Morgunblaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
B 7
Fólk í atvinnulífinu
Nýir útibússtjórar
Iðnaðarbankans
RÁÐNIR hafa verið tveir nýir
útibússtjórar hjá Iðnaðarbankan-
um.
Jafet Ólafsson hefur verið ráð-
inn útibússtjóri Lækjargötuútibús-
ins. Jafet er viðskiptafræðingur að
mennt. Hann starfaði sem deildar-
stjóri í Iðnaðarráðuneytinu 1977-84
en síðan sem forstöðumaður Fata-
deildar Sambandsins til 1986. Nú
síðast starfaði Jafet hjá Þróunarfé-
lagi íslands hf. Jafet er kvæntur
Hildi Hermóðsdóttur, bókmennta-
fræðing. Jafet mun hefja störf hinn
1. október nk.
Þá hefur Sigríður Blöndal verið
ráðin útibússtjóri Iðnaðarbankans í
Breiðholti. Sigríður hefur þegar
tekið við starfinu.
Sigríður hóf störf í Iðnaðarbankan-
um í Laugamesi árið 1979, en árið
1982 tók hún við stöðu skifstofu-
stjóra í Breiðholtsútibúi.
Sigríður er gift Sverri Kristins-
syni sendibifreiðastjóra og eiga þau
þijú börn.
Nýr framkvæmdastjóri
Steinullarverksmiðjunnar
Framkvæmdastjóraskipti verða
hjá Steinullarverksmiðjunni hf. á
Sauðarárkróki 1. september nk., en
þá tekur Einar Einarsson við
starfínu af Þórði H. Hilmarssyni,
en Þórður tekur við starfi forstjóra
hjá Glóbus hf. í Reykjavík frá sama
tíma.
Einar Einarsson er fæddur á
Blönduósi 30. des. 1952. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri árið 1972 og prófi í
véltæknifræði frá Tækniskólanum
í Óðinsvéum í Danmörku 1979.
Hann starfaði sem tæknifræðingur
hjá Landssmiðjunni og ÍSAL, þar
til hann réðst sem framleiðslustjóri
Steinullarverksmiðjunnar 1984.
Einar er kvæntur Hrefnu Gunn-
arsdóttur og eiga þau þijú börn.
Breytingar hjá Teppalandi
Skipulagsbreytingar hafa orðið
hjá Víði Finnbogasyni hf — Teppal-
andi/Dúkalandi í framhaldi af því
að framkvæmdastjóri fyrirtækisins
lét af störfum. Ifyrirtækinu hefur
nú verið skipt upp í tvö svið —
markaðssvið og fjármálasvið og
með sinn framkvæmdastjórann
hvort svið.
Framkvæmdastjóri markaðs-
sviðsins er nú Skafti Harðarson.
Skafti er 31 árs að aldri og hefur
starfað sem markaðsstjóri fyrirtæk-
isins frá 1986.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Jafet Sigríður
Snorri Sigurður
er nú Stella K. Víðisdóttir. Hún
útskrifaðist úr viðskiptadeild Há-
skóla íslands árið 1986 og hefur
starfað sem fjármálastjóri fyrirtæk-
isins síðan.
Skipulagsbreytingar hjá
Verslunardeild SÍS
Nýtt skipurit hefur tekið gildi
hjá Verslunardeild Sambandsins og
byggist það á eftirfarandi deilda-
skiptingu: aðaldeild, undirdeildir og
ördeildir. Starfsheiti þessara deilda
eru framkvæmdastjóri, forstöðu-
maður og deildarstjóri. Markmiðið
með þessu nýja skipulagi er að
verkaskipting, vald og ábyrgð sé
Einar Skafti
Viðar Hafsteinn
vel skilgreint, hlutaverkaskipan og
stefnumið einstakra rekstardeilda
séu ótvíræð og að ýtrustu sérhæf-
ingu verði náð á öllum sviðum,
ásamt að efla frumkvæði og
ábyrgðarvitund starfsmanna.
Framkvæmdastjóri Verslunar-
deildar er Ólafur Friðriksson, að-
stoðarframkvæmdastjóri er Snorri
Egilson, markaðsstjóri Sigurður
Jónsson og skrifstofustjóri Viðar
Þorsteinsson. Undir skrifstofu-
stjóra heyra hagsýsla, tölvudeild og
þjónusta.
Undirdeildimar eru fimm, þ.e.
Matvörudeild, Sérvörudeild, Bygg-
ingavörudeild, Verslunarþjnousta
Stella Ólafur
ES
Gunnar Guðmundur
Ingi
og Birgðastöð. Forstöðumenn
þriggja þessara undirdeilda hafa
þegar verið ráðnir, en það eru Haf-
steinn Eiríksson , sem er forstöðu-
maður Matvörudeildar, Gunnar
Kjartansson forstöðumaður Sér-
vörudeildar og Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson forstöðumaður
Byggingavörudeildar.
Ördeildir Matvömdeildar eru
fjórar, níu ördeildir tilheyra Sér-
vörudeild, tvær Byggingavörudeild,
tvær Verslunarþjónustu og tvær
tilheyra Birgðastöð.
Hjá Verslunardeild sambandsins
starfa 256 manns.
Utanaðkomandi forsijórí
í fjölskyldufyrirtæki
Þórður Hilmarsson tekur við Globus 1. september og hverf-
ur frá Steinullarverksmiðjunni
MEÐ nýju stjórnskipulagi hjá Globus, sem taka mun gildi frá og
með 1. september nk, hefur Þórður Hilmarsson verið ráðinn for-
stjóri fyrirtækisins. Hann lætur af störfum sem framkvæmdastjóri
Steinullarverksmiðjunnar frá sama tíma. Þórður Hilmarsson er hins
vegar ekki ókunngur Globus þar sem hann hefur mörg undanfarin
ár unnið ráðgjafarstörf fyrir fyrirtækið.
Globus hefur verið í örum vexti
undanfarin ár. Starfsmannafjöldinn
hefur tvöfaldast á síðustu 5 árum
og á síðasta ári bættust við 10
stöðugildi, þegar fyrirtækið yfírtók
Saab-umtíoðið. Á sama tíma hefur
veltan aukist úr 100 milljónum í
liðlega 600 milljónir nú. Eiginfjár-
staðan hefur styrkst jafnt og þétt
og er nú milli 50-60%, að því er
kemur fram í frétt frá fyrirtækinu.
Framkvæmdastjórar hjá fyrirtæk-
inu eru eftir sem áður tveir, þeir
Gestur Árnason, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs, og Börkur Ámason,
framkvæmdastjóri markaðs- og
sölusviðs, en stjómarformaður er
Ami Gestsson.
Stórt skref
„Það eru aukin umsvif sem hafa
kallað á þessa breytingu á stjóm-
skipulagi fyrirtækisins," sagði Árni
Gestsson í Globus í samtali við
Morgunblaðið af þessu tilefni. „Það
var þó fyrst og fremst eftir að Sa-
ab- umboðið kom hér inn í mynd-
ina, að ég gerði mér að fullu grein
fyrir því að breytinga var þörf og
fór þá að líta í kringum mig eftir
heppilegum manni til að leiða fyrir-
tækið inn í framtíðina. Ég staldraði
þá fljótlega við Þórð Hilmarsson,
bæði vegna þess að ég hef fylgst
með honum í mörg ár og vegna
þess að þegar hann starfaði hjá
Hagvangi á sínum tíma, höfðum
við leitað til hans sem rekstrarráð-
gjafa. Ég vissi því að hann var
mörgum innviðum fyrirtækisins
nokkuð vel kunnur."
Þeir Ámi og Þórður Hilmarsson
segja að ráðningin eigi sér um
tveggja mánaða aðdraganda. „Ég
dreg enga dul á það að fyrir mig
er þetta talsvert stórt skref, því að
Globus er fjölskyldufyrirtæki en nú
er ráðinn yfir það algjörlega utan-
aðkomandi maður," segir Ami enn-
fremur. „En ég er sannfærður um
að þetta er krafa tímans og held
að augu forsvarsmanna fjölskyldu-
fyrirtækja séu almennt mjög að
opnast fyrir nauðsyn þess að á
ákveðnum tímamótum í sögu fjöl-
skyldufyrirtækja er affarasælast að
leita út fyrir fjölskylduna eftir
stjómanda sem hefur kaldara og
hlutlægara mat á framtíðarmögu-
leikum þess. Saga íslenskra fjöl-
skyldufyrirtækja sýnir líka einmitt
að þegar stofnandinn hefur ekki
lengur nógu stóran faðm til að
umlykja allt sem vex innan veggja
fyrirtækisins, hafa hlutirnir viljað
fara úrskeiðis og mörgum slíkum
fyritækjum hefur gengið illa að
tryggja sér framhaldslíf. Við viljum
koma í veg fyrir að slíkt gerist hér
hjá Globus.“
Öflugt fyrirtæki
Þórður Hilmarsson segir, að það
hafí að sama skapi verið að mörgu
leyti erfið ákvörðun fyrir hann að
taka þetta skref nú. „Ég er nú
búinn að starfa hjá Steinullarverk-
smiðjunni í tæplega tvö og hálft
ár, og það var margt að skoða í
þessu dæmi. Fjölskyldunni hefur
líkað vel á Króknum og við gátum
þess vegna vel hugsað okkur að
ílendast þar. Á hinn bóginn kom
hér upp fangið viðfangsefni sem
vissulega er mjög spennandi að ta-
kast á við. Að ýmsu leyti var þetta
líka mjög heppilegur tími til breyt-
inga. Starfsemi Steinullarverk-
smiðjunnar er nú í góðu jafnvægi
og þau viðfangsefni sem ég hef þar
aðallega haft með höndum, komin
í nokkuð fast og gott horf. Fram-
undan var því óhjákvæmilega viss
áherslubreyting hvað varðar mitt
verksvið innan fyrirtækisins. En ég
var þó ekki tilbúinn að stökkva fyrr
en ljóst var að í starf mitt fengist
ákaflega hæfur maður sem ég ber
fyllsta traust til — Einar Einasson,
sem verið hefur framleiðslustjóri
Steinullarverksmiðjunnar," segir
Þórður.
STJORNENDUR — Á myndinni sjást núverandi stjómendur
Globus, þeir Börkur Ámason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs, Þórður Hilmarsson, nýráðinn forstjóri, Ámi Gestsson, stjórnar-
formaður, og Gestur Ámason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Þórður segir einnig að hann hafí
þegar verið orðinn all hagvanur hjá
Globus, þar sem hann hafí unnið
fyrir fyritækið af og til undanfarin
tíu ár sem ráðgjafí þess. „Ég tel
mig þekkja allvel þá möguleika sem
fólgnir eru í rekstrinum til ýmissa
átta og ég horfi til þess með eftir-
væntingu að takast á við þau verk-
efni sem þarna bíða með þeim lykil-
mönnum fyrirtækisins sem fyrir
eru. Globus er áreiðanlega með
öfíugustu innflutningsfyrirtækjum
hér á landi. Það er eitt af einkenn-
um fyrirtækisins, og einn helsti
styrkleiki þess, hversu fjölbreytileg-
ur rekstur þess er, og á sama tíma
eiga þessir rekstrarþættir þó mjög
vel saman. Þetta gerir fyrirtækið
sveigjanlegra og betur til þess fallið
að takast á við bæði samdráttar-
skeið og þenslutíma í þjóðfélaginu.
Að auki er eiginfjárstaða fyrirtæk-
ins óvenju sterk og það telst því
vafalaust meðal traustustu fyrir-
tækjum hér á landi.“
Þóður segir of snemmt að segja
til um það hvort menn muni merkja
einhveijar breytingar á Globus sam-
fara því að hann tekur þar við
stjómartaumum. Ámi upplýti að
nú sé að baki mikil endurskipulagn-
ing á húsnæði fyrirtækisins í Lágm-
úla sem kunni að hafa í för með
sér einhveijar breytingar á rekstri
og leiða til aukinnar hagræðingar.
Globus keypti fyrir þremur ámm
1600 ferm. bakhús að Lágmúla 7
sem áður var Húsgagnaverksmiðja
Kristjáns Siggeirssonar og hefur
þetta húsnæði nú verið tengt bak-
húsa Lágmúla 5 sem Globus átti
fyrir. „Segja má að nú sé vel fyrir
komið og á sama gólfi viðgerðar-
og varahlutaþjónustu fyrir Citroen
og Saab-bílana, svo og þær dráttar-
vélar og önnur tæki sem Globus
flytur inn. Þegar öllu því raski er
lokið sem samfara er þessum miklu
breytingum á húsnaeðinum, von-
umst við i Globus til að geta gefið
viðskiptavinum fyrirtækisins betri
þjónustu en áður var,“ segir Ámi
Gestsson.