Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 16
*16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
MYNDBÖND Á MARKAÐNUM
■
Futureworld. Leikstjóri Richard T Heffron. Blade Runner. Leikstjóri Ridley Scott.
VISIIMDASKÁLDSÖGUMYIMDiR I
2001: A Space Odyssey. Leikstjóri Stanley Kubrick.
CHARLY
★ ★ ★
Leikstjóri Ralph Nelson. Cliff Ro-
bertson (fékk Óskarsverðlaunin
fyrir hlutverkið 1968) leikur listavel
vangefinn mann sem vísindin
breyta í snilling — en aðeins um
stundarsakir. Túlkun Robertson á
vonargleðinni, sem síðan brestur,
er minnisstæð. Langbesta mynd
Nelsons. Cliff Robertson, Claire
Bloom, Lilia Scala. 1968. 103 mín.
THETERMINATOR
★ ★ ★
Leikstjóri James Cameron.
Óhemju kraftmikil framtíðarsýn af
Los Angeles næstu aldar. Vél-
mennið og vígahrappurinn
Schwarzenegger er fluttur í gegn-
um tíma til að koma fyrir kattarnef
lífveru sem annars verður honum
skeinuhætt. Cameron lejkstýrir af
ógnarkrafti og Schwarzénegger
fyllir eftirminnilega uppí hrikalega
ímynd hálftröllsins. Vígaleg en
einkar spennandi afþreying. 1984.
108 mín.
SPACEHUNTER:
ADVENTURESINTHE
FORBIDDEN ZONE
V2
Leikstjóri Lamont Johnson. Hefur
að líkindum átt að verða gáskafull-
ur útúrsnúningur vinsælla vísinda-
fantasía einsog Star Trek- og Star
Wars- myndanna, en er þess í stað
með ólíkindum klén. Enda leikstýrt
af kunnum sjónvarpsmyndaleik-
stjóra sem hefur margsýnt að hef-
ur ekki getu til að glíma við stóra
tjaldið, sama máli gegnir um aðal-
leikarann. Peter Strauss, Molly
Ringwald, Ernie Hudson, Michael
Ironside. 1983. 95 mín
CLOSEENCOUNTERS OF
THETHIRD KIND
★ ★ ★ 1/2
Leikstjóri Steven Spielberg. Hér
getur galdramaðurinn í Hollywood
í eyðurnar sem haldið hafa vöku
fyrir ófáum mannverunum á þess-
ari plánetu í gegnum aldirnar; hvað
gerist ef við fáum gestakomu utan
úr geimnum? Svörin eru glúrin,
sveipuð heillandi ævintýrablæ en
þó einlæg. Ein besta mynd þessa
völundar sem seint virðist ætla að
fá að njóta sannmælis innan
Bandarísku kvikmyndaakademí-
unnar. Richard Dreyfuss, Francois
Truffaut, Teri Garr, Melinda Dillon.
1977. 135 mín.
PROJECT X
★ ★ 1/2
Leikstjóri Jonathan Kaplan. Falleg
og hugljúf, ekki vantar það, en
ófullnægjandi og endaslepp mynd
um ungan hermann sem lækkaður
er í tign og fenginn starfi við þjálf-
un simpansa í leynilegu verkefni á
vegum flughersins. Þegar í Ijós
kemur að apanna bíður aðeins
dauðinn leggur piltur á ráð þeim
til bjargar. Soldið vemmilegt allt-
saman, og apinn Virgil fer með
leiklistarverðlaunin. Matthew
Broderic, Helen Hunt, Bill Sadler.
1987. 108 mín.
THE LAST STARFIGHTER
★ ★
Leikstjóri Nick Castle. Geimverur
finna einfalt ráð til að hafa uppá
afburðaskyttu úr röðum jarðarbúa,
planta niður leiktækinu „stjörnu-
stríðsmaðurinn", sækja síðan efni-
legasta keppandann til Jarðar og
varpa honum útí alvöruna! Ekki
háreist en einföld og saklaus gam-
anmynd, byggð á ágætri hugmynd.
Preston heitinn í góðu, gamal-
kunnu formi í sinni síðustu mynd.
Lance Guest, Robert Preston, Dan
O’Herlihy. 1984. 96 mín.
HOWARD THE DUCK
★
Leikstjóri Williard Huyck. Stór-
furðuleg mistök Huyck og hand-
ritshöfundsins Katz, en þau hjónin
hafa unnið í sameiningu að af-
bragðsmyndum einsog Indiana
Jones and the Temple of Doom,
Close Encounters, o.fl. Að auki er
þessi fáránlegi samsetningur (fyrir
hvaða aldurshóp?) um geimönd,
af öllum skepnuml, fjármagnaður
af Amblin fyrirtæki Spielbergs.
Ekkert dugar til, þetta er risavax-
inn vanskapnaður.
STARMAN
★ ★ ★
Leikstjóri John Carpenter. Fyndin,
spennandi og óvenjuleg mynd úr
smiðju hryllingsmyndaleikstjórans
Carpenters. Bridges leikur
geimbúa sem verður strandaglóp-
ur á Hótel Jörð, og verður ást-
fanginn af Karen Allen í ofanálag!
Stjörnurnar Ijá myndinni mikinn
sjarma og útkoman er einkar geðs-
leg afþreying. 1984. 115 mín.
BRAINSTORM
★ ★ 1/2
Leikstjóri Douglas Trumbull. Hefði
sjálfsagt getað orðið ein af kunn-
ari v.s.-myndum ef ólánið hefði
ekki elt kvikmyndagerðina frá upp-
hafi. Trumbull (m.a. brellumeistari
2001) á eina frábæra slíka mynd
að baki, en hann fór oft yfir fjárveit-
ingarnar, en aðaláfallið var sviplegt
dauðsfall Woods, sem tafði lok-
afrágang myndarinnar á annað ár
og krafðist talsverðrar endurritun-
ar handrits og endurtaka svo hægt
væri að notast við þær tökur sem
tilbúnar voru er leikkonan drukkn-
aði. Hér bólar engu að síður á
óvenju forvitnilegri mynd á bak við
björgunaraðgerðirnar. Christop-
her Walken, Natalie Wood, Cliff
Robertson, Louise Fletcher. 1983.
102 mín.
MAROONED
★ ★ 1/2
Leikstjóri John Sturges. Ein fyrsta
kvikmyndin sem fjallar um strand
Eraserhead. Leikstjóri David
Lynch.
Jubilee. Leikstjóri Derek Jarman.
Phantom of the Opera. Leikstjóri
Rupert Julian.
út í himingeimnum. Bandarískt
geimfar nær ekki til Jarðar án hjálp-
ar. Útþynnt með alltof löngum inn-
skotum um heimilislíf geimfaranna
og langdregnum, vísindalegum út-
skýringum. Brellurnar það besta.
Gregory Peck, Richard Crenna,
Gene Hackman, James Francis-
cus, David Jansen, Lee Grant.
1969. 130 mín.
Britannia Hospital. Leikstjóri
Lindsay Anderson.
Repulsion. Leikstjóri Roman Pol-
anski.
THEMANWHO
FELLTO EARTH
★ ★ 1/2
Leikstjóri Nicolas Roeg. Allar
myndir Roegs eru forvitnilegar bg
þessi er engin undantekning.
Bowie fer vel með hlutverk geim-
veru sem kemur til Jarðar í leit að
vatni. Smávegis rómantík, smá-
vegis drama. Lítil og Ijúf. David
Bowie, Candy Clark, Rip Torn,
Buck Henry. 1976. 140 mín.
THE HIGHLANDER
★ ★ 1/2
Leikstjóri Russell Mulcahy. Það
eru bæði góðar og fagrar brellur
og einstök smekkvísi í meðhöndl-
un og kunnátta á leyndardómum
kvikmyndavélinnar, sem lyfta
Highlander yfir meðalmennskuna,
en Mulcahy er frægur auglýsinga-
myndaleikstjóri. Sagan er frumleg;
tvær ættir heyja hefndarstríð í
gegnum tíma og rúm. Connery er
góður að vanda og hinn franski
Lambert fellur vel í hlutverk sitt.
1986. 108 mín.
1984
★ ★ ★
Leikstjóri Michael Radford.
Óhugnanleg framtíð undir hauk-
fránu augliti Stóra bróður kemst
til skila í góðri persónusköpun og
leik Hurts og Burtons og grimmum
og köldum leiktjöldum. Fráhrind-
andi og slítandi en engu að síður
með athyglisverðustu v.s-myndum
áratugs Orwells. John Hurt, Ric-
hard Burton, Suzanne Hamilton,
Cyril Cusac. 1984. 112 mín.
TIME BANDITS
★ ★ ★
Leikstjóri Terry Gilliam. Meinfynd-
in, Monty Pythonsk skopmynd um
drengsnáða sem leggur upp í
heimsreisu í gegnum tíðina ásamt
sex dvergum! Ýmsar óvæntar per-
sónur koma við sögu, svo sem
Hrói höttur, Agamemnon og
Napóleon. Absúrd og indæl. Sean
Connery, Shelley Duvall, John Cle-
ese, Katharine Helmond, lan
Holm, David Warner. 1981. 116
mín.
OUTLAND
★ ★ ★
Leikstjóri Peter Hyams. Geim-
vestri, nánar tiltekið endurgerð
High Noon, sem að þessu sinni
gerist á námusvæði á einu tungla
Júpíters. Forvitnileg, spennandi og
framandleg og Connery í essinu
sínu að venju, í hlutverki lögreglu-
stjórans. Sean Connery, Frances
Sternhagen, Peter Boyle. 1981.
109 mín.