Morgunblaðið - 28.04.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSMPTIAIVINNUIÍF FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988
B 9
sem þess óska innan 3ja daga frá
því að slík beiðni berst en að vísu
með þeim fyrirvara að slíkar beiðn-
ir samsvari ekki meira en 10%
heildarupphæðarinnar í útboðinu á
hálfu ári. Samkvæmt upplýsingum
Kaupþings hafa þegar verið seld
bréf í þessu útboði að andvirði um
84 milljónir króna og má þá ætla
að SS hafi aðeins fengið út úr þessu
útboði um 50-60 milljónir króna til
framkvæmda, þegar kostnaður og
afföll eru dregin frá.
Ekki liggur annað fyrir en Slát-
urfélagsmenn hyggist halda áfram
sínu striki við framkvæmdimar inni
í Laugamesi. Rétt er þó að vekja
athygli á að meðal bænda hafa þær
raddir orðið æ háværari sem vilja
flytja vinnslustöðvar landbúnaðar-
ins frá höfuðborgarsvæðinu og nær
framleiðslusvæðunum. Er þar
skemmst að minnast krafna um
að Mjólkursamsalan athugi mögu-
leika á því að flytja ísgerð sína
austur fýrir fjall. Hvort einhveijar
slíkar hugmyndir em nú að vakna
meðal félagsmanna í tengslum við
Laugamesframkvæmdimar skal
hins vegar ósagt látið.
í viðtali hér í viðskiptablaðinu
undir lok síðasta árs í tilefni af
skuldabréfaútboði því sem áður er
nefnt, kom það fram hjá Jóni H.
Bergs að Sláturfélagið hefði á
síðustu 5 ámm varið alls um 220
milljónum til þessara framkvæmda
en áætlaður heildarkostnaður við
hana væri um 400 milljónir. Fram-
kvæmdum á að ljúka 1989 og er
þá gert ráð fyrir að selja eignir
fyrirtækisins við Skúlagötu.
í þessu sama viðtali sagði Jón
H. Bergs að rekstur einnig Slátur-
félagsins hefði gengið vel á síðasta
ári, að áætluð umsetning þess yrði
nálægt 3,3 milljörðum króna og
horfur á hagnaði á rekstrinum, ef
ekkert óvænt kæmi upp á. Árið á
undan vom hins vegar heildar-
rekstrartekjur Sláturfélagsins lið-
lega 2,5 milljarðar og hagnaður
27,6 milljónir á móti 28 milljón
króna tapi árið þar á undan, að því
er segir í síðustu ársskýrslu. Tap
varð þá á rekstri smásöluverslunar-
innar og einnig af afurðardeild og
skinnaiðnaði en hagnaður af kjö-
tiðnaði og rekstri heildsöluverslun-
ar fyrirtækisins.
Alvarleg staða
Ekkert hefur verið látið uppi um
afkomu Sláturfélagsins á síðasta
ári og vísað til aðalfundarins í dag.
Því er ekki ljóst hvort Jón H. Bergs
hefur í framangreindu viðtali verið
bjartsýnn um of á afkomu síðasta
árs eða hvort svo mjög hefur sigið
á ógæfuhliðina þar sem af er þessu
ári að stjóm Sláturfélagsins hefur
talið sig tilneydda að grípa til þeirra
hörðu aðgerða sem nú virðast liggja
í loftinu. Ekki náðist í Jón H. Bergs
til að spyijast nánar fyrir um þetta
atriði, og Páll Lýðsson, stjómar-
formaður, vildi ekki ræða neinar
afkomutölur Sláturfélagsins fyrir
aðalfundinn. Þó var á honum að
heyra að hagnaðarvæntingar Jóns
H. Bergs hefðu ekki gengið eftir,
þvl að hann bætti við að þótt vel
hafi horft á miðju síðasta ári, hafi
stjómendur Sláturfélagsins ekki
fremur en stjómendur flestra ann-
arra íslenskra fyrirtækja séð fyrir
þá vaxtasprengingu sem varð á
seinni hluta ársins.
Reyndar er fullyrt við blaðamann
Morgunblaðsins að stjómarmenn
Sláturfélagsins telji fráfarandi for-
stjóra ekki hafa veitt stjóminni
fullar upplýsingar um stöðu fyrir-
tækisins og það eigi í reynd meiri
þátt í brotthvarfi hans frá fyrirtæk-
ftiu heldur sá ágreiningur um
rekstrarstefnu félagsins sem bæði
Jón og Páll Lýðsson, stjómarform-
aður, segja vera ástæðuna fyrir
uppsögn forstjórans. Páll Lýðsson
vildi þó í samtali við Morgunblaðið
ekki staðfesta þetta heldur segir
að stjómin hafi ekki verið „nógu
ákveðin að ganga eftir upplýsing-
um um stöðu fyrirtækisins og sök-
in er því allt eins hennar, ef sök
skyldi kalla."
Hitt er eins ljóst að stjóm Slátur-
félag Suðurlands hefur nú fengið
í hendur gögn, sem sýnir svo alvar-
lega ijárhags- og rekstrarstöðu
fyrirtækins að hún hefur ekki talið
veijandi að bíða með harkaleg við-
brögð fram yfir aðalfund, þótt hann
væri skammt undan. Hversu alvar-
leg staðan raunverulega er kemur
svo væntanlega í ljós á aðalfundin-
um í dag.
Diskettur
LÍFSTÍOAR ÁBYRGÐ
ÁRVÍK
ÁHMÚLI 1 -REYKJAVlK - SlMI 687222 -TELEF7UÍ 687285