Morgunblaðið - 03.03.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1988
Pólland:
Walesa neitað
um fararleyfi
Varsjá, Reuter.
PÓLSK stjórnvöld neituðu Lech Walesa leiðtoga Samstöðu um leyfi
til að fara úr landi á þriðjudag. Hann rnun þvi ekki geta ávarpað
þing Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfelaga (ICFT) sem fram fer
í Astralíu siðar í þessum mánuði.
Talsmaður pólsku stjórnarinnar,
Jerzy Urban, sagði á blaðamanna-
fundi að Lech Walesa væri í for-
svari fyrir ólögleg samtök og að
það bryti í bága við pólsk lög að
veita honum heimild til að fara úr
landi. Walesa, ásamt þrem öðrum
úr verkalýðsfélaginu Samstöðu, var
boðið að taka þátt í ráðstefnu ICFT
sem hefst í Melboume í Astralíu
Alþjóðabankinn:
Líkur á að
skuldir hafi
minnkað
Washington, Reuter.
ERNEST Stern, varaforseti
Alþjóðabankans, sagði á
mánudag, þegar hann skýrði
frá tekjum bankans síðustu
sex mánuði ársins 1987, að
allt benti til þess að dregið
hefði úr skuldavanda heims-
rikja, sem gert hefði vart við
sig árið 1982.
Stem sagði við fréttamenn
að dregið hefði úr efnahags-
legri spennu vegna tillögu Ja-
mes Bakers, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, sem gerir ráð
fyrir að þróunar- og viðskipta-
bankar auki útlán sín. Hann
sagði að tekjur bankans á síðari
helmingi ársins 1987 hefðu
komist upp í 679 milljónir dala,
úr 655 milljónum dala árið áð-
ur. Hann sagði ennfremur að
efnahagslega ástandið í heim-
inum væri betra en fyrir sex
áram.
Bankinn tók 7,7 milljarða
dala lán með 6,92 prósent með-
alkostnaði fyrstu sex mánuði
síðasta árs. Stem sagðist búast
við að bankinn hefði tekið um
11 milljarða dali að láni á fjár-
hagsárinu. Hann áætlaði að
skuldbindingar bankans á
þessu ári næmu 15,5 milljörð-
um dala, og að bankinn myndi
auk þess ráðstafa um 12 mill-
jörðum, eða heldur meira en í
fyrra.
Grikkland:
Samtök öfga-
manna myrða
vopnasala
Aþenu, Reuter.
EINN helsti vopnasali Grikk-
lands var skotinn til bana á
þriðjudag og samtök vinstri sinn-
aðra öfgamanna lýstu yfir
ábyrgð á verknaðinum, að sögn
grísku lögreglunnar.
Alexandros Athanassiades, for-
stjóri Pyrkal-fyrirtækisins, sem er
eitt stærsta vopnafyrirtæki Grikk-
lands, var skotinn þegar hann var
á leið til skrifstofu sinnar í úthverfi
Aþenu. Hann var fluttur á sjúkra-
hús og lést þar skömmu síðar. I
flugritum, sem fundust á morð-
staðnum, segir að „byltingarsam-
tökin 17. nóvember" hafi staðið að
morðinu. í flugritunum er Andreas
Papandreou, forsætisráðherra
Grikklands, einnig sakaður um að
hafa „leitt landið í efnahagslega,
félagslega og menningarlega
kreppu." Samtökin hafa áður sakað
Papandreou um að hafa bragðist
sósíalískum hugsjónum sínum.
17. mars næstkomandi. ICFT viður-
kennir ekki hina opinbera verka-
lýðshreyfmgu Póllands, sem lýtur
stjórn kommúnistaflokksins.
Walesa, sem nokkram sinnum
hefur verið neitað um að fara úr
landi frá því Samstaða var bönnuð
árið 1981, sagði er honum vora
færðar fréttimar af neituninni um
Astalíu-förina, að meðan Urban og
hans nótar væra við völd væri
óhugsandi að hann fengi leyfi til
að fara úr landi.
Bob Hawke forsætisráðherra
Ástralíu gekk á fund pólska sendi-
herrans, Ireneuszar Kossakowalsk-
is, í Canberra í gær til þess að reyna
að fá pólsk stjómvöld til að veita
Walesa fararleyfi. Afhenti hann
sendiherranum harðort bréf sem
hann bað um að yrði komið til
Jarazelskis leiðtoga pólska komm-
únistaflokksins.
Japanir skreyta rétti með gulli
Japönsk skrifstofustúlka snæðir hér hrán físk sem skreyttur hefur
verið með gulli. Nú er í tísku í Japan að bæta gullflögum á réttina.
Suður-Afríka:
Flugvél
ferst með
17 mönnum
Jóhannesarborg. Reuter.
SAUTJÁN menn fórust er
tveggja hreyfla skrúfuþota, sem
smíðuð var í Brazilíu, sprakk í
tætlur skömmu fyrir lendingu í
Jóhannesaborg í fyrrakvöld.
I hópi hinna látnu vora hjón frá
Hamborg í Vestur-Þýzkalandi og
hjón frá Vínarborg í Austurríki.
Hinir 13 vora suður-afrískir. Flug-
vélin var í eigu flugfélagsins Com-
Air, sem hefur aðsetur í Bophut-
hatswana, einu heimalandi blökku-
manna í Suður-Afríku. Hún fórst í
aðflugi til Jan Smuts flugvallarins
í Jóhannesarborg, um það bil sem
hún var að ljúka flugi frá bænum
Phalaborwa í norðausturhluta Suð-
ur-Afríku.
Að sögn sjónarvotta varð spreng-
ing í flugvélinni með þeim afleiðing-
um að hún brotnaði í tvennt. Báðir
hlutar hennar hröpuðu niður á verk-
smiðju Coca Cola í Germiston-
hverfinu í austanverðri Jóhannesar-
borg.
Norrænu gíslarnir látnir lausir í Líbanon:
Prísundin reyndi fyrst
og fremst á sálarþrekið
- sagði Norðmaðurinn William Jörgensen
Larnaca, Reuter.
NORÐURLANDABÚARNIR tveir, sem mannræningjar í Líbanon
slepptu úr haldi á þriðjudagskvöld, héldu í gær til Ziirich í Sviss.
Mennirnir, sem eru báðir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sögðust
ekki hafa sætt illri meðferð af hendi mannræningjanna í þá 26 daga
sem þeim var haldið föngnum. Enn er ekki ljóst hvaða samtökum
mannræningjarnir tilheyra.
Mönnunum, Jan Stening frá
Svíþjóð, og Norðmanninum William
Jörgensen var sleppt í Vestur-
Beirút á þriðjudagskvöld. Samtök
sem nefnast „Byltingarráðið“
skýrðu frá því að mönnunum hefði
verið sleppt þar eð komið hefði fram
við yfirheyrslur að þeir hefðu ekki
gerst sekir um njósnir. Per Olof
Halquist, yfirmaður Palestínuhjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna, bar lof á
Mustafa Saad, leiðtoga Líbanska
frelsishersins, og sagði að án hans
hjálpar hefði mönnunum líklega
ekki verið sleppt. Halquist vildi ekki
tjá sig um hvort framhald yrði á
hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna
en erlendir starfsmenn flótta-
mannahjálparinnar vora kallaðir
heim eftir að mönnunum tveimur
var rænt. John Fennessy, einn for-
ráðamanna flóttamannahjálparinn-
ar í Líbanon sagði hins vegar á
þriðjudag að starfsemin hæfíst aft-
ur svo fljótt sem unnt væri. Tveir
flutningabílar með hjálpargögnum
héldu á þriðjudag frá Vestur-Beirút
til Týras og Sídon og eru þetta
fyrstu hjálpargagnasendingamar til
Palestínumanna frá því mönnunum
var rænt.
„Vitaskuld er ég frelsinu feginn,“
sagði William Jörgesen er hann
ræddi við blaðamenn á flugvellinum
í Lamaca á Kýpur. „Líkamlega var
vistin ekki svo erfið en hún reyndi
á sálarþrekið - við vissum ekki
hvað var að gerast." Ofgamennirnir
fluttu mennina til Beirút en þeir
vora fluttir átta sinnum á milli staða
í farangursgeymslu bifreiðar sem
ræningjamir óku. „Við voram yfir-
leitt fluttir til að kvöldi dags,“ sagði
Jörgensen. „Við voram yfirheyrðir
og þeir spurðu okkur hvar við höfð-
úm starfað og við hvað,“ bætti
hann við. Jan Stening sagði að
ræningjamir hefðu ávallt hulið and-
lit sín er þeir ræddu við þá. „Við
voram aldrei skildir að og það veitti
okkur stuðning að geta talað sam-
an,“ sagði hann.
Talsmenn Flóttamannahjálpar-
innar hafa fullyrt að mannræn-
ingjamir séu hliðhollir al-fatah
hreyfingu Yassers Arafat, leiðtoga
Frelsissamtaka Palestínu (PLO) en
þessu neita talsmenn samtakanna.
Heimildarmenn Reuters- frétta-
stofunnar sögðu í gær menn hlið-
hollir bæði al-fatah hreyfingunni
og samtökum sem kennd era við
Abu Nidal hefðu rænt Norður-
landabúunum tveimur. Nokkrir
fylgismenn al-Fatah væra starfs-
menn Flóttamannahjálpar Samein-
uðu þjóðanna í Líbanon og þeir
hefðu staðið fyrir ráninu vegna
■
Reuter
William Jörgensen (t.v.) og Jan Stening á Lamaca-flugvelli á Kýp-
ur. Þaðan héldu þeir í gær til Ziirich i Sviss þar sem fjölskyldur
þeirra vom saman komnar.
deilna við stjórn stofnunarinnar.
Mennimir hefðu því næst verið af-
hentir mönnum Arafats og hefði
þá verið tekið að ræða hvemig unnt
væri að leysa málið án þess að
skuggi félli á samtök Palestínu-
manna. Sögðu þessar sömu heimild-
ir að mennimir hefðu verið fluttir
á milli staða í al-Hilweh og Miyeh
Miyeh flóttamannabúðnum en
síðustu þijá dagana hefðu þeir ver-
ið í haldi í hafnarborginni Sídon.
Þeir Jörgensen og Stening kváð-
ust ekki vita hveijir mannrænin-
gjamir væra né hvaða samtökum
þeir tilheyrðu.
20 fórust í brot-
lendingii í Síberíu
Vanbúið slökkvilið fékk lítið aðhafst
Moskvu. Reuter.
TUTTUGU menn biðu bana þegar sovézk farþegaþota af gerð-
inni TU-134 fórst í lendingu í olíuborginni Surgut í Vestur-
Síberíu síðastliðinn laugardag, að sögn vikuritsins Moscow News,
sem kom út í gær.
7L4SS-fréttastofan skýrði ekki
frá manntjóni er hún sagði frá
slysinu, fyrst á laugardag og síðan
á mánudag. Að sögn Moscow
News era 13 hinna slösuðu enn í
lífshættu.
Tímaritið sagði að hægt hefði
verið að bjarga mörgum hinna
látnu frá dauða ef slökkilið flug-
vallarins hefði verið betur tækjum
búið. Höfðu þeir til að mynda aldr-
ei fengið eldtraustan hlífðarfatnað
og ekki heldur reykköfunartæki.
Gátu þeir því ekki ráðist inn í
brennandi flakið, þar sem menn
hinir slösuðu sátu bjargarlausir
og brannu einn af öðram. Slökkvi-
lið borgarinnar var kallað til að-
stoðar flugvallarliðinu og gátu
liðsmenn þess bjargað nokkram
hinna slösuðu úr flakinu áður en
þeir urðu eldinum að bráð.
Að sögn ritsins var flogið með
lækna, sjúkragögn og annan
tækjabúnað frá Moskvu, Kænu-
garði og fleiri borgum til Surgut
til þess að aðstoða hina slösuðu.
Var það nauðsynlegt þar sem
sjúkrahúsið í Surgut er undir-
mannað og vanbúið lækninga-
tækjum.
Um borð í þotunni voru 45 far-
þegar og sex manna áhöfn. Hún
var að ljúka áætlunarflugi frá
Minsk í Hvíta-Rússlandi er hún
brotlenti í Surgút.