Morgunblaðið - 03.03.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1988
17
Blikur á lofti
eftir Pétur Björnsson
Dimm ský hrannast upp á sjón-
deildarhringinn og óveðursblikur
nálgast óðfluga.
Gengi krónunnar er komið úr
skorðum. Það er halli á fjárlögum,
halli á viðskiptum við útlönd og
verðbólga laus úr böndum.
Stormsveipur nýs matvælaskatts
hrindir upp öllum gáttum og kaldur
gustur nýrra skatta næðir um.
Hriplek tunna
Nýju skattamir kynda ekki að-
eins undir verðbólgu, heldur leggj-
ast þeir líka með fullum þunga á
hjól þjóðarframleiðslunnar, drif-
fjaðrimar, sem búa til verðmætin
og skapa atvinnuna.
Hallinn á ríkisrekstrinum er eins
og hriplek tunna. Það er reynt að
halda henni fullri með því að ausa
sífellt í hana fersku vatni (sköttum).
Annaðhvort er að gera við tunn-
una... eða halda áfram að ausa.
Þetta er hröð samantekt á
ástandinu í dag og lýsir um leið
fyrstu vísum virðisaukaskattsins,
sem á að innleiða hér, hvað sem
það kostar.
Ef haldið er áfram að veita út
almannafé með nýjum lögum frá
Alþingi, kemur að því að skatt-
stofna þrýtur og hjólin kikna undan
skattþunganum.
Þegar lifað er um efni fram, er
aukin skattlagning óæskileg lausn,
meðan kostur er á að SKERA NIÐ-
UR RÍKISUTGJÖLD.
Við eram komin í það ástand,
að ef ekki koma til lengri tíma
áætlanir um niðurskurð á breiðum
grandvelli, getur hagkerfið fallið
saman í óðaverðbólgu og stöðnun.
Alþingi hefur eitt ábyrgð af slíkri
ákvörðun á valdi sínu og ábyrgðin
mun að sjálfsögðu falla í hlut þeirra
manna sem SJA, SKILJA og ÞORA.
Viljum við áframhaldandi „nei-
kvæða“ skatta gegn „hriplekri
tunnu“?
Snákur í grasinu
Norðmenn hafa gefið til kynna,
að þeir vilji losna undan VIRÐIS-
AUKASKATTINUM, sem þeir köll-
uðu yfir sig á sínum tíma . . . en
sá böggull fylgir skammrifi að ekki
er hægt að snúa til baka þegar
hann á annað borð er kominn á.
„SVINDL VIRÐISAUKA-
SKATTS", kallar Jónas Kristjáns-
son, ritstjóri DV.’skattinn í lejðara
sínum, haustið 1986, sem í tíma
var skrifaður til varnaðar og er nú
að skríða fram í dagsljósið.
Þegar Norðmenn geta ekki hrint
Flugleiðir selja Suðurfara
FLUGLEIÐIR hafa afhent for-
ráðamönnum Kabo Air í Nígeríu
DC-8-55 þotuna TF-FLB en sam-
ið var um sölu hennar fyrir
nokkrum dögum.
TF-FLB bar nafnið Suðurfari og
hafði verið í eigu Flugleiða frá því
í ársbyrjun 1986, en félagið hsifði
haft vélina á leigu frá því 1982.
Síðustu mánuðina hafði Suðurfari
mest verið notaður sem varaflugvél
í Evrópuflugi. Þijár Boeing 727
þotur Flugleiða annast nú mest allt
Evrópuflug félagsins, en til viðbótar
verður DC-8-63 þota í því flugi er
sumaráætlun tekur gildi. I maí á
næsta ári bætast tvær nýjar Boeing
737-4000 þotur í þann hluta flug-
flota félagsins sem annast þetta
flug.
A meðfylgjandi ljósmynd frá
Upplýsingadeild Flugleiða era Sig-
urður Helgason, forstjóri Flugleiða
og Bjöm Theódórsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs ásamt
forráðamönnum og flugmönnum
Kabo Air við afhendingu TF-FLB
á Keflavíkurflugvelli.
OÍTIROn
AFGREIÐSLUKASSAR
RAFMOTORAR
= HÉÐINN = í
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 S
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER ?
Pétur Björnsson
„Á virðisaukaskattur-
inn, þessi flókni, þungi
klafi ríkisbáknsins
raunverulegt erindi inn
á okkar vettvang með
þeirri tvísýnu sem hon-
um fylgir? Skatturinn
leggst á allar minnstu
hreyfingar í samfélag-
inu, sker óhugnanlega
nærri almennu per-
sónufrelsi og EIRIR
ENGU. í leiðinni öðlast
hið opinbera greiðari
aðgang að einstakling-
um landsins.“
oki skattsins af herðum sér, tökum
við hann upp í trássi við óánægju
og þann sýnilega galla, að skattur- '
inn nái ekki markmiði sínu, ef
bragðið er útaf honum eða veittar
undanþágur. Hingað til höfum við
getað lifað góðu lífi með „plástrað-
an“ söluskatt og SKATTFRJÁLS-
UM MATVÆLUM.
Jónas heldur áfram........ríkis-
stjórnin léggur til að ríkisumsvif
verði aukin um 2.100 milljónir (með
framvarpinu um virðisaukaskatt)".
„Það er eitt stærsta RÍKISDÝRK-
UNARSKREF hennar í átt til Stóra
bróður."
. .. Virðisaukaskatturinn leggst
á almennar neysluvörar, einkum
innlenda búvöra og aðra matvöra,
SEM SÖLUSKATTURINN GERIR
EKKI.
... vegna þess hve skatturinn
er þungur í vöftim, flókinn og fullur
af skriffinnsku, verður hann helm-
ingi dýrari í meðföram heldur en
söluskatturinn og skattstofan þarf
að flölga starfsmönnum úr 35 sölu-
skattsmönnum í 70 virðisauka-
skattsmenn, eins og Jónas tekur til
orða.
Afrakstri skattsins er svo ausið
í hripleka tunnuna.
Með dauða ófreskju
á bakinu
Umrótið sem hefur átt sér stað
undanfarið hefur sett samfélagið
úr jafnvægi. Kaupið nær ekki end-
unum saman og ókyrrð hefur gripið
um sig, eins og eðlilegt er. Þetta
siglir strax í kjölfarið, þegar svona
skattlagningu er skellt á, MEÐ
EINU PENNASTRIKI.
Hvemig skal halda ferðinni
áfram, þegar útgjöld og áætlanir
ríkisins era HÆRRI en þjóðartekj-
urnar?
Á . virðisaukaskatturinn, þesSi
flókni, þungi klafi ríkisbáknsins
raunveralegt erindi inn á okkar
vettvang með þeirri tvísýnu sem
honum fylgir?
Skatturinn leggst á allar minnstu
hreyfingar í samfélaginu, sker
óhugnanlega nærri almennu per-
sónufrelsi og EIRIR ENGU.
í leiðinni öðlast hið opinbera
greiðari aðgang að einstaklingum
landsins.
Flest bendir til þess að virðis-
aukaskatturinn verði „plástraður"
hjá okkur og missi marks. Eftir
sitjum við með dauða ófreskju á
bakinu.
Ef við eram ekki á verði gagn-
vart seilingum ríkisvaldsins, fær-
umst við brátt frá handleiðslu guðs
til handleiðslu ríkisins.
Fjötrar ríkisvaldsins
Verði virðisaukaskatturinn sett-
ur á, höfnum við að lokum í sama
bát og hinar Norðurlandaþjóðirnar,
sem búa við þung kerfi og ríkisstýr-
ingu.
Svíar risu upp í fyrra og mót-
mæltu, þegar þeir fundu út að ríkis-
valdið var langt komið með að setja
alla Svía á bás persónulegs tölvu-
kerfís og persónulegra upplýsinga.
Hvar endar ofurvald ríkisbákns-
ins?
... það gengur svo langt að
skattheimtumenn í Stokkhólmi tóku
hús á fólki, jafnvel eftir miðnætti
til betri árangurs, vegna grans um
viðskipti með húsmuni, málverk og
fl., eftir ábendingum nágranna.
JAFNVEL NÁBÚINN ER ORÐ-
INN NJÓSNARI KERFISINS.
... ung bamafjölskylda í Kaup-
mannahöfn var látin telja fram til
skatts þau „fríðindi" að hírast í einu
herbergi hjá foreldram í þijá mán-
uði, meðan HÚN VAR HÚS-
NÆÐISLAUS Á GÖTUNNI.
. . . einn danskur nágranni tii-
kynnti annan til skattsins, fyrir að
hafa málað þakið á húsinu sínu,
SJÁLFUR . . .
. . . annar nágranni var kærður
fyrir að leggja eigin gangstétt —
án þess að gefa upp til skatts.
Við þekkjum^ ekki svona lagað
héma heima á íslandi og eram því
blessunarlega laus við þessháttar
RÍKISFJÖTRA, ennþá.
Einstaklingshyggja okkar íslend-
inga hefur hingað til forðað okkur
frá því að lenda í þeim fjötram.
Höfundur er forstjóri Vifilfells hf.
LYFTISTONG
FYRIR FYRIRTÆKIÐ
HYSTER lyftarar hafa sannarlega
reynst atvinnulífinu á íslandi
lyftistöng í gegnum árin.
Síðustu 50 ár hafa framleiðendur
HYSTER lyftara verið frum-
kvöðlar tækninýjunga í útbúnaði
lyftara. Á meðal þeirra
eru eftirtaldir eiginleikar
HYSTER diesel lyftara sem
auka afrakstur, lækka
rekstrar- og viðhaldskostnað
og auka stýrihæfni og lipurð.
HYS
Iþ- Hyster sjálfskipting, sem er
sérhönnuð fyrir erfiðisvinnu
Hyster monotrol inngjöf, einn
pedali fyrir bæði afturábak
og áfram keyrslu.
► Hyster stýriöxull, engar
stillingar, minna viðhald
og betri ending hjólbarða.
■ ■ ► Hyster Vista opinn gálgi
► Gott verð og góðir
greiðsluskilmálar.
I sl( Hafið samband við sölumann
■ HYSTER lyftara hjá HAMRI.
SA RETTIFYRIR ÞIG
HF HAIVIAR
Hamai h(.. Giandagarðl 11 - Sími: 91-2 2123
NæsL.Auglýsingastofa