Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 13
HtorgnnMaMb /ÍÞRÓTTIR ÞRŒUUDAGUR 3. MAÍ 1988 B 13 Morgunblaðið/Bjarni Framúrskarandi aksturseiginleikar einkenna Honda Civic, en á slfkum veg- um fer að verða full lágt undir hann. um hvað varðar gerð sog- og út- blástursganga og brunahólfs. Vélin er þýðgeng og hljóðlát. Þar kemur reyndar aftur að því sem sagt var hér í upphafí um öðruvísi bíla. Hún er ekki alltaf hljóðlát rellan sú ama. Við getum nefnilega látið það heyr- ast að við ökum bíl sem fellur ekki allskostar inn í fjöldann. Á gjöfinni urrar hún næstum því eins og stórt mótorhjól. Öflugt og skemmtilegt hljóð og kemur bara þegar óskað er eftir því. Aflið er þokkalegt. Dugir vel til þarfa og má kreista út allgóða snerpu með lággíralát- um. Ef vill, þá má fá ein 40 hestöfl í viðbót - fyrir hundraðþúsundkall: l,6i. Nýmóðlns lclœðnlng Þegar við setjumst inn rekum við okkur á, í bókstaflegri merkingu, herkostnaðinn við glæsilegt útlit og rennilegar línur. Það þarf að gæta sín, að reka ekki höfuðið í dyrak- arminn, framrúðunni hallar svo vel aftur, að toppstykki ökumanns er í hnjaskhættu. Það er reyndar inn- og útstig sem helst getur dregið úr hrifningunni af þessum bíl. Það er erfítt, einkum fyrir fullvaxna, að komast í og úr aftursætum. I framsætin er betra að komast, en þau eru svo lág, að erfitt er að ganga um bílinn, einkum að fara út. Eftir að komið er inn, fer hins vegar mæta vel um bæði ökumann og framsætisfarþega. í aftursætum er þröngt fyrir langa fætur, en öll sæti bílsins eru afbragðs góð. Eink- um á það við um framsætin, þau er hreint frábær. Klæðningin er í heild ákaflega nýmóðins. Mjög stílhrein og lagleg, ekkert óþarfa prjál og þannig úr garði gerð að auðvelt er að þrífa hana. Innrétting- in hefur þó einn dæmigerðan galla, sem virðist fylgja öllum 3 dyra/5 dyra bílum: Hillan yfír farangurs- geymslunni skröltir og glamrar. Velnýttrýml Farangursgeymslan er dæmi um vel nýtt rými. Eins og fyrr var sagt er þaklínan há allt aftur undir stuð- ara og því nýtist hæðin einkar vel. 'Aftursætin eru tvískipt, þ.e. hægt er að leggja niður helming baksins í senn. Síðan er hægt að leggja sætin fram að fullu og fæst þá hið besta farangursrými. Eitt af því, sem gerir þetta kleift er hönnun fjaðrabúnaðar að aftan. Hjólunum er haldið með tvöföldum Y-örmum og þannig hægt að lækka gólfíð. Ennfremur er notað varadekk af minnisortinni, aumingi. Það er e.t.v. hvimleitt þegar komið er undir bílinn, en við það má lifa. Það er ekki svo oft sem punkterar á nútímabílum, reyndar hverfandi líkur á þvi ef ekið er á malbiki að mestu lejdi og passað upp á að vera ekki á óhóflega slitnum dekkj- um. Farangursgeymslan opnast niður undir stuðara í miðjunni. Hvimleitt er, að gaflinn skuli ekki allur hafa verið tekinn niður. Það er hægt, eins og sumir framleiðend- ur hafa þegar gert, sett ljósin í hurðina. Þannig er mun auðveldara að fara með stóra hluti, getur jafn- vel ráðið úrslitum um hvort hægt er að flytja þá. KlassafJöAnin Þegar kemur að ijöðruninni, vær véladeild Honda hættulega sam- keppni um titilinn séní verksmiðj- anna. Orðið fjöðrun er hér notað í víðtækustu merkingu, þ.e. allar hjó- laupphengjur, armar, §aðrir og hvaðeina sem hefur hlutverki að gegna í fjaðrabúnaðinum og hjólun- um til þess að halda bílnum stöðug- um á veginum. Allan hringinn eru hjólin hengd við bílinn með tvöföld- um Y-örmum. Sambyggðir gormar og demparar stjóma mýktinni, arm- amir stjóma hreyfíngunum. Þetta kerfí virkar í einu orði sagt frábær- lega. Því er þannig fyrir komið að aftan, að í miklum beygjum haldast hjólin í réttri stefnu. Við mikla fjöðrun breytist afstaða þeirra ekki heldur. Niðurstaðan er sú, að bíllinn er framúrskarandi stöðugur á vegi. Helst veikleiki bflsins í akstri kemur reyndar fjöðrunum lítið við. Hann er heist til lágur undir kviðinn fyrir malarvegina okkar. En holumar rennur hann yfír og hvikar ekki frá réttri leið þeirra vegfna. Ekki varð vart tilhneigingar til undir- eða yfír- Honda Civic GL 3 dyra Umboð á íslandi: Honda Verð kr. 633.800 Helsti búnaður X = innífaliö í veröi O = fáanlegur búnaður Hliðarlistar X Rafknúin sóllúga X Vindskeið aftan X Handvirkir útispeglar X Hjólkoþpar X Stiglaus hallastilling sæta X Fellanleg aftursæti X Snytispegill X Fjarstýrð opnun afturhurð- arogtankloks X Aflstýri O Stillanleg stýrishæð X Snúningshraðamælir X Klukka O Útvarp 0 Halogen ökuljós X Afturrúðuþurrka X Afturrúðuhitari X Morgunblaðið/Bjarni Þverstœð vólln er snörp á snúningnum. Hún er laus við að velta sér þótt tekið sé á. stýringar, bfllinn einfaldlega liggur eins og pönnukaka. Niðurstööur Vel má tína til sitthvað sem betur mætti fara í Honda Civic, en að okkar reynslu em þau atriði færri en í flestum öðmm bílum í þessum stærðarflokki. Helst er undan inn- og útstigi að kvarta, en svo má einnig kveinka sér undan verðinu. 633 þúsund plús 21 þúsund í ryð- vöm og skráningu fínnst okkur vera í hærri kantinum, en - eins og sagt var hér í upphafí - ef við viljum eitthvað meira, þá verðum við að borga eitthvað meira, ekki satt? Honda Civic er á heildina litið afskaplega skemmtilegur bíll. Akst- urseiginleikar frábærir, hönnun og samsetning eftir nýjustu tækni, út- lit að okkar dómi bráðlaglegt. Civic er sérlega unglegur bíll, kannski þess vegna sem hann vekur hvar- vetna lukku. Hann er bíll unglinga á öllum aldri. Honda Clvlc QL. Morgunblaðið/Bjami

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.