Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 8
wf OTÉilíftHhdFPlfc
IÞROWR
pli(r*®iwirtí>laí>líi
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Wimbledon í Evrópukeppni?
- sigraði ífimmta leiknum í röð, en forysta Liverpool óbreytt
WIMBLEDON, sem lék Í4. deild
fyrir fjórum árum, á fáa stuðn-
ingsmenn og þykir leika frekar
leiðinlega knattspyrnu, er kom-
ið í6. sætiíl.deild. Liðið
sigraði í fimmta leiknum í röð
um helgina og ef heldur sem
horfir óttast menn að Wimble-
don taki þátt í Evrópukeppni
félagsliða, verði enskum liðum
hleypt á ný í Evrópumótin. Li-
verpool lék ekki á laugardag-
inn, en forystan minnkaði ekki,
því Forest tapaði fyrir Everton
og Arsenal gerði jafntefli
heima.
Wimbledon var eitt þriggja
liða, sem sigraði í jólaleikjun-
um Qórum. Liðið vann Oxford 5:2
á laugardaginn og áttu. heimamenn
aldrei sigurmögu-
Frá Bob leika. Fairweather
Hennessy (4.), Sanchez (15.),
iBngland/ Fashanu (28.) og
Cork (62. og 75.)
skoruðu fyrir Wimbledon, en
Saunders (víti á 55. mín.) og Foyle
fyrir Oxford, sem nú hefur tapað
sex leikjum í röð og nálgast botninn
óðfluga.
Þjófnaður
„Við stálum stigunum," sagði
Ferguson, stjóri Manchester Un-
ited, eftir 1:0 sigur gegn Watford,
sem er á botninum. Brian McClair
skoraði á 40. mínútu eftir sendingu
frá Gibson, en Chris Tumer, mark-
vörður United, var maður leiksins
og hreinlega bjargaði liði sínu frá
tapi. „Ég get ekki kvartað yfír leik
minna manna og með sama áfram-
, haldi er útlitið bjart,“ sagði Bassett,
stjóri Watford.
Wayne Clarke skoraði með skalla á
14. mínútu og tryggði Everton sig-
ur gegn Nottingham Forest. Þetta
var níundi heimasigur meistaranna,
sem fór í fimmta sæti, en liðið er
16 stigum á eftir Liverpool, sem á
auk þess tvo leiki til góða.
Jafntefli
Arsenal og QPR gerðu markalaust
AP
í leik Watford og Manchester United á laugardaginn. United vann óréttlátt 1:0
Gary Chlvers stöðvar Brian McClair
og skoraði McClair markið.
jafntefli á Highbury í lélegum leik
að viðstöddum rúmlega 28 þúsund
áhorfendum. Arsenal, sem var á
toppnum fyrir tveimur mánuðum,
dregsfaftur úr með hveijum leik
og hefur ekki sigrað í síðustu sex
leikjum. „Leikmennirnir voru
þreyttir, en þetta var erfiðara fyrir
stuðningsmennina," sagði Graham,
stjóri Arsenal. Mark Falco, mið-
heiji QPR, lék nefbrotinn.
Sömu úrslit urðu í leik Chelsea og
Spurs, en West Ham og Luton
gerðu 1:1 jafntefli. Paul Inche,
varamaður, skoraði fyrir heima-
menn, en Mark Stein jafnaði fyrir
Luton á 76. mínútu. George Parris,
bakvörður West Ham, ökklabrotn-
aði í leiknum.
Newcastle náði tvisvar forystunni,
en Sheffield Wednesday jafnaði
tvívegis og lauk leik liðanna 2:2.
Paul Goddard skoraði bæði mörk
heimamanna, á 46. og 67. mínútu,
en Malwood (60.) og Chapman (70.)
jöfnuðu. Megson lék sem miðvörður
og hafði góðar gætur á Mirandin-
ha, sem tognaði á lærvöðva undir
lokin og kenndi um miklu álagi,
tveimur leikjum á tveimur dögum.
Leik Derby og Liverpool annars
vegar og Coventry og Norwich hins
vegar var frestað á laugardaginn
vegna mikillar bleytu á völlunum,
en engu að síður er forskot Liver-
pool enn 13 stig.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6
KNATTSPYRNA / SKOTLAND
McAvennie skoraði
tvívegis gegn Rangers
Celtic byrjar hundrað ára afmælisárið vel
Frank McAvennla hefur staðið sig
vel með Celtic og skoraði bæði mörk
liðsins gegn Rangers á laugardaginn.
Frank McAvennie skoraði bæði
mörk Celtic í 2:0 sigri gegn
Rangers í skosku úrvalsdeildinni á
laugardaginn. 61.800 áhorfendur
voru á Celtic Park,
FráBob sem er met á tíma-
Hennessy bilinu. Leikurinn fór
íEnglandi friðsamlega fram,
en þegar liðin mætt-
ust í október var þremur mönnum
vísað af velli og verður mál þeirra
tekið fyrir á morgun.
McAvennie skoraði fyrra markið á
44. mínútu og það síðara sex mínút-
um fyrir leikslok, en skömmu áður
var Chris Woods, markvörður Ran-
gers, borinn rifbrotinn af velli.
Mark Walters lék með Rangers og
var langt frá sínu besta, en hann
er fyrsti svarti leikmaðurinn í deild-
inni. „Þeir sluppu vel. Við hefðum
getað sigrað með meiri mun,“ sagði
Billy McNeill, stjóri Celtic, en liðið
er nú með þriggja stiga forystu í
deildinni og byijar 100 ára af-
mælisárið vel.
Öðrum leikjum lauk með marka-
lausu jafntefli; Aberdeen og Dundee
United að viðstöddum 21.500
áhorfendum, Hearts og Hibs í Edin-
borg að viðstöddum 29 þúsund
áhorfendum og St. Mirren og Mor-
ton, en þar voru aðeins 7.095
áhorfendur.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6
■ PAUL Gascoigne heitir
tvítugur miðvallarleikmaður hjá
Newcastle. Strákur hefur leikið
í enska landsliðinu U-21 og
mörg félög hafa
FráBob sýnt honum
Hennessy áhuga. Gasco-
ÍEnglandi jg„e hefur a|]a
tfð verið hjá
Newcastie, félagið vill halda
honum og bauð upp á nýjan
samning um helgina; 250 þús-
und íslenskar krónur á mánuði,
bfll og aukagreiðslur fyrir
árangur, en Gascoigne er enn
að hugsa málið.
■ SIMON Stainrod hefur átt
erfítt uppdráttar síðan hann fór
frá QPR fyrir um þremur árum,
en Mick Mills, stjóri Stoke,
hefur trú á Stainrod og greiddi
Aston Villa 90 þúsund pund
fyrir kappann um áramótin. Sta-
inrod lék með gegn Bradford
á iaugardaginn, Stoke vann 4:1,
Stainrod var góður, en Brian
Talbot var maður leiksins.
■ DANNY Thomas, bak-
vörðurinn svarti hjá Totten-
ham, er hættur að leika
knattspymu. Gavin Maguire
hjá QPR braut illa á honum í
leik liðanna fyrir um 10 mánuð-
um og um áramótin var Ijóst
að Thomas léki ekki meira.
Hnémeiðsli hans voru slæm og
bati hefur verið hægur. Thomas
er allt annað en ánægður með
það og hefur í hyggju að höfða
skaðabótamál gegn Maguire og
fara fram á 600 þúsund punda
greiðslu (tæplega 34 miiljónir
fslenskra króna), en brotið var
langt því frá að vera óviljaverk.
■ ALAN Kennedy, sem
gerði garðinn frægan hjá Li-
verpool, er á ný kominn í
kunnugt umhverfí. Kennedy,
sem fór til Sunderland frá Li-
verpooi, gekk til liðs við 3.
deildar lið Wigan í sfðustu viku
og lék sinn fyrsta leik með þvi
um helgina.
■ KEITH Peacock, sem hef-
ur verið stjóri Gillingham
undanfarin sex ár, var rekinn
fyrir áramót. Liðinu hefur geng-
ið illa í vetur, aðeins unnið einn
leik síðan 24. október, en 6:0
tap gegn Aldershot fyllti mæl-
inn.
■ ALAN Cork er þijátíu og
eíns árs og hefur leikið undan-
farinn áratug með Wimbledon
f öllum deildum. Cork skoraði
tvívegis fyrir lið sitt á laugar-
daginn og var fyrra markið hans
150. fyrir Wimbledon.
■ BILLY Bonds hjá West
Ham fékk MBE-orðuna um ára-
mótin. Bonds hefur helgað
knattspymunni allt sitt lff og
gefur þeim yngri ekkert eftir,
en hann verður 42 ára í haust
— og lék ijóra 1. deildarleiki á
átta dögum á dögunum.
■ PAUL Moran er einn af
ungu, efnilegu strákunum hjá
Tottenham og verður ömgg-
lega í sviðsljósinu á næstu ámm,
ef fram heldur sem horfír. Hann
er sagður vera sá fljótasti í deild-
inni og er þegar byijaður að
skora, en Moran er 19 ára.
■ ENSKU félögin fóm ekki
í jólaköttinn. Framkvæmda-
stjórar liðanna hafa mótmælt
álaginu yfir jólin, en gjaldker-
amir hrósa happi. Fjórar
umferðir vom leiknar í deildun-
um fjórum á átta dögum og
voru tæplega tvær milljónir
áhorfenda á leikjunum, sem
gáfu félögunum sjö milljónir
punda í hagnað.
GETRAUNIR: X X 1 2X2 2X2 21X
LOTTO: 2 3 6 14 16