Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 15

Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 B 15 Kapteinninn, hermenn f ram- tíðarinnar og tölvuleikirnir Guðað á skjáinn Stöð 2 hóf nýlega að sýna barna- og unglingaþættina „Captain Power and the Soldiers of the Future“ (Valdstjórinn) á föstudagssíðdögum. Þetta eru glænýir vísindaskáldskaparþætt- ir (frumsýndir vestra sl. haust), sem gerast í fjarlægri framtíð og eru um baráttu manna við vél- menni sem tekið hafa völdin á jörðinni. Það merkilega við þessa þætti er ný leikfangatækni sem byggir á samspili myndarinnar á skjánum og þartilgerðra leik- fanga sem börn a.m.k. í Banda- ríkjunum geta keypt. Með þess- um leikföngum er hægt að skjóta á hina vélrænu óvini mannanna í þáttunum úr stofunni heima hjá sér og tvístra þeim, eins og sagt er. Leikfangaiðnaðurinn hefur á undanförnum árum verið að hasla sér völl innan kvikmynda- iðnaðarins eins og menn vita; Garpur og Rambó og Karate- strákurinn berjast um plásið í leikfangabúðunum. Leikfangafyr- irtækið Mattel Toys, sem fram- leiðir m.a. Garp og hetjur geims- ins, er einnig framleiðandi þátt- anna um valdstjórann og það gerir að sjálfsögðu einnig dúkkur og dót úr persónum og tækjum þáttanna. Það var framleiðandinn og leikstjórinn Gary Goddard sem átti hugmyndina að því að blanda saman í eitt sjónvarpsþáttum og því sem kalla má einfaldlega tölvuleiki (krakkar geta skotið beint úr leikföngunum sínum á sjónvarpsskerminn) í Valdstjór- anum. Hann fór með hugmynd- ina til Mattel Toys og yfirmenn *: j. v*\ Ur rústum Vélstríðanna rísa hetjan Power kapteinn og hermenn framtíðarinnar. Skotið á skjáinn; beint samband við BioDread. þar tóku henni vel en Goddard leikstýrði einmitt bíómyndinni sem gerð var eftir sögunum um Garp („He-Man") fyrir Mattel. Leikfangafyrirtækið samþýkkti að kosta fyrstu 22 þættina um valdstjórann og hermenn hans. „Það hefur að vísu ekki verið þáttunum til framdráttar að vera tengdir Mattel vegna þess að kaupendur halda að hér sé ein- ungis um barnaefni að ræða," segir Goddard. „En þættirnir eru sannarlega gerðir með breiðari áhorfendahóp í huga. Ég segi ekki að Valdstjórinn sé ekki fyrir krakka. Ég er bara að segja að þættirnir séu ekki aðeins fyrir þá.“ Þættirnir gerast árið 2147. Þá eru sjö ár liðin frá Vélstríðunum, baráttunni á milli manna og maskína sem maskinurnar unnu. Undir forystu hins illa Lord Dread og vélmenna (eða dýra) hans reynir keisaradæmið BioDread að hremma í þrældóm síðustu leifar mannkynsins. En úr ösku Vélstríðanna hafa Jónatan Power risið og menn hans, hermenn framtíðarinnar, sem í sérstaklega hönnuðum herklæðum eiga í stöðugri baráttu við Dread og hans illa veldi. Maður getur næstum heyrt skrjáfið í gömlu hasarblöðunum. Nýjabrumið eru auðvitað tölvuteiknuðu vélmennin í þátt- unum og leikföngin sem áhorf- endur geta skotið þau niður með fyrir framan imbann, en það er best að taka það fram ef einhver er ennþá í vafa að þættirnir eru að sjálfsögðu líka fyrir þá sem' ekki eiga þessi leikföng. Goddard og fleiri höfundar þáttanna höfðu áhyggjur af því að leikfangagerö- in tæki yfirhöndina og allt mundi snúast um tölvuleiki. „Við skrif- um ekki þættina með það í huga að gera hvern þátt að tölvuleik," segir Larry DiTillio, yfirmaður handritagerðarinnar. „Þættirnir eru um manneskjur og hvernig þær tengjast hver annarri og umhverfi sínu. Þeir eru ekki um leikföng." Þó ekki alveg. Goddard notar um hálfa mínútu af hverjum þætti í skotbardaga á milli leikfangsins í höndum áhorfandans og vél- mennanna og tvær mínútur eru tölvuteiknaðar („computer ani- mation"). Goddard lýsir því hvernig tölvuleikurinn fer fram: „Þegar bardagi er settur á svið í þáttunum fer í gang Ijósmerki á milli vélmenna Dread hins illa og leikfangsins. Þegar kveikt er á leikfanginu (geimskip sem er nk. byssa) les það merkið af skerminum og skýtur Ijósgeisla að því. En þegar þú skýtur á vélmennin geta þau líka skotið á ' þig. Þú byrjar með fimm stig og markmiðið er að hitta nógu mikið af vélmennum til að fá 25 stig. Ef vondu kallarnir hitta aftur geimskipið þitt og taka af þér stig, opnast flugstjórnarklefinn á því og flugmaðurinn skýst út. Þetta virðist kannski flókið en er það ekki.“ - _ aj DYRAVÖRÐURINN SEM ALDREI SEFUR Á VERÐINUM Pú þarft ekki lengur að taka úr þér hrollinn þegar heim kemur eftir að Stanley bíl- skúrshurðaropnarinn er kominn í þjónustu þína. Þú ýtir á senditækið, það kviknar Ijós, bílskúrshurðin opnast og þú ekur inn í ylinn og stígur þurrum fótum út úr heitum bílnum þínum. ÞÚ FERÐ BETUR MEÐ BÍLINN ÞINN Á morgnana losnar þú við að skafa ísinn af rúðunum, eða þurrka snjóinn af og bíllinn fer strax í gang. Þetta er ekki sagt út í blá- inn því að reynslan sýnir að það eru ótrú- lega margir sem nenna ekki að láta bílinn inn í bílskúr ef mikið er fyrir því haft. 1. 2. 3. Sterk og örugg færslubraut. Við uppsetningu er óþarfi að fjarlægja mótorhlífina því að það er hægt að stilla búnaðinn utanfrá. Öryggisljós kviknar í hvert sinn er hurð- in opnast og lokast, - logar í 31/2 mín- útu - slokknar sjálfkrafa. ÞÆGINDI OG ORYGGI ERU AÐALATRIÐI Hurðin hefur öryggisloka þ.e. hún hörfar til baka ef einhver fyrirstaða er í veginum. Það þekkir enginn lykilnúmerið nema þú og þínir nánustu. Þú getur valið úr 1024 rafsegulbylgjum á senditækinu þínu og getur breytt merkjasendingunni þegar þér sýnist. Það ætti því ekki að vera auðvelt fyrir óviðkomandi að komast inn í húsið þitt með öðru senditæki. Opnarinn er samþykktur af Rafmagnseftir- liti Ríkisins og Radíóeftirliti Landsímans. Stanley bílskúrshurðaropnarar fást í öllum helstu byggingarvöruverslunum. OPNAR HURÐINA KVEIKIR LJÓSIÐ LOKAR HURÐINNI LÆSIR HURÐINNI ■ ' <- 1 ''lili | L y ) ALLAR STANLEY VORUR ERU VIÐURKENNDAR FYRIR GÆÐI STANLEY

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.