Morgunblaðið - 09.06.1988, Page 4
4 B
MÓRGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AIVINNUlÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
véla í stað DC-8-63 flugvélanna,
sem þjónað hafa félaginu vel og
dyggilega síðustu 16 árin. Hann
segir að ákvörðun í þessu efni komi
upp á sama tíma og unnið er að
endurskoðun á stefnumörkun fé-
lagsins varðandi N-Atlantshafið. Á
þeim markaði hefur rekstrarum-
hverfið gjörbreyst á síðustu 5 árum,
þannig að nú er ljóst að fjöldaflutn-
ingur farþegar milli Luxemborgar
og Bandaríkjanna með millilending-
um á íslandi, og á lægstu fargjöld-
um, er ekki lengur samkeppnisfær
við bein flug annarra alþjóðlegra
flugfélaga milli fjölda áfangastaða
vestan hafs og austan.
Leifur segir hins vegar eins ljóst
að Flugleiðir muni áfram sinna
hefðbundnum flugflutningum milli
Bandaríkjanna og íslands, svo og
milli Luxemborgar og íslands.
Einnig verði sinnt að vissu marki
flutningi farþega milli Banda-
ríkjanna og Norðurlanda en þá yfír-
leitt skipt um flugvél á Keflavíkur-
flugvelli. Leifur bendir þó á að
minnkandi vægi fjöldaflutninga
milli Luxemborgar og Banda-
ríkjanna hafi óhjákvæmilega afger-
andi áhrif á ákvarðanir félagsins
um heppilegustu stærð flugvélar til
þessa verkefnis. „Ef slík vél er of
stór, verður vikuleg ferðatíðni með
öllu óviðunandi, og því hefur at-
hygli Flugleiða í vaxandi mæli
beinst að Boeing 757 flugvélum,
sem gætu boðið upp á 200 til 210
farþegasæti," segir Leifur.
Mikil þróun hefur átt sér stað í
hönnun farþegaflugvéla síðustu ár-
in, ekki síst með tilliti til rekstrar-
hagkvæmni ásamt bættu öryggi og
minni hávaða. Gömlu DC-8-63 vélar
Flugleiða eru t.d. fjögurra hreyfla
og B727 vélarnar eru með þijá
hreyfla. í flugáhöfn véla af þessari
gerð eru jafnan tveir flugmenn og
einn flugvélstjóri. Allar nýjar þotur
á stærðarbilinu 100-300 sæti eru
hins vegar 2ja hreyfla og með ein-
ungis tvo flugmenn í áhöfn. Leifur
segir einnig, að á undanförnum
árum hafi verið gerðar veigamiklar
breytingar á rekstrarreglum slíkra
flugvéla, sem fela m.a. í sér að
sumum þessara flugvélagerða er
nú heimilt flug yfir úthafssvæðum
í fjarlægð samsvarandi allt að 135
mínútna flugi frá nothæfum vara-
flugvelli. Á vegum bandarísku flug-
málastjórnarinnar er síðan unnið
að frekari þróun þessara reglna,
sem getur leyft flug í fjarlægð sem
Flugmál
Hvers vesma völdu
Flugleiðir Boeing 757?
Leifur Magnússon, framkvæmdastjóri, svarar því og segir frá þessari flugvéla-
gerð sem er skyndilega orðin ein eftirsóttasta vél Boeing-verksmiðjanna
ÞÓTT Flugleiðir hafi nú fest sér
tvær Boeing 757 þotur í N-Atl-
antshafsflugið árið 1990 og
kauprétt að þriðju þotunni ár
siðar, þá eru kaupin ekki í höfn.
Eftir er að sjá fyrir endann á
þvi gífurlega fjármögnunar-
dæmi sem hér er á ferðinni. Teyi
forsvarsmenn félagsins sér ekki
fært að ráða fram úr því við
núverandi kringumstæður, hafa
þeir þó engu að tapa. Stóraukin
eftirspurn og stórpantanir öflug-
ra erlendra flugvélaga á Boeing
757 gerir það að verkum að for-
svarsmenn Flugleiða munu vafa-
laust geta verslað með af-
greiðslusæti félagsins hjá verk-
smiðjunum, farið þá aftar í af-
greiðsluröðina eða skoðað aðra
kosti, enda þótt erfitt sé að sjá
að á markaðinum sé önnur flug-
vélagerð sem henti félaginu bet-
ur miðað við nýja stefnumörkun
Flugleiða í N-Atlantshafsfluginu.
Hafa verður þó í huga að Flug-
leiðir standa þegar í gífurlegri fjár-
festingu flugflotans fyrir Evrópu-
flug félagsins, en í júní í fyrra,
þegar 50 ár voru liðin frá stofnun
Flugfélags Akureyrar, fyrirrennar
Flugfélags íslands og þar með Flug-
leiða, var gengið frá samningum
við Boeing-verksmiðjurnar um kaup
á tveimur 737-400 þotum, sem
verða afhentar félaginu í maí á
næsta ári. Jafnframt hefur félagið
tryggt sér kaupréttinn að tveimur
öðrum þotum af sömu gerð.
Boeing 737-400 vélarnar verða
með 156 sæti og er ætlað að sinna
áætlunar- og leiguflugi Flugleiða á
Evrópuleiðum, sem nú er þjónað
af Boeing 727. Þessar vélar full-
*
STJ
iRNUN — Á myndinni má sjá tölvuvæddan stjórnklefa B757 flugvélar. Flugleiðir hafa fest kaup
á tveimur Boeing 757 vélum til afgreiðslu 1990 og kaupréttinn að þeirri þriðju ári síðar, en þó er ekki þar
með sagt að kaupsamningurinn sé í höfn.
nægja þeim ströngu hávaðakröfum
sem taka munu gildi 1992 og eru
búnar nýjum CFM56 hreyflum, sem
geta geflð allt að 40% lækkun elds-
neytiskostnaðar miðað við núver-
andi flugvélar.
Nýviðhorf
k-
Boeing 737 þotumar hafá hins
vegar ekki nægilegt flugdrægi til
flugs á flugleiðum Flugleiða til
Bandaríkjanna né heldur á lengstu
leiguflugsleiðum, eins og til Kana-
ríeyja. Að sögn Leifs Magnússonár,
framkvæmdastjóra flugrekstrar-
sviðs Flugleiða, hafa Flugleiðir nú
um nokkurt árabil haft til athugun-
ar ýmsa valkosti í öflun nýrra flug-
Eigendur og útgefendur
skuidabréfa
Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir góðum
skuldabréfum í umboðssölu.
Helstu skuldabréf f sölu hiá
Verðbréfaviðskiptum
Samvinnubankans
Ný spariskírteini 7 2-8 5% ávöxtun umfram verðbólgu
Eldri spariskírteini 8,5-8,8% ávöxtun umfram verðbólgu
Veðdeild Samvinnubankans 10,0% ávöxtun umfram verðbólgu
Samvinnusjóður íslands hf.* 10,5% ávöxtun umfram verðbólgu
Lind hf.* 11.5% ávöxtun umfram verðbólgu
Glitnir hf. I 1,0% ávöxtun umfram verðbólgu
Önnur örugg skuldabrcf 9,5-12,0% ávöxtun umfram verðbólgu
Fasteignatryggð skuldabréf 12-15,0% ávöxtun umfram verðbólgu
* Með endursöluábyrgð Samvinnubanka
• Við innleysum spariskírteini ríkissjóðs
íslands hf.
fyrir viðskiptavini okkar
Nánari upplýsingar í Bankastræti 7, Reykjavík, 3. hæð,
® 91 - 20700
w
UERÐBREFflurasKiPTi fjármál eru
samvinnúbankans okkar fag
GSFÍ
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
ICELANDIC ASSOCIATION FOR QUALITY
Félagsfundur í Gæðastjórnunarfélagi íslands
undir kjörorðunum:
Gæði á markaðnum.
Að mæta þörfum viðskiptavina.
Fundurinn verður haldinn á Holiday Inn þriðju-
daginn 14. júní og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
Gæðastjórnun og gæðatrygging til verndar við-
skiptavininum:
Guðmundur Benediktsson,
markaðsstjóri og
Einar Einarsson,
verkfræðingur hjá BM Vallá hf.
Viðurkenning á gæðakerfum, byggð á úttekt
þriðja aðila. - Breytingar m.t.t. staðla um gæða-
kerfi og sameiginlegs innri markaðar í Evrópu:
Vilhjálmur Guðlaugsson,
Ríkismati sjávarafurða.
Fundurinn er öllum opinn og er félögum bent
á að taka með sér gesti.
Aðalfundur verður haldinn í framhaldi af félags-
fundinum og hefst kl. 16.00.