Morgunblaðið - 19.03.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.03.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1988 B -7 Lokaatriði úr Leðurblökunni eftir Johann Strauss. og vanda af músíkhliðinni meðan hans naut við, en eftir hans dag var hlutur dr. Róberts A. Ottósson- ar drýgstur; þar komu og ýmsir góðir erlendir tónlistarmenn við sögu. Þessar fyrstu íslensku óperu- sýningar vöktu mikla athygli og hlutu yfirleitt góða aðsókn, en þegar kom fram á sjöunda áratug- inn, var nýjabrumið farið af og dofnað hafði áhuginn, þrátt fyrir nokkrar góðar sýningar eins og Rakarann í Sevilla (1958-’59) og Madame Butterfly (1965). Áhug- inn vaknaði ekki að ráði aftur fyrr en á áttunda áratugnum, þegar komu fram nokkrar sýningar, sem hlutu metaðsókn eins og Carmen og Leðurblakan (þar sem Guðrún Á. Símonar var hyllt í hlutverki gests í veislu Orlofskys) og svo þegar fóru að koma fram íslensku verkin Þrymskviða Jóns Ásgeirs- sonar (Guðrún í hlutverki Freyju) og Silkitromma Atla Heimis Sveinssonar. Og svo með tilkomu íslensku óperunnar. En þennan fyrsta áratug íslenskrar óperu, þar sem Guðrún var í forystusveit (mér er ókunn- ugt um, hvers vegna kraftar henn- ar voru ekki nýttir meira fyrst eftir að hún kom heim úr Ameríku- dvölinni) — Þennan tíma, þegar akurinn var plægður, verður að virða sem.tíma merkilegs menn- ingarlegs framtaks. Á þessu tíu ára skeiði flutti Þjóðleikhúsið ekki færri en 13 óperur og óperettur, sem er svipaður fjöldi og Íslenska óperan hefur flutt á sínum fyrstu tíu árum, en þess ber að gæta, að jafnframt flutti Þjóðleikhúsið á annað hundrað verk af öðru tagi, mest leikrit, sem og er lögum sam- kvæmt aðalhlutverk þess að sýna. Með tilkomu íslensku óperunn- ar hefur þó opnast grundvöllur fyrir breiðara óperustarf, áhugi hefur tvímælalaust aukist, og möguleikar á meiri fjölbreytni í verkefnavali eru fyrir hendi, jafn- vel, að heilbrigð samkeppni gæti örvað til hærri listræns stuðuls, eftir að tvö hús eru um hituna líkt og raunin varð, eftir að atvinnu- leikhúsin urðu tvö í Reykjavík. En að einu leyti hefur þó lítið breyst frá frumbýlingsárunum í Þjóðleik- húsinu. Með tveimur, eða kannski nú upp á síðkastið þremur undan- tekningum, hefur atvinnugrund- völlur þorra íslenskra söngvara lítið batnað og enn þurfa flestir þeirra að sætta sig við að vera kallaðir til leiks á tveggja ára fresti, ef þá svo vel vill til. Kannski var jarðvegurinn ekki tilbúinn, þegar Guðrún og félagar hennar numu hér land á óperusviðinu. En í dag ætti hann að vera það. For- dæmi íslenska dansflokksins hefur kennt okkur að skilja muninn. ís- lenskir söngvarar eiga auðvitað, eins og aðrir sviðslistamenn, að geta helgað sig sinni list óskiptir og við mannsæmandi laun. Nýlega skilaði nefnd tillögum um stofnun óperuflokks á vegum ríkisins, flokks, sem nýst getur báðum húsum, Þjóðleikhúsi og Gamla bíói og svo öðrum þeim aðiljum, sem dug hafa til að koma upp óperu- sýningum og annarri skyldri starf- semi á sviði sönglistar. Er von- andi, að slík skipan komist sem fyrst á (með tilkomu Tónlistar- hússins opnast svo enn einn vett- vangur fyrir óperuflutning). Þann- ig má leysa þessi mál mjög í anda Guðrúnar og annarra óperufrum- heija. Síðustu ár sín helgaði hún einmitt því, að koma kunnáttu sinni og listrænni innsýn áleiðis hjá nemendum sínum og búa þannig í haginn fyrir næstu kyn- slóðir íslenskra söngvara. Höfundur er rithöfundur og leik- stjóri. Guðrún Á. Símonar og Einar Kristjánsson sem Rósalinda og Eisen- stein í Leðurblökunni eftir Johann Strauss. Þjóðleikhúsið 1952. í kjallara okkar í Pósthússtræti 9 og í Grafíksalnum í Austurstræti 10 má finna margt eigulegra verka, sem við höfum verið beðin um að útvega kaupendurað. Dæmi um verk á söluskrá: Baltasar„Sunnudagur“ (Reiðmaður við Elliðaár) olia á striga 1971, 80x100 cm. Eiríkur Smith „Blágul" vatnslitamynd frá 1965, 43x29 cm. „Brún nótt“ olia á striga 1963, 100x55 cm. Ferró „Sítrónur" uppstilling, olía á masonit 1958, 29x49 cm. „Ævintýri" vatnslitur 1953, 51x31,5 cm. Einar G. Baldvinsson „Frá Dritvík" olía á.striga, 60x75 cm. Flóki „Andlit" krit 1982, 58x48 cm. „Kona“ rauðkrít nóv. 1958, 39x26 cm. Jóhanna Kristín „Vændiskona" olía á striga, 72x72 cm. „Grænlensk kona" olía á striga, 79x69 cm. Jóhannes Geir „Frá Reykjavik" olía á striga 1967, 95x115 cm. „Við Elliðaár" olia á striga 1978, 80x100 cm. „Arnarfell" olía á striga, 85x120 cm. „Úr Grafningi" olía á striga, 94x127 cm. Karl Kvaran „Ástarjátning" gvash, 90x71 cm. Karólína Lárusdóttir „Uppstilling" vatnsl. 40x29 cm. „Uppstilling" vatnsl. 38x30 cm. Magnús Kjartansson „Abstraktion" olia á striga 1969, 105x80 cm. Pétur Friðrik „Blóm í vasa“ olía á striga (gömul), 79x69 cm. Sigurður Kr. Árnason „Grámosinn glóir" olia á striga 1980, 74x98 cm. Valtýr Pétursson „Abstraktion" olia á striga 1966, 70x55 cm. „Húsið við hafið" olia á striga 1978, 80x60 cm. Einnig eigum við verk eftir: Ásgrím Jónsson, Brynjólf Þórðarson, Gunn- laug Blöndal, Guðmund Thorsteinsson „MUGG", Gisla Jónsson, Jón Jóns- son, Jón Stefánsson, Jón Engilberts, Jón Þorleifsson, Jóhannes S. Kjarval, C Magnús Jónsson prófessor, Olaf Túbals, Svein Þórarinsson, Þorvald Skúla- son, Þórarinn B. Þorláksson og fleiri. éraé&Lc BÖRG LISTMUNIR-SYNINGAR-UPPBOÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.