Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 3
B 3
fttgr$twfrlaftib /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
HREYSTI
Kemur ofþjálfun í vegfyrirtoppárangur íslenska karialandsliðs-
ins í handlmattleik áOlvmpíuleíkunum?
Islenska karlalandsliðið í
handknattleik hefur haft í
nógu að snúast undanfamar vik-
ur enda Ólympíuleikar framund-
an. Athygli hefur vakið að
sumum leikreyndustu mönnum
liðsins hefur verið
nokkuð tíðrætt um
leikjaálagið í fjöl-
miðlum og sum
óhagstæð úrslit
skýrð í ljósi þess.
Þetta er umhugsun-
arefni. Hver er
aðalástæða hins
mikia leikjafjölda
hjá landsliðinu? Það
er verið að reyna að
tryggja sem besta
samæfíngu kynnu
einhveijir að svara.
Eftir því sem undir-
ritaður kemst næst
er íslenska landslið-
ið að verða eitt af
þeim leikreyndustu
í heiminum, lang-
flestir leikmanna
með yfír vel á annað
hundrað landsleiki
að baki og flesta
þeirra spilaða eftir
að Bogdan byrjaði
með landsliðið. A það má benda.
þrátt fyrir að menn þekkist vel,
þarf að æfa upp ný leikkerfi sem
andstæðingamir þekkja ekki i
jafntaktískum leik og hand-
knattieikur er, bæði í sókn og
vöm.
Hitt virðist þó Ijóst, að menn
kvarta undan leikja- og æf-
ingaálagi og hefur það mjög
loðað við Bogdan sem þjálfara
frá þvi að hann byijaði með
landsliðið. Það er undirrituðum
síst í huga að kenna Bogdan
nokkuð um þjálfun. Hann hefur
náð frábærum árangri með
strákana og komið íslandi á blað
meðal fremstu handknattleiks-
þjóða heims. Það er metið að
verðleikum.
En snúum okkur að kveikju
þessa pistils — æfíngaálagi.
Undirritaður hefur heyrt á skot-
spónum að ekki einungis séu
menn þreyttir, heldur sé mikið
um alls kyns meiðsli, sem manni
heyrist að séu álagsmeiðsli,
sinabólgur o.s.frv. Hér eru menn
komnir í slæman vítahring. Góð-
ur ieikmaður er með meiðsli sem
má rekja tii mikils álags. Reynt
er að halda málunum í horfi
með læknis- og sjúkraþjálfara-
meðferð og leikmaðurinn spilar
áfram. En leikmaðurinn fær
ekki það sem hann og meiðslið
þarfnast mest — hvíld.
Þó svo að menn virðist að Bogd-
an, eins og margir aðrir þjálfar-
ar, virðist setja árangur f beint
samhengi við æfingaálag, er
margt sem bendir til þess að svo
þurfi alls ekki að vera. Má í
sambandi nefna að David Cost-
ili, heimsfrægur fyririesari í
lífefnafræði og orkubúskap
líkamans, sem starfar við In-
diana-háskóla f Bandaríkjunum,
var fenginn til ráðgjafar sundliði
skólans vegna slælegs árangurs
þess. Hann fór yfir æfíngaáætl-
anir sundmannanna og gerði á
þeim ýmsar lífeðlisfræðilegar
athuganir. Eftir það lagði hann
til að æfíngaálag yrði minnkað
um helming meðan á aðalkeppn-
istfmabili stóð. Hann hafði
fundið út hvert meinið var —
ofþjálfun. Bættur árangur iét
ekki á sér standa.
Segja má að álagsmeiðsli og
þreyta séu tvö aðaleinkenni of-
þjálfunar og má t.d. fínna
lSfeðlisfræðilegar breytingar
eins og hækkaðan hvíldarpúls
hjá einstaklingi, sem samkvæmt
öllum formerkjum á að vera í
toppþjálfun.
Miðað við þá æfinga- og leikja-
áætlun sem kynnt hefur verið f
fjöimiðlum, virðist mér að ein
aðalhættan sem steðjar að góð-
um árangri íslensks handknatt-
leiksiiðisins á Ólympíuleikunum
næsta haust, sé ofþjálfun. Ekki
má heldur gleyma erfiðum
ferðalögum sem strákamir
verða að leggja á sig. Þau munu
enn frekar stuðla að æfinga- og
keppnisþreytu.
Eitt enn má nefna sem allir
keppnistnenn þekkja. Það er
leikleiði. Einungis ein lækning
er á þeim kvilla — hvfld.
Ég er sannfærður um að við
eigum nú eitt besta handbolta-
landslið í heimi og mundi
ógjaman vilja mæta þessum
köppum í ham. Það verða þeir
ekki nema vel úthvfldir líkam-
lega og andlega.
Grímur
Sæmundsen
■ JOHN Wark, skoski knatt-
spymumaðurinn kunni, var í gær
seldur frá Liverpool til Ipswich,
sem nú leikur í 2. deild. Talið er
að Ipswich hafí keypt hann á
100.000 pund. Wark lék einmitt
með liðinu áður en hann var keypt-
ur til Liverpool fyrir 450.000 pund
fyrir fjórum ámm. Wark er þrítug-
ur að aldri, var í tíu ár hjá Ipswich
áður en hann fór til Liverpool, en
er nú sem sagt kominn heim. Hann
hefur ekki komist í lið Rauða hers-
ins frá Anfíeld Road í vetur, en liðið
er nú lang efst í ensku 1. deildinni.
■ MICHEL Preud’homme var
í gær kjörinn knattspymumaður
ársins 1987 í' Belgíu. Preud’-
homme er markvörður bikarmeist-
ara Mechelen og belgíska
landsliðsins. Hollendingurinn
Frans van Rooij, miðvallarleik-
maðurinn hjá Antwerpen hafnaði
í 2. sæti.
■ IJUDOMIN Radamovic hef-
ur æft með Southampton að
undanfomu og er sennilegt að hann
gangi til liðs við félagið. Rad-
amovic, sem er 27 ára Júgóslavi
með 30 landsleiki að baki, hefur
leikið með Partizan Belgrad, en
Southampton bauð 250 þúsund
pund fyrir leikmanninn.
■ MATS Lindau, sænski lands-
liðsmaðurinn í handknattleik hjá
' Cliff, varð fyrir því óhappi að nef-
bijóta andstæðing sinn í leik á
dögunum. Dómari leiksins sagði að
Lindau hafi gert það viljandi að
slá til mótheijans og var Lindau
dæmdur í 14 daga leik- og æfinga-
bann. Lindau hefur þrátt fyrir
þetta verið valinn í landsliðshóp
Svía fyrir Wold Cup.
■ SHREWSBURY hefur festi
kaup á Doug Bell frá Hibs í Skotl-
andi á 570 þús. sterlingspund.
■ LARS Bastrup, fyrrum lands-
liðsmaður Danmerkur í knatt-
spymu, sem lék með Hamburger
á árnrn áður, hefur tekið fram
knattspymuskóna - eftir að hafa
átt við meiðsli að stríða í hálft ár.
Bastrup hefur gerst leikmaður með
A C A í ArViiiQ
■ BRASILÍUMENN fá lítið
sumarfrí 1989. Þeir leika vináttu-
landsleik í knattspymu við Dani í
tilefni 100 ára afmæli danska
knattspymusambandsins í júní það
ár. Áður en Brasiliumenn halda
til Danmerkur - leika þeir þijá
landsleiki í Brasilíu. Brasilíska
knattspymusambandið heldur þá
upp á 75 ára afmælið sitt með því
efna til fjögurra þjóða knattspymu-
móts. Þeir hafa boðið ítölum,
Portúgölum og Spánveijum að
leika í mótinu.
■ DUNDEE United fékk verð-
laun frá Knattspyrnusambandi
Evrópu fyrir góða hegðun áhang-
enda félagsins 1987. UEFA ákvað
að verðlauna félagið með kr. 1.4
Oleg Blockin.
milljónum. Hegðun áhangenda
Dundee Utd. í leikjum liðsins í
úrslitum UEFA-keppninnar gegn
IFK Gautaborg þótti til fyrirmynd-
ar.
■ OLEG Blokhin, knattspyrnu-
kappi frá Sovétríkjunum, hefur
ákveðið að gerast leikmaður með
austurríska 2. deildar félaginu Vor-
waerts Steyr. Blokhin, sem lék
með Dynamo Kiev, var útnefndur
Knattspymumaður Evrópu 1975.
Hann er nú 35 ára. Blokhin er
þriðji sovéski knattspymumaðurinn
sem gerist leikmaður utan heima-
lands síns. Oleg Zinchenko og
Sergei Shavol em farnir til Rapid
Vín í Austurríki.
■ ARNAR Bragason, skíða-
maður, var útnefndur íþróttamað-
ur Húsavkur 1987 á íþróttahátíð
Völsunga sem haldin var í Iþrótta-
höllinni á Húsavík. Þá var einnig
útnefndur Völsungur ársins 1987.
Iþróttasamband Islands hefur gefið
veglegan farandbikar til minningar
um Frey Bjamason, formann
Völsungs, sem lést á síðasta ári.
Þessi bikar skal, samkvæmt reglu-
gerð, vera veittur þeim unglingi, á
aldrinum 15-18 ára, sem sýnir sér-
stakan áhuga á félagstarfí og
ástundun íþrótta, án beins tillits til
árangurs. Sædís Guðmundsdóttir
var útnefnd Völsungur ársins, en
hún hefur starfað mikið að félags-
málum auk þess að vera liðsmaður
í handknattleiksliði félagsins.
■ KRISTJÁN Sigmundsson
landsliðsmarkvörður í handknatt-
leik hefur ákveðið að leggja skóna
á hilluna að loknum Ólympíuleikun-
um í Seoul í haust. Kristján segir
í viðtali i nýjasta hefti íþróttablaðs-
ins að hann hafí ekki lengur nógu
mikinn tíma til æfínga og þetta
keppnistímabil verði hans síðasta.
Þá segir Krislján einnig í þessu
sama viðtali að hann hafi fengið
tilboð frá liði á Spáni, þegar
Víkingar léku gegn Atletico
Madrid 1981, en hafnaði því vegna
ss að hann var í námi.
ALEX Ferguson fram-
kvæmdastjóri Manchester United
sagði á sunnudag að hann hefði
boðið 600.000 pund í skoska lands-
liðsmanninn Alex Mcleish frá
Aberdeen. Stjóm Aberdeen hafn-
aði tilboði Manchester United.
Krlstján Slgmundsson.
Ferguson sagði að hann hafi viljað
fá McLeish til að leika við hlið
Steve Bruce, sem United keypti
frá Norwich fyrir skömmu.
I KARL Heinz Förster einn
sterkasti leikmaður vestur-þýska
landsliðsins í knattspymu tilkynnti
í gær að hann myndi ekki gefa
kost á sér í landsliðið fyrir Evr-
ópukeppnina i knattspymu sem
fram fer í Vestur-Þýskalandi í
sumar. Hann sagðist hafa tilkynnt
landsliðsþjálfaranum, Franz Beck-
enbauer ákvörðun sína. Förster
sem riú leikur með Marseille í
Frakklandi hefur átt við meiðsli að
stríða og sagði að keppni eins og
Evrópukeppnin væri of mikið álag.
Förster hefur leikið 81 landsleik
og þótti líklegastur til að slá met
Beckenbauers sem er 103 leikir.
■ GUÐJÓN Guðmundsson lið-
stjóri íslenska landsliðsins í hand-
knattleik meiddist á æfíngu nú fyrir
skömmu. Guðjón tók að sér hlut-
verk vamarmanns á æfingu, en
missteig sig illa og þurfti að styðj-
ast við hækjur í nokkra daga.
■ FRANZ Beckenbauer, lands-
liðsþjálfari V-Þýskalands í knatt-
spymu hefur oft gefið það í skyn
að hann hætti sem landsliðsþjálfari
eftir HM á Ítalíu 1990. Forráða-
menn v-þýska knattspymusam-
bandsins hafa þegar ákveðið hvem
þeir vilja sem eftirmann Becken-
bauers. Þeir hafa rætt við Berti
Vogts, fyrrum leikmann Borussia
Mönchengladbach og v-þýska
landsliðsins. Hann hefur stjómað
unglingalandsliði V-Þýskalands
undanfarin ár með góðum árangri.
■ SIGURÐUR Sveinsson og
félagar hans hjá Lemgo máttu
þola tap fyrir Dormagen í Bundesl-
igunni í handknattleik, 22:17, um
helgina. Sigurður skoraði 7/5
mörk í leiknum. Hofweier vann
óvæntan sigur, 29:25, yfír Kiel.
Göppingen vann sinn fimmta sigur
í röð, 21:19, yfír Dortmund.
■ KRISTJAN Arason og félag-
ar hans hjá Gummersbach og
Baia Mare frá Rúmeníu, urðu jafn-
ir að stigum í fimm liða móti í
V-Þýskalandi. Bæði liðin unnu þijá
leiki af fjórum. Baia Mare varð
sigurvegari í mótinu, þar sem félag-
ið hafði aðeins betra markahlutfall
en Gummersbach, það munaði
einu marki.
KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ
Thorstvedt í markið
hjá IFK Gautaborg
Norski landsliðsmarkvörður-
inn í knattsþyrnu Erik
Thorstvedt mun taka við stöðu
þeirri hjá IFK Gautaborg, sem
félagið bauð
Bjama Sigurðs-
syni. IFK Gauta-
borg keypti
Thorstvedt frá v-
þýska félaginu Gladbach á kr. 5.4
Frá
Magnúsi
Ingimundarsyni
iSviþjóð
milljónir.
Arsenal hafði hug á að fá
Thorstvedt til sín og stóðu samn-
ingaviðræður tvisvar yfir. Arsenal
fékk ekki atvinnuleyfí fyrir
Thorstvedt, sem leiddist þófið og
gekk því að tilboði Svíanna.
Thorstvedt fær 2.4 milljónir
íslenskra króna í árslaun hjá IFK
Gautaborg. Þessi upphæð er fyrir
utan bónusa og ýmis hlunnindi
sem leikmenn félagsins fá — eins
og bfl.
Peter Larsson, leikmaður með
IFK Gautaborg, hefur verið seldur
til Ajax í Hollandi, en Gautaboig
er nú á keppnisferðalagi í Austuri-
öndum fjær.
Alagsmelðsll og þrayta
Álagsmeiðsli og þreyta eru helstu merki ofþjálfunar og er mikilvægt
að íslenska landsliðið í handknattleik verði vel úthvílt bæði likamlega
og andlega á Ólympíuleikunum I Seout.