Morgunblaðið - 28.04.1988, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.04.1988, Qupperneq 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, VlDSKIPn/AIVlNNULÍF FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988 Fréttaskýring Umbrotatímar hjá Sláturfélaginu Á aðalfundi SS í dag skýrist væntanlega hvort félagið dregur sig út úr smásölu- verslun á höfuðborgarsvæðinu ss — Þetta eru aðaistöðvar Sláturfélagsins við Skúlagötu. Þessar byggingar verða að víkja fyrir skipulagi og fyrirtækið stendur nú í miklum framkvæmdum í Laugamesi, sem reynst hafa óhemju Qárfrekar. eftir Björn Vigni Sigurpálsson FLEST bendir til að aðalfundur Sláturfélags Suðurlands að Hvoisvelli í dag geti orðið hinn sögulegasti i liðlega 80 ára sögu félagsins. Fundurinn er haldinn beint í kjölfar meiriháttar upp- stokkunar á framkvæmdastjóra fyrirtækisins og sumir kalla ein- hveija róttækustu hreingem- ingu sem nokkur fyrirtækja- stjórn hefur lagt út í hér á landi. Alltént hefur forstjóri Sláturfélagsins um árabil, Jón H. Bergs, látið af störfum vegna ágreinings við stjóraina að þvi er sagt er og forstöðumaður verslanareksturs SS, Jóhannes Jónsson, lét segja sér upp störf- um fremur ■ en að þiggja boð stjóraenda fyrirtækisins um að segja upp sjálfviljugur. 011 teikn eru siðan á lofti um að á aðal- fundinum muni verða reifaðar hugmyndir frá síjórninni um að fyrirtækið dragi sig út úr öllum verslunarekstri á höfuð- borgarsvæðinu, þar sem það hefur verið leiðandi afl í smá- söluverslun með matvöru um áratuga skeið. Fórnarlamb samkeppninnar Ef aðalfundur Sláturfélags Suð- urlands fellst á þessa róttæku stefnubreytingu 1 rekstri félagsins, þá má til sanns vegar færa að þetta sögufræga fyrirtæki sé stærsta lambið á fómarstalli hinnar gffur- legu samkeppni sem ríkir nú í stór- markaðsversluninni á höfuðborgar- svæðinu. Þó ekki hið fyrsta því að áður em Víðis-bræður falinir í val- inn og hættir öllum verslunar- rekstri. Þeim dugði ekki að selja KRON stórmarkað sinn í Mjóddinni og þrátt þar hafí orðið til Kaupstað- ur virðist KRON einnig eiga á brat- tann að sækja með verslunarrekst- ur sinn en það tapaði liðlega 40 milljónum á síðasta ári að því er fram kom á nýafstöðnum aðalfundi þess. Tilkoma nýju Hagkaupsverslun- arinnar í Kringlunni eftir mitt síðasta ár hefur ekki dregið úr sam- keppninni sem var mikil fyrir. Síðan hefur það gerst að Hrafti Bach- mann hefur komið sér fyrir með Kjötmiðstöð sína í Garðabæ og dregur nú dijúgt til sín neytendur með lágu vöruverði, að því er heim- ildir herma. Ofur lítið sunnar eða nær Hafnarfírði er síðan Fjarðar- kaup, sá stórmarkaðurinn á höfuð- borgarsvæðinu sem í verðkönnun- um hefur fengið á sig það orð að vera með lægsta vöruverðið á Stór-Reykjavíkursvæðinu og lykill- inn að velgengni þeirra Fjarðar- kaupsmanna hefur verið lágur til- kostnaður, m.a. með laugardags- lokun, og iágmarksþjónusta, segja kunnugir. Tilkoma nýrra stórmark- aða ásamt auknu verðskyni neyt- enda fyrir tilstilli verðkannanna Verðlagsstofnunar hefur því getið af sér meiri samkeppni en um get- ur í flestum öðrum greinum og því er haldið fram að álagning á mat- vöru í smásölu sé þar af leiðandi einfaldlega orðin of lág til að bera þennan fjölda af stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Það er í ljósi þessara kringum- stæðna sem menn verða því að skoða það endurmat sem nú fer fram innan stjómar Slátufélags Suðurlands. Þó að til sanns vegar megi færa að SS-búðimar fímm í Reykjavík — Nýibær, Glæsibær, Austurver, Laugavegur 116 og Matardeildin {Hafnarstræti — hafí verið andlit Sláturfélagsins út á við, þá hefur verið halli á þessum verslunarrekstri undanfarin ár og ljóst að á síðasta ári er hann um- talsverður. Það hefur verið ríkjandi sjónar- mið stjómenda Sláturfélagsins að það væri mikilsvert fyrir félagið að hafa yfír verslunum að ráða til að koma framleiðsluvörum fyrir- tækisins á framfæri við neytendur og jafnframt að það tryggði betur að aðrir matvömkaupmenn vildu hafa SS-vömr á boðstólum. Jón H. Bergs, fráfarandi forstjóri, hefúr verið ákafur talsmaður þessa. Hann beitti sér fyrir þátttöku Sláturfél- agsins í kaupunum á Nýjabæ á Seltjamamesi með Óla Kr. Sigurðs- syni í Sund hf., þó að því sé jafn- framt haldið fram að þar hafí þátt- ur Jóhannesar Jónssonar, náf- rænda Óla, verið umtalsverður. Þegar Óli hins vegar dróg sig út úr Nýjabæ vegna kaupanna á OL- ÍS, tók Sláturfélagið hins vegar yfír Nýjabæ að fullu og öllu. Nýibær hefur hins vegar reynst Sláturfélaginu erfíður biti og er taiinn hafa valdið miklu um bræðrabyltu þeirra Jóns og Jóhann- esar nú. Bæði kemur til að í núver- andi vaxtaumhverfi em kaupin á Nýjabæ umtalsvert áttak á sama tíma og fyrirtækið stendur í stór- framkvæmdum inn í Laugamesi við byggingu um 13 þúsund ferm. stórhýsis undir kjötiðnaðarstöð, frystihús og skrifstofur, og það hefur verið einstaklega óheppið með verslunarreksturinn á Selt- jamamesi. Ber þar hæst að litiu eftir að Sláturfélagið hafði tekið við Nýjabæ birtist verðkönnun sem sýndi að verslunin var ein hin dýr- asta á höfúðborgarsvæðinu í hvers kyns nýlenduvöm. Könnunin hafði umtalsverð áhrif á streymið í versl- unina og þótt verðið væri snarlega lækkað, hefur ekki farið fram önn- ur verðkönnun af þessu tagi. í þess stað birti Verðlagsstofnun könnun með samanburði á verði á kjötvöm í stórmörkuðum og einnig þar varð Nýibær ásamt öðmm SS-búðunum hvað verst úti. Neytendur kaupa ekki gæðin Sláturfélagið reyndi að svara þessari verðkönnun með auglýsing- um þar sem höfðað er til neytenda á þeim nótunum að í SS-vömnum gengju þeir að nýju gæðakjöti vísu. í ársskýrslu Sláturfélagsins fyrir 1986 má lesa eftirfarandi um þessa áherslu á gæðin í greinargerð með smásölurekstri félagsins: „Á síðustu ámm hefur orðið mikil aukning á framboði á verslunar- þjónustu á höfuðborgarsvæðinu, langt umfram aukningu á eftir- spum. Ekki sér fyrir endan á þeirri þróun. Áhersla Sláturfélagsins hef- ur verið á góðri þjónustu og vöm- gæðum..." I greinargerð með kjö- tiðnaði fyrirtækisins í sömu árs- skýrslu er hins vegar e.t.v. að leita skýringanna á því hvers vegna Sláturfélaginu hefur ekki tekist að hafa verð á kjötvöm sinni lægra, en þar segir á einum stað: „For- sendur þess, að framleiðendur fái fullt verð fyrir afurðir sínar em, að afurðadeild gefí enga afslætti hvorki til vinnsludeilda félagsins né annarra viðskiptavina. Þetta þýðir, að vinnsludeildimar, sem versla eingöngu við afurðadeild kaupa hráefni oft á tíðum hærra verði en hægt væri að fá á hinum „fijálsa“ markaði þar sem ýmis undirboð tíðkast. Samkeppnisaðilar geta því oft á tíðum boðið ódýrari vöm en aldrei betri. Gæði og þjón- usta verða að vera einkunnarorð og einkenni á allri starfsemi S.S." Þessi einkunnarorð virðast hins vegar hafa fallið í grýtta jörð með- al neytenda. Um leið er þama ef til vill að fínna í hnotskum orsak- imar fyrir þeim umbrotum sem nú eiga sér stað innan Sláturfélagsins. Félagið er stofnað af bændum og bændur, framleiðendumir, em allsráðandi í stjóm fyrirtækisins meðan verslunarreksturinn hefur að miklu leyti hvílt á herðum for- sljórans og forstöðumanns verslun- ardeildar. Bændunum í stjóm fyrir- tækisins virðist nú hafa ofboðið hvemig tapreksturinn í smávöm- versluninni síðustu ár hefur grafíð undan afkomu fyrirtækisins. Á sama tíma segist Jóhannes Jóns- son, fráfarandi forstöðumaður verslunardeildarinnar, hafa háð margra hildi við stjómendur þess um verðstefnu fyrirtækisins en jafnan hafa stöðvast á þeim þrö- skuldi sem er sú kvöð að kaupa hráefnið á fúllu verði meðan sam- keppnisaðilamir, jaftivel kaupfélög, hafí ekki greitt nema um 80% af hráefnisverðinu ogþaðan af minna. En Jóhannes vill ekki meina að kaupin á Nýjabæ hafí orðið honum að falli. „Ákvörðunin um þessi kaup var tekin af forstjóra og stjóm fé- lagsins en ekki mér," segir hann. „Eg hef í sjálfu sér enga aðra skýr- ingu á uppsögn minni en þá að Sláturfélagið ætli að draga sig út úr verslunarrekstri. Mér var boðið að segja upp störfum en ég hafn- aði því og var þá sagt upp. Ég tel mig hafa þjónað þessu fyrirtæki af bestu samvisku þessi 25 ár sem ég hef starfað hér og nánast alist upp með því, og jafnan fylgt þeim fyrirmælum sem ég hef fengið frá yfirboðurum mínum af bestu getu.“ Þrátt fyrir framangreinda tog- streitu milli framleiðendasjónar- miðanna í stjóm fyrirtækisins og verslunarsjónarmiða fráfarandi forstjóra, eiga skoðanir hinna fyrr- nefndu hljómgmnn meðal ýmissa þeirra sem gjörþekkja stórmark- aðsverslunina á höfuðborgarsvæð- inu og því haldið fram að það sé rétt stefna hjá Sláturféiaginu nú að draga sig út úr smávöruverslun- inni. „Sláturfélag Suðurlands er fyrst og fremst framleiðslufyrir- tæki og á ekkert að stunda verslun- arrekstur í samkeppni við aðrar matvöruverslanir sem selja fram- leiðsluvörur þess. Slíkt elur óhjá- kvæmilega á tortryggni," sagði einn viðmælanda Morgunblaðsins. Fást kaupendur að SS-búðunum Páll Lýðsson, stjómarformaður Sláturfélags Suðurlands, vill ekki játa því að uppi séu áform um sölu á SS-búðunum heldur segir að verslumarreksturinn verði skoðað- ur eins og allt annað. „Það segir sig hins vegar sjálft að þegar nýir menn taka við að þá vilja þeir breyta rekstrarstefnunni í þá vem sem þeir telja farsælast fyrir fyrir- tækið," segir hann. Engu að síður er vitað að nýir stjómendur Sláturfélagsins em þegar famir að þreifa fyrir sér með sölu á verslununum félagsins. Eftir því sem næst verður komist em allar verslanimar hér á höfuð- borgarsvæðinu falar en þó mun koma til álita að Sláturfélagið haldi eftir Austurveri við Háaleitisbraut en verslunin þar er í eigin húsnæði og hún jafnan gengið ■ hvað best SS-búðanna, þrátt fyrir nálægðina við Kringluna. Sláturfélagsmenn hafa átt viðræður við forsvarsmenn Hagkaups um kaup á einhveijum verslunum félagsins og þá einkan- lega á Nýjabæ. Þessar þreifingar em þó á heldur óheppilegum tíma, í miðju verkfalli Verslunarmanna- félags Reykjavíkur. Þótt mönnum beri saman um að það kunni að henta Hagkaupsmönnum vel að koma sér upp verslun vestast í vesturbænum, þá em þeir tæpast búnir að sjá fyrir endann á fjárfest- ingunni í Kringlunni ennþá og verslunin í Skeifunni á enn nokkur misseri eftir, svo að tímasetningin getur vart verið óheppilegri fyrir Hagkaup. Það er þannig alls óvíst hvemig þeim Sláturfélagsmönnum gengur að fá kaupendur að verslun- um sínum og koma þeim eignum í verð miðað við ríkjandi ástand í þessari grein. Meðal aðstandenda Sláturfélagsins kann mönnum einnig að þykja það misjafnlega sársaukafullt aið fara þessa leið og ekki loku fyrir það skotið að þessi áform mæti einhverri mótspymu meðal almennra félagsmanna á aðalfundinum f dag. Einstaka stjómarmenn Sláturfélagsins hafa þó minnt á í þessu sambandi að Mjólkursamsalan hafí ekkert misst flugið, þótt hún hafí lokað nær öll- um mjólkurbúðum sínum á höfuð- borgarsvæðinu á sínuln tíma. Dýrt fjármagn En þótt smásöluverslunin vegi vafalaust hvað þyngst í slæmri af- komu Sláturfélagsins um þessar mundir, þá koma fleiri þættir til. Fyrir liggur að mjög hefur verið þrengt að sláturleyfíshöfum svo sem Sláturfélaginu innan afurðal- ánakerfísins frá því sem áður var, þegar nánast var unnt að ganga að þessum lánunum vísum sem rekstrarfé, og jafnframt hafa vext- ir af afurðalánum hækkað veru- lega. Áður er vikið að stórfram- kvæmdum Sláturfélagsins í Lau- gamesi. Þær hafa verið félaginu óhemju dýrar og sú vinna sem þar fer fram nú er til að mynda kostuð með fjármagni sem fékkst í skulda- bréfaútboði félagsins frá 5 nóvemb- er sl. Skuldabréfaútgáfa þessi var alls að íjárhæð 100 milljónir króna með 11,2% ávöxtun umfram verð- bólgu sem á þeim tíma svaraði til 48,3% vaxta. Bréfín voru til 2 og 1/2 árs, 3 og 1/2 árs, 4 og 1/2 árs og loks til 5 og 1/2 árs með einum gjalddaga í lokin. Sláturfé- lagið skuldbindur sig til að kaupa bréfín til baka frá eigendum þeirra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.