Morgunblaðið - 08.04.1988, Qupperneq 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
Myndaflokkur um
Lincoln
Þann 14. apríl árið 1865 —
fyrir 123 árum — var Abraham
Lincoln, forseti Bandaríkjanna,
myrtur. Tíu dögum áður hafði
hann verið í suðurríkjabænum
Richmond, sem þá hafði nýlega
fallið í hendur Norðurríkjamanna,
og það er í Richmond sem lung-
inn af nýjum myndaflokk NBC-
sjónvarpsstöðvarinnar í Banda-
ríkjunum um forsetatíð Lincolns
var tekinn því bærinn þykir enn
bera sterkan 19du aldar svip.
Flokkurinn, sem er í tveimur
hlutum (alls fjórar stundir), heit-
ir„Gore Vidal’s Lincoln" og bygg-
ir á sögulegu skáldverki rithöf-
undarins Gore Vidals um ár Lin-
colns í Hvíta húsinu. Var fyrri
helmingurinn sýndur vestra á
páskadag.
Með aðalhlutverkin fara Sam
Waterston sem leikur forsetann,
Mary Tyler Moore sem leikur eig-
inkonu hans, John Houseman
leikur Winfield Scott hershöfð-
ingja og Richard Mulligan sem
leikur William H. Seward utanrík-
isráðherra. Flokkurinn kostaði
átta milljónirdollara íframleiðslu.
Hann hefst þegar Lincoln kemur
óþekktur til Washington að taka
við forsetaembættinu og líkur
með morðinu á honum fjórum
árum síðar.
Ef marka má sögu af Sam
Waterston þar sem hann gekk
um Richmond í gerfi Lincolns á
milli taka er forsetinn ennþá hat-
aður af mörgum. Suðurríkjamað-
ur sem ráðinn hafði verið einn
af hópleikurunum gekk upp að
Waterston, starði á hann og
hreytti útúr sér: „Ef þú værir sá
sem þú leikur mundi ég sjálfur
vilja skjóta þig.“
Atburðurinn sýnir ekki aðeins
hinn blendna hug sem margir í
Suðurrikjunum bera til Lincolns
heldur minnir líka á þá þunnu linu
sem liggur á milli staðreynda og
skáldskapar þegar fjallað er um
ævisögur manna. Framleiðendur
myndaflokksins leituðust við að
hafa sögulega nákvæmni að leið-
arljósi en byggðu engu að síður
á verki sem sagnfræðingar hafa
gagnrýnt harðlega. Vidal er sak-
aður um að taka sér fullmörg
skáldaleyfi.
„Það sem við höfum hér,“ seg-
ir Lamont Johnson, leikstjóri
myndaflokksins, „er eins sann-
verðugt sagnfræðiverk og skáld-
saga getur orðið og í sumum til-
fellum eins og sagnfræðin sjálf
er. Sagan er eftir allt aðeins
sannleikur í augum sagnfræð-
ingsins sem skrifar hana. Allt
aftur til Heródótusar hefur sagn-
fræðin einkennst af mismunandi
skoðunum á mismunandi at-
burðum."
Skáldsaga Vidals hefur selst í
meira en milljón eintökum og
margir af öllum þeim milljónum
sem sáu myndaflokkinn eiga eft-
ir að líta á það sem hann sýndi
sem heilagan sannleika. Sjálfur
kom Vidal, er stundum hefur
skrifað kvikmyndahandrit, ekkert
nálægt handriti myndaflokks-
ins.„Það eru ekki margir sem vita
það en Vidal skrifaði fyrst söguna
um Lincoln í formi átta stunda
smáþáttaraðar," segir Bob
Christianson, annar framleiðandi
myndaflokksins. „Það var ekki
fyrr en það verkefni náði ekki að
verða að veruleika sem hann
snéri sér að skáldsöguforminu.
Þannig að þegar við gerðum okk-
ar samning við hann var hann
Sam Waterston og Mary Tyler
Moore í NBC-myndaflokknum,
„Gore Vidal's Lincoln".
Gore Vidal
hann varð við þeirri beiðni enda
fara skoðanir hans á tímabilinu
saman við skoðanir Vidals.
Listi þeirra bandarísku léikara
sem farið hafa með hlutverk Lin-
colns í kvikmyndum er langur og
merkilegur og nú hefur nafn Sam
Waterstons (Blóðvellir) bæst við
orðinn ansi þreyttur á að skrifa
um Lincoln.”
Framleiðendurnir snéru sér til
Ernest Kinoy („Murrow”) og
báðu hann að gera handritið og
hann. Forverar hans í hlutverkinu
eru Walter Huston (faðir Johns),
Raymond Massey, Henry Fonda,
Gregory Peck og Hal Holbrook.
-ai.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRDUR
_ BOÐARTILhhmmm
1. Inngangur: Dr. Jónas Bjarnason, formaður Varðar
2. Lýsing á stöðu samkeppnismála hér á landi:
Hreinn Loftsson, aðstmaður samgönguráðherra.
3. Löggjöf erlendis gegn hringamyndun og sam-
keppnishömlum: Jóhannes Sigurðarson,
lögfræðingur.
4. Samkeppnishömlur og atvinnulífiö: Steingrímur
Ari Arason, hagfræðingur.
5. Stefna Sjálfstæðisflokksins varðandi hringamynd-
un og samkeppnishömlur: Friðrik Sophusson,
iðnaðarráðherra.
6. Gildi frjálsrar samkeppni: Árni Sigfússon,
borgarfulltrúi.
7. Hugmyndir, tillögur og samantekt: Dr. Vilhjálmur
Egilsson, framkvstjóri Verzlunarráðs íslands.
Staður: Valhöll v/Háaleitisbraut
Tími: Föstudagurinn 1 5. apríl nk. kl. 1 5.00-1 8.30
Stjórn Landsmálafélagsins Vardar.
FRAMHALDSÞÆTTIR
Hvar/Hvenær
Sjónvarpið:
Alhelmurlnn ..........
Lltlu prúðulelkararnlr ..
Fyrirmyndarfaðir .....
Galdrakarllnn f Oz ...
FífIdjarfIr feðgar ...
Buddenbrook-ættln ....
Vlstaskipti ..........
Bangsl besta sklnn ...
Háskaslóðir ..........
Öldin kennd vlð Ameríku
Helmsveldl hf.........
Hundurlnn BenJI ......
Skinogskúrlr .........
Anna og fólagar ......
Austurbælngar ........
Kjarnakona II ........
Slndbað sæfari .......
Stelnaldarmennirnlr ....
Staupastelnn .........
Derrick ..............
.....laugardagur .........kl. 17.05
........laugardagur .......kl. 18.30
.....laugardagur .........kl. 20.45
.....sunnudagur ..........kl. 18.30
.....sunnudagur ..........kl. 19.05
.....sunnudagur ..........kl. 21.50
.....mánudagur .........L .kl. 19.30
.....þriðjudagur .........kl. 18.00
.....þriðjudagur .........kl. 18.25
....þriðjudagur .........kl. 20.35
.....þriöjudagur .........kl. 21.30
.....miövikudagur ........kl. 19.30
.....miövikudagur ........kl. 22.20
.....fimmtudagur .........kl. 18.30
.....fimmtudagur .........kl. 19.25
.....fimmtudagur .........kl. 21.10
.....föstudagur ..........kl. 18.00
.....föstudagur ..........kl. 19.00
.....föstudagur ..........kl. 19.30
.....föstudagur ..........kl. 21.35
Stöð 2:
Ferdinand fljúgandl Ættarveldlð Frfða og dýrið Spenser Á fleyglferð Dægradvöl Feðgarnlr laugardagur kl. 11.15 kl. 14.50 kl. 20.10 kl. 22.50 . kl. 14.05 ...kl. 14.30 kl. 21.35
Lagakrókar Hlnir vammlausu ...kl. 22.30 kl. 23.15
Vaxtarverklr ...kl. 18.45
Stríðsvindar .. kl. 21.25
Dallas ...kl. 22.55
Aftur tll Gulleyjar.... kl. 20.30
Hunter .. kl. 22.25
Saga á sfðkvöldi ... þriöjudagur ...kl. 23.10
Feldur ...kl. 18.20
Af b» f borg . kl. 18.45
Undirhelmar Mlaml ...kl. 20.30
HótelHöll . kl. 22.10
Á velðum kl. 18.45
Sendlráðlð kl. 21.20
Valdstjórlnn kl. 18.45
Sástvallagata . kl. 20.30