Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 B 5 síðasta gjöf gamla meistarans Dóttir hans kemur með 35 mynda hansá listahátíð I Dansinum, sem Marc Chagall málaði 1911-12, má sjá táknin, sem hann alla ævi sótti til æskustöðv- anna. Þarna er kýrin ogjafnframt fiðlan í minningn Neuch föðurbróður hans, sem lék við athafnir í gyðingasamfélaginu og sem hann dáði mjög. Óþarfi er að kynna Marc Chagall, rússneska gyðinginn sem um 1910 kom frá þorpinu sínu Vitebsk til listnáms í París og settist síðan að í Frakklandi, þar sem hann langa ævi hélt áfram að sækja myndefni til þorpsins og gyðingasamfélags æsku sinnar. Málaði bændafólk, elskendur, trúarathafnir, húsdýr og engla, sem ekki voru í neinum hefðbundnum stíl eða stað í myndfletinum, heldur flandrandi um allt léreftið og fljúgandi um loftin. Þar skap- aði hann þennan sérkennilega undraheim, með daglegu amstri mannfólksins hér á jörðu, þjáningu og dauða, gleði og sorgum. Fyrir nokkrum árum sýndi íslenska sjónvarpið þætti sem gerðir voru um æsku Marcs Chagalls og birti þá Morgunblaðið brot úr ævisögu Bellu konu hans, sem fylgdi honum frá Rússlandi fyrri hluta aevinnar. Er hún fyrirmyndin á mörgum frægum málverkum hans. Á málverkinu „Birting fjölskyldu málarans" sem hann málaði 1935-47 er Chagall umkringdur þeim sem honum þykir vænst um. Þar má sjá Bellu konu hans og dótturina Idu, sem kemur nú hing- að til íslands með myndir föður síns til að kynna íslendingum verk hans. Þau eru öll þrjú á þessari mynd sem birtist hér á síðunni umkringd öllum látnu ættingjunum. Það kemur nú í hlut dótturinnar og seinni konunnar Vövu, eða Valentine, að afhenda franska ríkinu síðustu „gjöf" Marcs Cha- galls, til greiðslu á erfðaskattinum. Listaverk sem ekki eru metin lægra en arfahlutur Picassos við lát hans, eða nálægt milljarði franka, sem er nærri 7 milljarðar íslenskra kröna. Og nú berast fréttirum að menningarmálaráðherrann, Francois Léotard, sem er mikill aðdáandi listamannsins, berjist harðri baráttu fyrir að halda myndunum saman á einum stað, en fjársjóðurinn sá fellur til fjár- málaráðuneytisins og útlit fyrir að myndirnar muni dreifast í Beaubo- urg-safnið i París, Boðunarbiblíu-safn Marcs Chagalls í Nissa og til að auka veg nokkurra safna úti á landsbyggðinni. Franska ríkið hefur fyrir áratugum fundið aðferð til að tryggja sér myndir sinna stóru meistara án þess að þurfa að kaupa þær á því óheyrilega verði sem þærgeta komist í á markaðinum. Það kallast „dation" og leyfirerfingjunum að leysa sig undan erfðaskattgreiðslunum með afhendingu listaverka úróskiptu búi. Þetta gerðist viðfráfall Picassos, sem byggt var yfir sérstakt safn í París, Max Ernst og Calders. Cg einnig nokkurra af stærstu listaverkasölunum, svo sem Maeghts, Louis Carrés, Durands Ruels og Dubourgs. Rikisvaldið vissi hvaða myndir það vildi, þær bestu, en afhendingin fór skikkan- lega fram. Francois Léotard fór tvær ferðir suður eftir til að full- vissa sig um að ekki kæmi til sömu leiðinda og við erfðamál Picass^ os. Þá var lögregla mætt á staðnum hjá Jaqueline Picasso áður en maður hennar var kólnaður og hélt vörð til að tryggja að ekkert af eignum hans yrði hreyft úr húsinu. Allt var skrifað upp, allt niður ítannbursta listamannsins og ekkjunni var gert að sanna að hún ætti öskubakkaná og húsgögnin hennar ömmu sinnar. Raunar ekki saman að jafna þar sem erfingjar Picassos áttu í deilum og málaferlum um arfinn í 10 ár og ekkjan þurfti að búa við þetta jafnlengi. En Frakkar skömmuðust sín fyrir meðferðina á málinu og erfðaskattinum og menningarmálaráðherra sjálfur vildi nú tryggja að ekkert slíkt hneyksli kæmi fyrir aftur. Þarna var aðeins um ekkj- una og dóttur listamannsins að ræða (sjálfar gerðu þær upp við bandarískan hálfbróður hennar i kyrrþey). Með góðu samkomulagi varJean Louis Prat, framkvæmdatjóra hins virta Maegt-gallerís, falið að gera skrá og leggja fram óskir um hvaða listaverkum ríkið óskaði eftir. Að Vava féllst svo fúslega á að verða við þeim óskum, er talið að rekja megi að stórum hluta til þess að hún bjóst við að myndunum yrði öllum haldiö saman í sérstöku safni. Hvers vegna hefðu annars alltaf verið að koma fram viðbótaróskir um að fá bækurlistamannsins, leiktjaldateikningar, leirmuni o.fl.? Marc Chagall hélt hjá sér miklum hluta af verkum sínum seinni áratugina. Þegar hann neyddist til að fara í skyndi til Banda- ríkjanna, á stríðsárunum 1941, hafði hann þá þegar með sér 1,6 tonn af persónulegum eigum í farangrinum. Hvílíkt magn lá eftir hann af listaverkum mátti fá hugmynd um þegar hann varð 95 ára og öll stórsöfn kepptust um að setja upp Chagall-sýningar um allan heim. Það var mikil veisla og góð. Þá gafst kostur á að sjá málverkasýningar, sýningar á teikningum frá ákveðnum tímum, vatnslitamyndir o.s.frv. og allt bar það þennan sérkennilega svip sem einkennir Chagall einan, sama frá hvaða tíma það er. Jafnvel eftirað þeirri veislu laukmá víða njóta fastra verka, m.a. steindra glerverka, svo sem stóru bláu myndarinnar í anddyri Sameinuðu þjóðanna, dýrðlegu steindu glugganna í kapellunni við Háskólann í Jerúsalem o.s.frv. Og sá sem einu sinni hefur séð slíkt og látið heillast lætur ekki slík verk fram hjá sér fara ef hann kemur í viðkom- andi borg. Myndirnar, sem Ida Chagall kemur með í sumar og sýndar verða í hinu nýja Listasafni íslands, eru 35 talsins, málverk og teikning- ar. Að sjálfsögðu ekki þær stærstu sem hér birtast myndir af. Elst- ar eru vatnslitamyndir frá 1916, drjúgur skammtur er af myndum frá 1919 í Rússlandi og einnig frá sjötta áratugnum, þæryngstu frá lokum hans. _ — E.Pá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.