Morgunblaðið - 28.04.1988, Síða 6

Morgunblaðið - 28.04.1988, Síða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSŒPn/JOVINNULÍF FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988 VIÐURKENNING — Bankaráð Útvegsbanka Islands veitti Útvegsbankanum á ísafirði nýlega verðlaun fyrir góða frammistöðu á síðasta ári. Er þetta í fyrsta skipti sem verðlaunin eru afhent, en ætlunin er að veita þau árlega. Myndin er tekin við verðlaunaaf- hendingu, sem fór fram í hófi sem haldið var fyrir stjómendur bank- ans, og sýnir Guðmund Hauksson bankastjóra afhenda Högna Þórðar- syni útibússtjóra verðlaunagrip, sem Jens Guðjónsson gullsmiður smíðaði, en auk þess fékk bankinn 75.000.- krónur, sem runnu í sam- eiginlegan sjóð starfsmanna Útvegsbankans á ísafírði. FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA Aðalfundur Aðalfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl. 16.00. Fundar- Dagskró: 1. Jón Sigurðsson, viðskipta- ráðherra; Hagfræði og hagsmunir, stutt ávarp. 2. Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins. Mætið stundvíslega. Stjórn FVH. staður: Hótel Holt. Amarkaðinum Nýttúða- lakk frá Dupli Color - á ekki að skaða ósonlagið INNFLUTNINGUR á nýrri teg- und lakks, svonefndu vatnslakki, er hafinn frá þýska fyrirtækinu Dupli Color Vogelsang GmbH, sem hefur lagt megináherslu á umhvefisvernd og hefur fyrir- tækið verið leiðandi á þvi sviði, að því er innflytjandi lakksins, G.S. Júlíusson, segir. Er komið á annan áratug síðan fyrirtækið hætti að nota efni í úðalökk sem skaða ósonlagið. Ennfremur segja forráðamenn fyr- irtækisins, að vatnslakkið sé með- færilegt í notkun og henti til hvers kyns lökkunar úti sem inni. Lakkið er í 400 ml. brúsum með bamheldu loki og með ítarlegum leiðbeining- um á íslensku. VATNSLAKK — Aqua lakkið má nota t.d. á tré, bast málma, gler, plast og fleira. Ný tegund síma GEORG Ámundarson & Co. hef- ur hafið innflutning á nýrri teg- und síma, sem gefur ýmsa möguleika umfram þá sem nú þegar eru á markaðinum, að sögn Steinars Björgvinssonar. Ennfremur segir hann að hægt sé skoða í símanum þau númer sem hringt hefur verið í og fá útprent- un á notkun. Ymsir lokunarmögu- leikar séu á tækinu, s.s. að loka fyrir útlönd eða utanbæjarsímtöl ásamt að ioka fyrir símann þannig að enginn geti hringt úr honum nema að þekkja lykilnúmer. í símtækið sé hægt að forrita fimm mismunandi hringingar með skila- boðum. Ennfremur sé 200 nafna og númera minni. Fólk í atvinnulífinu Félagafulltrúi Verslunarráðs NÝVERIÐ hóf Herbert Guð- mundsson störf sem félagafull- trúi Verslunarráðs íslands og er þetta nýtt starf hjá ráðinu, að því er fram kemur í frétt. í starfí þessu mun felast umsjón með margvíslegri starfsemi er lýtur að hagsmunum aðila innan ráðsins, jafnt sameiginlegum sem sérstök- um hagsmunum einstakra hópa, og frumkvæði í þessum efnum. Til marks um fyrstu verkefnin má nefna ný- stofnað samstarf auglýsenda inn- an VÍ, athugun á eflingu Græn- landsviðskipta, Herbert umfjöllun um póstmál, símamál og einkasölumál. Einnig á félagafull- trúi að skipuleggja skyndinámskeið fyrir stjómendur og starfsmenn fyrirtækja í Verslunarráðinu. Herbert Guðmundsson var síðast blaðamaður á DV en hefur að baki fjölþætta reynslu á sviði fjölmiðlun- ar og félagsmála. Hann er 47 ára að aldri og 2ja bama faðir. Nú er lítið fyrirtæki að ^___________ fjárfesta í farartæki! Það hefur oft verið vandamál hjá fyrir- tækjum að fjárfesta í farartækjum sem eru bæði ódýr, sterk og án óþarfa auka- búnaðar. Nú bjóðum við nýjar og notaðar Toyota bifreiðar á góðum greiðslu- kjörum og með magnafslætti. Dæmi um verð* Venjulegt verð. Til fyrirtækja. Ný Toyota Corolla, 1988: kr. 549.000. 484.000. Toyota Corolla, 1987: kr. 480.000. 415.000. Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 09-18 Símar: 44144, og 687120 *Miðað við gengi 01.04. 1988. TOYOTA FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.