Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 12
12 B
HtorgimMiiM* /ÍÞRÓTTtR ÞRWJUDAGUR 3. MAÍ 1988
PUIUKTAR
Honda Civic 3 dyra 1,4 lítra GL. Ekið á malbiki og möl við góðar
aðstæður bæði innan- og utanbæjar. Ökumaður ýmist einn í bflnum
eða með allt að þrjá farþega fullvaxna. Eknir um 250 kílómetrar.
V6I og kram
Vél er snörp á snúningi og vel seig á lágsnúningi. Ljúfgeng og lág-
vær, en urrar grimmilega á botngjöf.
Gírkassi er fimmgíra, hlutföll mjög góð.
Drif er að framan, hefur nær ófinnanleg áhrif á stýri.
Undirvagn
Stýri er án hjálparafls, nokkuð þungt í kyrrstöðu, framúrskarandi
gott á ferð. Engin merki um undir- eða yfirstýringu.
Fjöðrun er sjálfstæð á hveiju hjóli, nokkuð stinn fyrir bæjarsnattið,
en framúrskarandi góð í akstri og sýnir afgerandi yfirburði á vondum
vegum.
Öryggisbúnaður
Hemlar. Diskar að framan, kældir, skálar að aftan. Öflugir og ná-
kvæmir. Handbremsa mjög góð.
Belti eru góð, í öllum sætum.
Klæðning er stílhrein og lagleg. Allur bfllinn er klæddur að innan og
vel bólstraður í farþegaiými. Hvergi harðar brúnir.
Útsýni er mjög gott til allra átta, innispegill skyggir þó lítillega á
fyrir hávaxnari mönnum. Útispeglar eru góðir.
Ljós eru góð, bæði ökuljós og inniljós. Ljós er í farangursgeymslu.
Flauta lætur vita ef ökuljós eru á þegar ökumannsdyr eru opnaðar.
Boddýbygging gerir ráð fyrir að fram- og afturendar láti undan við
högg, en farþegarými er styrkt. Ýmsir hlutar burðargrindar (sem er
sambyggð boddýi) eru galvanhúðaðir beggja vegna gegn ryði og tær-
ingu. Innri og ytri bretii, hliðar, hurðir og vélarhlíf eru galvanhúðað-
ar öðrum megin.
Stjómtaskl
Rofar er vel staðsettir, en stilkrofar við stýri hafa þann galla, að það
þarf að snúa þeim. Sérstaklega bagalegt á þurrkurofanum.
Mælaborð er mjög gott og vel sýnilegt þótt snúa þurfi stýrinu lítillega.
Fótstig eru óaðfinnanleg.
Skiptir er nokkuð stirður í fyrsta og bak. Vel gengur að skipta að
öðru leyti. Handfang fer vel í hendi.
Þægindi
Rými er gott í framsætum, þröngt fyrir langa fætur ( aftursætum.
Gott höfúðrými.
Sæti eru góð, framsætin frábær.
Hljóðeinangrun er í góðu meðallagi, malarvegirnir komast vel til
skila með steinasmellum, vindhvinur er lítill, vélarhljóð getur orðið
hávært, ef snúið er knálega.
Miðstöð er öflug og blástur í allar áttir, þ. á m. upp á hliðarrúður.
Nokkuð hávær á efri stillingunum.
Innstig/útstig er helsti galli bflsins. Sætin eru lágt sett og erfitt að
setjast, enn erfiðara að rísa upp og ganga út. Hætta á að reka höfuðið
í. Erfitt fyrir fullorðna að komast i og úr aftursætum.
Farangursgeymslan er aðgengileg og rýmið vel nýtt.
Smámunageymslur eru margar, en heldur smáar.
Helstukostlr
Framúrskarandi aksturseiginleikar, gott vélarafl, sætin, gott útlit.
Helstu gallar
Innstig/útstig, stilkrofar, verðið.
Reynsluakstur / Honda Civic
Smár, knár og frár
Það er ekki nóg bara að komast til áfangastaðarins. Aðalatriðið er hvernig komist er þangað.
Hverjir hugsa svona? Kannast einhver við hugarfarið? Þegar Iffið er farið að verða léttara eftir
að þyngstu íbúðargreiðslurnar eru að baki. Þegar lífið er ekki enn orðið erfitt vegna íbúðarkau-
panna. Þá er kannski obbolftið til aukalega f buddunni og gamli góði fjölskyldubfllinn verður allt í
einu eitthvað svo ósköp venjulegur. Fellur alveg inn í ailan bflafjöldan á götunum og er óttalega
latur af stað. Er þetta ekki svipað eins og með hestamennskuna? Klárinn getur jú skilað sínu, en
það er alltaf eitthvað við gæðinginn. Það er gott að vita til þess, að hægt er að taka hann til
kostanna og svo er ósköp notalegt að hugsa til þess hve glæsilegur hann er. Menn sitja ekki hoknir
á gæðingi. Svona bfli er Honda Civic. Fyrir þá sem viija eitthvað meira. Við upplifðum einn um
daginn. Hann er auðvitað eins og aðrir gæðingar ekki gallalaus. En hann fellur enganveginn íflokk
með brúksbflum, hann hefur eitthvað meira. Samt til flestra hluta nytsamlegur.
Hagnýtur glæsileiki
BILAR
Þórhallur
Jósepsson
skrifar
Honda Civic 1,4 GL er augljóslega
af yngstu kynslóð bíla. í útliti er
hann ekki ýkja frábrugðinn fyrri
árgerðum, svipurinn sterkur og
leynir sér ekki.
Bíllinn sem við ók-
um er 3 dyra og af
þeirri gerð, sem á
ensku kallast
„hatchback" þótt
hann sé ekki með
hefðbundnu slíku lagi. Hann minnir
mun meira á venjulegan skutbíl þar
sem toppurinn heldur hæð sinni vel
aftur og hurðin aftaná er nálega
lóðrétt. Af þeim sökum er rúmt til
höfuðsins í aftursætunum og far-
angursrýmið nýtist vel. Og það
gefur bílnum laglegan svip, ekki
síst endapunkturinn á topplínunni,
vindskeiðin ofan afturgluggans.
Nýjasta tækni
Ef við virðum fyrir okkur útlínur
þessarar litlu Hondu, þá sjáum við
fljótt að hann er samsettur sam-
kvæmt nýjustu tísku í samsetning-
artækni. Það er e.t.v. rangnefni að
kalla það tísku. Þar liggur annað
og meira að baki. Hagkvæmni,
styrkur og öryggi koma við sögu í
ríkum mæli. Hagkvæmnin felst í
því, að samsetningarstaðir eru
færri, suðupunktar færri, þar af
leiðandi stærri einingar en áður
notaðar í burðargrind og boddýhlut-
um og samsetningin tekur styttri
tíma en fyrr. Hagkvæmnin liggur
einnig í því, að með þessum áð-
ferðum er hægt að hafa málmhluta
bflsins eftiisminni án þess að nokk-
uð tapist í styrk. Með færri sam-
setningarstöðum, háþróaðri tækni
í gerð burðarbita og hönnun þeirra
og með nýjustu ryð- og tæringar-
Klæðnlngln er nýtískuleg og góð, hvergi hvassar brúnir. Gott fótapláss er í framrýminu.
Morgunblaöið/Bjarni
vamaraðferðum fæst aukinn styrk-
ur og ending. Eins veitir þetta allt
meira öryggi, ef lukkan snýr baki
við ökumanninum og hann lendir í
umferðaróhappi. Þá kemur að auki
til sögunnar hönnun burðargrindar-
innar, sem veitir meira viðnám í
kring um farþegarýmið heldur en
til endanna, þar sem hún gefur
meira eftir við högg. Augljósasti
vottur hinnar nýju tækni í samsetn-
ingu Hondunnar er frágangur
glugganna. Rúðumar falla nær al-
veg slétt við gluggapóstana. Dregur
úr vindhvin og minnkar loftmót-
stöðuna. Að öðru leyti er Honda
Civic líka nánast eggsléttur á yfir-
borðinu, hvergi neitt sem fangar
óþarfa loft.
16 ventlar
Vélar hafa löngum verið aðalsmerki
Honda bíla. Snarpar og háþróaðar.
Þeir Hondamenn hafa verið manna
duglegastir við að hagrtýta þekk-
ingu og reynslu frá öðram gerðum
farartækja. Þar ber hæst mótor-
hjólin og í seinni tíð Formula 1
kappakstur. Reynsla Honda á þess-
um sviðum hefur skilað sér fljótt
og vel í vélasali almenningsbílanna
og Civic er engin undantekning.
Hann er fáanlegur með þrenns kon-
ar vélum, 1,2 lítra 75 hestafla, 1,4
lítra 90 hestafla og l,6i 130 hest-
afla. Allar era vélamar 16 ventla
og með yfirliggjandi kambásum.
Vélin í „okkar" bfl er 1,4 lítra með
ofanáliggjandi kambás og tveimur
blöndungum. Þetta segir auðvitað
ekki alla söguna um þessa ágætu
vél. Hönnun hennar má rekja í
mótorhjóladeildir og kappaksturs-
deildir Hondaverksmiðjanna, eink-
Helstu
staðreyndir
16 ventla vél
1.396 rúmsentimetra slagiými,
fjórir strokkar, sextán ventlar, einn
ofanáliggjandi kambás, tveir CV
blöndungar. Hestöfl 90 við 6.300
sn/mín., togkraftur 112 Nm við
4.500 sn/mín. Þjöppunarhlutfall
9,3:1.
Mál og stæröir
Þyngd....................855 kg
Mesta leyfileg þyngd..... 1.340 kg
Hæð undir lægsta punkt...160 mm
Gírkassi.....5 gíra beinskiptur
Drif að framan, hlutfall.4,250:1
Stýri hringir borð í borð.3,8
Beygjuradíus mælt við hjól.4,8 m
Tankur...................45 lítrar
Dekk...............165/70SR13