Morgunblaðið - 05.01.1988, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
* \t
/■>
1987
ÞRIBJUDAGUR S. JANUAR
BLAD
-B
KNATTSPYRNA
Raymond vill
kaupa Watford
af Elton John
Viðskiptajöfurinn Paul Ray-
mond, sem m.a. gefur út
karlmannatímarit og rekur nætur-
klúbb í Soho-hverfinu í London,
vill kaupa hlut rokkstjömunnar Elt-
on John í knattspymufélaginu
Watford.
Raymond sagði í gær að hann
myndi gera John formlegt tilboð í
næstu viku. Hlutur John í félaginu
er tvær milljónir sterlingspunda.
„Mig hefur alltaf langað til að eiga
knattspymufélag. Ég hefði að vísu
heldur kosið að eignast Chelsea, en
þar sem félagið er ekki til sölu líst
mér vel á að eignast Watford í stað-
inn,“ sagði Raymond í gær. í síðasta
mánuði hætti blaðakóngurinn Ro-
bert Maxwell við að kaupa Watford,
eftir að nefnd á vegum ensku deild-
arkeppninnar hafði lagst gegn því.
Reglur í Englandi segja til um að
hver maður geti aðeins átt hlut í
einu félagi, en fjölskylda Maxwells
á þegar tvö önnur félög — Oxford
og Derby County.
Morgunblaðlð/Júlíus
Blrglr Slgurðsson skoraði fimmtán mörk gegn Færeyingum í fyrri landsleiknum.
HANDKNATTLEIKUR
Tap gegn Færeyingum
Færeyingar báru á sunnudag sigur-
orð af B-liði íslands í landsleik í
handknattleik í íþróttahúsinu á Sei-
fossi með 23 mörkum gegn 22.
Staðan í hálfleik var 14 -13 fyrir
ísland. Þetta er í fyrsta sinn sem
Færeyingar sigra Islendinga í hand-
knattleik en þjóðirnar hafa leikið
15 landsleiki.
Leikurinn var frekar daufur og ein-
kenndist af klaufalegum uppákom-
um hjá báðum aðilum. Greinilegt var að
íslenska liðið vanmat andstæðingana og
var búið að sigra fyrir-
Sigurður fram.
Jónsson. Færeyingar voru yfír í
fyrri hálfleik þar til undir
lok hans að íslenska liðið
átti góðan kafla og komst yfir. í síðari
hálfleik náðu Islendingar þriggja marka
forskoti en glopruðu því niður með óskilj-
anlegum hætti og klaufaskap. Með það
í huga að margar sóknir Færeyinga
gengu ekki upp og voru slappar átti
íslenska liðið að leika sér að því að vinna
en viljann skorti.
Undir lok síðari halfleiks sóttu Færeying-
ar í sig veðrið og áttu þokkalegan leik.
Markvörður þeirra varði á þýðingarmikl-
um augnablikum undir lok leiksins og
íslendingum mistókst. Jókup Dam gerði
skrifarfrá
Selfossi
sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir
leikslok með fallegu skoti af línu og
fyrsti sigur Færeyinga yfir íslendingum
í landsleik var staðreynd, verðskuldaður.
Mörk íslands: Birgir Sigurðsson 7, Hans Guð-
mundsson 6, Hermann Björnsson 3, Oskar Stynnis-
son 2, Stofán Kristjánsson 2, Guðmundur Albertsson
1, Gunnar Beinteinsson 1.
Mðrk Færeyingæ Hannes Wanium 6, Jókup Dam
5, Andreas Martensson 5, Rói Árting 4, Sverri Ju-
steinssen 2, Jónleif Sólsker 1.
Birgir skoraði
fimmtán mörk
ísland vann fyrri leikin meðfimmtán marka mun
ÍSLENSKA B-landsliðið í hand-
knattleik vann yfirburðasigur yfir
Færeyingum í landsleik þjóð-
annaí íþróttahúsi Vals á laugar-
dag. íslendingar höfðu mikla
yfirburði og sigruðu 36:20.
Það var ekki mikil spenna í þess-
um leik, enda náðu íslendingar
strax undirtökunum. í hálfleik var
staðan 18-6, íslendingum í vil. íslend-
ingar slökuðu svo á í síðari hálfleik
og var leikur liðsins á köflum nokkuð
kæruleysislegur.
Færeyingar áttu þokkalega kafla
annað slagið, en voru aldrei nálægt
því að ná að jafna.
Islendingar léku vel í þessum leik,
vömin sterk og sóknarleikurinn ör-
uggur. Birgir Sigurðsson átti mjög
góðan leik, fastur fyrir í vöminni og
mjög öruggur á línunni. Aðrir léku
ágætlega.
Mörk íslands: Birgir Sigurðsson 15/5, Héðinn
Gilsson 4, Guðmundur Albertsson 4, Stcfán
Kristjánsson 4, Hans Guðmundsson 3, Adal-
steinn Jónsson 2, Oskar Armannson 2 og
Hermann Bjömsson 2.
Eddle May hefur verið
ráðinn þjálfari <S
KNATTSPYRNA
Englendingurinn
Eddie May til
Siglufjarðar
Enski þjálfarinn Eddie
May hefur verið ráðinn
jjálfari 2. déildarliðs KS
frá Siglufirði fyrir næsta
keppnistímabil. Hann
var hér á landi milli hátí-
ðanna og skoðaði
aðstæður á Siglúfirði óg
skrifaði þá undir eins árs
samning.
Eddie May er 44 ára og
á að baki 520 deildar-
leiki með Southend,
Wrexham og Swansea.
Hann þjálfaði Leicester
í tvö ár og varð liðið sig-
urvegari f 2. deild 1982 undir stjóm hans. Síðan
gerðist hann þjálfari hjá Charlton og var þar til
1986.
Eddie er væntanlegur aftur til Siglufjarðar um miðj-
an mars og mun þá hefja undirbúning fyrir sumarið.
„Við væntum mikils af Eddie May. Hann kemur vel
fyrir, hörku karl. Markmið okkar í sumar er að
komast upp í 1. deild. Við reiknum með að flestir
leikmanna KS frá því á síðasta ári verði áfram hjá
félaginu," sagði Hörður Júlíusson, formaður KS í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Cniyff hæftur
hjá Ajax
Johan Cmyff, frægasti
knattspymumaður Hol-
lendinga fyrr og síðar,
sagði í gær upp starfi
sinu sem þjálfari stór-
liðsins Ajax og hætti
störfum samdægurs.
Jafnvel er talið líklegt
að hann hafí annað til-
boð upp á vasann sem
hann hafí hug á að taka
því mörg félög hafa sýnt
áhuga á að ráða hann til sín.
í síðustu viku var haft eftir forseta franska félags
ins Paris Saint Germain, Francis Borelli, að hann
hefði mikinn áhuga á að fá Cruyff til félagsins.
Hann vildi hins vegar ekkert segja um það hvort
Cruyff hafí nú þegar tekið tilboði félagsins — en
Borelli lýsti í gær yfir ánægju sinni með að Cmyff
væri hættur hjá Ajax.
Cruyff er fertugur. Hann var upp á sitt besta upp
úr 1970 og var þá burðarásinn í holienska landslið-
inu.
HANDKNATTLEIKUR
Kovacs eftir-
maður Alfreðs
hjá Essen?
Ungverski landsliðsmaðurinn Peter Kovacs, sem
leikur með Dortmund í V-Þýskalandi, er líklegur
sem eftirmaður Alfreðs Gíslasonar hjá Essen. Þetta
kom fram í sjónvarpsviðtali í V-Þýskalandi í gær-
kvöldi.
„Ég er orðinn þreyttur á því að leika með botnlið-
um f deildinni. Ég er orðinn 32 ára og er tilbúinn
til að leika tvö ár til viðbótar í Bundesligunni,"
sagði Kovacs.
„Kovacs er mjög skemmtilegur handknattleiks-
maður. Snjall sóknarleikmaður, hefur gott auga
fyrir línusendingum og er eins og Alfreð mjög
sterkur varnarleikmaður. Hann er rétti maðurinn
fyrir Essen,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf-
ari Essen, í viðtali við Morgunblaðið.
IÞROTTAMAÐUR ARSINS
Kjöri frestað
Kjöri íþróttamanns ársins 1987 sem Samtök íþrótt-
afréttamanna standa að og fram átti að fara í gær
hefur verið frestað.
Johan Cruyff
BÍLAR: LATÍIMUBÍLL/B4.