtækisins eru nú
um 30 og hátt í 50 þegar taldir eru
með þeir dúk- og teppalagningar-
menn, sem starfa fyrir það.
Tvær smásöluverslanir eru nú
reknar á vegum fyrirtækisins,
Teppaland og Dúkaland; auk þess
sem fyrirtækið heldur uppi öflugri
heildsöludreifíngu um allt land.
Þeir Teppalandsmenn segja að í
framtíðinni megi svo búast við að
tvö nöfn bætist við, þ.e. Parketland
og Flísaland, því meiningin er að
leggja aukna áherslu á parket og
flísar.
Fyrirtækið mun minnast afmæl-
isins með því m.a. að nk. laugardag
verður öllum viðskiptavinum boðið
að bragða á sérbakaðri afmæli-
stertu, Teppalands-tertu með
svampbotni, og verður opið til kl.
18.00 þann dag.
rltiMJW JFlk ÞJÓNUSTÍ
5TARFSMANHA AUC.IYSINGAFATNADUF
Iðnaður
Henson
býðurein-
kennisfatnað
HENSON hefur nýverið gefið út
bækling þar sem birt er sýnis-
horn af starfsmanna- og auglýs-
ingafatnaði margs konar sem
verksmiðjan hefur á boðstólum.
Bæklingi þessum er dreift til
allra fyrirtækja á Iandinu.
„Henson hefur í gegnum árin í
síauknum mæli sinnt framleiðslu á
einkennisfatnaði fyrir hin ýmsu fyr-
irtæki á landinu, ekki síst fyrir
afgreiðslufólk í verslunum og
starfsmenn skemmti- og veitinga-
staða,“ segir Halldór Einarsson hjá
Henson um tildrög þessa bæklings.
„Með útgáfu þessa bæklings viljum
við upplýsa fleiri aðila hér á landi
um þá möguleika sem við getum
gefíð kost á í fatnaði með áprentuð-
um merkingum, því það færist mjög
f vöxt að íslensk fyrirtæki vilji
treysta ímynd sína með einkennis-
fatnaði af þessu tagi. Þarna er því
markaður sem við teljum ástæður
til að sinna frekar.
í bæklingi þeim sem sendur er í
fyrirtækin er verðlisti og pantana-
eyðublöð sem forráðamenn fyrir-
tækja geta þá pantað eftir.