Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 4
4 B
fttsrgtmfrfaftib /ÍÞRÓTT1R ÞMÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
Morgunblaöiö/Bjarni
„System Porce“, þeir þýsku svetja ekki af sér faðemi hennar
þessarar! 63 hestöfl á allt niður í 4.9 lítmm á hundraði, þýðgeng og
nýtir aflið vel.
ÞEGAR forsvarsmenn Seat verksmiðj-
anna á Spáni útskýra hvers vegna
Ibiza bíllinn þeirra er svona, en ekki
einhvern veginn öðruvísi, þá er þelm
tamt á tungu aA tala um mikilvægi hins
„latneska útllts", hvaA sem það þýAir.
Líklega er Ibiza þó dæmi um þetta út-
lit, ásamt öArum bílum, sem ítalir
teikna. Seat Ibiza er því meA nokkrum
sanni latínubíll og yrAi trúlega fyrir
valinu ef Monsjör Kíkóti þyrfti að
leggja sínum gamla Fiat 500, og fá sór
nýjan „Rosinante".
Klaoönlngln er öll stflhrein og notaleg, mjúk áferð og þó auðveld að þrífa, mælaborð er einkar gott.
Morgunblaðið/Bjarni
Reynsluakstur:
Seat Ibiza GLX
Verð kr. 426.000
Umboð á (slandi:
Hekla hf.
Latínu-
bíll
ínýrrivist
Nú er Seat kominn í nýja vist,
hjá Heklu hf., í kjölfar breyt-
inga á eignarhaldi yfir verksmiðjun-
um þegar Volkswagen keypti
meirihluta í þeim í
fyrra. Fyrsti könn-
unarleiðangurinn í
nýju vistina var far-
Jósepsson ’nn nn fyrir
skrífar skömmu, þijátíu
Ibiza kerrur fóru í
norðurveg og ryðja brautina fyrir
eftirkomendur. Þessir fyrstu eru
allir með 1.2 vélinni, sem þeir kalla
System Porsche eftir hönnuðinum,
sem á einnig heiðurinn af gírkass-
anum. Hann fæst nú í tvennum
útfærslum búnaðar og kallast GL
eða GLX eftir því, hver búnaðurinn
er. Möguleiki er, að öflugri bræður
leggi á sig ferðalag hingað norður-
eftir, ef þeim líst á þær vegsemdir,
sem þessir fyrstu hljóta. Það eru
1.5 bflamir með 85 hestöflin.
Við heimsóttum Seat Ibiza í nýju
vistina og tókum hann í svolitla
ökuferð. Það var sá fínni sem við
prófuðum, GLX, ogsegjum nú frá.
Borgarbfll
Bfllinn er smár að sjá, líkt og snið-
inn fyrir þrönga innanbæjarumferð.
Þó er rýmra en ætla mætti innan-
dyra þ.e. í framsætum, þrengra
afturí. Helst til lágur er hann þó
til loftsins. Þýski hönnuðurinn Kar-
mann er ábyrgur fyrir innrétting-
unni og kemst vel frá því,
klæðningin er notaleg og haganlega
gerð. Þrif eru auðveld og allir rofar
aðgengilegir. Sá galli er á, að
mælaborð marrar þegar vegurinn
er mjög holóttur. Sætin fara allvel
BÍLAR
Morgunblaðið/Bjarni
Lftlll, laglegur og lipur; Seat Ibiza, teiknaður af ítalska hönnuðinum Giugiaro, smíðaður í Barcelona.
með mann, en eru heldur há fyrir
okkur afkomendur afarmenna og
víkinga.
Vélin er ganglipur og hefur nóg
afl í venjulegt brúk, en þætti líklega
löt í æsingsakstri, enda ekki til slíks
ætluð.
Fimmgíra kassinn ber smiðum
sínum gott vitni og tengir vélaraflið
óaðfínnanlega við götuna. Þegar
svo kemur að því, að snúa stýrinu,
þá fær ekill verk að vinna. Það er
ekki þungt, en marga snúninga
þarf: Fjórir og hálfur hringur borð
í borð.
Ibiza kemur sér vel frá akstri,
einkum innanbæjarsnatti og er hinn
ljúfasti við að eiga, lætur vel að
stjóm og smýgur liðlega um
þrengsli. A vegum líður honum best
á hóflegum hraða, holóttir malar-
vegir fara að verða honum þungir
í skauti á u.þ.b. 80 km hraða.
Hljóðeinangrunin er í lagi á maL
biki, heyrist Iítillega í vélinni. Á
grófum vegi kemur allmikið hljóð
frá hjólunum. Miðstöðin er hávær,
en blæs og hitar vel. Útsýnið er
gott, en þar er þó sá hængur á, að
á framrúðu er ein þurrka, sem nær
ekki nægilega vel upp í efra homið
vinstra megin, til að sem best sjáist
út í slabbi.
Búnaður er allríkulegur miðað
við bíl í þessum stærðar- og verð-
flokki. Þar má nefna rafknúnar
rúðuvindur og samhæfðar læsingar
hurða. Eitt vantar þó illilega í bún-
að bflsins, það eru belti í aftursæt-
um.
Þegar á heildina er litið er Ibiza
vænn vagn og laglegur, einn af
þessum litlu og ljúfu sparibaukum
Staðreyndir Lengd mm 3.637 Breiddmm 1.610 Hæðmm 1.394 Þyngd tómur kg 900 Þyngd hlaðinn kg 1.400 Sæti 5 Hámarkshraði km/klst 155 Viðbragð, 0-100 km/klstsek 16 Stýri tannstöng Hringir borð f borð 4.4 Vél, 4 strokka, þverstæð, vatns- kæld. Afl hö/sn.mín. 63/5800 Eldsneytiskerfi Weber blöndungur Tankur1 50 Eyðsla 1/100 km 90 km/klst 4.9 120 km/klst 6.6 bæjarakstur 9.0 Gírkassi 5 gfra beinsk. hlutföll 1. 3.5:1 hlutföll 5. 0.77:1 Drif framdrif hlutfall 4.294:1 Fjöðrun framan sjálfstæð McPherson Fjöðrun aftan sjálfstæð. Hemlarframan diskar Hemiar aftan skálar Helmar vökvaknúnir m/hjálpar- afli Dekk 165/65 SR14
sem hafa þróast með stórborgar-
þrengslunum og lagað sig að slíku
umhverfí. Spánveijar gerðu þennan
bfl til þess að koma bílaverksmiðj-
unum sínum á skrið upp úr miklu
erfíðleikatímabili og þeim hefur tek-
ist það ætlunarverk sitt. Bfllinn
nýtur sívaxandi vinsælda erlendis
og hér á landi ætti varla að ganga
verr, vagninn er samkeppnisfær.
Staðlaður búnaður
1200 GL1200
GLX
kr. kr.
385.000 426.000
Snúningshraðamælir x x
Áfangamælir x x
Stafræn klukka x x
Rúllubflbelti í framst. x x
Aflhemlar x x
Rafhituð afturrúða x x
Hæðarstilling f. ökul. x x
Þokuljósker að aftan x x
Bakkljós x x
Halogen ökuljósker x x
Þurrka og þvottasp- x x
rauta á afturrúðu
Innispegill m. birtudr. x x
Litað rúðugler x x
Álfelgur5v2xl4“ x
Hjólkoppar x
Útispeglar með innist. x x
Samlæsing á hurðum x
Rafdrifnar hurðarúður x
Fellanl. aftursætisb. í x
tveim hl.
Höfuðpúðar á frams. x x
Miðstokkur x x
IMokkrir
punktar
Reynsluakstur fór að mestu fram í
rigningu og bleytu á malbiki og
möl, fundum enga hálku eða snjó.
Vólogkram
Bensínvél, þverstæð, þýðgeng, afldijúg.
Framdrif og fímm gíra kassi, góð hlut-
föll, skiptir góður.
Undlrvagn
Stýri af tannstangargerð, nákvæmt, án
hjálparafls en mikið doblað og létt, lítils-
háttar undirstýring.
Fjöðrun er sjálfstæð á hveiju hjóli,
hæfílega mjúk, tekur stórum ójöfnum
einkar vel, veikari fyrir þvottabrettum.
ÖrygglsbúnaAur
Boddýbygging styrkt utan um far-
þegarými.
Hemlar með hjálparafli, nákvæmir,
handbremsa góð.
Útsýni er mjög gott, nema þar sem
þurrka nær ekki af framrúðu.
Ljós eru góð, slokkna þegar kveikju-
straumur er rofínn, þokuljós að aftan.
Belti eru góð í framsætum, en vantar
alveg í aftursæti.
Stjómtæki
Fótstig eru full nærri hvort öðru, vantar
stuðning við bensíngjöf.
Rofar eru vel staðsettir, allt þrýstirofar
nema fyrir miðstöð og þurrkur. Þurrku-
rofí full stirður, aðrir góðir.
Mælaborð er laglegt, vel sýniiegt og
allir mælar skýrir.
Þægindi
Rými er gott í framsætum, þrengra aft-
ur í.
Sæti eru mjög góð að framan, góð aftur
í.
Hljóðeinangrun er veikur punktur, þarf
að vera betri.
Miðstöð er öflug, en hávær.
Farangursgeymsla er vel nýtt, þótt lítil
sé, aðgengileg-og opnast niður í gólf,
stækkanleg með því að fella aftursæti.
Niðurstööur
Seat Ibiza er laglegur og lipur bæj-
arbíll, hentar sérlega vel í smásnatt í
þrengslum. Hann fer vel með mann og
lætur vel að stjóm. Umhirða er auðveld
og hann er allra að eiga við.
Helstu kostir:
Vél og kassi, gott útlit, spameytni, lip-
urð í akstri.
Helstu gallar:
Belti vantar í aftursæti, ónóg hljóðein-
angmn.
þverstæð..