Morgunblaðið - 30.01.1988, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1988
Hljómsveitarstjóriiin, Jón
Stefánsson, leikur tónskáldið
í óperunni
lensku óperunnar sá um búninga,
lýsingu annaðist Jóhann B Pálma-
son, sýningarstjórar eru Kristín
Kristjánsdóttir og Guðný Helga-
dóttir og tónlistin er flutt af
Hljómsveit Islensku óperunnar.
Leikstjóri Litla sótarans er Þór-
hildur Þorleifsdóttir og spurði ég
hana afhverju væri verið að setja
upp sömu bamaóperu og fyrir 5-6
árum.
Leikhúsið er ævintýraheim-
ur -en harður skóli
„Það er nú svo, að ekki er til svo
mikið úrval af bamaóperum," svar-
aði Þórhildur. „Annað er að þessi
ópera er mjög vel fallin til sýninga
fýrir böm, vegna þess að í sýning-
Morgunblaðið/Sverrir
FRUMSÝNING HJÁ ÍSLENSKU ÓPERUNNI:
LITLI
SÓTARINN
- barnaópera
eftir Eric Crozier og Benjamin Britten
ÍSLENSKA ÓPERAN frumsýnir í dag bamaóperuna „Litli sótarinn,"
eftir Benjamin Britten og Eric Crozier, í þýðingu Tómasar
Guðmundssonar. Óperan var áður flutt hér árið 1982 og naut þá
mikilla vinsælda. Frumsýningin verður í Bíóhöllinni á Akranesi,
klukkan 14.00, önnur sýning klukkan 15.00 og á morgun, sunnudag,
verður þriðja sýningin, klukkan 15.00. Fyrsta sýning í Reykjavík
verður þriðjudaginn 3. febrúar, klukkan 17.00.
Sagan gerist á ensku
sveitasetri upp úr alda-
mótunum 1800. Sögu-
hetjan, Bjartur litli, er
bláfátækur átta ára
drengur. Faðir hans hafði orðið fyr-
ir því slysi að lærbrotna og varð
að senda Bjart að heiman, vegna
þess að ekkert var til að borða.
Bjartur er sendur sótarameistaran-
um Surti gamla, og Klunna syni
hans. Þeir ætla að nota Bjart litla
til að hreinsa reykháfana að innan
með því að láta hann klifra upp í
þá og skafa sótið í burtu.
Óperan hefst á því að áhorfendur
syngja Sótarasönginn, en í lok hans
koma sótaramir inn með Bjart á
milli sín. Bagga ráðskona, sem
stjómar öllu með harðri hendi, fer
að skipa þeim fýrir verkum. Rúna,
bamfóstran, aumkar sig yfir Bjart
litla, sem grætur af skelfíngu við
tilhugsunina um að þurfa að fara
inn í þennan óttalega reykháf. Sót-
aramir syngja um nauðsyn þess að
hafa svona horaða stráka til að
hreinsa reykháfa. Reipi er bundið
um Bjart og eftir nokkrar stimping-
ar er hann sendur upp í reykháfinn.
Bömin á hemilinu, Silja, Glói og
Soffía, eru í feluleik með frænd-
systkinum sínum, Nonna, Herði og
Tinnu, en þau eru í heimsókn. Leik-
urinn berst inn í stofuna. Allt í einu
heyrist neyðaróp. Bjartur er fastur
í reykháfnum og við það að kafna
í sótinu. Bömunum tekst í samein-
ingu að toga hann niður. Þau koma
sér saman um að fela hann, en
áður láta þau hann leggja sótuga
slóð út að glugga til að blekkja
sótarana. Bragðið heppnast og sót-
aramir, ásamt Boggu, hlaupa út til
að elta Bjart.....Svo er bara að
sjá hvort sótaramir og Bagga sjá
við krökkunum, eða hvort ráða-
brugg þeirra heppnast.
Með hlutverkin í sýningunni fara
Hrönn Hafliðadóttir, sem er Bagga
ráðskona, Elísabet Erlingsdóttir,
sem leikur Rúnu bamfóstm. Surt
sótara og Tom ekil leikur John
Speight, Agúst Guðmundsson leik-
ur Klunna sótara og Alfreð garð-
yrkjumann og Marta Guðrún
Halldórsdóttir leikur Silju, sem er
16 ára og elsta bamið á bænum.
Fyrir bamahlutverkin hafa verið
æfðir upp tveir hópar og með hlut-
verk Bjarts, litla sótarans, fara þeir
ívar Helgason og Þorleifur Amars-
son, Glói er leikinn af Finni Geir
Beck og Markúsi Þór Andréssyni.
Bryndís Ásmundsdóttir og Hrafn-
hildur Atladóttir leika Soffíu,
Aðalheiður Halldórsdóttir og Sara
Björg Guðbrandsdóttir leika Tinnu
tvíbura, Hörður tvíburi er leikinri
af Atla Má Sveinssyni og Páli Rúna-
ri Kristjánssyni og í hlutverki
Nonna eru Björgvin Sigurðsson og
Gylfí Hafsteinsson. Hljómsveitar-
stjórinn, Jón Stefánsson, leikur
tónskáldið og leikstjórinn er leikinn
af Guðnýju Helgadóttur.
Una Collins teiknaði leikmynd
sýningarinnar, Saumastofa ís-
Þórhildur, leikstjóri, gefur körkkunum nótur eftir eina af síðustu
æfingunum
unni eru böm - hún er skrifuð fyrir
þau. Sýningin er sett upp í sam-
vinnu við tónemnntakennara
gmnnskólanna, þannig að þegar
bömin koma að sjá óperuna, hafa
þau þegar lært söngvana sem
áhorfendur syngja og geta gekið
þátt í sýningunni. Framan við óper-
una sjálfa eram við með leikþátt; á
sviðinu er hópur fólks og bama, sem
hefúr áhuga á að setja upp ópem,
að ræða um það sem gera þarf til
að setja upp leiksýningu. Þetta er
aðferð til að leiða áhorfendur inn í
leikhúsið.
Það er því miður ekki mikið um
bamaleikhús hér. Þjóðleikhúsið hef-
ur, fram til þessa, reynt að vera
með eina bamasýningu á hverjum
vetri. Hjá Leikfélagi Reykjavíkur
hafa þær alveg dottið niður og Al-
þýðuleikhúsið, sem var á sínum