Morgunblaðið - 03.03.1988, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1988
Víða snjóleysi á skíðasvæðum:
Hefðum þurft að flytja
snjóinn neðan úr bæ
- segir Snorri Bogason á fsafirði
Leikurum og leikstjóra fagnað í leikslok.
Sigurður P. Bjömssón
Leikfélag Húsa-
víkur sýnir Gísl
Húsavík.
LEIKFÉLAG Húsavikur frum-
sýndi sjónleikinn Gísl eftir
Brendan Behan síðastliðið föstu-
dagskvöld fyrir fullu húsi og við
ágætar viðtökur leikhúsgesta.
Leikstjóri er Hávar Siguijóns-
son en þýðandi Jónas Arnason.
Eins og mörgum er kunnúgt
fjallar þetta leikrit um frelsisbar-
áttu íra á gamansaman hátt með
söngvum og kráargleði framan af,
en þá kráareigandinn er beðinn
hýsa gíslinn fer gamanið af. Þjóð-
leikhúsið sýndi þetta leikrit fyrir
mörg árum síðan og eru margir
söngvar þess vel þekktir og vinsæl-
ir.
Leikstjórinn Hávar gerði leik-
myndina og er hún vel gerð við
erfíðar aðstæður, því leiksviðið er
mjög lítið og ljósa- og tæknibúnað-
ur allur er vel af hendi leystur.
• Með aðahlutverkin fara Hrefna
Jónsdóttir, Þorkell Björnsson,
Aldís Friðriksdóttir og Örn Ólason
sem leikur gíslinn. Tvö hin fyrst-
nefndu eru sviðsvön og í hópi okk-
ar beztu leikara og skila hlutverk-
um sínum vel. En nýliðamir í þess-
um og öðrum hlutverkum gera
hlutverkum sínum góð skil og sýna
að áhugamannaleikhópurinn á
Húsavík er í sókn og lofar góðu
fyrir framtíðina. Aðrir leikarar eru
Guðný Þorgeirsdóttir, Björgvin
Leifsson, Sigurður Þrastarson,
Ingimundur Jónsson, Svavar Jóns-
son, Jóhannes G. Einarsson, Þór
Gíslason, Svava A. Viggósdóttir,
Bjami Pétursson, Vigfús Sigurðs-
son og Sigríður Harðardóttir.
Dansa hefur Einar Þorbergsson
æft og um tónlistina sér Ingimund-
ur Jónsson.
Leikfélag Húsavíkur sýnir með
þessari sýningu að engin lægð er
í starfi þess en formaður félagsins
er nú María Axfjörð.
Búast má við góðri aðsókn að
þessari leiksýningu því leikritið er
þess virði og greiðfært er fyrir
bfla um allt nágrennið.
— Fréttaritari
ÞEIR sem fylgdust með fréttum
frá Vetrarólympíuleikunum í
Calgary tóku væntanlega eftir því
að þar hrjáði menn snjóleysi og
var jafnvel gripið til þess ráðs að
nota gervisnjó. A sumum skiða-
svæðum hér á landi er ástandið
ekki ósvipað vegna lítillar snjó-
komu og jafnvel rigninga, og á
ísafirði höfðu menn á orði að
flytja snjó af láglendi og upp í
skíðabrekkumar, þar sem snjóaði
meira niðri í bænum. Nú er hins
vegar spáð kólnandi veðri og unn-
endur skiðaíþróttarinnar eygja
því örlitla von um að geta farið
að bmna niður brekkurnar.
„Menn héma muna ekki eftir eins
litlum snjó síðan árið 1952,“ sagði
Snorri Bogason, umsjónarmaður
Skíðheima á ísafírði, í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta er alveg ægi-
legt, hér er búið að rigna í nokkra
daga og snjórinn er allur að hverfa.
Það er varla hægt að segja að það
sé nokkurt færi hér lengur, það er
rétt að hægt er að fara í svig á milli
skafla."
Snorri sagði að skíðasvæðið á
ísafirði hefði ekki verið opnað fyrr
en fimmta febrúar og að almenning-
ur sæi ekki ástæðu til að nýta sér
það í þessu slæma færi, það væm
eingöngu unglingar úr skíðadeild
staðarins, sem notuðu svæðið til
æfínga. Snorri sagði að þetta þýddi
auðvitað nokkurt tekjutap fyrir bæj-
arfélagið, sem rekur skíðasvæðið. „Á
góðum dögum koma hér nokkur
hundruð manns, en það lætur enginn
sjá sig í þessari tíð. Þetta kemur líka
illa niður á keppnisfólkinu okkar, sem
getur ekki æft sig sem skyldi, en
krakkamir eru duglegir og það er
hvaða skafí sem er notaður til þess
að æfa sig,“ sagði Snorri. „Það lá
við að við flyttum snjóinn neðan úr
bæ og hingað upp eftir, þegar gerði
skafrenning um daginn, það snjóaði
miklu meira þar,“ sagði Snórri.
Dauft hljóð í Skálafelli
Það var sömuleiðis dauft hljóðið í
tapast rekstrartekjur," sagði Ás-
bjöm. „Þetta er vinsælt svæði ef
skíðafæri er á annað borð, hér er sól
í brekkunum á heiðskírum dögum,
sem ekki er til dæmis í Bláfjöllum
og hingað koma upp undir fjögur
þúsund manns á góðum dögum. Fólk
Á góðum degi í Skálafelli. Hætt er við að ekki sé eins líflegt um
að litast þar þessa dagana, snjórinn er lítill sem enginn og skolast
burt i rigningunni.
mönnum á skíðasvæði KR í Skála-
felli. Ásbjöm Einarsson, formaður
rekstramefndar skíðasvæðisins,
sagði að svæðið hefði aðeins verið
opið í hálfan mánuð nú í febrúarmán-
uði og þá fyrir skólafólk, sem var á
ferð í miðri viku. Ekki þætti hins
vegar ástæða til að hafa opið um
helgar, enda lítill snjór og færi
minnkandi nú í rigningunni. „Við
töpum miklum tekjum á þessu, bæði
er erfítt að fá greiddar auglýsingar
þegar svæðið er ekki opið og einnig
...og málið er leyst!
IH55PÍM
lo.JU—20.30 og 20.40-22.
FRAíVSKA JAPANSKa lS!^mKA
ópplýsingar og innritu • ^ *«e»di„ga
8 °g mnritun í slina 10004/21655
40
NANAUSTUM 15
^UasiuJu
hefur líka hringt mikið og spurt hvort
við fömm ekki að opna.“
Nógur snjór í Hlíðarfjalli
I Hlíðarfjalli, skíðasvæði Akur-
eyringa, var þó allt annað hljóð í
strokknum. ívar Sigmundsson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í fyrradag
að þar væri nógur snjór, en búast
mætti við hörðu skíðafæri þegar
frysti aftur, þar sem nú væri sjö stiga
hiti fyrir norðan. „Við opnuðum
svæðið 10. janúar og þetta er ein-
hver besta byijun, sem við munum
eftir,“ sagði Ivar. „Það er mikið starf
hjá skíðadeildum KA og Þórs; 200
krakkar em við æfíngar hérna núna,
og almennur og vaxandi áhugi á
skíðaíþróttinni hér í bænum. Hér
koma um 2.000 manns á toppdögum,
og það eykur aðsóknina að það er
lítill snjór á skíðasvæðum hér í kring,
til dæmis á Húsavík, Dalvík, Ólafs-
fírði og Siglufírði. Það má segja að
þetta sé eini staðurinn með góðan
snjó á landinu, og Reykvíkingar hafa
til dæmis gert mikið af því að aka
norður um helgar til þess að fara á
skíði. Sumir em meira að segja með
árskort héma,“ sagði ívar.
Rigning hrjáir
Bláfjallamenn
„Við emm alveg sæmilega ánægð-
ir,“ sagði Guðmundur Kjerúlf í Blá-
fjöllum í fyrradag. „Þetta er 22.,
opnunardagur síðan 10. janúar, en
snjórinn hefur verið í lágmarki. Það
var sæmilegt færi þar til seint i þars-
íðustu viku, en þá fór að rigna, og
við þolum ekki rigningu í marga
daga í viðbót.“
Guðmundur sagði að janúar og
febrúarmánuðir hefðu verið betri í
ár en í fyrra, þá hefði svæðið verið
opnað í nóvember og besta færið
verið fyrir jól. „Það em allar lyftur
opnar hjá okkur núna og hefur geng-
ið vel hjá okkur í vetur, aðsóknin er
góð og mikið um að skólakrakkar
gisti héma. Gisting er bókuð eina
eða tvær vikur fram í tímann og
hingað koma allir sem á annað borð
em á skíðum á Suðvesturlandi.“
Þorsteinn Hjaltason, fólkvangs-
vörður í Bláfjöllum, sagði að þrátt
fyrir að allt væri að fara á kaf í
vatn væm menn bjartsýnir, enda
spáð norðanátt og kólnandi veðri
næstu daga. „Það hefur verið ágæt
traffík í vetur, á bestu dögum em
hér yfir 5000 manns, og aðsóknin
óvenjugóð. Reksturinn hefur líka
sjaldan gengið eins vel,“ sagði Þor-
steinn Hjaltason.