Morgunblaðið - 08.01.1988, Qupperneq 52
| /HLHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
1 GuðjónÓ.hf.
1
91-27233
flfcnrgRittlJliifrtö
ÍLBRunnBúr
-AFÖRYGGISÁSTÆÐUM
NYTT SIMANUMER:
696000
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Sj óef navinnslan;
Fólki sagt upp og
leiguaðila leitað
Grindavík.
STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja
hefur ákveðið að leita eftir aðil-
um, sem hafa áhuga á að reka
Sjóefnavinnsluna hf. á Reykjanesi
í samstarfi við Hitaveituna, eða
taka hana alfarið á leigu, að sögn
Finnboga Björnssonar, stjórnar-
formanns Hitaveitu Suðurnesja.
Ollu stjórnunar- og skrifstofufólki
Sjóefnavinnslunnar hf., 6 manns,
var sagt upp fyrir áramót fyrir
utan framkvæmdastjórann, sem
sagði upp fyrir jól.
í samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins sagði Magnús Magnússon,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjó-
efnavinnslunnar hf., að hann hefði
sagt upp því hann hefði talið hlut-
verki sínu hjá fyrirtækinu lokið.
„Þegar ég var ráðinn framkvæmda-
stjóri félagsins til bráðabirgða í júní
1985, var hlutverk mitt að endur-
skipuleggja reksturinn, finna félag-
inu rekstrargrundvöll og gera
hlutabréf félagsins að áhugaverðri
fjárfestingu. Með þeirri endurskipu-
lagningu, sem fram fór í síðasta
mánuði í tengslum við sölu hluta-
bréfa ríkisins, tel ég þeim áfanga
náð og rekstrargrundvöllinn tryggð-
an, þó áætlað sé tap á fyrsta eigin-
lega rekstrarári, sem er árið í ár.
Nýr meirihluti stjómar telur það hins
vegar. ekki hlutverk Sjóefnavinnsl-
unnar hf. að sýna frumkvæði í
uppbyggingu í efnaiðnaði á svæðinu
og vill helzt draga Sjóefnavinnsluna
hf. út úr þeirri vinnslu og fá aðra
til verksins," sagði Magnús. Hann
staðfesti einnig að nú væru aðeins
eftir 8 starfsmenn hjá félaginu, §ór-
ir vaktmenn og fjórir dagmenn, sem
halda tækjum volgum og í gangi.
Að sögn Jóns Gunnars Stefánsson-
ar, stjómarformanns Sjóefnavinnsl-
unnar hf., er hér um tilraun að ræða
til að minnka tapið. Miðað við björt-
ustu vonir og framleiðslu var búizt
við 20 milljóna króna halla á þessu
ári. „Hitaveitan mun ekki greiða
þessa peninga, enda vakti í fyrsta
lagi fyrir henni að hafa umsjón með
orkuframleiðslu og dreifingu hennar
á svæðinu. í öðru lagi gerir Hitaveit-
an sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem
fylgir yfírtöku þessara eigna og mun
því styðja við bakið á þeim aðilum,
sem vilja annast reksturinn svo sem
frekast er unnt. í þriðja lagi að
stuðla að frekari þróun á svæðinu
með því að útvega orku á hagstæðu
verði," sagði Jón Gunnar.
Trúnaðarmaður starfsfólks, Krist-
inn Gunnarsson, sagði að starfsfólkið
væri að vonum óánægt með þessar
uppsagnir, því allir hefðu trúað því
að atvinnuöryggi væri tryggt, þegar
Hitaveitan keypti Sjóefnavinnsluna
hf. „Hér hefur. verið unnið að fram-
leiðsluþróun, sem búið er að eyða
óhemju fé í og nú á að hreinlega að
loka á allt saman,“ sagði Kristinn.
- Kr. Ben.
Vetur
Morgunblaðið/Bjami
Þessi heimatilbúna sprengja var sprengd í Hafnarfirði á þrettándanum. Hólkurinn var fylltur með
púðri og girðingarlykkjum, eins og þeirri sem sést á myndinni.
Hald lagt á heimatílbúnar sprengjur
DAGANA kringum þrettánd-
ann lagði lögreglan í Hafnar-
firði hald á mikinn fjölda
heimatilbúinna sprengja sem
fundust í fórum unglinga í
bænum og á víðavangi. Lög-
reglan hafði mikinn viðbúnað
á þrettándanum og fékk að-
stoð hafnfirskra hjálpar- og
björgunarsveita og lögregl-
unnar í Reykjavík. Ekki kom
til óláta en 162 unglingar voru
skrifaðir niður á lögreglustöð-
inni.
I mörgum sprengjanna hafði
ýmiss konar málmhlutum verið
komið fyrir. Ekki er vitað um
slys vegna sprengjanna í Hafnar-
firði á þrettándanum.
Yfirleitt fór þrettándagleði vel
fram og víða kvaddi margmenni
jólin með álfabrennum.
Sjá nánar á blaðsíðu 20.
Mikil ásókn í lóð-
ir í Grafarvogi
BÚIÐ er að sækja um þær 140
lóðir undir einbýlis- og parhús
sem auglýstar voru til úthlutunar
Vodkaframleiðsla
í mjólkursamlagi?
Samninga leitað um blöndun og átöppun Icy-vodka í Borgamesi
um síðustu helgi í Brekkuhverfi
í Grafarvogi III. Ekki hefur ver-
ið gengið formlega frá úthlutun
en reglan er sú að þeir fá lóðina
sem fyrstir sækja um.
Að sögn Agústs Jónssonar skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings eru
nokkur dæmi þess að fleiri en ein
umsókn hafi borist um nokkrar lóð-
ir. Hætti fyrsti umsækjandi við, fær
sá lóðina sem næstur er i röðinni.
„Flestar lóðimar eru.undir einbýlis-
hús en þeim lóðum var farið að
fækka sem voru til úthlutunar innan
borgarmarkanna," sagði Ágúst.
„ Að mínu mati er þetta skemmtileg-
ur staður og hefur það ugglaust
haft sín áhrif á ásóknina."
Gatnagerðargjald af meðalein-
býlishúsi er áætlað rúmlega
994.000 krónur í Brekkuhverfi og
þarf að greiða þriðjung þess mán-
uði eftir úthlutun henni til stað-
festingar. Lóðimar eru frá 450
fermetrum til um 850 fermetra og
sagði Ágúst að sennilega yrðu
gatnagerðargjöldin hærri fyrir
stærri lóðimar.
Úthlutað verður lóðum undir 500
íbúðir í Grafarvogi III, en hverfinu
er skipt í fjóra hluta og eru lóðirn-
ar 140 einn þeirra. í vor fer að öllum
líkindum fram úthlutun á næstu
tveimur svæðum. Verða það lóðir
undir raðhús og fjölbýlishús auk
nokkurra einbýlishúsa.
Olíumengnn rædd á
rí kisstj órnarfundi
MIKLAR Hkur eru nú á því að
Icy-vodka verði blandað og
tappað á flöskur í Mjólkursam-
lagi Borgarness. Samningar
milli framleiðanda Icy, Sprota
hf, og áfengissamsteypunnar
Brown Forman Corp. um dreif-
ingu á Icy-vodka í Bandaríkjun-
um eru nú á Iokastigi, en þeir
eru forsenda þess að umsvif
Sprota verði aukin og blöndun
og átöppun verði á íslandi.
Gert er ráð fyrir að dreifing
og sala í Bandaríkjunum geti
hafizt um mitt ár og vestra
verði alls seld um hálf milljón
flaskna til ársloka.
Með framleiðslu Icy-vodka á
Bandaríkjamarkað ykjust umsvif
Sprota verulega og stefnt er að
þvi að framleiðsla geti hafizt í
júni, að sögn Orra Vigfússonar,
eins eigenda Sprota. í kjölfar
samninga við Brown Forman
þyrfti því að huga að möguleikum
á átöppun og blöndun áfengisins
hér á landi. Rætt hefði verið við
ÁTVR, gosdrykkjaframleiðendur
og Mjólkursamlagið í Borgamesi.
Síðastnefndi kosturinn væri bezt-
ur og því færu nú fram ítarlegar
viðræður við stjómendur mjólkur-
samlagsins. Það byggi yfir góðu
húsnæði, vinnuafli og reynslu í
framleiðslu drykkjarvara.
Hafnleysi í Borgarnesi væri að
vísu galli, þvi þá þyrfti að flytja
óblandaðan vínanda frá Reykjavík
til Borgarness og vodkaflöskurnar
til baka til útskipunar. Vínandinn
yrði keyptur að utan og hann
síðan blandaður í Borgarnesi,
næðust samningar, og loks settur
á flöskur. Ennfremur væri verið
að athuga með flutninga á áfeng-
inu og gleijum til og frá landinu
hjá Eimskip.
Steingrímur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra, lagði fram gögn
á ríkisstjórnarfundi í gær varðandi
olímengun í grunnvatni við
Njarðvík og Keflavík.
Komið hefur fram við rannsókna-
boranir við Njarðvík og Keflavík að
olía hefur komist í grunnvatn á svæð-
inu. Ekki er enn vitað hvort mengun-
ina megi rekja til olíulekans í vétur
eða hvort um eldri mengun er að
ræða. Af þessari ástæðu og vegna
mengunarhættu af völdum íseyðing-
arefna á flugbrautir hefur verið rætt
hvort nauðsynlegt sé að færa vatns-
ból bæjanna. Á ríkisstjómarfundinum
í gær kynnti utanríkisráðherra ríkis-
stjóminni stöðu mála, en frekari
rannsóknir á svæðinu eru fyrirhugað-
ar.