Alþýðublaðið - 16.10.1920, Blaðsíða 1
Grefiö út ai A.lþýðnflokkuum,
Laugajdaginn 16. október.
1920
Sósíalistar og
(NI)
Aðaltnunurinn á sósíalistum og
kommúnistum er þá þessi, að só-
síalistar (jafnaðarmenn) vilja taka
framleiðslutækin smátt og smátt,
og greiða þau að fullu, en kom-
múnistar vilja taka meirihluta
þeirra í einu, eða á mjög skömm-
ura tíma, og þeir vilja gera þau
upptæk án þess að verð komi
fyrir, því þeir segja að það sé að
réttu lagi þjóðin (almenningur)
sem eigi þau (sbr. það sem sumir
segja: Guð á allar eignir, og það
verður að fara þannig með þær
að aimenningur njóti þeirra, en
«kki einstakir menn), Kommúnist-
ar afnema þó ekki eignarréttinn
á því, sem í beinásta skilningi er
eignarréttur einstaklinganna, svo
sem það sem hver framieiðir sjálf-
ur, eða það sem hann þarf til
persónulegrar notkunar, svo sem
fatnað, nauðsynlega búsrauni o s.frv.
Sósíalistar hafa með sér alþjóða-
fclagsskap, sem nefndur er 2. al-
þjóðafélagið (2. Internationale), en
kommúnistar hafa með sér alþjóða-
félagsskap sem aefndur er 3. al-
þjóðafélagið (3 Internationale) og
stendur stríð um það í verka-
ttiannaflokkum í flestum löndum,
hverju alþjóðasambandinu þeir eigi
fylgja. Danski verkamanna-
^okkurinn er í 2. aþjóðasamband-
l!Ju, en sá norski er f 3. alþjóða-
samb. (alþjóðabandalagi kommún-
ísta)
Bæði alþjóðafélögin hafa haídið
fl>ndi eða þing á þessu sumri.
^afa kommúnistar sett mjög ströng
skiiyrði fyrir upptöku í alþjóða-
^'8gsskap sinn, meðal annars að
Þcir flokkar, sens í honum væru
tækju upp kommúnistanafnið og
íiKkju ana verkamannaforingja frá
völdum, sem ekki játuðu skilyrð
’slaust stefnuskrá kommúnista.
staðið rnikil deila um það í
v^isum verkamarmaflokkum hverju
‘llþjóðafé!aginu þeir eigi að fylgja,
kommúnistar.
og stendur sú deila yfir enn, meðal
annars í flokki óháðra jafnaðar-
manna í Þýzkalandi. Heidur sá
flokkur allsherjarþing í þessutn
mánuði í borginni Halle, og verð-
ur þá tekin ákvörðun um hverri
stefnunni eigi að fylgja. Háfa tveir
af aðalstjórnendum 3. aiþjóðafél.,
þeir Sinovjeff og Bucharin, boðað
kotnu sína þangað. og beðið þýzku
stjórnina um vegábréf.
€rlenð simskeyii.
Khöfn, 15. okt.
Heimastjórnarlög írlands.
Símað er frá London, að neðri
málstofa brezka þingsins komi
s'jman á þriðjudaginn kemur, og
byrji þegar að ræða um heima-
stjórnariögin.
F ýzka prentaraverkíallinu lokið
Símað frá Berlín, að Berlínar-
bjöðin séu nú aftur farin að koma út.
Árás á pólitík Lloyd George.
Blaðið Matin ræðst mjög að
pólitfk Lloyd George.
Fnndur óháðra jafnaðarmanna.
Óháðu jafnaðarmennimir þýzku
halda þing í Haile til þess að
ræða um afstöðu sína til 3. al-
þjóðasambands verkamanna (bolsi-
víka).
Apabit.
Símað er frá Aþenu, að uppá-
haldsapi Alexanders konungs hafi
bitið harfti nýlega, og liggi hann
fyrir dauðanum.
Hlntaveltn fyrir templara held-
ur st. Skjaldbreið á morgun, sem
sjá má af auglýsingu á öðrum stað
í blaðinu.
238. tölubl.
Saltfiskslollnrim á Spáni.
Það hefir flogið fyrir hér á landi,
líklega tekið eftir norskura blöð-
ura, að saltfiskstollur hefði hækk-
að allmikið á Spáni, eða alt að
26,50 procent. Nokkuð er að vísu
hæft í þessu, en þó ekki það, að
tollurinn hafi hækkað. Utanríkis-
máladeild Noregs gerði fyrirspurn
um þetta til sendiherra síns í Mad-
rid, og fékk það svar, að tollur-
inn hefði ekki verið hækkaður, en
að fregnin um hækkun mundi
stafa af mismuninum á verðgildi
gull- og pappírspeninga. sömu
myntar. Samkvæmt spönskum lög-
um 20. marz 1906 á sem sé að
greiða inn- og útflutningsgjöld í
gulli, og vegna þess að verðmun-
ur á guli- og pappírspeningum
(spönskum) er nú 26,71 procent,
verður að slengja þessu gjaldi of-
an á spanskar tollgreiðslur —
einnig af saltfiski — svo framar-
lega að þær séu greiddar í papp-
írspesetas (spánskri mynt).
Erlend ixiynt.
Khöfn 15- okt.
Sænskar krónur (100) kr. 142,00
Norskar krónur (100) — 98,75
Dollar (1) — 7,24
Pund sterling (1) — 25U3
Þýzk mörk (100) — 10,50
Frankar (100) — 47-25
Keventlow greifi,
hinn frægi þýzki blaðamaður og
stjórnmálamaður, hefir nýlega yf-
irgefið blaðið „Deutsche Tagezei-
tung" og hefir stofnað nýtt blað
er byrjaði að koma út 1. október
og heitir „Der Reichswart".