Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 7

Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 B 7 Bíóin í borginni BÍÓBORGIN Wall Street ★ ★★ Misjöfn en forvitnileg mynd af framandi veröld kauphallar- braskara og eyðingarafli peninga- kapphlaups. Stone á betur heima á vígvöllum Viet Nam en Wall Street en Michael Douglas stað- festir hér að afburðaleikur hans í Hættulegum kynnum var engin til- viljun. -sv. Sikileyingurinn ★ 1/2 Salvatore Giuliano var sögufrægur sikileyískur stigamaður sem Puzo samdi um hinn ágætasta reifara. Kvikmyndagerðarmennirnir klúðra honum hver um annann þveran af trúrri stigamennsku.-sv. Á vaktinni ★ ★ ★ V2 Pottþétt skemmtun. Besta mynd Badham til þessa og það glansar af Dreyfuss i aðalhlutverkinu. -ai. HÁSKÓLABÍÓ Hættuleg kynni ★★★★ Glæsilega uppbyggður og vel leik- inn þriller um hættuna sem hlotist getur af framhjáhaldi þegar við- haldið vill vera meira en bara stundargaman í lífi mannsins. Vek- ur spurningar og er verulega spennandi. -ai. STJÖRNUBÍÓ Eiginkona forstjórans ★'/2 Mislukkuð gamanmynd um líffæra- starfsemi fyrir neðan beltisstað. Yfirdrifin,. vantar fágaða fyndni góðra svefnherbergisgaman- mynda. Fisher Stevens er góður. -sv. Hættuleg óbyggðaferð ★ ★ Harla óvenjuleg mynd um unglinga í óbyggðaferð. Því miður kafnar útivistarstemmningin að miklu leyti í dúndrandi þungarokki.-sv. Nadine ★★V2 Lítil og geðþekk gamanmynd frá Robert Benton um sveitalega Texasbúa sem lenda í klónum á glæpahundum og eiga fótum fjör að launa. Góður leikur en burðar- litil mynd. -ai. Roxanne ★★★’/2 Nýjasta gamanmyndin með Steve Martin en í henni leikur hann nú- tímaútgáfu af hinum langnefjaða Cyrano de Bergerac. -ai. BÍÓHÖLLIN Þrumugnýr ★ ★ ★ Arnold Schwartzenegger á flótta í framtíðarþriller. Enn ein sem hittir í mark hjá Arnold. -ai. Kvennabósinn ★★ Misjafnlega góð gamanmynd byggð á sannsögulegum atburð- um um táning með smekk fyrir sér eldri konum. -ai. Spaceballs ★★★ Mel Brooks gerir grín að stjörnu- stríðs- og öðrum geimvísinda- myndum, framhaldsmyndum, leik- fangagerð og sölubrögðum í Holly- wood á sinn geðveikislega máta. -ai. Allir í stuði ★ ★ V2 Já, tveir þumlar upp. Lunkin og skemmtileg gamanmynd frá Spiel- bergsunganum Columbus. -ai. Undraferðin ★ ★ ★ Joe Dante (Gremlins) er hér aftur á ferðinni með lítið siðri skemmti- mynd sem er allt i senn bráð- fyndin, spennandi og frábærlega vel unnin tæknilega. -sv. Týndir drengir ★ ★. Gaman- rokk- unglingahrollvekja með ágætum leikarahópi og brell- um en innihaldið heldur klént. -ai. REGNBOGINN Hefndaræði -k'/z Deigt járn væri frekar réttnefni en Kalt stál á þessari fisléttu löggu-og bófamynd. Brad Davis er ótrúverðugur í aðalhlutverkinu, en Jonathan Banks er að verða eftirlætis illyrmi b-myndaframleið- enda Hollywoodborgar og stendur sig þokkalega í stykkinu. -sv. Örlagadans ★ ★'/2 Tom Hulce er frábær í þessum nýbylgjulega þriller um skop- myndateiknara sem verður að hreinsa sig af morðákæru og koma fjölskyldumálunum í lag. Miklir stælar og smartir. -ai. Otto ★★ Hreinræktaður ærslaleikur, („slapstick"), er fáséður í dag, en undir hann er einna helst hægt að flokka fíflalæti furðufuglsins Otto hins frísneska. -sv. Síðasti keisarinn ★★★ V2 Epískt stórvirki. Efnið og kvik- myndagerðin með ólíkindum margsiungin. Siðasti keisarinn er næsta óaðfinnanleg að allri gerð og hefur kvikmyndaárið 1988 með glæsibrag. -sv. Hliðið ★★'/2 Þokkaleg B-hrollvekja; margtugg- inn söguþráður en sæmilegar brellur. -sv. Kæri sáli ★★V2 Fjörugur stjörnuleikur einkennir þennan sálræna farsa úr Beverly Hills, sem gerir græskulaust grin að Ijósvakasálfræði. -ai. í djörfum dansi ★ ★ ★ Hressileg og drífandi mynd, keyrð áfram af liflegri tónlist sjöunda áratugarins en þó enn frekar af dansi sem ætti jafnvel að kveikja líf með dauðyflum! -sv. Morð í myrkri ★ ★ ★ Ásjáleg spennumynd frá frændum vorum dönum um eymdarlegt mannlíf í Istegade. Hæg en raunsæ. -sv.- LAUGARÁSBÍÓ Beint í mark ★ ★ Formúlumynd um löggufélaga í eltingaleik við eiturlyfjasala. Þær eru nú búnar að koma nokkrar svona, maður! -ai. Hrollur 2 ★ Hér leggst lítið fyrir hryllingskapp- ana Romero og King sem báðir eiga þátt í þessari útvötnuðu B- mynd sem er ekkert annað og meira en ósmekkleg og ódýr. -sv. FRAMHALDSÞÆTTIR Hvar/Hvenær Sjónvarpið: Fyrirmyndarfaðir kl. 20.45 Sextán dáðadagar ... sunnudagur kl. 19.05 Paradis skotið á frest sunnudagur kl. 21.40 Allt í hers höndum ... mánudagur kl. 19.20 Háskaslóðir kl. 18.25 Af heitu hjarta kl. 21.45 Listmunasallnn þriðjudagur kl. 22.10 Anna og félagar fimmtudagur kl. 18.30 Austurbæingar kl. 19.25 TflQQflrt ■■■ fimmtudagur kl. 21.30 Sindbað sœfarl kl. 18.00 Staupastelnn föstudagur kl. 19.30 Derrick kl. 21.25 Stöð 2: Ferdlnand fljúgandi kl.11.15 Ættarveldlö kl. 15.30 FrfAa og dýrlð kl. 20.10 Geimálfurinn .....kl. 12.00 Hooperman ■••• sunnudagur kl. 20.10 Lagakrókar kl. 23.05 Hinir vammlausu kl. 23.50 Vaxtarverklr kl. 18.45 Dallas kl. 22.45 Feldur kl. 18.15 Af bse f borg kl. 18.45 Bítlar og blómabörn . kl. 22.00 Valdstjórinn ■■■■■■■■■•■■ föstudagur kl. 18.45 Séstvallagata kl. 20.30. ÍSLENSK NÁTTÚRA BERGKRISTALL Þetta er bergkristall frá Þor- geirsfelli á Snæfellsnesi. Hér á landi eru kunn 12 afbrigði af kvarsi og er bergkristall einna algengust þeirra. Kvars er útbreytt í holum og sprungum i ummynduðu gos- bergi. Holufyllingar þessar eru myndaðar úr efnum sem heitt jarðvatn hefur leyst upp úr berginu. Allar helstu teg- undir islenskra holufyllinga eru að sjá í sýningarsal Nátt- úrugripasafnsins í Reykjavík. Sýningar Náttúrugripasafnið á Akureyri Sýningarsalurinn er i Hafnarstræti 81, jarðhæð. Þareru uppsettir allir íslenskir varpfuglar ásamt eggjum, mikið af skor- dýrum, krabbadýrum, skrápdýrum, skel- dýrum og kuðungum. Þar eru einnig til sýnis þurrkaðir sjóþörungar, fléttur, sveppir, mosar og nær allar villtar blóm- plöntur og byrkningar á íslandi. Einnig má sjá þar bergtegundir, kristalla og steingervinga. Á veturna er sýningarsalurinn opinn frá kl. 13.00 til 15.00, á öðrum tímum fyrir hópa eftir samkomulagi i símum 22983 og 27395. Minja- og náttúrugripasafnið Dalvík i Minja- og náttúrugripasafninu í Safna- húsinu eru til sýnis uppstoppuð dýr auk eggja-, plöntu- og steinasafna. Safnið er opið á sunnudögum frá kl. 14.00 til 18.00. Upplýsingar í síma 61104. Náttúrugripasafnið í Reykjavík Náttúrugripasafnið er til húsa á Hverfis- götu 116,3. hæð (gegnt Lögreglustöð- inni). Þar má sjá sýnishorn af íslenskum og erlendum steintegundum og íslensk- um bergtegundum. Ur lífríkinu eru krabbadýr, lindýr, skrápdýr, spendýrog fuglar, þ. á m. geirfuglinn, og risaskjald- baka. Þá eru einnig þurrkuð sýni af flest- um íslenskum blómplöntum s.s. mosum, fléttumog þörungum. Sýningarsalurinn er opinn þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30 til 16.00. Nánari upplýsingar ísíma 29822. Náttúrufræðistofa Kópavogs Náttúrufræðistofa Kópavogs, er á Digra- nesvegi 12,jarðhæð. Þarstenduryfir sýning á lifríki Kársnesfjöru. Ásýningunni gefur að líta margar tegundir botnlægra þörunga sem finnast i fjörum og hrygg- leysingja. ISkeljasafni Náttúrufræðistof- unnar eru flestar tegundir lindýra með skel sem finnast við Island. Stofan er opin á laugardögum frá kl. 13.30 til 16.30. Nánari upplýsingar í simum 20630 og 40241. Safnahús Borgarfjarðar Borgarnesi Náttúrugripasafniö verður lokið um óákveðinn tima vegna breytinga. Safnahúsið Húsavík Safnahúsið er við Stóra-Garð. í náttúru- gripasafninu eru til sýnis á annaö hundr- að fuglategundir, Grimseyjarbjörninn, mjög gott skeljasafn og ýmsir aörir nátt- úrugripir. Einnig eru náttúrugripir í stofu Jóhanns Skaftasonar sýslumanns og Sigríðar Víðis, ístofu Lissýará Halldórs- stöðum í Laxárdal og i Kapellunni. Safna- húsið er opið frá kl. 9.00 til 14.00 virka daga. Nánari upplýsingar í sima 41860. Náttúrugripasafnið í Neskaupstað Náttúrugripasafnið er að Mýrargötu 37. Þar er að sjá gott safn steina, fugla og fiska, auk lindýra og skeldýra. Safnið er opið yfir sumarmánuðina en á veturna þarf að hafa samband við forstöðumann i sima 71606 fyrir heimsókn á safnið. Dýrasafnið á Selfossi Dýrasafnið er við T ryggvagötu 23 og þar má sjá uppstoppuð mörg algeng íslensk dýr og auk þess hvítabjörn, mikið af fugl- um og gott eggjasafn. Safnið er opið daglega á sumrin en á veturna á fimmtu- dögum frákl. 14.00 til 17.00. Sími safns- inser2703og2190hjá saf nverði og eru hóparvelkomnir að hafa samaband við safnvörð um sérstakan opnunartima. Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja Fiska- og náttúru’gripasafn Vestmanna- eyja er til húsa að Heiðarvegi 12. Safniö er opið frá 1. maí til 1. september, alla dagafrá kl. 11.00 til 17.00. Aðra mán- uði ársins er opið laugardaga og sunnu- daga kl. 15.00 til 17.00, en hópar sem ekki geta notað ofanskráða tíma, geta haft samband við safnvörð, Kristján Egils- son, isíma 1997 eða 2426. í safninu eru þrírsýningarsalir. Fuglasafn, með uppstoppaðar allar tegundir íslenskra varpfugla. Eins er mikill fjöldi uppsettra svokallaðra flækingsfugla. Eggjasafn, flóra Vestmannaeyja og skordýr. Fiska- safn. í 12 kerjum eru til sýnis lifandi, flestallar tegundir nytjafiska landsins, ásamt kröbbum, sæfiflum o.fl. sjávardýr- um. Steinasafn. I steinasafninu eru sýnis- horn flestallra íslenskra steina, ásamt bergtegundum frá Vestmannaeyjum. Fastakynningar Hafrannsóknastofnunin Reykjavík Hafrannsóknastofnun, Skúlagötu 4, jarð- hæð. í anddyrinu er sjóker með fjöru- lífverum s.s. nokkrum tegundum af lif- andi þörungum, skeldýrum, krossfiskum, ígulkerjum, krabbadýrum sprettfiskum o.fl. Barnaheimil.i og skólar sem hafa áhuga á að skoða lífverurnar í kerinu eru beðnir að láta vita í sima 20240 með dags fyrirvara. Anddyriö er opið virka daga frá kl. 9.00 til 16.00. FALLEG OG VÖNDUÐ HÚSGÖGN í ALLA ÍBÚÐINA Þar sem góðu kaupin gerast. Smiðjuvegi 2 Kópavogi simi 44444 INNRÉTTINGA- OG HÚSGAGNASÝNING UM HELGINA OPIÐ LAUGARDAG KL. 10 - 16 OG SUNNUDAG 14 -17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.