Morgunblaðið - 30.04.1988, Síða 6

Morgunblaðið - 30.04.1988, Síða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 Það er rökkur á sviðinu. Óljóst má greina vistar- veru í eldri byggingu. Einsherbergisíbúð með eldunaraðstöðu. Eitt- hvað svo dæmigert fyrir Svía. Sértu einn og án Qölskyldu áttu að hafa tök á að búa í eittu. Nákvæmlega og hvorki meira né minna. í rökkrinu má greina hávaxna karlmannsveru bugðast um vistar- verumar, kveikja Ijós á kertisstúf, bauka eitthvað í eldhúskróknum, svona eins og hann eigi þama heima •og hverfa síðan út um dymar. En skuggi þessa manns heldur áfram að dvelja í íbúðinni. Hann kemur fram í öllu látbragði hins raunveru- lega íbúa vistarvemnnar, sem er ung kona, Molly, fyrrverandi ljósmynda- .fyrirsæta og núverandi sjúkraliði. Hann kemur fram í öllu sem hún segir ekki, þetta kvöld og næsta morgun. Aldrei slíku vant er hún ekki ein á ferð, hún hefur boðið Alexander með sér heim. Atvinnu- lausum náunga sem hún hitti við bankasjálfsalann. Sjálfsalinn hafði gleypt breiðari endann á bindinu hans og þar sat hann fastur meðan biðröðin lengdist og ókyrrðist. Molly gerist hinn frelsandi engill. Eitthvað kátbroslegt og um leið innilegt fylg- ir þessum tveim manneslq'um. Bæði tvö em fremur hlédræg og höfundur leikritsins býr yfir þeim galdri sem fær áhorfendur til að emja af hlátri, bæði upphátt og inní sér, yfir vand- , ræðaleika þeirra og samtímis velvilja hvors í annars garð. Hjálparvana setningum er fylgt eftir með tákn- rænum atriðum sem gætu verið hversdagsleg. En við undirleik „skuggans" fá þau aivarlega spennu. Hann á eftir að ónáða þau á raun- veralegan og átakanlegan hátt, en fyrst í lok leikritsins fær áhorfandinn að vita hvort ágiskanir komi heim og saman við þá sögu sem verið er að segja. Maður skuggans er fyrr- verandi ástmaður stúlkunnar — og bróðir hennar. „Under tiden" heitir þetta litla ísmeygilega verk sem nýlega var fmmsýnt á Studioen, iitla sviði borg- arleikhússins í Gautaborg. „Sál- fræðileg hrollvekja" er haft eftir höfundinum, Michael Dmker, sem einnig er leikari og leikstjóri. Að þessu sinni hefur hann gegnt hlut- verki leikstjóra. Það, sem vakti hrifningu mína á þessari sýningu, var að loksins fékk ég á tilfinning- una að ég væri að horfa á nútíma- verk. Persónumar vom manneskjur þessa áratugar í öllum sinum ein- angranarhjúp. Eitthvað dæmigert sænskt og þó með klassískri undir- öldu. Hvað skyldi höfundurinn segja sjálfur um eigin viðfangsefni og rnn það að vera leikskáld í þessu landi, nú, þegar liggja eftir hann tíu leik- rit, en Dmker er aðeins þrítugur að aldri. „Það er þessi bölvuð lygi. Það að við ljúgum í sifellu að sjálfum okk- ur. Þomm ekki að viðurkenna og láta í ljós veikleika okkar. Við segj- um eitt, viljum annað og gemm þriðja. Það er mitt aðalviðfangsefni. Lygin. Það sem sagt er með því sem ekki er sagt — og þvert á móti," segir Druker þegar við hittumst fyrsta virka daginn eftir frumsýn- inguna. Við erum ekki dauð Sem höfundur er Michael Dmker umdeildur og óstöðvandi eftir að hann skrifaði sitt fyrsta verk árið __ 1982 í samvinnu við leikarann r~ Tommy Berggren, sem fór með eina hlutverkið í „Svínastíunni“, en svo nefndu þeir verk sitt, á Dramaten fyrir sex árum. Eftir það hefur hann átt hvert verkið á fætur öðm ýmist hjá atvinnuleikhúsunum í Stokkhólmi og Gautaborg eða í frumstæðari leikhúsum eins og í Fríhöfninni í Stokkhólmi, þar sem hann setti upp eigið verk í tómum og kyrrstæðum jámbrautarvagni. Hann hefur einnig gert sjónvarps- myndir, eins og „Dyrasíminn" (Porttelefonen), þar sem hann lék sjálfur aðalhlutverkið og „Under tiden“ leikstýrði hann nýverið fyrir sjónvarp með sömu leikuram og á Studioen. Dmker er fæddur og uppalinn í Stokkhólmi, en á rússneska móður Michael Druker: Við segjum eitt, viljum annað og gerum það þriðja. Myndin er tekin fyrír utan Borgarleikhúsið í Gautaborg. Það fyndna er að ekkert af verk- um mínum til þessa er sjálfsævi- sögulegt. í leikritinu „Vardags mm“, sem sýnt var í Borgarleik- húsinu í Stokkhólmi, lýsi ég dæmi- gerðri kjamafjölskyldu. Og fólk spyr Hvemig getprðu hitt svona vel í mark? Þú hlýtur að hafa lent í þessu sjálfur. Og faðir minn var spurður hvort honum hefði ekki bmgðið óþyrmilega. Foreldrar mínir skildu, ég ólst upp hjá móður minni, en hélt sambandi við föður minn. Ég á við að aðstæður mínar vom eins ólíkar þeim sem ég lýsi í leikritinu og hugsast getur. Og kannski einmitt þess vegna get ég verið jafn óhlutdrægur og ég er þegar ég lýsi Qölskyldunni svo markvisst." Hvar er þinn bmnnur? „Hér. Innra með mér finn ég all- ar mínar persónur. Ég hef þær í mér. í „Under tiden" em þijár per- sónur. Það er jafn mikð af mér í þeim öllum. Karen Homey hefði kunnað að meta þetta verk. Ein- hver merkasti sálkönnuður á þess- ari öld__ég er hrifinn af henni... jú, hún gerði grein fyrir þrem per- sónuleikum, sem byggju í hverri manneskju, þótt einn yrði yfirleitt ríkjandi. Þar er sá sem ræðst gegn einhveijum, sá sem gefur sig að einhveijum og sá sem dregur sig undan og einangrar sig. í leikritinu og pólskan föður. Hann er ófeiminn við að lýsa skoðunum sínum og láta í ljós brennandi áhuga á eigin verk- um. Þú færð blendna dóma. Hvemig virkar það á þig? „Ég hef oft fengið misjaftia dóma. Stundum fæ ég á tilfinning- una að þeir, sem ætlað er að skrifa um það sem ég geri, hafi ekki hug- mynd um hvað þeir eigi að skrifa. Það á kannski einkum við um gagn- rýnendur sem ekki em vel settir. Hafi gagmýnandi séð mikið, farið mikið og viða í leikhús, því meira, því hagstæðara fyrir mig. Auðvitað ógna ég mörgum. Bara með þvf að ijúka fram á sviðið 24 ára gamali sem ieikskáld, leikari og leikstjóri. Stráklingur með þvílíka trú á sjálf- um sér. Og biður ekki afsökunar. Þannig biýtur maður óskrífuð Iög.“ hveija skrifarðu? skrifa fyrir sjálfan mig og föður minn.“ Þögn. „Nei____en ég skrifa nú mest fyrir sjálfan mig. Það geri ég.“ En þörfin fyrir að ... „Jú, það er þörfín fyrir tjáskipti, að geta tjáð sig við aðra, gefa frá sér. Við lifum. Við emm ekki dauð. Ég er lifandi og það feiur í sér þörf fyrir útrás. Og í stað þess að kannski ijúka til og ráðast á eitt- hvað eða einhvem, bijóta eitthvað eða vera sjálfur niðurbrotinn af eig- in mótsögnum, þá hef ég getað stýrt þessarí þörf inn á ákveðna braut. Og ég er gæddur þeim hæfileikum að geta skrifað athyglisverð sam- töl. Mér fínnst fá leikskáld í Svfþjóð hafa einmitt þann hæfileika. Og það meina ég í fyllstu alvöra. Það er leitun að jafn „sláandi dialog". Og svo lengi sem ég skemmti mér við það sem ég er að gera þá held ég áfram. En það er mér mikils virði að áhorfendur, og þá ekki síst fólk sem ég þekki, geti notið þess sem ég geri.“ Eins og eigi að biðjast afsökunar í verki þínu „Under tiden“ (sem þýðir í rauninni hvort tveggja í Viðtal við Michael Druker, leikhúsmann og leikritahöf und á uppleið í Svíþjóð senn: á meðan og bak við tímann) fannst mér þér takast að lýsa dæmi- gerðum nútfmamanneskjum á mjög næman hátt. Hvert sækirðu eftiivið- inn? Ég lifi hér og nú. Það sem vakir fyrir mér er að segja frá og lýsa því sem gerist hér og nú. Ég er á móti þessum bölvuðum Shakespe- are-uppfærslum og öllum þessum „klassíkemm", sem verið er að leika. Svo hallar fólk undir flatt og segin Já, en það speglar nútímann alveg eins vel og... Ég er bara ekki á sama máli. Ég hef meiri áhuga á því sem gerist meðal fólks í dag. Því sem ég skrifa um og því sem aðrir ... ég vil frekar sjá leik- rit um tvo verkstæðisstráka á Volvó, þar sem eitthvað fer úrskeið- is, rökræða um hvemig sé hyggileg- ast að kippa draslinu í lag, heldur en um einhveija kónga sem fást við að höggva hausinn hver af öðr- um á 17. og 18. öld. Það er eins og eigi að biðjast afsökunar á þvf að maður lifir núna. Er uppi í dag. Málið sem talað var fyrir tveim þrem öldum er ekki það mál sem talað er í dag. Þá á að bjarga því með nýþýðingum, endurtúlkunum. Ég er þreyttur á þessu. Við eigum að leika ný verk. Það sem skrifað er í dag. Það er bara það sem spegl- ar okkar tíma. Okkar eigin raun- vemleika. Það sem við getum fund- ið okkur í, getur gefið þessa aha- tilfinningu, sem segir: Það em þá fleiri en ég sem eiga við þetta að stríða. koma þessir eiginleikar mjög skýrt fram. Það er Mollý sem dregur sig undan, Alexander gefur sig að henni, sækir á, og bróðirinn Jim ræðst gegn þeim. í leikverki með þrem persónum skapar þetta munstur athyglisverða hljóðfæra- skipan. Sjáðu til. Ég er lfka leikari og mér finnst bijálæðislega gaman að leika. Og ég hef það á tilfínning- unni að ef ég ætlaði mér eingöngu að fást við skriftir, þá myndi ég að sjálfsögðu stefna að því að skapa bókmenntir. En það er ekki mitt hjartans mál. Mitt hugðarefni er það sem gerist þegar leiktextinn liggur tilbúinn og leikarar og leik- stjóri hittast. Það er þá sem hug- myndimar byija að lifa og þær eiga eftir að vaxa. Þess vegna vil ég vera með í eigin verkum, annað- hvort sem leikari eða leikstjóri. Leiktextinn er bara gmnnurinn, en þá er eftir að byggja háhýsið. Sé gmnnurinn traustur á byggingin að geta staðið af sér öll veður, en sé hann ótraustur þá hrynur allt til gmnna.“ Finnst þér þú hafa það frelsi leik- hússins, sem þarf til að þroska leik- skáldahæfileika? „Nei, það finnst mér ekki. Það er enginn sem hefur sagt hér máttu vera og hér máttu gera það sem þú vilt gera. í Englandi em leik- skáld ráðin við leikhúsin f fimm ár gegn þvf að skrifa eitt verk á ári. Arangurinn er augljós. Þar finnurðu mesta breidd í leikhúsverkum og ekkert land á jafti marga höfunda sem leiknir era á alþjóðlegum vett- vangi. Einfaldlega vegna þess að þar er sú hefð að hlúa að höfund- um. Gefa þeim tækifæri, lfka til að mistakast. Hér er engin aðhlynning. Þú færð kannski endanlegt svar frá leikhúsinu ári eftir að verkið er sent inn. Við verðum að hlúa að hæfileikum. og það er enginn skort- ur á hæfileikafólki. Við eigum mörg leikskáld. Það sem skortir er stolt og sjálfsvirðing. Tilfinning fyrir því sem er sænskt, ekta og þar með einstakt. Virðing fyrir því sem við emm. Við biðjumst afsökunar!" Ég hef engu við að bæta en mikið að láta í ljós En Michael Dmker biður ekki afsökunar. Hann talar af ákafa og samkvæmt áherslum hans ætti að vera upphrópunarmerki á eftir ann- arri hverri setningu. Hann dregur heldur enga dul á eigin sveiflur, sem lýsa sér í því að eitt augnablikið langar hann til að fylgja eftir ein- hverri villtri hugmynd, sem gæti vakið athygli og nokkum mínútum síðar hallar hann sér aftur á bak í stólinn og segir „Núna langar mig til að deyja. Kannastu við tilfinning- una?“ Svo brosir hann svolítið, virð- ist vita ofur vel hvað hann vill í lffinu. Og það er auðfundið að hann ber virðingu fyrir fyrirrennuram sínum að fomu og nýju, þótt hann forðist að láta í ljós aðdáun sína á einu skáldi öðm fremur. Hann kink- ar kolli þegar ég nefni nútímaleik- skáld eins og Lars Norén, Botho Strauss og Sam Shepard. „Auðvitað finnst mér þeir góðir. En sjáðu til, ég glopraði þvf einu sinni út úr mér í viðtali að ég hefði nú lesið eitt- hvað eftir Beckett, að mér fyndist hann góður. Enn í dag er verið að líkja verkum mínum við verk eftir Beckett." Þetta er undarlegur tími? „Já. Núna? Geggjaður tími. Veistu hvað er venjulegasti sam- talsmátinn? Hvemig fólk fær sam- band? Gegnum dyrasíma og símsvara. Við biðjum hvort annars gegnum dyrasíma. Um þetta skrif- aði ég „Porttelefonen" fyrir ári. Tæknin hefur yfirhöndina. Fólk lok- ast meira og meira inni í eigin heimi. Þegar við náum ekki hvert til annars með bemm orðum, þá grípum við til tækjanna. í staðinn. Eitthvað með tökkum sem hægt er að ýta á. Svíþjóð er landið sem ég bý f. Ef ég ætti að bera fólkið hér saman við aðrar þjóðir, þá held ég að hvergi þar sem ég þekki til sé fólk jafn hrætt við að gera sig að fífli. Óttinn við hvað öðmm kunni að finnast. Hann er mikill. Og það sem maður botnar svo ekkert í er, að hversu andskoti jákvæður, vin- gjamlegur og hljóður þú ert, þá verða engu að síður til neikvæðar hugsanir um þig meðal fólks. Hversu gætinn og orðvar sem þú ert. Það skapast alltaf eitthvert „en“, hánn eða hún er aðeins of- eitthvað eða van-eitthvað. Og hér hefur fólk á einhvem hátt læst sig fast í að lifa samkvæmt því sem öðmm finnst. Það er ekki hægt. Það er ekki hægt að byggja lffið uppá þvf að halda kveikjunni niðri. Ég hef það. Þetta óbeislaða sem ég sakna hjá þessari þjóð. Ég hef það í verkum mfnum. í textanum og í leik mínum. Ég hef engu að leyna. Eða öllu heldun Ég hef engu við að bæta, en ég hef mjög mikið að láta í ljós. Og með því að láta í ljós, kemst maður næst því að bæta við.“ Þú hefur skrifað leikrit sem þú kailar „Ekki þvinga mig til þess sem ég vii; (Tvinga mig inte till det jag vill), sem nú er væntanlegt sem útvarpsleikrit. Um hvað fjallarðu þar? „Segir ekki titillinn allt?“ Ef til vill. Þögn. „Það er nokkurs konar farsi. Um pframfdasamfélag. Þar em tveir verkamenn sem bera eitthvað afar þungt. Sófa. Þeir eiga að bera hann suður til Þýskalands. Þeir hafa eng- an bfl ... ber’ann eftir E4. Þú veist... það tekur tíma. Þetta er pöntun. Geturðu ímyndað þér tvær manneskjur meira háðar hvor ann- arri...?“ Viðtalstíminn er úti og ég kveð Druker, enn með sófann fyrir mínum innri augum, á veginum, einhvers staðar á leiðinni til Þýska- lands og velti því fyrir mér hversu mikið skáldið kunni að láta sófann halda mönnunum niðri, miðað við hvað það lætur mennina halda sóf- anum uppi. TEXTI: Kristín Bjarnadóttir MYND: Sigfús Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.